Skessuhorn - 01.06.2022, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 17
Eldsvoði
Fiskþurrkunin gekk afar vel í mörg
ár. En þá varð sá leiðindaatburð-
ur að það kviknaði eldur í fisk-
þurrkunaraðstöðunni og tvö hús
brunnu til grunna. „Þetta var rosa
áfall,“ rifjar Bryndís upp. „Við vor-
um búin að leggja svo mikið í þetta;
vinna hörðum höndum og gera allt
sjálf. En þegar þetta gerðist féll
okkur hreinlega allur ketill í eld og
við sáum ekki fram á að geta byrjað
að byggja allt frá grunni upp aftur.“
Fyrsta hugsun hjónanna var
svo að taka til við einhvers konar
rekstur þar sem hægt væri að nýta
starfsmannahús sem þau höfðu
byggt vegna fiskþurrkunarinnar.
Þau töldu gott að nýta húsin með
einhverjum hætti og úr varð að fara
í ferðaþjónustu.
Þaravinnsla
Þegar brann hjá Bryndísi og Sig-
urði voru þau reyndar líka langt
komin með að prufa stórt verkefni
í þaravinnslu og Bryndís segir það
hafa verið spennandi. „Við vorum
búin að kaupa okkur skip til að slá
þara og höfðum fjárfest í þurrkara
og ýmsum öðrum búnaði. Hugsun-
in var að setja upp verksmiðju ásamt
skoskum vinum okkar sem eru sér-
fræðingar í vinnslu á alginötum
sem unnin eru úr þara og eru eftir-
sótt vara í lyfja- og matvælaiðnaði.
En nýsköpun er oft mjög þung og
erfið og við vorum mikið búin á því
auk þess sem við höfðum ekki tekj-
ur eftir brunann svo við ákváðum
að fresta þaraverkefninu í bili. Svo
hefur þetta þróast þannig að þetta
verkefni sem við komum af stað er
að fara í gang á Húsavík. Við stefn-
um á að vera hluthafar í því og
hluti af þeim tækjum sem við vor-
um búin að fjárfesta í fara norður.
Aðal þaramiðin eru líka fyrir norð-
an svo þetta er alveg rökrétt,“ seg-
ir Bryndís.
Ferðaþjónustan
og uppbyggingin
Þau byrjuðu með gistingu í
nokkrum húsum fyrir ferðamenn
árið 2017 og hafa byggt upp á því
sviði síðustu fimm ár. Blaðamað-
ur ályktar að ótrúlega mikið hljóti
að hafa gerst á þeim tíma miðað
við alla þá aðstöðu sem nú má sjá
á staðnum. Bryndís viðurkennir að
það sé líklegast rétt. „Það vill svo
vera að það gerist allt svolítið hratt
í kringum okkur. Við erum bæði
hugmyndarík, fáum hugmyndir og
viljum helst byrja strax að fram-
kvæma þær.“
Þegar hér er komið sögu í sam-
talinu er gengið til húss sem áður
var gömul hlaða sem nýtt var fyr-
ir heybagga í búskapartíð föð-
urs Bryndísar. Húsið reynist hafa
haft gríðarlega fjölbreytt hlutverk
í rekstrinum á staðnum. Fyrst var
það sem sagt hlaða en hluti hússins
var svo notaður sem fóðurstöð fyrir
loðdýraræktina. Bryndís segir þau
hafa framleitt fóðrið sjálf því það
hafi verið svo dýrt í innkaupum.
„Síðar þegar við fórum í bleikju-
ræktina nýttum við rýmið þar sem
nú er eldhús til að flaka fiskinn. Svo
breyttist það og starfsfólkið fékk að
setja þar upp líkamsræktaraðstöðu,
við vorum með svo margt starfs-
fólk. Um tíma var hlaðan svo verk-
stæði fyrir ýmis tæki og bíl sem við
vorum með í fiskþurrkuninni. En
nú höfum við sett upp verkstæði
í öðru húsi hér á svæðinu og réð-
um mann sem hugsar um það fyr-
ir okkur.“
Gisting fyrir
hundrað manns
Þegar fiskþurrkunin brann lögðu
Bryndís og Sigurður niður frysti-
verksmiðjuna og seldu frystitækin
og nú er verkstæðið í því húsi. Þar
fara fram allar viðgerðir á bílum,
tækjum og tólum auk þess sem þar
eru smíðaðir hlutir eins og borðin
í veitingasalinn, innréttingar og
fleira. Eitt af því sem gera þarf við
eru sláttuvélarnar, garðar eru við
öll húsin og þau hafa plantað miklu
af trjám og blómum. Á Miðhrauni
er nú gistiaðstaða fyrir um hundrað
manns, þar af eru tvö hús þar sem
fólk getur leigt herbergi og deilt
stofu og eldhúsi með öðrum, lítið
hús sem hentar tveimur einstak-
lingum vel og svo sumarhús fyrir
4-6 manns þar sem eru tvö svefn-
herbergi. Í rýmunum eru þvottavél
og þurrkari auk fullbúins eldhúss
svo fólk getur verið sjálfu sér nægt.
Auk þessa er gamla íbúðarhúsið á
bænum þar sem pláss er fyrir tíu
manns og eitt hús á Lynghaga við
Vegamót sem áður var nýtt sem
starfsmannaaðstaða. „Við keypt-
um það á sínum tíma af því okkur
vantaði alltaf starfsmannahús. En
í dag erum við með fimm slík og
hluti af starfsfólkinu okkar leigir
íbúðir í Laugargerðisskóla. Núna
er t.d. Steinunn yngsta dóttir okk-
ar 19 ára gömul að vinna hjá okkur
og vinir hennar og stundum kem-
ur líka frændfólk til okkar,“ segir
Bryndís.
Veislusalur í hlöðunni
Í sumar er eiginlega allt bókað og
veitingastaður í rekstri á Miðhrauni
í fyrsta sinn. „Þau verða tvö sem
kokka fyrir okkur, Óskar Þór
Þórðarson matreiðslumaður og
Herdís Stephensen sem er snilld-
ar kokkur og líka bakari. Við höf-
um gætt þess í ár að ráða nægt fólk,
það brást í fyrra þegar ferðaþjón-
ustan fór svo snögglega af stað í júlí
og allt fylltist. Þá lagði maður bara
eins mikið á starfsfólkið og maður
þorði og við Sigurður tókum sjálf
rest. Við vorum stundum að þvo og
brjóta saman þvott hér til klukkan
tvö á nóttunni á meðan þetta ástand
varði svo það tók á,“ segir Bryndís.
Þau hafa nú ákveðið að láta á
það reyna að vera með veitinga-
stað samhliða gistingunni og enn
og aftur fékk hlaðan nýtt hlutverk.
Hún er rúmgóð og það er hátt til
lofts. Bryndís segir föður sinn hafa
byggt hlöðuna árið 1982. Á þeim
tíma var hann með baggasúgþurrk-
un, en þegar hann fór að nota rúllur
hætti hann að nota hlöðuna. Þarna
sáu Bryndís og Sigurður tækifæri.
„Þetta hús gefur mjög skemmti-
lega möguleika. Við hönnuðum
breytinguna að mestu leyti sjálf en
lögðum mikið upp úr lýsingunni
og fengum Kristján Kristjánsson
ljósahönnuð í það.“
Þegar gengið er inn í hlöðuna
vekur stórt málverk eftir Baltasar
athygli. Myndefnið er sköpun
heimsins úr Eddukvæðum. Sagað-
ir hafa verið stórir gluggar á hlið
hlöðunnar öðru megin sem hleyp-
ir inn fallegri birtu. Barinn er sér-
stakur, þar má sjá ryðgað bárujárn
sem nýtur sín vel. Bryndís er ánægð
með hvernig til tókst með það.
„Mig langaði í ryðlitinn á barinn og
við erum gjörn á að taka til svo við
áttum ekkert ryðgað bárujárn sjálf.
Svo ég spurðist fyrir á Facebook og
viti menn, nágranni okkar Stefán á
Lækjarmóti átti talsvert af þykku og
góðu ryðguðu járni sem hann var til
í að láta okkur hafa.“
Stólar með sjarma
Breskir skólastólar prýða salinn,
pantaðir erlendis frá. Þegar þeir
komu til landsins komu í ljós ryð-
skemmdir á hluta þeirra vegna þess
að gámurinn hafði fengið á sig sjó.
„Mín fyrstu viðbrögð voru að við
gætum ekki boðið upp á þetta,“
segir Bryndís. „En svo sáum við að
þetta var bara til prýði, þetta eru
stólar með sjarma sem njóta sín vel
í salnum, útlitið passar algerlega.
Svo það er bara eins og þetta hafi
átt að gerast.“
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að stólarnir fari vel í hlöð-
unni, sem nú er orðin að glæsileg-
um veislusal. Þar er gott hljóðkerfi
og hægt er að taka borðin niður og
dansa eftir borðhald, eins og var
gert í 140 manna brúðkaupsveislu
þar fyrir stuttu. En þetta er fjölnota
salur sem jógahópar hafa líka nýtt
til að koma saman svo annað dæmi
sé tekið.
Reynslan er besti
skólinn
Enn biðu Bryndísar og Sigurðar
miklar áskoranir þegar þau voru
rétt að komast af stað í ferða-
þjónustunni snemma árs 2020 og
horfðu fram á fullbókað sumar. En
þá skall á heimsfaraldur.
„Þetta var hræðilegt, allt í einu
komu engar tekjur. En við höfð-
um gengið í gegnum ýmislegt og
á þeim tíma lærði maður að nýta
hlutina vel og leita lausna í erfið-
ustu aðstæðum,“ segir Bryndís.
„Líkast til er það besti viðskipta-
skólinn, að læra að lifa á engu og
láta hlutina ganga upp. Við búum
alltaf að þessu, hendum engu
heldur reynum að finna hlutum
nýjan tilgang. Siggi er mjög skap-
andi og sjálflærður verkfræðingur,
eldklár og kann mikið. Við höf-
um fundið frystiverksmiðju í Dan-
mörku sem átti að farga, rifið hana
niður og komið henni upp hérna
heima. Þurrkarann keyptum við
í Póllandi. Það átti að setja hann
upp í verksmiðju þar en fjármögn-
unin hafði brugðist. Við fórum út
og rifum þetta niður skrúfu fyr-
ir skrúfu og settum í gám hingað
heim,“ segir hún að endingu.
Hvar sem litið er á Miðhrauni
sést kraftmikil uppbygging, bæði
á húseignum og gróðri. Græn-
metisræktun er hluti af heildar-
myndinni því hráefni af svæð-
inu er nýtt í matargerðina eins og
kostur er. Það er komið að lok-
um heimsóknarinnar í þessa vin í
hrauninu. Blaðamaður þakkar fyr-
ir sig og gengur út í sólskinið. Þar
ómar fuglasöngur í eyrum og nátt-
úrufegurðin gleður augað. Hér er
gott að vera.
gj/ Ljósm. gj og aðsendar.
Náttúrulaugin fellur vel að umhverfinu.
Gamli bærinn. Ryðguðu plöturnar njóta sín vel framan á barborðinu.
Bryndís eigandi Lava Resort á Miðhrauni og Óskar Þór matreiðslumeistari á
ferðakaupstefnu í Kórnum. Ljósm. úr safni/mm.