Skessuhorn - 01.06.2022, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 22. tbl. 25. árg. 1. júní 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Opið
alla
daga
ársins
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Betri framtíð fyrir
fermingarpeninginn
arionbanki.is/ferming Framtíðarreikningur Arion banka
Leggðu fermingarpeninginn inn hjá Arion
og fáðu allt að 12.000 kr. mótframlag
Síðastliðinn laugardag var Svæðismark Snæfellsness kynnt í Breiðabliki. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt
– hvert DNA Snæfellsness er, ef svo má segja. Hér skenkir Keli vert í Langaholti bláskel úr Breiðafirði á diska. Sjá nánar á bls. 20. Ljósm. tfk.
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks á Akranesi komust
fyrir helgi að samkomulagi um
myndun nýs meirihluta í bæjar-
stjórn Akraneskaupstaðar kjör-
tímabilið 2022 – 2026. Málefna-
samningur meirihlutans hefur ver-
ið samþykktur en í inngangi hans
segir að leitast verði við að eiga
gott samstarf við alla flokka í bæjar-
stjórn og að stjórnsýslan snúist um
að veita íbúunum góða þjónustu
með hagsmuni þeirra að leiðar-
ljósi. „Lögð verður áhersla á gott
samstarf við íbúa og áframhaldandi
uppbyggingu og þróun á virku
íbúalýðræði. Áfram verður unnið
að því að styrkja fjárhagsstöðu
bæjar sjóðs,“ segir í tilkynningu.
Verkaskipting verður með þeim
hætti að Líf Lárusdóttir oddviti
Sjálfstæðisflokks verður formað-
ur bæjarráðs. Um leið verður hún
yngst til að gegna því embætti frá
stofnun kaupstaðarins fyrir rétt-
um 80 árum síðan, en Líf er 30 ára.
Valgarður Lyngdal Jónsson verður
forseti bæjarstjórnar. Þá hafa flokk-
arnir ákveðið að endurnýja samn-
ing við Sævar Frey Þráinsson um
að gegna starfi bæjarstjóra. Þá mun
Samfylkingin fara með formennsku
í velferðar- og mannréttindaráði
og mennta- og menningarráði
en Sjálfstæðisflokkurinn verður
með formennsku í skipulags- og
umhverfisráði. mm
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar á Akranesi ásamt Sævari
Frey Þráinssyni bæjarstjóra. F.v. Krist-
inn Hallur Sveinsson, Líf Lárusdóttir,
Guðmundur Ingþór Guðjónsson, Sæv-
ar Freyr Þráinsson, Einar Brandsson,
Jónína Margrét Sigmundsdóttir og
Valgarður Lyngdal Jónsson.
Meirihlutasamstarf Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks í höfn