Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20226
Áminning um
kartöflumyglu
LANDIÐ: Þar sem kar-
töflugrös eru nú farin að
spretta upp í kartöflugörð-
um landsmanna vill Mat-
vælastofnun ítreka varúða-
orð um að fylgjast vel með
kartöflugarðinum í sum-
ar. „Mjög mikilvægt er að
almenningur taki strax upp
plöntur sem sýna einkenni
smits og fargi þeim til að
hindra útbreiðslu smits.
Veðurfar ræður miklu um
það hvort sjúkdómurinn nái
sér á strik, hlýtt og rakt veð-
ur eykur hættu á útbreiðslu.
Einkenni: Svartir blettir á
blaðendum og stönglum,
að lokum falla grösin alveg.
Förgun: Fargið sýktum kar-
töflum og grösum strax, t.d.
í svörtum ruslapokum, ekki
setja í lífrænt rusl.“ -mm
Annir lögreglu
og mikil ölvun
AKRANES: Dagbók lög-
reglunnar á Vesturlandi er
þéttskrifuð eftir annasama
helgi Írskra daga á Akranesi.
Minniháttar umferðaróhapp
varð á Skólabraut og ann-
að á Suðurgötu til móts við
gatnamót Vitateigs. Vegna
hátíðarhaldanna og mik-
ils fjölda í bænum var við-
bótarmannskap lögreglu
bætt við á Akranesi alla
helgina og að jafnaði áhafn-
ir á fimm bílum sem sinntu
fjölmörgum útköllum. Með-
al annars var kvartað und-
an rafskútum sem ekið var
frjálslega um götur bæjar-
ins af drukknu fólki. Ýms-
ir óttuðust að fólkið færi
sér að voða og vildu fá lög-
reglu til að kanna ökuhæfn-
ina. Þá var að sögn lögreglu
almennt mikið um ölvunar-
og hávaðaútköll sem tengd-
ust samkvæmum víðsvegar
um bæinn. Einhverjir smá-
pústrar urðu og fólk dettandi
á höfuðið og meiða sig. Þá
þurfti að koma ofurölvi ung-
mennum til bjargar úr skurði
við Innnesveg á föstudags-
kvöldinu og voru þau flutt á
sjúkrahús. Flest útköll lög-
reglu voru hins vegar á eða
nærri skemmtisvæði Lopa-
peysunnar við Akranes-
höfn, þar sem nokkur þús-
und manns komu saman á
laugardagskvöldinu. Níu
ölvunarakstrar voru færð-
ir til bókar lögreglu, all-
ir á eða í kringum Akranes.
Eitt umferðaróhapp var þar
sem ölvaður ökumaður átti í
hlut. Bíl var velt skammt frá
afleggjaranum að Akrafjalls-
vegi. Minniháttar meiðsli
urðu í því óhappi. Tvær
skráðar líkamsárásir voru á
laugardeginum og aðfara-
nótt sunnudags. Eitt kyn-
ferðisbrot var skráð í tengsl-
um við Lopapeysuna. -mm
Fá að nota
Natóstrenginn
LANDIÐ: Ljósleiðarinn
og utanríkisráðuneytið hafa
samið um afnot Ljósleiðar-
ans af tveimur af átta ljós-
leiðaraþráðum í ljósleiðara-
streng Atlantshafsbandalags-
ins (NATO streng), sem ligg-
ur hringinn í kringum landið og
til Vestfjarða. Samningurinn er
gerður að undangenginni aug-
lýsingu ráðuneytisins um tillög-
ur um samningsbundin afnot af
einum eða tveimur ljósleiðara-
þráðum í ljósleiðarastreng Atl-
antshafsbandalagsins sem ligg-
ur um landið. Ljósleiðarinn
leigir þræðina til allt að 10 ára
með möguleika á frekari fram-
lengingu. „Þessi samningur við
utanríkisráðuneytið markar viss
vatnaskil fyrir Ljósleiðarann.
Við erum nú enn betur í stakk
búin að þjóna okkar viðskipta-
vinum sem eru m.a. fjarskipta-
fyrirtækin. Þau nýta Ljósleiðar-
ann fyrir sína viðskiptavini og
í uppbyggingu og þéttingu 5G
farsímakerfa. Með þessu erum
við að skapa ný tækifæri við
tengingu heimila, fyrirtækja og
stofnana á svæðum sem ekki
hafa notið okkar þjónustu eða
ljósleiðaratenginga til þessa,“
segir Erling Freyr Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Ljós-
leiðarans. -mm
Óku utan
í smábíl
NORÐURÁRD: Í vikunni
sem leið varð umferðaróhapp
á þjóðvegi 1 við Fornahvamm
í Norðurárdal. Þar var flutn-
ingabíl ekið utan í fólksbíl. Bíl-
stjóri flutningabílsins virðist
ekki hafa orðið var við óhappið
og ók leiðar sinnar, en fólksbíll-
inn stóð óökufær á eftir. Hliðar-
spegill var brotinn af, bíllinn
rispaður og framdekk var undan
honum. Erlendir ferðamenn á
smábílnum sluppu með skrekk-
inn. -mm
UMFÍ er búið að gefa út nýja
Göngubók, en þetta er 20. árið sem
hún kemur út. Sem fyrr er mark-
miðið að hvetja fólk til þess að
ganga um landið, njóta samveru
með öðrum í gönguferðum og efla
umhverfisvitund. Göngubókin er
unnin í samstarfi við göngugarp-
inn Einar Skúlason og geta lesend-
ur notað Wappið hans til að fræð-
ast betur um einstakar gönguleiðir
um allt land. Hér á Vesturlandi er
fjölda gönguleiða lýst en í bókinni
eru lýsingar á alls 272 gönguleiðum
víðs vegar um landið, fyrir alla sem
geta gengið, kort og ítarlegar leiða-
lýsingar á flestum leiðum og 32
léttar fjallgönguleiðir fyrir alla fjöl-
skylduna. Einnig má í bókinni lesa
sér til um ýmis ráð á gönguferðum.
Takk amma!
„Ég byrjaði að ganga með ömmu
minni þegar ég var á leikskólaaldri.
Amma var mikið fyrir útiveru og
hún lífgaði upp á göngurnar með
sögum af landinu. Ég reyni að
miðla því áfram í Wappinu,“ segir
Einar í viðtali sem birt er í Göngu-
bókinni.
Þar þakkar Einar ömmu sinni
gönguáhugann, sem þó var ekki
kominn til af góðu: „Amma fékk
berkla þegar hún var níu eða tíu ára
og bjó í Eyjafirði. Hún og nokkr-
ir nemendur í sama bekk smituðust
af kennaranum. Þau voru öll flutt
á berklahælið í Kristnesi og þar
dó kennarinn og allir hinir nem-
endurnir. Amma var sú eina sem
komst lífs af. Hún var á hælinu í á
annað ár. En þegar hún var orðin
góð reyndist hún orðin ónæm fyr-
ir berklum og fékk vinnu á hælinu.
En þarna var innprentað í hana að
stunda daglega útiveru og útivist,
göngur og aðra heilbrigða hreyf-
ingu til að bæta líkamlega ástandið.
Það tókst,“ segir Einar og bætir við
að amma sín hafi allt sitt líf hlýtt
ráðum læknanna á berklahælinu og
stundað útiveru.
Einari fannst gaman að hlusta á
sögurnar hennar ömmu þar sem
þau gengu mikið í Botnsdal í Hval-
firði, þar sem afi og amma Einars
áttu bústað, og um fjörur og hlíðar
skammt frá Hvalstöðinni og Olíu-
stöðinni, þar sem afi hans vann og
þau amma hans áttu annað heimili.
„Við gengum mikið þarna og
hún sagði mér sögur af huldufólki
og álfum, benti mér á bobbana,
skeljar og jaspís og talaði um
umhverfið eins og það væri lifandi.
Þetta reyni ég líka að gera þegar ég
fer með fólki í göngur,“ segir Einar,
sem byrjaði að ganga einn á eigin
vegum á þessum sömu slóðum og í
nágrenni við Glym.
Sögur af landi
í Wappinu
Einar segist vinna að því að miðla
sögum af landinu eins og amma
hans sagði honum í Wappinu,
smáforriti sem hann bjó til fyrir
nokkrum árum. Wappið er göngu-
app sem geymir mikið safn fjöl-
breyttra GPS-leiðarlýsinga um
allt Ísland. Í Wappinu eru leiðar-
lýsingar sem notast við kortagrunn
kortafyrirtækisins Samsýnar og er
ráðlagt að hlaða gönguleiðinni fyr-
ir fram inn í símann áður en haldið
er af stað í göngu.
Í Wappinu eru jafnframt ljós-
myndir og upplýsingar um árs-
tíðabundinn aðgang, bílastæði,
almenningssalerni og, ef ástæða er
til að benda á, hættur eða önnur
varúðarsjónarmið á leiðunum. Það
er vel hægt að mæla með Wappinu
fyrir þá sem hafa gaman af göngu-
ferðum.
Við mælum með því við
göngugarpa sem vilja fræðast bet-
ur um ákveðnar slóðir og rata bet-
ur um stikaða stíga að opna Wapp-
ið og finna þá leið sem ætlunin er
að ganga um.
„Fjölmargar gamlar þjóðleið-
ir eru í Wappinu og göngur eftir
góðum og gömlum leiðum snúast
ekki bara um landslagið. Þær snú-
ast líka um sögurnar og fólkið sem
lifði og dó. Gömlu leiðirnar eru í
raun fornleifar sem verður að nýta,
annars glatast þær. Og þá er nú
um að gera að nota þær til að bæta
heilsu sína í leiðinni. Það er líka
svo frábært að nýta stafrænu tækn-
ina til að segja fólki frá leiðunum
og varðveita þær,“ segir Einar að
lokum og hvetur landsmenn til að
reima á sig gönguskóna og spretta
af stað.
mm
Gönguleiðir eru
fornleifar sem þarf að nota
Forsíða Göngubókarinnar 2022.
Einar Skúlason er höfundur bókar-
innar.