Skessuhorn - 01.06.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 202220
Veitingastaðurinn Food Station
við Digranesgötu 4 í Borgarnesi
var opnaður að nýju síðastliðinn
fimmtudag eftir nokkurra vikna
lokun. Nú er það Grillhúsið ehf
sem mun reka staðinn og gerir það
undir nafni Food Station. Form-
leg opnunarhátíð verður um Hvíta-
sunnuhelgina sem nánar verður
kynnt.
Að sögn Þórðar Bachmann,
annars eiganda Grillhússins,
mun staðurinn taka einhverjum
breytingum. Boðið verður upp á
hlaðborð í hádeginu og á kvöldin
þar sem til staðar verður kjöt, fisk-
ur og grænmeti. Rómuð kjötsúpa
Food Station verður áfram í boði
ásamt sjávarréttasúpu hússins.
Þórður segir að stefna staðarins sé
að bjóða upp á ferska og fljótlega
þjónustu í sjálfsafgreiðslu en að
öðru leyti sé markmiðið almennt
það sama og Grillhússins, þ.e. að
bjóða upp á góðan mat og þjón-
ustu á sanngjörnu verði. Við þetta
má bæta að á þessu stigi standa ekki
til neinar breytingar á rekstrarfyrir-
komulagi veitingastaðar Grill-
hússins við Brúartorg 6 í Borgar-
nesi.
gj
Síðastliðinn laugardag bauð
Svæðis garður Snæfellsness til veislu
í Breiðabliki. Kynnt var svokall-
að Svæðismark Snæfellsness fyrir
sveitastjórnum, sveitarstjórum og
öðrum hagaðilum. Svæðismark fel-
ur í sér vinnu við hönnun og fram-
setningu á því hvað gerir Snæfells-
nes sérstakt – hvert DNA Snæfells-
ness er, ef svo má segja.
Svæðisgarðurinn er skilgreind-
ur sem fjölþætt samstarf fyrirtækja,
sveitarfélaga og félagasamtaka á til-
greindu svæði sem myndar sam-
stæða landslags- og menningarlega
heild. Samstarfið byggist á sam-
eiginlegri sýn um sérstöðu svæðis-
ins og samtakamætti við að hag-
nýta sérstöðuna og vernda hana.
Íbúar, fyrirtæki og sveitarstjórnir
á afmörkuðu svæði taka sig saman
og skilgreina sérstöðu svæðisins og
þau gæði sem þar er að finna. Síð-
an byggja aðilarnir samstarf sitt,
um atvinnu- og samfélagsþróun,
á þessari sérstöðu. Iðulega hefur
verið komið á umfangsmiklu sam-
starfi á öllum sviðum mannlífs, svo
sem við skóla, fyrirtæki, hverskonar
samtök og sveitarfélög.
Á viðburðinum á laugardaginn
var boðið upp á ljúffengar veitingar
úr héraði og lögð áhersla á hráefni
með sérstöðu svæðisins. Rabar-
baramohito með ætum blómum
frá Ræktunarstöðinni Lágafelli,
Keli vert í Langaholti bauð upp
á fiskisúpu og skel, Gunnar í
Bjargarsteini upp á karfaroð og
þarasnakk, Hjá góðu fólki bauð upp
á margrómuðu perutertu og Rúnar
Marvinsson sendi „Sæluskot“ sem
innihélt myntu og vallhumal úr
túninu heima, mjaðurt af bökkum
Staðarár, blóðberg úr Staðarsveit
og hvönn og fræ frá Hellissandi,
kryddað með stjörnuanís, eldpip-
ar og engifer. Óhætt er að segja að
veitingarnar hafi í senn verið ljúf-
fengar og einstakar á sinn hátt.
mm/ Ljósm. tfk.
Starfsfólk Food
Station í Borgarnesi.
Ljósm. aðsend.
Food Station opnað á ný í Borgarnesi
Kynning á svæðismarki Snæfellsness
Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Elín Guðnadóttir, Þuríður Gía Jóhannesdóttir og
Björg Ágústsdóttir.
Jón Sindri Emilsson markaðsfulltrúi í Stykkishólmi útbýr rabarbaramohito fyrir
gesti.
Kristín Halla Haraldsdóttir starfsmaður Grundarfjarðarbæjar og Elín Guðnadóttir
starfsmaður Alta létu vel að veigunum.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar skálar hér við ljósmyndara
Skessuhorns.
Þorkell Símonarson frá Langaholti er hér að útbúa dýrindis fiskisúpu fyrir gestina.
Sonja Karen Marinósdóttir, Sigurbjörg Ottesen og Herdís Þórðardóttir fulltrúar
Eyja- og Miklaholtshrepps.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar hélt stutta tölu.
Hlédís Sveinsdóttir stýrði fundinum af
kostgæfni.
Héðinn Sveinbjörnsson þjónn frá Bjargarsteini ber fram dýrindis söl og karfaroð
fyrir gesti.