Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 202220 Á bryggjunni við endann á Bakkatúni á Akranesi er þessa dagana að rísa sjó­ dýfingapallur. Það eru hjónin Konni Gotta og Jódís Lilja Jakobsdóttir frá Hoppland.is sem standa að þessu. Konni er frá Ólafsfirði þar sem hann byrjaði í kletta­ og sjóstökki og dýrk­ ar allt sem heitir jaðarsport og úti­ vist. Jódís er útskrifuð grunnskóla­ kennari og hefur starfað með börn­ um og unglingum í 15 ár. Blaða­ maður Skessuhorns heyrði í Konna og segir hann þau heldur betur vera spennt fyrir þessu öllu saman og lofar lífi og fjöri í allt sumar á Skag­ anum. Gríðarleg aðsókn hefði ver­ ið í fyrra á pallana sem voru stað­ settir á bryggjunni við Sævarhöfða í Grafarvogi en ekki fékkst leyfi fyr­ ir þeim þar áfram. Hefðu þau þá heyrt í fulltrúum Akraneskaupstað­ ar sem tók þeim opnum örmum og vildi Konni sérstaklega hrósa Sæv­ ari Frey Þráinssyni bæjarstjóra fyr­ ir jákvæð viðbrögð en þau gerðu sex mánaða samning við Faxaflóa­ hafnir um afnot af bryggjunni. Dýf­ ingapallarnir sem þau notuðu við Sævarhöfða voru gerðir úr Euro pallettum en þeir sem verið er að smíða núna eru vottaðir álpallar og eru alls átta metrar að hæð. Þá hafa þau í hyggju um helgar í sumar að bjóða fólki að prófa vatnshoppu­ belg (inflatable water blob) sem verði vonandi kominn á opnunar­ daginn en það muni skýrast fljót­ lega. Laugardaginn 28. maí er ætlunin að opna og þá geta allir prófað að hoppa niður af pallinum allt að tíu metrum ofan í sjó og sigrast á ótt­ anum. Konni og Jódís standa fyrir hoppnámskeiðum fyrir 10 til 14 ára krakka á laugardögum í sumar frá klukkan tíu til tólf. Innifalið er leiga á blautbúningi, kennsla og pizza og kostar námskeiðið tíu þúsund krónur. Þetta námskeið er hugsað til að krakkarnir kynni sér öryggi þegar kemur að klettastökki og til að hjálpa þeim að komast út fyrir boxið. Mikið hefur verið talað um kvíða og annað hjá börnum á síð­ ustu árum og vilja þau meina það að hoppa í ískalt vatn sé eitt besta meðalið við kvíða. Á þessu nám­ skeiði fá krakkarnir að skora á sjálfa sig og sigra hausinn eins og segir á heimasíðu hoppland.is. Hægt verður að hoppa á þessum glænýja sjódýfingapalli í allt sum­ ar en opnunartíminn er mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 13 til 20 og á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 12 til 22. Aðgangur fyr­ ir 16 ára og eldri er krónur 1500 og 1000 krónur fyrir 15 ára og yngri. Einnig verður hægt að leigja blaut­ búninga á svæðinu á 2000 krónur. vaks Á þessu ári eru liðin 90 ár síð­ an Sigurður Thoroddsen stofnaði fyrstu verkfræðistofu á Íslandi og miðast aldur Verkís verkfræðistofu við þann atburð. Þegar Verk­ fræðistofa Sigurðar Thoroddsen (VST) var stofnuð árið 1932 var Ísland ekki orðið lýðveldi, hús hit­ uð með olíu og kolum og örfáar sundlaugar voru á landinu. Fyrsta ár VST sinnti stofan þremur verk­ efnum og var Sigurður eini starfs­ maðurinn en nú eru starfsmenn yfir 300 hjá Verkís og sinna fjöl­ mörgum verkefnum. Verkís veitir ráðgjöf og alhliða þjónustu á öll­ um sviðum verkfræði og í skyldum greinum og í flestum stórfram­ kvæmdum hér innanlands hef­ ur sérfræðiþekking Verkís komið við sögu. Verkefni Verkís eru fjöl­ breytt en þó er misjafnt milli ára hvaða þjónustuþættir eru veiga­ mestir hverju sinni í starfsemi fyrir tækisins. Síðustu árin hafa verkefni sem snúa að uppbyggingu innviða verið áberandi og má þar helst nefna endurnýjun veitna, gatna, vega og öllu því sem við­ kemur fráveitukerfum. Stórt verkefni í Norðuráli Verkís rekur sex útibú á lands­ byggðinni og undir hverju útibúi eru oft fleiri starfsstöðvar en þær eru alls tólf talsins. Anna Mar­ ía Þráinsdóttir byggingaverk­ fræðingur tók við sem útibússtjóri Verkís á Vesturlandi í nóvember árið 2019 en starfsemin nær til landshlutans alls og lýtur eink­ um að eftirliti með byggingafram­ kvæmdum, hvers kyns hönnun og annarri almennri verkfræði­ ráðgjöf. Átta starfsmenn Ver­ kís starfa í landshlutanum; fimm á Akranesi og þrír í Borgarnesi. Útibúið er þannig í reynd star­ frækt á tveimur stöðum. Anna María segir að viðskiptavinirn­ ir kunni vel að meta hversu fljót­ ir starfsmenn hennar eru á staðinn þegar á þarf að halda. „Þeim finnst það mjög þægilegt, þurfa þá ekki að bíða eftir aðilum úr Reykja­ vík og það er mikill kostur hvað við erum nálægt.“ Spurð hvernig henni finnst hafa gengið í henn­ ar stjórnunartíð segir Anna Mar­ ía: „Mjög vel, það er búið að fjölga hjá okkur frá því ég byrjaði og erum við alltaf að horfa á það að reyna að bæta við okkur en það er alltaf háð verkefnum. Við erum með stórt verkefni til þriggja ára í Norðuráli og það er einn starfs­ maður frá okkur þar með starfs­ stöð. Þar er verið að byggja nýj­ an steypuskála og við sjáum um hönnun og eftir lit á honum og verkefnastjórnun í heild á verk­ inu.“ Við höfum einnig undanfar­ ið ár komið að stórum verkefnum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þar sem deildir á Akranesi voru endurnýjaðar og nýtt liðskiptaset­ ur er í framkvæmd. Að auki kom­ um við að verkfræðihönnun fyrir nýja leikskólann að Asparskógum. Anna María segir einnig að það skipti miklu máli að hafa starfs­ stöðvar og útibú fyrir samfélög­ in úti á landi. „Það er mikilvæg­ ur valkostur fyrir starfsfólk, það eru meiri möguleikar að vinna frá sinni heimabyggð úti á landi. Fólk sem hefur alist upp úti á landi get­ ur farið til baka í sína heimabyggð og átt möguleika á flottri vinnu.“ Sjálf er Anna María alin upp á Akranesi, lauk BS prófi í tækni­ fræði frá Háskólanum í Reykja­ vík árið 2011 og meistaraprófi í byggingaverkfræði með áherslu á framkvæmdastjórnun tveimur árum síðar. Hún starfaði frá því hún byrjaði að vinna sem verk­ fræðingur mikið við eftirlit og meðal annars við eftirlit stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflug­ velli. Hún segir það hafa skipt sig miklu máli að geta flutt aftur heim og fengið starf í tengslum við sína menntun í sinni heimabyggð. Markmiðið að fjölga verkefnum Í byrjun apríl á þessu ári flutti Verk ís starfsemi sína á Smiðju­ velli 32 á Akranesi en síðustu ár hefur hún verið á Stillholti 16­18. Ástæðuna segir Anna María aðal­ lega hafa verið vegna loftgæða­ vandamála og þeim líði afar vel á nýja staðnum, gott loft sé í hús­ inu og góður andi. En hvernig sér Anna María næstu ár fyrir sér? „Ég sé fram á það að við eigum eftir að stækka og reyna að breiða meira úr okkur, bæði hér og út um allt land. Við viljum vera á sem flest­ um stöðum til að vera sem næst kúnnunum og viljum geta þjónað allri landsbyggðinni. Heimsfar­ aldurinn hafði þau áhrif hjá okkur að verkefnin jukust hjá okkur. Rík­ ið og sveitarfélögin fóru að gefa í og við sjáum ekki fram á að það sé eitthvað að minnka. Markmiðið er að fjölga verkefnum og helst vilj­ um við geta fjölgað starfsfólki hér í landshlutanum með tímanum. Við höfum mikinn metnað fyrir því,“ segir Anna María Þráinsdóttir að endingu. vaks Í Borgarnesi eru þau Ulla Pedersen, Jökull Helgason og Soffía Anna Sveinsdóttir starfsmenn Verkís. Ljósm. gj. Verkfræðistofan Verkís fagnar 90 ára afmæli Rætt við Önnu Maríu Þráinsdóttur útibússtjóra Verkís á Vesturlandi Starfsfólk Verkís á Akranesi. Sigurgeir Fannar Guðmundsson, Anna María og Bragi Þór Sigurdórsson en Arnór Már Guðmundsson var ekki á staðnum. Ljósm. vaks Nýi sjódýfingapallurinn við Bakkatún. Þarna átti eftir að bæta við einni hæð til að ná átta metrunum. Ljósm. vaks. Sjódýfingapallur að koma á Akranes

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.