Skessuhorn - 27.04.2022, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 202230
Í hvaða sæti lendir ÍA í Bestu
deild karla í knattspyrnu?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Guðm. Ingþór Guðjónsson
„7. sæti.“
Bjarni Kristófersson
„7. sæti.“
Gabríel Ísak Valgeirsson
„7. sæti.“
Ingimar Ólafsson
„4. sæti.“
Stefán Þórðarson
„7. sæti.“
Lið Reynis Hellissandi sem leik-
ur í 4. deild karla á Íslandsmótinu
í sumar tók á laugardaginn á móti
2. deildar liði ÍR úr Breiðholti í
annarri umferð Mjólkurbikarsins
og fór leikurinn fram á Ólafsvíkur-
velli. Í húfi var sæti í 32-liða úrslit-
um keppninnar og því mikið und-
ir í þessum leik. Það var hins vegar
fljótlega ljóst hvaða lið myndi kom-
ast í 32-liða úrslitin því eftir tæp-
lega 20 mínútna leik var staðan
orðin 0-4 ÍR í vil og þeir bættu við
einu marki fyrir hálfleik.
Gestirnir gáfu svo alls engin grið í
seinni hálfleik og röðuðu inn mörk-
um þar sem Jón Gísli Ström var í
essinu sínu og skoraði þrjú mörk á
fyrsta korterinu og alls fimm mörk í
leiknum. Stórskotahríðin hélt síðan
áfram og Breiðhyltingar bættu við
átta mörkum þar til yfir lauk, loka-
staðan 0-16 ÍR í vil.
Það er því ljóst að bikardraum-
ur Reynismanna er úti þetta árið og
þeir geta nú einbeitt sér að undir-
búningnum fyrir fyrsta leik í A riðli
4. deildar sem verður gegn Ísbirn-
inum þann 17. maí næstkomandi.
vaks
ÍA og Sindri mættust þarsíðasta
mánudag í undanúrslitum í C deild
kvenna í knattspyrnu og fór leik-
urinn fram í Akraneshöllinni. Erna
Björt Elíasdóttir kom Skagastúlk-
um á blað strax á annarri mínútu en
á 21. mínútu jafnaði Samira Sulem-
an metin fyrir gestina og staðan því
jöfn í hálfleik. Unnur Ýr Haralds-
dóttir kom ÍA aftur yfir eftir tæp-
lega klukkutíma leik en Samira
Suleman skoraði sitt annað mark
fyrir Sindra þegar korter var eftir
af leiknum og þar við sat, lokatöl-
ur 2-2.
Til að ná fram úrslitum fóru liðin
í vítaspyrnukeppni og þar hafði ÍA
betur, 3-1 og samanlagt 5-3. Í hin-
um leik undanúrslitanna léku lið
Gróttu og Völsungs og þar náðu
norðanstúlkur sigri, lokatölur 2-3
fyrir Völsungi. Það er því ljóst að
ÍA og Völsungur munu mætast í
úrslitaleik en þessi lið voru saman
í riðli 2 og þar sigraði ÍA þá viður-
eign örugglega 3-0 í byrjun þessa
mánaðar.
Úrslitaleikur ÍA og Völsungs fer
fram miðvikudaginn 4. maí og hefst
klukkan 19. Ekki er enn komið hvar
leikurinn fer fram.
vaks
Íslandsmeistaramótið í klassískri
bekkpressu og í bekkpressu (með
búnaði) fór fram sunnudaginn 24.
apríl og átti Kraftlyfingafélag Akra-
ness tvo keppendur sem kepptu
á báðum mótunum. Einar Örn
Guðnason varð Íslandsmeistari í
-120 kg flokki karla bæði í klass-
ískri bekkpressu, með 185 kg sem
þyngstu lyftu, og bekkpressu með
búnaði þar sem 265 kg var hans
þyngsta lyfta og er það 5 kg bæting
hjá Einari. Með þessum árangri
varð Einar stigahæsti keppandinn
í karlaflokki í bæði klassískri bekk-
pressu og bekkpressu með búnaði.
Halla Rún Friðriksdóttir er
nýlega gengin til liðs við félagið og
var að keppa á sínu fyrsta móti eft-
ir margra ára pásu. Halla keppir í
-76 kg flokki kvenna í Masters 2
og setti hún tvö Íslandsmet í þeim
flokki í klassískri bekkpressu með
lyftum upp á 70 kg og 75 kg og
tók Íslandsmeistaratitilinn í sínum
flokki. Í bekkpressu með búnaði
lyfti Halla 102,5 kg sem er bæting
á Íslandsmeti um 62,5 kg í hennar
flokki og var hún jafnframt Íslands-
meistari í flokknum.
Borgnesingurinn Alexandrea
Rán Guðnýjardóttir sem keppir
undir merkjum Breiðabliks keppti
í -63 kg opnum flokki í bekkpressu
með búnaði og lyfti hún 122,5 kíló-
um sem er 7,5 kílóa bæting á henn-
ar besta árangri og tryggði henni
Íslandsmeistaratitilinn í sínum
flokki og varð hún stigahæsta kon-
an í opnum flokki. Árangur dagsins
er gott veganesti inn í næsta mót
hjá henni sem er heimsmeistara-
mótið í bekkpressu sem verður
haldið í Kazakstan núna í endað-
an maí.
vaks/lbf
Íþróttamaður vikunnar
Íþróttamaður vikunnar er nýlegur
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta-
manna úr alls konar íþróttum á öll-
um aldri á Vesturlandi. Íþrótta-
maður vikunnar að þessu sinni er
knattspyrnumaðurinn Gísli Laxdal
frá Akranesi.
Nafn: Gísli Laxdal Unnarsson
Fjölskylduhagir? Í sambandi.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Að vera með fjölskyldu og vinum
og fótboltinn.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir? Það
er bara vakna, stundum æfing fyrir
hádegi. Síðan er það vinna í Þorp-
inu og beint á æfingu seinni part-
inn, svo er bara slakað á.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Mínir helstu kostir eru
að ég er jákvæður og metnaðarfull-
ur en minn helsti galli er hvað ég
er feiminn.
Hversu oft æfir þú í viku? Sex
sinnum eða oftar.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Cristiano Ronaldo.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Ég byrjaði að æfa 5 ára og ég hef
ekki hætt síðan.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Allir vinir mínir, ég gef
þeim það.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Það er skemmtilegast að vinna og
leiðinlegast að tapa.
Jákvæður og metnaðarfullur
Alexandrea Rán og Einar Örn ánægð með árangurinn.
Ljósm. Lára Bogey Finnbogadóttir.
Íslandsmeistaramótið í bekkpressu
fór fram um helgina
Reynir H úr leik í Mjólkur
bikarnum eftir stórtap gegn ÍR
Skagastúlkur að ræða málin í leiknum gegn Sindra. Ljósm. sas
ÍA konur komnar í
úrslit Lengjubikarsins
Ljósm. Þa