Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Qupperneq 13

Skessuhorn - 25.05.2022, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 13 Við höfum aðstoðað tugi fyrirtækja og sótt styrki yfir 100 milljónir Umsóknartímabil: Ágúst 2021 – Mars 2022 Umsóknarfrestur: Júní 2022 Hafðu samband og við könnum rétt þinn Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur S: 554 5414 | upplysingar@ferdavefir.is | ferdavefir.is C M Y CM MY CY CMY K vidspyrnustyrkir_loka copy.pdf 1 22.4.2022 16:49 Í dag, miðvikudaginn 25. maí, hefst þriggja daga ráðstefna um ameríska rithöfundinn Henry David Thor­ eau í Snorrastofu í Reykholti. Berg­ ur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, og Henrik Otterberg, doktor í Thoreau­fræðum, litu við á skrifstofu Skessuhorns fyrr í vik­ unni til að segja blaðamanni frekari deili af Thoreau en saman standa þeir að því að skipuleggja við­ burðinn. ,,Henry Thoreau var fædd­ ur 1817 í smábæ nálægt Boston. Hann var ekki hátt metinn þegar hann lifði en í dag er hann þekktur sem rithöfundur á sviði stjórnmála, heimspeki, sögu, trúarmála og fleiri sviða, einnig má segja að hann hafi verið aðgerðasinni. Hann velti fyr­ ir sér málum sem koma okkur mik­ ið við í dag t.d. vistspor, núvitund, flokkun og neysluhyggja. Frægasta bókin eftir hann heitir „Walden: Lífið í skóginum,“ en árið 2017 kom hún út á íslensku í fyrsta skipti en þá voru 200 ár liðin frá fæðingu rithöfundarins. Bókin hlaut svo verðlaun fyrir best þýddu bókina það árið. Íslendingar þekkja Thor­ eau ekki vel en margir segja hann þekktasta rithöfund Bandaríkj­ anna og langar okkur þess vegna að kynna þennan merka mann betur fyrir Íslendingum,“ segja þeir Berg­ ur og Henrik en margir bandarísk­ ir rithöfundar og fræðimenn draga innblástur sinn frá Thoreau. Mikill áhugamaður um Snorra Sturluson Hugmyndin að ráðstefnunni kom þegar Bergur var staddur í Gauta­ borg þar sem hann sótti um að kom­ ast í stjórn Thoreau félagsins. ,,Ég kom þá með hugmyndina að ráð­ stefnunni og Henrik kom með þá tillögu að halda ráðstefnuna í Snorrastofu,“ segir Bergur en þeir félagar hafa þekkst í 26 ár. Blaða­ maður spurði af hverju málstofa um þennan rithöfund væri haldin í Snorrastofu. Þeir Bergur og Hen­ rik segja að Thoreau hafi verið mik­ ill áhugamaður um Snorra Sturlu­ son. Hann hafi lesið Snorra­Eddu og Heimskringlu ítarlega og dregið innblástur frá skrifum Snorra, en á tímum Thoreau höfðu sögur Snorra Sturlusonar nýlega verið þýddar yfir á ensku. ,,Í Snorrastofu einblínum við á það hvernig verk Snorra hafa verið nýtt í gegnum aldirnar. Snorri lifir til dæmis í gegnum rithöfunda, bíómyndir og óperur en núna er kominn tími til að kynna þennan til­ tekna rithöfund og sjá meðal annars hvernig Snorri lifir í gegnum hann,“ segir Bergur. 37 fyrirlestrar frá tíu löndum Málstofan er öllum opin án aðgangs­ eyris en stendur hún yfir frá 25. til 27. maí. Fyrirlestrarnir verða 37 talsins en fyrirlesarar koma frá tíu löndum, þó mestmegnis frá Bandaríkjunum. ,,Heiti ráðstefnunnar er ,,Thoreau á síðustu stundu“ svo fyrirlestrarn­ ir verða fjölbreyttir og eru um mál­ efni sem eiga vel við í dag eins og hlýnun jarðar. Við vildum þema sem gæti boðið upp á fjölbreytileika. Þrír eða fjórir fyrirlestrar og viðburð­ ir verða í gangi í einu svo fólk þarf að velja og hafna hvað það vill kynna sér hverju sinni, svolítið eins og stór tónlistarhátíð, en við erum einnig búin að skapa rými á dagskránni fyr­ ir spjall svo hægt sé að ræða saman um efnið. Svo ætlum við að bjóða fólki með okkur í skoðunarferð um nærumhverfið þegar ráðstefnunni verður lokið,“ segir Henrik. Bergur bætir svo við að lokum: „Það er líka mjög mikilvægt fyrir okkur að vera að fá þetta flotta fræðifólk alls staðar að úr heiminum en allir eru að koma til Íslands á sinn kostnað svo þetta er bara mikill áhugi sem liggur að baki komu fólksins hingað til okkar.“ sþ Henrik Otterberg, doktor í Thoreau-fræðum, og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu. Ljósm. vaks. Ráðstefna um rithöfundinn Thoreau haldin í Snorrastofu

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.