Skessuhorn


Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 25.05.2022, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 202226 Gamla myndin Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli sínu hefur ritstjórn blaðsins aðeins verið að grúska ofan í gömlum myndakössum sem geyma myndir fyrir og í kringum síðustu aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu 2000 og er tekin í Grundarfirði þar sem Veiðfélagið Fengur kom saman í svartfuglsveislu á Krákunni. Pennagrein Á næsta tímabili gildandi sam­ gönguáætlunar, eða árin 2025 til 2029, er áformað að hefjast handa við gerð 2+1 vegar milli Hvalfjarðarganga og Borgarness. Nokkur undirbúningur er þegar hafinn og beinist hann helst að þeirri leið sem Hringvegurinn liggur um nú þ.e. frá Hvalfjarðar­ göngum, austur fyrir Akrafjall um Grundartanga og þaðan norð­ ur að Borgarfjarðarbrú. Sjá má umfjöllun um þessa leið í nýlegri greinargerð sem unnin var af VSÓ Ráðgjöf, sem nálagst má á vef­ slóðinni https://www.vso.is/vest­ urlandsvegur­vefsja/ Svo áfram sé haldið eru margir á því að núverandi akleið milli Borgarfjarðarbrúar gegnum þétt­ býlið í Borgarnesi og norður fyr­ ir gatnamót Hringvegar og Snæ­ fellsnesvegar sé ekki heppileg leið til framtíðar fyrir gegnumaksturs­ umferð sem þar fer, heldur sé far­ sælla að leggja sérstaka hjáleið utan byggðarinnar. Gert er ráð fyrir þessari hjáleið í gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar en umræður hafa vaknað af og til um að nema hana úr skipulaginu og þar með sjá til þess að hún verði ekki lögð. Að ýmsu er að hyggja varðandi báðar þessar leiðir og þá kosti sem bjóðast. Varðandi veginn milli Hvalfjarðarganga og Borgarness hafa ýmsir horft til gerðar nýs 2+1 veg vestur fyrir Akrafjall um Akranes og yfir mynni Grunna­ fjarðar þar fyrir norðan og það­ an áleiðis í Borgarnes. Rannsókn­ ir á aðstæðum á þeirri leið hafa þó ekki verið miklar síðustu ár og í tillögu að nýju aðalskipulagi Hval­ fjarðarsveitar 2020 til 2032, þar sem Grunnafjörður er, sem nú hef­ ur verið auglýst með athugasemda­ fresti til 22. júní 2022, er ekki gert ráð fyrir vegi þessa leið en sjá má tillöguna á vef sveitarfélagsins hvalfjardarsveit.is. Telja má að ávinningur af færslu Hringvegar vestur fyrir Akrafjall og yfir Grunnafjörð feli m.a. í sér að leiðin milli Akraness og Borgar­ ness styttist um 7 km með öllum þeim jákvæðu áhrifum sem því fylgir auk þess sem Hringvegur­ inn styttist um 1 km. Mun betri og öruggari vegir en nú eru lægju til og frá Akranesi jafnt í átt til höfuð­ borgarsvæðisins og til Borgarness, mun færri vegamót yrðu milli Hvalfjarðarganga og Borgarness en á núverandi leið, þar eru betri sjónlínur og veðrátta talin eitthvað heppilegri með tilliti til umferð­ aröryggis. Vegur þessa leið telst arðsamari og væntanlega dregur umtalsvert úr umferð og því áreiti sem henni fylgir fyrir marga íbúa Hvalfjarðarsveitar ef meginþungi umferðarinnar flyst á nýjan veg. Á móti kemur að Grunnafjörð­ ur er á náttúruverndarsvæði, svo­ nefndu Ramsarsvæði, sem þó er innan mögulegrar veglínu sem liggur um rif í fjarðarmunnanum og gerð vegar austur fyrir Akra­ fjall er talin lítið eitt ódýrari eða 7 milljarðar króna í stað 8 milljarða sem Akranesleiðin er talin kosta. Loks skal nefnt að ekki er heppi­ legt að vinna að eða gera ráð fyr­ ir vegi eða annarri framkvæmd sem ekki er gert ráð fyrir í skipulagi þess sveitarfélags þar sem vegurinn kæmi til með að liggja. Að því er varðar gerð hjáleið­ ar framhjá Borgarnesi getur það haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif. Þegar gegnumumferðin flyst yfir á hjáleiðina verður sú umferðin mun greiðari og draga mun úr nei­ kvæðum áhrifum hennar í þéttbýl­ inu, þ.m.t. hávaða­ og loftmeng­ un. Leiðin gegn um þéttbýlið verð­ ur öruggari fyrir aðra vegfarend­ ur en akandi og minni farartálmi. Þessi jákvæðu áhrif aukast eftir því sem hlutfall gegnumumferðarinn­ ar er hærra. Á hinn bóginn mun ný hjáleið valda breytingu á ásýnd og umhverfi byggðarinnar og sumir óttast að draga kunni úr viðskipt­ um í Borgarnesi þótt raunar sé gert sé ráð fyrir að sérstök tenging muni liggja af hjáleiðinni að helsta við­ skiptasvæðinu á Hyrnutorgi. Loks má nefna að gerð hjáleiðar hefði umtalsverðan kostnað í för með sér þótt ekki sé kunnugt hversu hár hann gæti orðið og framkvæmdin dregist á langinn samkvæmt því. Sem ljóst má vera af því sem að framan er rakið má lengi deila um kosti og galla þeirra leiða sem ræddar eru hér að framan en fram til þessa er ekki vitað til að íbúar, vegfarendur eða annað áhugafólk hafi átt þess kost að tjá hug sinn á einfaldan hátt í þessum efnum í sér­ stökum könnunum. Því hefur verið opnað fyrir tvær netkannanir á veg­ um Samgöngufélagsins, samgong­ ur.is, þar sem þátttakendum býðst annars vegar að koma á framfæri afstöðu sinni til þess að Hringveg­ urinn verði lagður vestan við Akra­ fjall um Akranes og yfir Grunna­ fjörð og hins vegar til þess að gerð verið hjáleið framhjá Borgarnesi. Um er að ræða könnun þar sem sjá má legu veganna í þrívíddar­ upplifun frá ýmsum sjónarhornum. Hún mun standa til og með 10. júní nk. Telja verður að fróðlegar og gagnlegar niðurstöður ættu að geta fengist ef þátttaka verður góð sem vonast er til en allir sem málið varðar eða áhuga hafa eru hvattir til að taka þátt í könnuninni hvar sem þeir búa. Niðurstöðurnar verða síðan kynntar að könnuninni og úrvinnslu gagna lokinni. Nálgast má kannanirnar hér: https://www.envalys.is/surveys og einnig á auglýsingaborðum á vef Skessuhorns til 10. júní 2022. Jónas B. Guðmundsson, Höf. er forsvarsmaður Samgöngufélagsins Kortið sýnir möglega hjáleið framhjá Borgarnesi Ný lega Hringvegar um Akranes og Borgarnes? Kortið sýnir mögulega nýja veglínu Hringvegar frá Hvalfjarðargöngum um Akranes og yfir Grunnafjörð. Um næstu helgi verður hátíðin Kjet og klæði haldin á Eiríksstöð­ um í Haukadal. Að hátíðinni stend­ ur víkingafélagið Rimmugýgur sem starfar á höfuðborgarsvæðinu. Rimmugýgur er öflugt félag sem miðlar háttum víkinga til nútím­ ans og kemur fyrir á hinum ýmsu hátíðum og uppákomum yfir sum­ artímann. Á hátíðinni munu gestir og gangandi fá að kynnast og taka þátt í alls kyns verkum sem stunduð voru á víkingaöld. Hátíðin verður milli klukkan 10 og 16 laugardag og sunnudag og er aðgangseyrir 1200 krónur fyrir 13 ára og eldri. sþ Eldsmiðir að störfum á Eiríksstöðum. Ljósm. úr safni. Víkingahátíð á dagskrá á Eiríksstöðum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.