Skessuhorn - 25.05.2022, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 21. tbl. 25. árg. 25. maí 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Betri framtíð fyrir
fermingarpeninginn
arionbanki.is/ferming Framtíðarreikningur Arion banka
Leggðu fermingarpeninginn inn hjá Arion
og fáðu allt að 12.000 kr. mótframlag
Ljómalind Sveitamarkaður,
Brúartorgi 4, Borgarnesi
Sími 437-1400,
Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Falleg gjafavara og
matur úr héraði.
Sjón er sögu ríkari.
Sími 437-1400
Opið alla daga frá
kl. 10:00-18:00
Í síðustu viku kynntist fjölmiðlafólk og áhrifavaldar frá Bretlandi og Frakklandi íslenskri fiskmenningu á Snæfellsnesi. Viktor Örn Andrésson, landsliðskokkur, verkaði
fisk fyrir áhrifavaldana sem tóku upp myndefni í erg og gríð. Verkefnið er skipulagt af Íslandsstofu. Blaðamaður Skessuhorns fylgdi hópnum hluta úr degi og fangaði
stemninguna. Nánari umfjöllun má finna á miðopnu. Ljósm. sþ
Bjarni Jónsson alþingismaður VG í
Norðvesturkjördæmi sendi nýver
ið fyrirspurn til heilbrigðisráðherra
vegna skorts á læknum og öðru
heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggð
inni. Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns virðist sem
viðvarandi skortur sé á læknum
til starfa á nokkrum starfsstöðv
um Heilbrigðisstofnunar Vestur
lands, sem meðal annars sýnir sig í
að biðtími eftir læknatíma fer upp í
einn mánuð. Það segir sig sjálft að
slíkt er óviðunandi, því annað hvort
hefur fólk náð fullri heilsu á þeim
tíma eða ástandið farið á verri veg.
Spurningar þingmannsins voru;
„hvernig hyggst ráðherra bregð
ast við bráðum skorti á læknum og
heilbrigðisstarfsfólki víða á lands
byggðinni? Telur ráðherra koma til
álita að grípa til sértækra aðgerða
og ef svo er, hvernig og hvar tel
ur ráðherra brýnast að ráðast í slík
ar aðgerðir með vísan til búsetu
öryggis?“
Í margorðu svari Willum
Þórs Þórssonar heilbrigðisráð
herra kemur fram að heilbrigðis
starfsmenn séu takmörkuð auð
lind um allan heim og því alþjóð
legt viðfangsefni að tryggja næga
mönnun innan heilbrigðiskerfis
ins. Þótt ekki sé vikið að því bein
um orðum má lesa milli línanna í
svari ráðherra að raunverulegt svar
við spurningum þingmannsins er
ekki til. Þó segir í svari ráðherra;
„Stefnt er að bættu aðgengi með
aukinni fjarheilbrigðis þjónustu um
allt land. Markviss skref hafa verið
stigin til að greiða fyrir þeirri þró
un, bæði hvað varðar lagaumgjörð
og innleiðingu á nýrri tækni ásamt
viðbótarfjármagni til verkefnisins.“
Á öðrum stað í svari ráðherrans
segir að stefnt hafi verið að fjölg
un heilsugæslulækna á landsbyggð
inni með því að koma á tveggja ára
námi sem myndi búa heilsugæslu
lækna undir starf í dreifbýli. Til
laga að fjármögnun aðgerðarinn
ar var 2,5 milljónir úr byggðaáætl
un. „Undirbúningur verkefnisins
fór hins vegar ekki eins og að var
stefnt í upphafi svo að aðgerðin fór
aldrei af stað. Þar sem aðgerðin var
ekki virk var að lokum ákveðið að
taka hana út úr nýrri byggðaáætl
un, a.m.k. í bili. Það má svo endur
skoða ef og þegar ástæða er til.“
Loks segir í svari ráðherra að mik
ill skilningur sé á mikilvægi þess að
tengja sérnám heimilislækna við
heilbrigðisþjónustu á landsbyggð
inni. Í haust er ráðgert að 94 sér
námslæknar verði í námi í heimilis
lækningum. Af þeim verða 36 í sér
námsstöðum á landsbyggðinni eða
rúmlega 38% sérnámslæknanna,
þar af tveir á Vesturlandi.
Svörin undirstrika
ráðaleysi
Bjarni Jónsson segir að svör ráð
herrans undirstriki því miður
mikið ráðaleysi. „Hér þarf bein
skeyttar aðgerðir og það strax til
að tryggja betur búsetuöryggi um
land allt. Það verður að tryggja
betur stöðuga viðveru lækna og
hjúkrunarfólks í þeim byggðar
lögum sem ekki njóta þess nú og
jafnframt að tryggja aðgengi að
læknisþjónustu. Markvissar fjár
magnaðar aðgerðir til úrbóta
ættu að vera ein af meginstoð
um byggðaáætlunar til að vinna
að búsetujafnrétti, en svo er ekki
í fyrirliggjandi tillögum. Ég hef
kallað eftir því að þeir sem með
málaflokkinn fara, innviðaráð
herra, ráðherra byggðamála,
heilbrigðisráðherra og stofnan
ir sem undir þá heyra, sýni hér
frekara frumkvæði með tillögum
að aðgerðum til úrbóta. Það þol
ir ekki lengri bið að koma læknis
þjónustu á landsbyggðinni í betri
farveg, um það þurfum við að
sameinast,“ segir Bjarni Jónsson í
samtali við Skessuhorn.
mm
Fátt um svör þegar spurt er um læknaskort