Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2022 13 Síðastliðinn laugardag hélt úr höfn á Akranesi gamalt 279 tonna fisk- veiðiskip sem selt hefur verið til lýbísks útgerðarfélags. Framundan var 18 daga sigling og stefnan tekin á Trípólí í Lýbíu. Ekki er óþekkt að eldri fiskiskip séu seld til suðlægra landa þar sem þau fá gjarnan fram- haldslíf við veiðar eða til að gegna öðru hlutverki. Það sem vekur sér- staka athygli er að aftast á skipinu stjórnborðsmegin var búið að koma fyrir fiskibátnum Öndinni AK sem seldur hefur verið til annarr- ar útgerðar í sama landi. Skessu- horn hitti skipstjórann að máli á höfninni á Akranesi þegar nýlokið var við að koma Öndinni fyrir og binda. Daginn eftir skyldi haldið úr höfn. Garðar Sveinsson siglir nú skipinu til Trípólí og með honum fimm manna íslensk áhöfn. Skipið sem um ræðir á sér merka sögu. Það var upphaflega smíðað árið 1964 og hét Helga Guðmunds- dóttir BA og gert út af Finnboga Magnússyni á Patreksfirði sem lét smíða það fyrir sig í Noregi. Eftir veruna á Patró var skipið um tíma Þórsnes SH og gert út til skelveiða á Breiðafirði. Undanfarna tvo ára- tugi hefur skipið verið bundið við bryggju, en hefur þó verið hreyft reglulega og einu sinni á þeim tíma var siglt á því til Grænlands. Garð- ar segir að skipið sé í ótrúlega góðu lagi miðað við aldur og fyrri sögu og vel við haldið. Hann kveðst því hlakka til siglingarinnar. Eftir komuna til Lýbíu segir hann að til standi að sandblása skipið og mála og eftir það verði það gert út til línuveiða við Máritaníu. „Ég áætla að siglingin taki um átján daga ef við verðum heppnir með veð- ur, en þetta er um 3.200 sjómílna leið. Við verðum fimm í áhöfninni, allt Íslendingar, en eigandinn og sá sem ég vinn fyrir er Lýbíumaður sem keypti skipið af Gunnari Leifi Stefánssyni athafnamanni á Akra- nesi. Jón Frímann Jónsson, ann- ar Skagamaður, hafði selt líbýskri útgerð Öndina AK og var um það samið að hún fengi að fljóta með. Þess vegna má segja að við höfum byrjað ferðina með siglingu hingað á Akranes,“ segir Garðar. Hann segir að heilmikið sé eft- ir af þessu skipi þótt það sé orðið 58 ára gamalt. „Það er með íslenskt haffærniskírteini en verður nú flaggað út til Lýbíu.“ Garðar segist ekki ætla að velja hefðbundna sigl- ingaleið frá Reykjanesi með stefn- una á Portúgal, heldur fari hann frá Sandgerði og taki fyrst stefnuna til Vestmannaeyja og þaðan verði stímt til Bretlandseyja og siglt milli Írlands og Englands, mitt á milli Liverpool og Dublin. Aðspurður hvort ekki væri upplagt að koma við og sjá svo sem eins og einn fót- boltaleik í leiðinni, hlær skipstjór- inn og segir að í sjálfu sér væri það vel hægt. Eftir það verður stefnan tek- in á Biskajaflóa, meðfram strönd Spánar og Portúgals og inn á Mið- jarðarhafið. „Ef allt gengur að óskum verðum við þetta sautján, átján daga í túrnum,“ segir Garð- ar. Aðspurður um hvort hann ótt- ist ekki sjóræningja á þessari sigl- ingaleið neitar hann því. Seg- ist hafa miklu meiri áhyggjur af að flóttafólk á þessari siglingaleið reyni uppgöngu á skipið. „Það er kvíðvænlegt, því að um leið og flóttamenn eru komnir um borð í svona skip eru þeir á ábyrgð þess. Við vonum bara hið besta hvað það snertir,“ segir Garðar. Eftir að út verður komið reiknar Garðar með að verða ásamt vélstjóranum eitt- hvað lengur í Lýbíu og kenna á búnað um borð í skipinu. mm Upphaflega hét skipið Helga Guðmundsdóttir BA og var gert út frá Patreksfirði. Hér er það við veiðar á Breiðafirði og hét þá Þórsnes SH. Ljósm. úr safni. Öndin fékk far með skipi til Lýbíu Garðar Sveinsson skipstjóri á fyrrum Helgu Guðmundsdóttur BA og Þórsnesi SH, en nú er skipið skráð í Lýbíu undir heitinu Tajons IMO-6413340. Öndinni hefur verið komið fyrir aftan á skipinu stjórnborðsmegin. Siglt var úr höfn síðastliðinn laugardag. Stefán Broddi með æskuvinum úr Borgarnesi að afloknum árlegum veiðitúr á Arnarvatnsheiði. Frá vinstri: Vilhjálmur Þorsteinsson, Stefán Broddi, Birgir Örn Birgisson, Hafþór Hallsson, Þorvaldur Þorláksson og Borgar Axelsson. „Við höfum haldið góðum vinskap alla tíð og það er skyldumæting í árlega veiðitúrinn á Arnarvatnsheiði í júlí á hverju ári.“ erum ekki með sjávarútveg, hann er í mýflugumynd, en að öðru leyti er allt sem Ísland býður upp á hér að finna. Og svo staðsetningin. Ef ég á að nefna eitthvað eitt, þá er það að skipuleggja sveitarfélagið okkar þannig að það búi til þennan góða ramma.“ Skipulagsmálin mikilvæg Skessuhorn hitti á Stefán Brodda í húsnæði sem Borgarbyggð keypti af Arion banka fyrir um ári síðan. Þar voru áður höfuðstöðvar Spari- sjóðs Mýrasýslu, en fyrirhugað er að sameina starfsemi sveitarfélags- ins í húsinu. „Það er eitt af verkefnunum sem ég stend frammi fyrir, að sameina starfsemina hér. Það má ekki gerast bara hvernig sem er. Sveitarfélag eins og Borgarbyggð er með mjög fjölbreytta starfsemi. Mikilvæg- ur hluti starfseminnar krefst nær- gætni og trúnaðar og við þurfum að gæta að því að útfæra húsnæðismál í samræmi við það. Þetta gerist von- andi sem fyrst.“ Verkefnin verða mýmörg og Stefán segir að eitt af því sem hann hlakki til sé endurskoðun aðal- skipulags. Það sé krefjandi áskor- un en um leið er það mjög heillandi verkefni að skipuleggja jafn fjöl- breytt sveitarfélag og Borgarbyggð. „Þau geta snúið að framtíðarlegu þjóðvegarins, hvernig við viljum þróa íbúðabyggð í þettbýlinu, hvar viljum við þétta byggð og hvernig leyfum við þeim sem kjósa meira rými að njóta sín, hvaða svæði við ætlum að þróa fyrir atvinnurekstur og hvernig á frístundabyggðin að þróast. Svo þurfum við að láta þetta ríma við nálægðina við borgina og hvernig við bjóðum þeim sem vilja vera í dreifbýli og jafnvel vinna í fjarvinnu að vera hér. Svo er Borg- arbyggð mjög víðfeðmt sveitar- félag, landfræðilega mikil víðerni og afréttarlönd. Virði slíkra svæða hefur aukist mikið á síðustu árum. Þetta er dæmi um mál sem við stöndum frammi fyrir og ég þarf að setja mig inn í. Skipulagsmál eru svo mikil- væg, það hangir svo margt á þeim. Við þróum skólana í samhengi við skipulagsmálin og öfugt og fleira í þeim dúr. Við erum lánsöm með að vera með mjög öfluga skóla. Við erum með gott íþrótta- og menn- ingarstarf. Fólk er að koma til okk- ar en starfar á höfuðborgarsvæð- inu og öfugt. Þetta snýst allt um að halda áfram til að byggja upp umgjörð fyrir lífsgæði. Ég held það felist töluverð tæki- færi í nánd við höfuðborgina. Það hefur orðið hröð fjölgun íbúa í sveitarfélögunum austan Hell- isheiðar og á Suðurnesjum en t.d. bæði hér í Borgarbyggð og á Akra- nesi hefur verið farið hægar í sak- irnar en hér hefur þó verið vel viðunandi fjölgun m.v. landið í heild. Við þiggjum það að hér fjölgi íbúum og atvinnutækifærum og að því er stefnt. Það er ekki metnað- armál að vera svefnbær fyrir höf- uðborgina, við viljum hafa öflugt atvinnulíf hér, en við viljum gjarn- an veita fólki það umhverfi að það geti sinnt vinnu á höfuðborgar- svæðinu. Fyrst og fremst viljum við veita góða þjónustu og standa und- ir væntingum þeirra sem hér búa og kjósa að flytja til okkar.“ Snortinn yfir tækifærinu Óhætt er að segja að Stefán Broddi þurfi að lenda hlaupandi í nýja starf- inu, enda er það víðfeðmt og fjöl- breytt. Hann sló heldur ekki slöku við á fyrsta deginum, þegar tíðinda- mann Skessuhorns bar að garði var hann að senda fyrsta tölvupóstinn á starfsfólk sveitarfélagsins. „Ég byrja á að hitta mitt nánasta samstarfsfólk á skrifstofum sveitar- félagsins og nú er ég að bóka mig í heimsókn á vinnustaðina. Ég næ vonandi að hitta sem flesta starfs- menn nú í sumar, í kringum sum- arfríið. Svo þarf ég að kynnast bet- ur öllum frjálsu félagasamtökunum sem hér eru, fólki sem er að reka hér fyrirtæki og stéttarfélög og svo þarf ég að vera í stöðugum sam- skiptum við sveitarstjórnarfólk- ið, sem auðvitað réð mig til starfa. Þetta er það sem ég geri á fyrstu dögum, vikum og mánuðum. Ver- kefnin munu koma til manns og ég þarf líka að sækja þau, en ég vona að mér takist að vera duglegur að vera úti á örkinni. Svo vona ég líka að mér takist að vera þokkalegur málsvari þegar svo ber undir, það er líka partur af þessu. Að gæta hagsmuna íbúa hér og sveitarfélagsins og gera það sómasamlega, hvar sem svo ber undir. Það getur ýmislegt komið upp á. Ég er mjög peppaður, núna á fyrsta deginum. Það er gaman að vinna með góðu fólki, það er ofboðslega dýrmætt. Ég vona að þetta starf henti mér ágætlega. Ég er ofboðslega snort- inn yfir því að fá þetta tækifæri. Það er alls ekki sjálfgefið. Vonandi nýt- ist mín reynsla. Það er líka dýrmætt að fá tækifæri til að þroskast í ein- hverju nýju, ég tala nú ekki um ein- hverju sem er manni svona mikið hjartans mál. Ég er mjög sáttur og glaður með það og vonandi stend ég mig vel.“ kóp

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.