Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Síða 18

Skessuhorn - 25.05.2022, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 202218 Hún er frá Stuðlum í Mývatns­ sveit og hann frá Dal í Grýtubakka­ hreppi, en nú hafa þau sest að í Hvalfirðinum þar sem fjörðurinn blasir við út um gluggann. Þau áttu gullbrúðkaupsafmæli fyrir nokkru og ætla að fagna því í sumar. „Við fluttum hingað í júlí fyr­ ir tveimur árum. Þegar ég horfði fyrst út um gluggann skildi ég ekki af hverju mér fannst ég alltaf hafa átt heima hérna. En það var í raun ekki skrýtið, ég er fæddur við Eyja­ fjörð þar sem sjórinn er við bæj­ ardyrnar. Það eina sem mig vant­ ar núna er að fá mér árabát svo ég geti veitt mér í soðið,“ segir Krist­ ján. Þau hafa búið á ýmsum stöð­ um og þar á meðal tvisvar í Skál­ holti þar sem hann sat fyrst sem rektor og síðan vígslubiskup. „Það voru stór verkefni í Skálholti,“ seg­ ir hann. „Annars vegar var á sín­ um tíma verið að leggja niður lýð­ háskóla sem þar var og hins vegar þurfti að koma á fót nýjum Skál­ holtsskóla. Það er gaman að segja frá því að þegar við komum í Skál­ holt 1992 var eina fjarskiptatækið þar faxtæki sem skólinn hafði keypt af Flugfragtinni. Svo öll föxin frá okkur voru merkt fragtinni,“ segir hann og hlær. „Í Skálholti tók ég fyrst upp þann sið að hafa kvöld­ og morgun bænir. Því hef ég haldið áfram hér. Þegar maður er kominn með svona takt í lífið getur maður ekki sleppt hon­ um. Maður rammar inn daginn með þessu og það heldur í manni lífinu. Oftar en ekki mæta til mín trúfastir kirkjugestir en þetta hefur ekki verið mikið auglýst.“ Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar Kristján er kominn á eftirlaun en sinnir enn verkefnum fyrir biskups­ embættið. Margrét er hins vegar söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar. Blaðamanni leikur hugur á að vita hvað felst í því starfi og Kristján skýtur því kíminn inn að það sé lík­ lega fljótlegra að telja upp það sem söngmálastjóri gerir ekki. Mar­ grét segir þetta vera stórkostlegt starf og hægt er að sjá í hendi sér að reynsla hennar sem söngkona og kórstjórnandi hljóti að koma sér vel á þessum vettvangi. Hún hefur líka gert mikið af því að skipuleggja alls kyns námskeið, ráðstefnur og kór­ ahátíðir tengt tónlist og kirkjulegu starfi. „Starfsheitið söngmálastjóri er orðið 81 árs gamalt,“ segir Mar­ grét. „Fyrsti söngmálastjórinn var Sigurður Birkis sem hóf störf árið 1941. Það er gaman að geta þess að þetta er ekki í fyrsta sinn sem söng­ málastjóri býr á Vestur landi, því Haukur Guðlaugsson sem lengi var á Akranesi var þriðji söngmálastjór­ inn. Embættið var stofnað til að sjá um söngmál kirkjunnar á landsvísu. Í þýsku, evangelisku landskirkjun­ um, heitir þetta Landeskirchen­ musikdirektor sem er svolítið svip­ að starf, þ.e. í því felst að ann­ ast kirkjutónlistarmál á ákveðnu svæði.“ Alltaf næg verkefni Margrét lærði fyrst söng hér heima, hjá Elísabetu Erlingsdóttur. Síð­ ar lauk hún einsöngskennara prófi og lokaprófi úr konsertdeild Tón­ listarskólans í Heidelberg í Þýska­ landi og þar dvöldu þau hjón í alls átta ár. Kristján var vígður prestur til Raufarhafnar 1974 og Margrét lauk námi vorið 1975. Það ár stofn­ aði hún tónlistarskóla á staðnum. Þau bjuggu á Raufarhöfn til 1977 að þau fóru til framhaldsnámsins í Þýskalandi. Þegar þau sneru aftur heim 1985 tók hann við prestsþjón­ ustu í Ísafjarðarprestakalli og Mar­ grét tók að sér stjórn kirkjukórsins og Sunnukórsins á Ísafirði auk kennslu við tónlistarskólann. Árið 1986 færðu þau sig í Grenjaðar­ staðarprestakall í Þingeyjarpró­ fastsdæmi þar sem Kristján var sóknarprestur og voru þar í nokk­ ur ár. Á þeim tíma kenndi Margrét við Tónlistarskólann á Akureyri. Á þessum árum stofnaði hún Sum­ artónleika á Norðurlandi sem hún stýrði í þrjátíu ár eða fram til ársins 2017. Hún stjórnaði einnig kvenna­ kórnum Lissý og veitti Menningar­ samtökum Norðurlands (MEN­ OR) forstöðu. Árið 2003 efndi hún til Kórastefnu við Mývatn sem stóð til 2010. Þar komu kórar af öllu landinu og einnig erlendis frá og æfðu og fluttu glæsileg kórverk ásamt Sinfóníu hljómsveit Norður­ lands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Margrét hefur unnið að útgáfu söngefnis fyrir barnakóra og kennt söng við Söngskólann í Reykjavík þar sem hún stofnaði deild fyrir börn og unglinga. Hún hefur gegnt formennsku fyrir Landssamband blandaðra kóra og verið stjórnandi Kvennakórs Háskóla Íslands. Hér er langt frá því allt upp talið, en ljóst er að verkefnin hafa verið mörg. Kórinn stofnaður tvisvar Margrét segir eitt af embættisverk­ um Sigurðar Birkis hafi verið að fara um allt land og stofna kirkjukóra. Stundum höfðu þeir þá þegar starf­ að í fjölda ára en höfðu aldrei ver­ ið formlega stofnaðir. „Svo sem í sveitinni minni norður í Mývatns­ sveit, þangað kom Sigurður og stofnaði kórinn sem afi minn hafði komið á fót sem organisti árið 1908. Svo kórinn á eiginlega tvö stofnár, byrjaði árið 1908 og var svo form­ lega stofnaður árið 1946 þegar Sig­ urður Birkis kom í heimsókn,“ seg­ ir hún brosandi. Kristján skýtur inn í umræðuna að þegar Sigurður hafi komið í Langholtskirkju árið 1953 hafi kórinn þar verið 283. kórinn sem hann stofnaði. Svo þetta var afkastamikill maður. Ný sálmabók Hlutverk söngmálastjóra er að sjá til þess að tónlistarstefnu kirkjunnar sé framfylgt og starfið heyrir beint undir biskup. Margrét segist vera nokkurs konar tónlistarprófastur, hún aðstoði organista, presta og kórastarf kirkjunnar út um allt land. „Þetta starf fyllir alveg daginn,“ seg­ ir hún og hlær. „Og nú er að koma út ný sálmabók sem er alltaf stór­ kostlegur viðburður í kirkjunni og þarf að undirbúa vel.“ Blaðamað­ ur lítur í kringum sig og sér að það eru prófarkir af sálmum út um allt í stofu þeirra hjóna. „Svona verkefni er margra ára vinna, ég vinn mest að kynningarmálunum og Kristján í textamálunum,“ segir Margrét. „Stofninn í nýju bókinni er sá sami og var áður, en það bætist við mik­ ið af nýjum sálmum og gleðilegt er hve margir íslenskir sálmar og lög eru þar á meðal. Ný sálmabók kem­ ur í besta falli út á fimmtíu ára fresti svo það er eins gott að vanda sig. Við hlökkum til þegar hún verð­ ur tekin í notkun með hátíðlegri athöfn í haust.“ Margrét segir að víðtækt tengslanet skipti söngmálastjóra miklu máli og hún búi að því eft­ ir áratuga störf, einnig erlendis. Ráðgjöfin getur verið í allar áttir, svo sem varðandi kennslu í radd­ beitingu, ráðningu organista, stofn­ un barnakóra o.s.fv. „Tónlistin er svo sterkur þáttur í kirkjustarfi, hún er lífæðin sem rennur gegnum allar athafnir og allt safnaðarstarf,“ seg­ ir hún. Þekktu engan Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvers vegna Margrét og Krist­ ján ákváðu að flytja á Hvalfjarðar­ ströndina. Þau segja að þegar þau hafi farið frá Skálholti hafi það eitt verið haldfast að þau vildu ekki búa á höfuðborgarsvæðinu. „Þegar búið var að sameina prestaköllin í Saur­ bæ og Akranesi þá var engin búseta á prestssetrinu og Agnes bisk­ up spurði hvort við gætum hugs­ að okkur að leigja hér. Eftir að hafa skoðað aðstæður þá ákváðum við að þiggja þetta. Hér er yndislegt hús og með því fylgir ákveðin umsjón með staðnum,“ segir Kristján. „Ég er ekki lengur í opin­ berri stöðu, en hef þó skyldur við biskups embættið alveg fram til ársins 2024,“ segir hann. Margrét bætir við: „Við komum hingað sumarið 2020 og skoðuðum okkur um, en aðal áskorunin var að fara á stað þar sem við þekktum ekki einn einasta mann. Ég hafði bara komið hingað einu sinni áður í vísi­ tasíuferð með Kristjáni. Okkur telst til að þetta sé fimmtándi staður­ inn sem við búum á,“ segir hún og brosir. Kristján tekur fram að þau hafi aldrei verið í vandræðum með að vera á nýjum stöðum og alltaf þótt það skemmtilegt. Sögustaðurinn Saurbær Íbúðarhúsið í Saurbæ stendur stutt frá kirkjunni sem er helguð minningu Hallgríms Pétursson­ ar en hann var sóknarprestur í Saurbæjar prestakalli á árunum 1651 til 1669. Guðjón Samúelsson teiknaði fyrstu gerð að kirkjunni, Hlaðvarpinn er alþjóðlegur tengslapottur Rætt við hjónin í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd; Margréti Bóasdóttur og Kristján Val Ingólfsson Hjónin í Saurbæ. Ljósm. gj Saurbæjarkirkja. Kristján Valur að þjóna við útimessu í Saurbæ á annan í páskum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.