Skessuhorn - 25.05.2022, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2022 21
Nýverið var undirritað samkomu
lag á milli Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi (SSV) og Snæfellsbæjar
um Barnamenningarhátíðina 2022,
en það verkefni er eitt áhersluverk
efna Sóknaráætlunar Vesturlands
til stuðnings blómlegri menningu í
landshlutanum.
Barnamenningarhátíðir hafa nú
verið haldnar reglubundið á ýms
um stöðum í rúmlega tíu ár svo
sem í Reykjavík. Á Vesturlandi hef
ur hátíðin farið á milli staða og síð
ast stóð til að halda hana á Akranesi
árið 2020 en frestaðist um eitt ár
og var haldin árið 2021 með öllum
þeim takmörkunum sem því fylgdi.
Nú þegar hefur Snæfellsbær haf
ið vinnu við skipulagningu hátíðar
innar og er það Heimir Berg Vil
hjálmsson markaðs og upplýsinga
fulltrúi sveitarfélagsins sem annast
undirbúninginn.
Á meðfylgjandi mynd sem Helga
Guðjónsdóttir tók má sjá Sigur
stein Sigurðsson menningarfulltrúa
SSV og Heimi Berg undirrita sam
starfssamninginn. gj
Eyþór Óskarsson frá Stykk
ishólmi var á dögunum ann
ar Íslendingurinn til að útskrif
ast úr US Coast Guard Academy,
háskóla og sjóliðsforingjaskóla
bandarísku strandgæslunnar. Frá
skólanum eru útskrifaðir verð
andi stjórnendur stofnunarinn
ar á ýmsum sviðum en skólinn er
í New London í Connecticut fylki.
Nánasta fjölskylda Eyþórs var við
stödd útskriftina ásamt fulltrú
um frá Landhelgisgæslu Íslands,
þeir Georg Kr. Lárusson, for
stjóri Landhelgisgæslunnar, og
Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram
kvæmdastjóri aðgerðasviðs. Engin
önnur en Kamala Harris, varafor
seti Bandaríkjanna, flutti ávarp við
athöfnina.
Eyþór hefur stundað nám við
skólann síðastliðin fjögur ár í
stjórnun og var hann einn 250
útskriftarnema en það er stærsti
hópur útskriftarnema í sögu skól
ans. sþ
Ólafsvík og Grundarfjörður eru
síðustu áfangastaðir Háskólalestar
Háskóla Íslands þetta vorið en þar
stoppar lestin dagana 27. og 28.
maí. Í boði verða bæði fjölbreytt
námskeið fyrir nemendur í efstu
bekkjum grunnskóla á staðnum
og vísindaveisla í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga fyrir alla áhugasama.
Megináherslan í starfi Háskóla
lestarinnar er að kynna vísindi á
lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir
ungu fólki, styðja við starf grunn
skólanna og efla tengsl við lands
menn á öllum aldri. Í áhöfn lestar
innar eru kennarar og nemend
ur við Háskóla Íslands sem flest
ir hverjir eru einnig leiðbeinend
ur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla
unga fólksins.
Föstudaginn 27. maí sækja nem
endur í 5.10. bekk í Grunnskóla
Snæfellsbæjar í Ólafsvík námskeið
um flest allt milli himins og jarð
ar, en þar verður m.a. fjallað um
töfra ljóss og lita, efnafræði, blaða
og fréttamennsku, forritun með
skynjurum og föndri, orkuskipti,
vindmyllur, nýsköpun, sjúkraþjálf
un, loftslagsbreytingar, dulkóðun,
draugagang, tröll og þjóðsögur og
japanska menningarheima.
Áhöfn Háskólalestarinnar slær
svo upp veglegri vísindaveislu
fyrir Grundfirðinga og nærsveit
unga í Fjölbrautaskóla Snæfell
inga laugardaginn 28. maí kl.
1216. Þar býðst fólki á öllum
aldri að kynnast undrum vísind
anna með gagnvirkum og lifandi
hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól
og smiðjur. Öll eru velkomin og
enginn aðganseyrir.
mm
Föstudagskvöldið 20. maí var
haldinn skemmtilegur markað
ur í Sögumiðstöðinni í Grundar
firði. Þar var hægt að kaupa hinar
ýmsu vörur en svo var einnig hægt
að skipta vörum. Það voru þær
Alexandra Dögg Sigurðardóttir og
Alicja Chajewska sem stóðu fyrir
viðburðinum og var hann vel sótt
ur. Þarna var hægt að kaupa kök
ur og annað góðgæti, snyrtivörur,
heilsuvörur, fatnað og margt fleira.
Viðtökur voru góðar og vel var
mætt og því verður að teljast líklegt
að þessi skemmtilegi markaður eigi
eftir að skjóta upp kollinum aftur í
sumar.
tfk
Núverandi og fyrrverandi prestar
Stafholtsprestakalls í Borgarfirði
standa í sameiningu fyrir pílagríma
göngu milli kirkna í sókninni í sum
ar. Göngurnar mun leiða Elínborg
Sturludóttir dómkirkjuprestur, sem
gegndi embætti sóknarprests í Staf
holti 20102019. Starfandi sóknar
prestur, Anna Eiríksdóttir, leið
ir svo einnig gönguna með Elín
borgu.
Fyrsta gangan fer af stað föstu
daginn 6. júní þar sem gengið verð
ur frá Hvammskirkju í Norðurárdal
um Grjótháls og að Norðtungu
kirkju. Fer gangan af stað klukk
an 14 og er áætlað að hún taki um
fjórar klukkustundir en leiðin er
um 20 kílómetrar. Föstudaginn 10.
júlí verður síðan gengið frá Norð
tungukirkju að Hjarðarholtskirkju
og síðasti angi göngunnar verður
svo frá Hjarðarholtskirkju að Staf
holtskirkju. Samtals er gönguleiðin
um 42 kílómetrar. Hvetja þær Anna
og Elínborg fólk til að njóta sam
vista í náttúrunni og sameinast í
skemmtilegri göngu í sumar. sþ
Alexandrea Rán Guðnýjardóttir frá
Borgarnesi varð um helgina silfur
verðlaunahafi á heimsmeistaramóti
unglinga í bekkpressu, en mótið
fer nú fram í Kasakstan. Alexandr
ea lyfti þar tvöfaldri líkamsþyngd
sinni en hún keppir í flokki 63 kíló
og lyfti 125 kílóum og bætti þar
sinn persónulega árangur um tvö
og hálft kíló. Alexandrea á síðan
eftir að keppa í klassískri bekk
pressu á laugardaginn kemur.
sþ
Silfurverðlaunahafi á HM í bekkpressu
Frá vinstri: Ásgrímur L. Ásgrímsson, Eyþór Óskarsson og Georg Lárusson.
Ljósm. Landhelgisgæslan.
Eyþór útskrifast sem sjóliðsforingi
frá US Coast Academy
Alexandra Dögg við sölubásinn sinn þar sem kenndi ýmissa grasa.
Margt í boði á skemmtilegum markaði
Háskólalestin verður á Snæfellsnesi í vikulokin
Hjarðarholtskirkja í Borgarfirði er ein af kirkjunum fjórum sem gengið verður að.
Pílagrímagöngur fyrir-
hugaðar í Borgarfirði
Barnamenningarhátíðin
2022 verður í Snæfellsbæ