Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Side 1

Skessuhorn - 06.07.2022, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 25. árg. 6. júlí 2022 - kr. 950 í lausasölu Ert þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is 699 3444 molby@fastlind.is Löggiltur fasteignasali ÁRALÖNG ÞEKKING OG REYNSLA AF FASTEIGNAMARKAÐI Á VESTURLANDI BOGI MOLBY Allir kaupendur og seljendur fá Vildarkort Lindar hjá fjölmörgum fyrirtækjum sem veitir 30% afslátt Þinn árangur Arion Gosbrunnurinn á Akratorgi vakti mikla lukku hjá þessum ungu drengjum, ekki síst þar sem foreldrarnir leyfðu þeim að busla; enda verður enginn verri þótt hann vökni. Jafnvel þótt Lína Langsokkur og fleiri ævintýrapersónur væru að skemmta á sviðinu, slógu þessar vatnssúlur því við hjá sumum. Fjölmargar myndir frá bæjarhátíðum helgarinnar er að finna í Skessuhorni í dag. Ljósm. mm. Vegagerðin áformar að standa fyr- ir umferðarkönnun á Hringvegi, sunnan og norðan við Borgarnes og á Snæfellsvegi vestan við hús- næði Loftorku. Hófst hún á mánu- daginn og verður til ágústloka. „Könnunin er gerð með rafrænu myndavélaeftirliti þar sem tryggt er að öll gögn sem unnið er með séu ópersónugreinanleg. Könnunin stendur yfir alla daga þetta tímabil, allan sólarhringinn. Úr könnuninni eiga að fást upplýsingar um leiða- val ökumanna, í kringum Borg- arnes, og samsetningu umferðar í létt og þung ökutæki. Þessar upp- lýsingar munu nýtast við áætlana- gerð fyrir hjáleið á Hringvegi við Borgarnes,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá segir að engin töf eða truflun verði á umferð af þess- um sökum og mun ökumönnum gert aðvart, með skiltum áður en þeir aka inn í það svæði, sem verð- ur vaktað. Nýir möguleikar og núllkostur Aðspurður segir Pálmi Þór Sævars- son svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vestursvæði, að nú sé vinnuhóp- ur að störfum þar sem Vegagerðin ásamt fulltrúum Borgarbyggðar er að fara yfir framtíðarlegu Hring- vegarins fram hjá Borgarnesi. „Ver- ið er að vinna frumdrög að leiðinni þar sem nokkrir kostir eru born- ir saman með það að markmiði að finna bestu lausn fyrir framtíðar- legu vegarins. Hluti af þessu verk- efni er að fá greiningu á umferðinni í gegnum Borgarnes, en með því viljum við ná utan um hversu hátt hlutfall vegfarenda myndu nýta sér mögulega hjáleið og þar með létta á umferðarþunganum í gegn- um Borgarnes.“ Pálmi Þór segir að markmiðið sé síðan að klára frum- drög og ramma inn þá möguleika sem eru í stöðunni og í kjölfarið yrði tillaga Vegagerðarinnar send í umhverfismat þar sem að all- ir raunhæfir valkostir verða born- ir saman sem og „núll“ kostur sem er óbreytt ástand. Í kjölfarið af því yrði lokaákvörðun tekin um legu vegarins fram hjá Borgarnesi. Loks tekur hann það fram að hjáleið um Borgarnes er á samgönguáætl- un fyrir árin 2030-2034 samkvæmt núgildandi samgönguáætlun. mm Umferðarkönnun til að meta framtíðarlegu hringvegar um Borgarnes

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.