Skessuhorn - 27.04.2022, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202226
Sveitarstjórnarkosningar eru
framundan og eitt eiga öll fram-
boð sameiginlegt, sem tefla fram
framboðslista hér í Borgarbyggð,
að vilja gera samfélagið okkar
góða enn betra. Það er mér hjart-
ans mál að hér hlúum við að samfé-
laginu okkar á þann hátt að einstak-
lingum líði vel og að hér vilji fólk
búa. Borgarbyggð er fallegt og vel
staðsett sveitarfélag sem býr yfir
mörgum kostum. Náttúrufegurð,
mannauðurinn og fjarlægðin, já eða
nálægðin við höfuðborgina, eru allt
mikilvægir þættir í því að hér líður
fólki vel. Það er þó alltaf rými til að
gera gott betra og erum við fram-
bjóðendur D listans í Borgarbyggð
með fjölbreyttar leiðir í stefnuskrá
okkar til þess að gera gott samfélag
enn betra.
Ungmennahús og
heimavist við MB
Velferðarmál, heilsuefling og skóla-
mál eru þau málefni sem ég brenn
helst fyrir og er það helst vegna
áhuga míns á þeim og þar liggur
menntun mín og reynsla. Grunn-
skólagönguna kláraði ég í Borgar-
nesi og þaðan lá leiðin í Mennta-
skóla Borgarfjarðar sem var þá að
hefja sitt annað starfsár. Mennta-
skóli Borgarfjarðar er afar mikilvæg
stofnun í Borgarbyggð og þurfum
við að styðja áfram við þá starfsemi
eins og kostur er. Sjálfstæðisflokk-
urinn leggur meðal annars fram í
stefnuskrá sinni að styðja við upp-
byggingu heimavistar við MB. Það
er tilraunarinnar virði að sjá hvaða
áhrif heimavist myndi hafa á aðsókn
í MB og hvort skólabragurinn
myndi mögulega eflast enn frekar.
Í takt við þetta vill Sjálfstæðis-
flokkurinn að ungmenni hafi sama-
stað í frítíma sínum og leggur því
til að stofnað verði ungmennahús
að nýju. Heilsuefling þarf nefni-
lega að taka til margar þátta, t.a.m.
félagslegra-, tilfinningalegra- og
líkamlegra þátta og því má félags-
líf ekki gleymast þegar við einblín-
um á heilsusamlegt líferni og vilj-
um hvetja íbúa samfélagsins til að
efla sína heilsu.
Eftir útskrift úr MB lá leið mín
á Laugarvatn þar sem ég kláraði
BS gráðu í íþrótta- og heilsufræði
og hef í framhaldi af því þjálfað
hina ýmsu hópa og einstaklinga í
Borgar byggð og víðar.
Fjölgum búsetukostum
fyrir aldraða og hugum
að heilsueflingu
Það var þó alltaf draumur að verða
hjúkrunarfræðingur sem varð að
veruleika sumarið 2021 þegar ég
útskrifaðist frá Háskólanum á
Akureyri. Það var sannarlega dýr-
mætt að geta búið í Borgar nesi
ásamt fjölskyldu minni og stund-
að nám í HA. Í dag starfa ég sem
hjúkrunarfræðingur á Brákarhlíð
og kenni einnig áfangann heil-
brigðisfræði við Menntaskóla Borg-
arfjarðar. Það er ólýsanlega gefandi
starf að vinna með öldruðum en
sá hópur gefur manni svo sannar-
lega aðra og víðari sýn á lífið. Það
er skylda okkar sem yngri erum að
hlúa vel að þessum aldurshópi sem
fer sífellt stækkandi í samfélaginu.
Það þarf að fjölga búsetu kostum
fyrir aldraða og leggur Sjálfstæð-
isflokkurinn það til í stefnuskrá
sinni. Eldri aldurshópar eru gríðar-
lega fjölbreyttur hópur með mis-
munandi þarfir, það þarf bæði að
huga að bættri heilsueflingu fyrir
eldri aldurshópa og eins að þrýsta
á að heimahjúkrun verði veitt alla
daga svo að einstaklingar geti búið
lengur heima því það er jú það sem
flestir vilja meðan heilsa og geta til
líkamlegra athafna er til staðar.
Eflum snemmtæka
íhlutun og styðjum við
íþróttir
En úr eldri aldurshópum og að
börnunum okkar. Fyrir mig sem
móður skiptir það mig miklu máli
að hér í Borgarbyggð sé hlúð vel að
heilsu barnanna okkar og tækifær-
um þeirra til náms og tómstunda.
Hér er öflugt og gott skólastarf á
öllum menntastigum en einnig er
það hagur okkar allra að snemmtæk
íhlutun verði efld, sem dæmi með
talmeinafræðingum og sálfræðing-
um. Það er staðreynd að íþróttir
og tómstundir eru okkar öflugasta
forvörn og því er mikilvægt að hér
sé fjölbreytt úrval af tómstundum
svo að allir geti fundið eitthvað við
sitt hæfi. Það eru spennandi tím-
ar framundan hvað varðar stækk-
un á íþróttahúsinu í Borgarnesi og
þá getur vonandi pláss myndast fyr-
ir fjölbreyttari hreyfingu í takt við
bætta aðstöðu fyrir þær íþróttir sem
fyrir eru. Það er einlæg ósk mín að
hér vilji fólk búa vegna þess að hér
sé vel staðið að íþróttum og tóm-
stundum fyrir börn en þetta eru
hlutir sem fólk kynnir sér vel áður
en búseta er valin. Sjálfstæðisflokk-
urinn vill leggja meiri áherslu á í
verki að Borgarbyggð er aðili að
verkefninu heilsueflandi samfélag
og með bættri aðstöðu og auknum
stuðningi getum við svo sannarlega
gert enn betur hvað það mikilvæga
verkefni varðar.
Það eru spennandi
tímar framundan
Kæri lesandi; hér að ofan hef ég
rakið helstu hugðarefni mín sem ég
tel skipta máli í góðu samfélagi. Ég
hef metnað til að láta gott af mér
leiða bæði í mínum daglegu störf-
um og nú býð ég fram krafta mína
og þekkingu til að setjast í sveitar-
stjórn Borgarbyggðar. Ég hvet alla
íbúa Borgarbyggðar sem náð hafa
aldri til þess að taka þátt í kosn-
ingunum 14. maí nk. það er réttur
okkar sem höfum náð 18 ára aldri
og þannig getum við öll haft áhrif
á það hverjir setjast í sveitarstjórn.
Það eru spennandi tímar framund-
an í Borgarbyggð, mig langar til að
hafa áhrif á það hvernig mál þróast
og því óska ég eftir þínum stuðn-
ingi við D listann í Borgarbyggð.
Búið er að stilla upp samstilltri liðs-
heild reynslumikils fólks og okk-
ar sem erum að koma ný að borði,
saman getum við meira, ég, þú og
öll Borgarbyggð sem gengur von-
andi í takt á komandi kjörtímabili.
Jóhanna Marín Björnsdóttir.
Höf. er í 3. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Borgarbyggð
Pennagrein
Pennagrein
Velferð í forgangi í öflugri Borgarbyggð
Eftir efnahagshrunið haustið 2008
hrundi fjárhagur Borgarbyggð-
ar eins og víða annars staðar og
árið 2010 var sveitarfélagið eitt tíu
sveitarfélaga sem komu til skoðun-
ar hjá Eftirlitsnefnd með fjármál-
um sveitarfélaga. Í kjölfar erfið-
leika í rekstri Borgarbyggðar árin
2013 og 2014 var ákveðið að leggj-
ast í töluverða vinnu til að rétta af
fjárhaginn en því skyni var ákveðið
að fara í verkefnið „Brúin til fram-
tíðar“ sem er samstarfsverkefni
Borgar byggðar og KPMG. Geng-
ur það í mjög grófum dráttum út
á að sett eru fjárhagsleg markmið
og kortlagt hvaða áhrif þau hafa á
reksturinn samhliða fjárhagsáætl-
unargerð, semsagt einskonar mæla-
borð sett upp til að vinna eftir.
Í upphafi var aðeins lagt upp með
að finna heildstæða lausn svo Borg-
arbyggð gæti uppfyllt viðmið Eftir-
litsnefndarinnar. Þegar þeim lág-
markskröfum var náð urðu mark-
miðin metnaðarfyllri þar til sú
staða var komin upp árið 2019 að
sveitarfélagið stóð mjög vel fjár-
hagslega. Það má segja að veruleg-
ur viðsnúningur hafi orðið á síð-
ustu árum í fjárhagsstöðu Borgar-
byggðar en ef bornar eru saman
tölur frá greiningardeild Arion
banka árið 2013 og svo aftur árið
2019 sést það mjög skýrt. Árið
2013 var Borgarbyggð með alls 15
veikleikamerki samkvæmt viðmið-
um greiningardeildarinnar en árið
2019 var sveitarfélagið metið fjár-
hagslega sterkt og aðeins með eitt
veikleikamerki sem snéri að of litl-
um fjárfestingum, þeim „veikleika“
hefur aldeilis verið brugðist við og
bætt úr síðan.
Bættur fjárhagur kallar
á annars konar markmið
Eftir árið 2019 hefur orðið ákveðin
stefnubreyting varðandi fjármál og
fjárfestingar en breyttar fjárhags-
legar aðstæður gáfu tækifæri til
breyttrar nálgunar og annars kon-
ar markmiðasetningar í „Brúnni
til framtíðar“. Ljóst er að húsnæði
sveitarfélagsins fór ekki varhluta
af þessum fjárhagsvandræðum
sem sveitarfélagið gekk í gegn-
um á framangreindu tímabili en á
því kjörtímabili sem er að klárast
kom í ljós að víða var ástand hús-
næðis orðið mjög slæmt þ.e. mikil
viðhaldsþörf hafði skapast og sums-
staðar kom í ljós, því miður, raki og
mygla. Því hefur þurft að bregðast
við af festu.
Lögð hefur verið mikil áhersla
á uppbyggingu m.a. á bæði leik-
og grunnskólahúsnæði síðustu ár
en einnig farið í fjárfestingar m.a.
á nýju ráðhúsi. Viðbygging við
Grunnskólann í Borgarnesi á loka-
metrunum og bygging leikskól-
ans Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykj-
um er lokið. Var farið í fjárfestingu
á nýju ráðhúsi vegna þess að ljóst
var að ráðast þurfti í kosnaðarsam-
ar viðgerðir á eldra húsnæði vegna
m.a. rakavandamála, nýja húsnæð-
ið hentaði starfsemi stjónsýslunn-
ar mun betur og það fékkst á góðu
verði. Vegna alls framanrakins
þurfti að grípa þegar í stað til ráð-
stafana og urðu því útgjöld vegna
ársins 2021 nokkuð meiri en gert
var ráð fyrir í upphaflegri áætlun og
en gert var við árslok 2021 ráð fyrir
halla á sveitarsjóð upp á 22 milljón-
ir króna að teknu tilliti til viðauka.
Rekstur A og B hluta
sveitarsjóðs enn að
styrkjast
Rekstrarniðurstaða ársins 2021
varð neikvæð um 90 milljónir
króna en sú niðurstaða skýrist að
öllu leyti vegna hækkunar á lífeyris-
skuldbindingum sveitarfélagsins
en hún varð mun hærri en reikn-
að hafði verið með vegna breyttra
útreikninga sem tóku gildi í lok árs
2021. Lagt var upp með í fjárhags-
áætlun að sá liður yrði um 80 millj-
ónir króna en við þessa breytingu
hækkaði hann um alls 194 milljónir
þannig að lífeyrisskuldbindingarn-
ar urðu samtals 274 milljónir króna.
Ljóst er að ef ekki hefði komið til
þessara breyttu reiknireglna vegna
lífeyrisskuldbindinga þá hefði
rekstrarniðurstaða ársins 2021
orðið jákvæð. Tekjur sveitarfélags-
ins voru um 130 milljónum króna
hærri en gert var ráð fyrir en þar af
eru tekjur frá jöfnunarsjóði sveitar-
félaga 87 milljónir og um 61 millj-
ón vegna hærra útsvars.
Í dag er fjárhagsstaðan sterk. Ef
horft er á samstæðu A og B hluta í
árslok 2021 hefur handbært fé frá
rekstri aukist verulega frá ári til árs
og er nú 487 milljónir króna. Eig-
ið fé samstæðunnar er 4.571 millj-
ónir króna og eiginfjárhlutfall því
um 45%. Veltufé frá rekstri er nú
528 milljónir króna eða 10,8% en
æskilegt hlutfall veltufjár frá rekstri
er um 10%. Skuldaviðmið sveitar-
félagsins stendur nú í 59% en það
viðmið má almennt ekki fara upp
fyrir 150% hjá sveitarfélögum,
þannig að af framangreindu er ljóst
að Borgarbyggð er í mjög sterkri
stöðu til að taka spennandi skref í
frekari uppbyggingarátt á komandi
tímum.
Hvað þýðir þetta?
Góð fjárhagsstaða auk lágs skulda-
viðmiðs er forsenda þess að nú
er hægt að fara í stórfellda upp-
bygginu og því er nú kjörið tækifæri
til að keyra enn frekar á viðhald og
uppbyggingu innviða. Ákveðið hef-
ur verið að ráðast í mjög metnaðar-
fulla uppbyggingu íþróttamann-
virkja í Borgarnesi en sú vinna er
þegar hafin þar sem undirbúnings-
hópur hefur lokið störfum. Fjár-
fest hefur verið í mannvirki í kring
um núverandi íþróttahús og stofn-
uð hefur verið byggingarnefnd sem
fær það hlutverk að starfa ásamt
verkefnastjóra að frekara sam-
ráði við íbúa og hagaðila í tengsl-
um við framkvæmd verkefnisins. Er
þetta forsenda áframhaldandi upp-
byggingar sveitarfélagsins og íbúa-
fjölgunar þar sem margir horfa til
aðstöðu til íþróttaiðkunar við val á
búsetu. Eins hefur verið ákveðið að
fara í endurbætur á skólahúsnæðinu
á Kleppjárnsreykjum en töluvert
af grunnskólahúsnæðinu var rif-
ið á síðasta kjörtímabili þegar leik-
skólinn Hnoðraból var byggður við
og hluti húsnæðisins er ónothæfur
vegna rakamyndunar.
Það þarf að ganga skörulega til
verks og láta skipuleggja lóðir til
úthlutunar í sveitarfélaginu. Það
var áhersla fráfarandi sveitarstjórn-
ar að úthluta öllum lausum lóðum
á kjörtímabilinu og innkalla lóð-
ir sem ekki hafði verið aðhafst á og
úthluta þeim aftur. Í því skyni að ná
að úthluta lóðum og einnig til að
hvetja til frekari framkvæmda var
m.a. settur á 50% afsláttur af gatna-
gerðargjöldum og 100% afsláttur af
lóðargjöldum. Þetta virkaði vel fyr-
ir þá sem voru í þeim hugleiðing-
um að byggja íbúðarhús og því var
nánast öllum lóðum úthlutað. Eins
þarf að verja mun meiri fjármun-
um en nú er gert bæði í gatnagerð
til að mæta aukinni eftirspurn eft-
ir byggingarlóðum og ekki síður í
viðhald þeirra gatna sem eru fyrir.
Ágæti lesandi! Það eru bjart-
ir tímar framundan í Borgarbyggð
og við frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins bjóðum áfram fram krafta
okkar og reynslu til að leiða þá
vinnu sem þarf að ganga í af krafti,
dugnaði og framsýni.
Lilja Björg Ágústsdóttir
Höfundur er oddviti Sjálfstæðis-
manna og forseti sveitarstjórnar í
Borgarbyggð
Við höfum burði til að byggja upp og fjárfesta
Sterkur fjárhagslegur grunnur er forsenda uppbyggingar og framfara.