Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 202212
„Ég svaf lítið í nótt, var mjög
spenntur. Því fylgir spenna og
dálítið stress að mæta á nýjan vinnu-
stað. Líklega er það merki um að
maður vilji standa sig. Þetta er þó
óneitanlega meira hjartans mál en
flest önnur vinna sem ég hef tekið
að mér,“ segir Stefán Broddi Guð-
jónsson. Skessuhorn hitti á hann á
fyrsta degi í nýju starfi, en hann var
ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar
á dögunum. Stefán er ekki ókunn-
ugur á þessum slóðum, nema síð-
ur sé, hann flutti í Borgarnes þegar
hann var eins árs að aldri og ólst
þar upp. Hann naut æskuáranna
og segir Borgarnes hafa haldið vel
utan um sig þegar hann var strákur.
„Ég er uppalinn hér. Ég er eins
árs þegar foreldrar mínir flytja
í Borgarnes. Ég ólst hérna upp,
bjó þar til ég fór í framhaldsskóla
en kom alltaf heim á sumrin og í
öðrum fríum og vann hérna. Eins
þegar ég var í háskóla. Ég var í fót-
boltanum, náði að fara upp og nið-
ur margar deildir með Skallagrími,
aðallega upp minnir mig. Vann í
mjólkursamlaginu, Loftorku og á
hótelinu sem dæmi. Það var rosa-
lega gaman að alast upp hérna og
að koma heim á sumrin, vinna og
vera í íþróttunum og sinna menn-
ingunni, því sveitaböllin voru allt
um kring og það þurfti að sinna
þeim. Hér blómstraði mikið líf eins
og nú, þó margt hafi breyst.“
Faðir Stefáns, Guðjón Ingvi
Stefánsson, var ráðinn fyrsti fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé-
laga í Vesturlandskjördæmi árið
1973 og gegndi því starfi samfleytt
til aldamóta. Móðir hans, Guð-
rún Broddadóttir, var hjúkrunar-
fræðingur og síðar hjúkrunarfor-
stjóri á heilsugæslunni. „Ég hef
það á tilfinningunni að gömlum
íbúum finnist sem verið sé að ráða
mömmu og pabba á svæðið aftur,“
segir Stefán Broddi og hlær. „En ég
er auðvitað í þessu á eigin forsend-
um, á forsendum sveitarstjórnar og
fyrst og fremst íbúanna.
Foreldrar mínir flutti hingað
á sínum tíma vegna atvinnu. Ég
bý fyrir sunnan núna og Þuríður
Anna Guðnadóttir kona mín, sem
er hjúkrunarfræðingur, er deildar-
stjóri á Landspítalanum og tiltölu-
lega nýtekin við því starfi. Ég á tvo
stráka sem eru í háskóla og fram-
haldsskóla í Reykjavík og svo er
þriðji og elsti strákurinn minn að
vinna á Ísafirði. Ég er bara að horfa
í kringum mig hérna að finna mér
húsnæði, en fyrst í stað a.m.k. sýnist
mér stefna í að við rekum tvö heim-
ili. En auðvitað vil ég búa hér. Fjöl-
skyldunni lýst mjög vel á þetta og
finnst tilhugsunin um að búa líka í
Borgarbyggð vera mjög heillandi.“
Kemur úr
fjármálageiranum
Stefán Broddi starfaði í Arion
banka í um tíu ár. Hann hefur
því reynslu sem sérfræðingur og
stjórnandi í fjármálageiranum og
mest hefur farið fyrir honum sem
forstöðumanni greiningardeildar
Arion banka.
„Ég kem úr fjármála- og rekstr-
arumhverfi. Verkefnin sneru að
fjármálamarkaði og efnahagslífi
almennt og ekki síður því að rann-
saka, greina og kynnast rekstri
stærstu fyrirtækja, stjórnkerfinu,
ríkinu og svo rekstri sveitarfélaga.
Ég vona að það sé góður grunnur
í hluta af starfinu, en margt í því
verður mér nýtt.
Ég verð ekki sveitarstjóri bara
eins og hendi sé veifað, en von-
andi vex ég í starfi og verð íbúum
til sóma. Ég vona að ég fái eitt-
hvert svigrúm til að gera mistök og
læra og fá leiðbeiningar frá öðrum
starfsmönnum hjá sveitarfélaginu
og íbúum.“
Nýja starfið krefst óneitanlega
meiri samskipta við fólk en það
að sitja yfir tölum og greining-
um. Hvernig leggst það í Stefán
Brodda?
„Já, ég verð meira í framlínunni.
Það leggst mjög vel í mig. Mér hef-
ur fundist rosalega vænt um hvað
ég hef fengið margar góðar kveðjur
frá íbúum Borgarbyggðar sem ég
þekkti svo vel þegar ég bjó hérna og
hafa vitað af mér og þekkt til mín.
Jafnframt hef ég fengið margar
óskir um gott gengi frá fyrri vinnu-
félögum, fólki af fjármálamark-
aði og stjórnendum í atvinnulíf-
inu sem voru mínir viðskiptavinir
í mínu fyrra starfi. Þannig að von-
andi saknar mín einhver úr gamla
starfinu. En þar liggur mín reynsla
og tengsl sem mér tekst vonandi að
nýta eitthvað Borgarbyggð til hags-
bóta.
Þegar það var nefnt við mig upp-
haflega að mitt nafn hefði kom-
ið upp og hvernig mér litist á að
taka þessu starfi, þá fékk ég nú bara
gæsahúð. Að mitt gamla heimafólk
hugsaði þannig til mín og liti til
mín í þessu samhengi. Það er mjög
mikill heiður. Svo er bara að standa
sig.
Á síðustu vikum hef ég verið að
ljúka mínu sumarfríi frá bankanum
en um leið að kynna mér sveitar-
stjórn og stefnumálin, tækifærin og
áskoranirnar, og það sem stendur
upp úr er hvað þetta er ofboðslega
fjölbreytt. Ég á hins vegar eftir að
læra hvernig gangurinn er í stjórn-
kerfinu, hvernig verkefnin ganga
fyrir sig og hvernig góðum málum
verður best ýtt áfram.“
Fjölmörg tækifæri
Það er kannski ekki sanngjarnt að
þýfga mann sem hefur aðeins gegnt
nýju starfi í nokkrar klukkustund-
ir um framtíðarsýn, en Skessuhorn
stenst ekki mátið. Reynsla Stefáns
Brodda úr greiningu og rannsókn-
um, því að sjá tækifæri, leiðir nefni-
lega hugann að því hvaða augum
hann lítur tækifæri sveitafélagsins.
Eru þau mörg?
„Já, ekki spurning. Hér eru fjöl-
mörg tækifæri og verkefnið verð-
ur meðal annars að greina hvar þau
liggja. Við getum ekki ætlast til þess
að sveitarfélagið sé alltaf að finna
upp hluti, en við þurfum að tryggja
það að þjónustustigið sé gott, að
við séum með góðar aðstæður fyrir
íbúana, atvinnulífið og þessi frjálsu
félagasamtök sem eru að gera frá-
bæra hluti hérna, svo er það nátt-
úran allt um kring. Þegar þessu er
öllu blandað saman þá ertu kominn
með eitthvað sem við getum skil-
greint sem lífsgæði sem umhverfið
býður okkur upp á. Þannig getum
við sem flest og vonandi öll fengið
að njóta okkar í Borgarbyggð.
Svæðið er afskaplega fjölbreytt.
Við erum með nálægð við höf-
uðborgarsvæðið. Við erum líka
á krossgötum, vestur og norður,
og reyndar suður og austur líka,
við erum með öflugar mennta- og
menningarstofnanir, mikla ferða-
þjónustu, náttúruperlur, öflugan
iðnað og matvælaframleiðslu, erum
mikið landbúnaðarhérað. Ef þú
blandar þessu öllu saman, þá eru
óvíða sveitarfélög þar sem þú get-
ur fundið fjölbreyttari verkefni.
Við tikkum í mörg box. Þetta er
bara spurning um hvað við vilj-
um, hvar á að leggja áherslur. Við
Vonandi verð ég íbúum til sóma
Rætt við Stefán Brodda Guðjónsson á fyrsta degi hans í starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar
Stefán Broddi Guðjónsson á fyrsta degi í nýrri vinnu sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hann segist vera spenntur fyrir nýju starfi og mikill heiður sé að fá að sinna því.
Hann sér mikil tækifæri fyrir sveitarfélagið.
Stefán Broddi með eiginkonu sinni Þuríði Önnu Guðnadóttur og sonum sínum á ferðalagi fyrir þremur árum. Synirnir eru: Guðni Snær 22 ára, Ingvi Freyr 20 ára og Óskar
Máni 16 ára. „Við höfum ferðast mjög mikið fjölskyldan og ég get helst ekki verið heima hjá mér í sumarfríi. Ég hef ekki tölu á því hvað við höfum farið oft hring um
landið, og þá með tjaldvagninn í eftirdragi og svo höfum við þvælst töluvert um Evrópu og Bandaríkin.“