Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Síða 14

Skessuhorn - 25.05.2022, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 202214 Síðastliðinn laugardag buðu sjálf­ boðaliðar úr Borgarfirði á tónleika og í kaffiboð fyrir nýja nágranna frá Úkraínu. Viðburðurinn fór fram í hátíðarsal Háskólans á Bifröst en flóttafólkið hefur verið að koma sér fyrir á staðnum undanfarnar vikur. Markmið með viðburðinum var að fólk sem býr í nærsveitum, og aðr­ ir sem vildu, gætu hitt flóttafólkið frá Úkraínu og boðið það velkom­ ið í samfélagið. Forsprakkar verk­ efnisins voru hjónin Olgeir Helgi Ragnarsson og Theodóra Þor­ steinsdóttir en sjálfboðaliðar tóku svo við keflinu og sáu um fram­ kvæmd kaffiboðsins. Olgeir Helgi og Theodóra sáu um framkvæmd tónleikanna auk dætra sinna tveggja, söngkonunni Hönnu Ágústu og leik­ og söng­ konunni Sigríði Ástu, ásamt Jón­ ínu Ernu Arnardóttur píanóleikara og eiginmanni hennar Vífli Karls­ syni. Öll komu þau fram á tónleik­ unum þar sem þau fluttu íslensk þjóðlög, þýsk sönglög, óperettu­ og söngleikjastykki auk fleiri verka. Eftir tónleikana var hægt að spjalla við flóttafólkið yfir kaffi og fá að kynnast þessum hópi sem einkenn­ ist af þakklæti og fallegri orku. Flóttamenn risu úr sæt- um og sungu úkraínskt þjóðlag Flóttafólkið mætti vel á tónleikana og tjáði þakklæti sitt tónlistarfólk­ inu en tónleikarnir enduðu á úkra­ ínsku þjóðlagi sem tekið var und­ ir með fagnaðarlátum og sungið saman í halarófu úr tónleikasaln­ um og inn í hátíðarsalinn þar sem kaffiborðið beið. Jónína Erna Arnardóttir, píanóleikari átti hug­ myndina að úkraínska þjóðlaginu sem féll svona vel í kramið en hún mætti á tónleikana klædd úkraínsku fánalitunum og sýndi þannig enn frekari stuðning. Viðburðurinn var vel heppnaður og þótti blaðamanni heillandi að sjá tvo heima sameinast yfir kaffibolla og veitingum. Vilja sjálfboðaliðar þakka Geirabakaríi í Borgarnesi fyrir kleinugerð og Nettó fyrir myndarlegan stuðning við verkefnið. Móttaka flóttamanna gengið eins og í sögu Heiðrún Helga Bjarnadóttir er verkefna stýra móttöku flóttafólks­ ins í Borgarbyggð. Segir hún hlýju og jákvæðni einkenna hópinn en verkefnið hefur gengið eins og í sögu, þökk sé öflugu starfsfólki, sjálfboðaliðum á svæðinu og velvild allra sem veitt hafa aðstoð. ,,Sko, ég þori varla að segja frá því en þetta hefur bara gengið eins og í sögu. Frá degi eitt hefur þetta bara geng­ ið vel og það er ekki síst vegna þess að hvar sem við komum og hvert sem við leitum eftir aðstoð, hjálp eða ráðgjöf við hvað sem þarf, það eru allir boðnir og búnir. Það er sama hvort það er í sundlauginni, bankanum eða í opinberum stofn­ unum, það segja bara allir ,,já“. Það sést líka bara á stemningunni hér í dag og þessu frumkvæði Olgeirs og Theódóru, þetta eiginlega bara lýsir svolítið stemningunni sem er búin að vera frá upphafi. Það eru sjálfboðaliðar í hverju horni sem bjóða t.d. upp á myndlistarnám­ skeið, þeim er boðið í göngur og þau kynnt fyrir svæðinu. Einnig eru sjálfboðaliðar úr þeirra röðum sem kenna ensku og standa fyrir ýmsum viðburðum. Svo eru líka svona hæg­ látari og hógværari sjálfboðaliðar sem til dæmis útvega hjól, gera þau upp og koma með eða einhver býð­ ur á hestbak eða í veiðiferð. Þetta er ekki síst bara frumkvæði fólksins sem spyr; ,,heldurðu að það væri einhver sem myndi vilja þetta eða hitt,“ svo náttúrulega allt þetta fólk sem var að undirbúa komu fólksins og fólkið hefur talað um það að það voru uppábúin rúm, skrautmunir og eitthvað huggulegt sem fólk gat náð sér í til að gera huggulegt og heimilislegt hjá sér. Sú orka og sú stemning hefur bara smitað svolítið frá sér því núna koma nýir hóp­ ar í hverri viku. Það er bara orðin rútína og áður en hóparnir koma þá eru sjálfboðaliðar frá hópi Úkra­ ínufólksins sem fara og búa um og gera og græja þannig að þetta er einhvern veginn orðin rosalega náin og þétt samfélagsvitund. Ég kann ekki alveg orðið, en þetta er bara samheldið og þétt samfélag. Og það er rosalega gaman einhvern veginn að fá að fylgjast með því hvernig þetta þróast og verður bara svolítið sjálfbær organismi þannig það er ótrúlegt að fylgjast með því.“ Skólakerfið tekur vel á móti Heiðrún og flóttafólkið hafa einnig fengið hlýjar móttökur í skólunum á svæðinu. ,,Svo er börnin komin í skóla á Varmalandi og ég þreytist ekki á að segja frá því að það hef­ ur verið tekið svo ótrúlega vel á móti þeim frá degi eitt og þau bara ,,slæda“ inn í bekkjastarfið og for­ eldrar og börn bara orðlaus yfir móttökunum þar. Það er líka komið barn á leikskólann og hefur geng­ ið ótrúlega vel í aðlögun. Einnig er hópur fólks að ljúka íslensku­ námi á vegum símenntunarmið­ stöðvarinnar í þessari viku. Allir sem að verkefninu koma taka þetta auka skref og leggja á sig þetta auka handtak. Þannig það er svona stikl­ að á stóru. Þetta er bara samhug­ ur, samkennd og hlýja sem hefur einkennt þetta verkefni frá upp­ hafi. Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðum sem komið hafa að þessu, bæði áður en þau komu og núna á meðan á verk­ efninu stendur í hvaða formi sem hefur verið,“ sagði Heiðrún Helga að endingu. sþ Gestir voru ekki sviknir af hlaðborðinu sem boðið var til. Borgfirðingar buðu flóttafólki upp á tónleika og kaffi Samhugur, samkennd og hlýja hefur einkennt þetta verkefni frá upphafi Jónína Erna situr við flygilinn og með henni syngja frá vinstri: Theódóra, Hanna Ágústa, Sigríður Ásta, Olgeir Helgi og Vífill. Heiðrún Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri móttöku flóttamanna. Hlýleg andlit þakklátra Úkraínumanna. Jónína Erna mætti í réttu litunum. Frá vinstri: Dasha, Olena og Alóna. Olena býr til listaverk með íslenskum rúnum, Alóna er myndlistakona sem vinnur á Leikskólanum á Bifröst og Dasha er að fara að flytja til Keflavíkur og vinna á flugvellinum. Úkraínskt þjóðlag var sungið saman á leiðinni að kaffihlaðborðinu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.