Skessuhorn - 27.04.2022, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2022 31
Knattspyrnufélagið Kári tók á móti
nágrönnum sínum af Snæfellsnes-
inu, Víkingi Ólafsvík, í 2. umferð
Mjólkurbikars karla á laugardaginn
og fór leikurinn fram í Akranes-
höllinni. Um sannkallaðan Vestur-
landsslag var að ræða en í boði var
sæti í 32-liða úrslitum Mjólkurbik-
arsins. Spennustigið var því hátt
í leiknum og það dró strax til tíð-
inda á 20. mínútu leiksins þegar
Nikulás Ísar Bjarkason slapp inn
fyrir vörn Víkings en var felld-
ur af varnarmanni Víkings. Dóm-
ari leiksins, Þorvaldur Árnason,
mat það þannig að varnarmaður
Víkings, Arnór Siggeirsson, hefði
rænt af Nikulási marktækifæri og
gaf Arnóri beint rautt spjald. Eft-
ir þetta tóku Káramenn öll völd á
vellinum, sóttu af miklum krafti en
náðu ekki að skora, staðan í hálfleik
markalaus, 0-0.
Káramenn komu afar ákveðn-
ir til leiks í seinni hálfleik og fyrsta
mark leik kom eftir aðeins tíu mín-
útna leik þegar Arnar Már Kára-
son vippaði laglega yfir markmann
Víkings. Sex mínútum síðar bættu
Káramenn við öðru marki þegar
Hafþór Pétursson spyrnti bolt-
anum í netið eftir að Nikulás Ísar
hafði skallað boltann í slána og út
í teiginn. Staðan 2-0 fyrir Kára
og þeir héldu áfram að sækja án
árangurs en fimm mínútum fyrir
leikslok náði Emmanuel Eli Keke
að minnka muninn fyrir Víking eft-
ir vandræðagang í vörn Kára. Mikil
barátta var á milli liðanna það sem
eftir lifði leiks en fleiri urðu mörk-
in ekki og lokaniðurstaðan 2-1 sig-
ur Kára. Frábær sigur hjá Kára en
að sama skapi mikil vonbrigði læri-
sveina Guðjóns Þórðarsonar sem
leika í 2. deild, einni deild ofar en
Kári á Íslandsmótinu í sumar.
Kári er því kominn í 32-liða
úrslit Mjólkurbikarsins og verður
í pottinum þegar liðin tólf í efstu
deild karla, Bestu deildinni, bæt-
ast við í hann ásamt þeim 20 lið-
um sem hafa tryggt sér sæti þar eft-
ir leiki í fyrstu og annarri umferð.
Spennandi verður að fylgjast með
því hverjir verða andstæðingar
Kára og ÍA en dregið verður í
næstu umferð í hádeginu á morgun,
fimmtudag, í höfuðstöðvum KSÍ á
Laugardalsvelli.
vaks
Skagamenn léku í liðinni viku sína
fyrstu tvo leiki í sumar í Bestu deild
karla í knattspyrnu en í þeim fyrri
þarsíðasta þriðjudag mættu þeir
Stjörnunni og fór leikurinn fram í
Garðabæ. Gísli Laxdal Unnarsson
kom Skagamönnum í forystu eftir
tæplega 20 mínútna leik. Alex Dav-
ey vann boltann við miðlínu, óð upp
völlinn og lagði boltann til hlið-
ar á Gísla sem kláraði færið einn á
móti markmanni á snyrtilegan hátt.
Stjörnumenn voru meira með bolt-
ann í fyrri hálfleik og fengu nokkur
ágæt færi en inn vildi boltinn ekki.
Strax í upphafi seinni hálfleiks
jafnaði Jóhann Árni Gunnarsson
metin fyrir Stjörnuna þegar hann
skoraði með föstu og hnitmiðuðu
skoti úr teignum. Stjarnan komst
síðan yfir í leiknum um miðbik
seinni hálfleiks þegar Óskar Örn
Hauksson lét skotið ríða af utan
vítateigs Skagamanna og boltinn
söng í netinu. Með þessu marki
náði Óskar Örn þeim einstaka
áfanga að skora nítjánda árið í röð
í efstu deild karla en Óskar verður
38 ára á árinu. En það var Kaj Leo Í
Bartalstovu sem bjargaði stigi fyrir
ÍA mínútu fyrir lok venjulegs leik-
tíma þegar hann kom boltanum í
netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá
Johannesi Birni Vall utan af vinstra
kanti. Lokatölur 2-2 í skemmtileg-
um og fjörugum leik.
ÍA og Víkingur Reykjavík mætt-
ust svo í 2. umferðinni á sunnu-
dagskvöldið og fór leikurinn fram
á Akranesvelli. Leikurinn fór
rólega af stað en á 19. mínútu kom
fyrsta færi leiksins þegar Eyþór
Aron Wöhler átti góðan sprett og
sendi boltann fyrir á Gísla Laxdal
Unnarsson sem skaut að marki en
markvörður Víkings, Ingvar Jóns-
son, varði á ótrúlegan hátt. Það bar
svo til tíðinda níu mínútum fyrir
hálfleik þegar Jón Gísli Eyland tók
langt innkast inn í teig Víkings og
barst boltinn inn í miðjan teiginn
þar sem Gísli Laxdal var fljótur að
átta sig og kom boltanum í netið.
Mínútu fyrir hálfleik tók Kaj Leó
Í Bartalstovu hornspyrnu beint að
marki og mistókst Ingvari að kýla
boltann frá heldur endaði boltinn
af honum og inn í markinu. Staðan
í hálfleik 2-0 ÍA í vil og allt útlit fyr-
ir óvæntan sigur heimamanna.
Eftir um tíu mínútna leik í síðari
hálfleik fékk Eyþór Aron framherji
Skagamanna gott marktækifæri en
skot hans endaði í varnarmanni og
í horn. Aftur var Ingvar í vandræð-
um með hornspyrnuna og kýldi
boltann út beint á skallann á Aroni
Bjarka Jósepssyni sem kom bolt-
anum yfir línuna og heimamönn-
um í þriggja marka forystu. Eftir
þetta drógu Skagamenn sig til baka,
leyfðu gestunum að vera meira með
boltann sem sköpuðu sér nokkur
færi án þess að skora. Lokastaðan
öruggur sigur Skagamanna í sínum
fyrsta heimaleik í sumar vel studdir
af kraftmikilli stuðningsmannasveit
í stúkunni. Frábær byrjun Skaga-
manna sem hafa því fengið fjögur
stig eftir fyrstu tvo leikina í Bestu
deildinni í sumar.
Jón Þór Hauksson þjálfari Skaga-
manna var gríðarlega ánægður með
sigur sinna manna og sagði í viðtali
eftir leikinn að hann væri virkilega
ánægður og stoltur af liðinu. Jón
Þór sagði að honum fyndist liðs-
heildin, liðsframmistaðan og sam-
heldnin í liðinu vera að eflast með
hverjum leik og menn hefðu virki-
lega þjappað sér saman og átt frá-
bæran leik.
Næsti leikur ÍA í Bestu deildinni
er gegn nýliðum Fram á útivelli
mánudaginn 2. maí og hefst leik-
urinn klukkan 19.15. vaks
Skagakonan Rósa Kristín Haf-
steinsdóttir ásamt dansfélaga sínum
Aroni Loga Hrannarssyni náðu frá-
bærum árangri á Evrópumeistara-
mótinu í samkvæmisdönsum sem
fram fór í Blackpool á Englandi
um páskana. Þau kepptu í flokki 19
ára og yngri á föstudaginn langa.
Þar tryggðu þau sér gullið og
Evrópumeistaratitil. Daginn eft-
ir kepptu þau í U-21 árs flokkn-
um. Þar tryggðu þau sér einnig
gullmeistaratitilinn og annan
Evrópumeistaratitil og eru því tvö-
faldir Evrópumeistarar. Ekki ama-
legur árangur það.
„Þetta er klárlega einn okkar
besti árangur hingað til. Þetta er
eitthvað sem við höfum stefnt að.
Þetta var frábær tilfinning að ná
sigri í okkar aldursflokkum og gef-
ur okkur mikið,“ sagði Rósa Krist-
ín í stuttu spjalli við Skessuhorn að
móti loknu. „Við erum þegar far-
in að undirbúa okkur fyrir næstu
keppni sem verður í maí og fer hún
einnig fram í Blackpool. Það er opið
mót þar sem allir bestu dansararn-
ir í heiminum koma saman og er
svona eiginlegt heimsmeistaramót í
samkvæmisdönsum. Okkur hlakkar
mikið til taka þátt í þeirri keppni.“
Rósa segir jafnframt að þau æfi alla
daga vikunnar í íþróttahúsinu á
Digranesi undir leiðsögn hjónanna
Karenar og Adams Reeve, sem hafa
verið þjálfarar þeirra undanfarin ár.
se
Rósa Kristín og Aron Logi á verðlaunapalli sem Evrópumeistarar.
Urðu Evrópumeistarar í
samkvæmisdönsum í sínum
aldursflokkum
Rósa Kristín og Aron Logi ásamt öðrum þjálfara sínum Adam Reeve.
Skagamenn fagna eftir sigurinn á Víkingi. Ljósm. sas
Skagamenn byrja vel
í Bestu deildinni
Byrjunarlið Kára í leiknum gegn Víkingi Ó. Ljósm. af FB síðu Kára.
Kári kominn í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins
eftir sigur á Víkingi Ó