Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 06.07.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2022 11 Skógar 22, fjölskylduhátíð SÁÁ, verður haldin að Skógum um versl- unarmannahelgina. Hátíðarsvæð- ið er við Skógaskóla í einstaklega fall egu og skjólsælu umhverfi. Fjöl- skylduhátíð SÁÁ er fyrir alla aldurs- hópa og verður fjölbreytt dagskrá í boði. Þar á meðal má nefna hljóm- sveit, skemmtiatriði, töframann, brekkusöng, paintball, hoppukast- ala, sápubolta, ratleik, jóga, sjálfs- vinnu, listasmiðju og margt fleira. Stutt er í fjölbreytta útiveru í næsta nágrenni. Þar á með- al má nefna lengri sem skemmri gönguleiðir, Skógafoss, Para- dísarhelli, Seljalandsfoss, Selja- vallalaug og Kvernugil. Örskammt frá er Byggðasafnið að Skógum. Fyrsta flokks aðstaða er á hátíðar- svæðinu fyrir ferðavagna jafnt sem tjöld. Rafmagn er í boði fyrir ferða- vagna. Í Skógaskóla er hægt að fá gistingu í Hótel Kverna. Miðasala er á Tix.is og hjá SÁÁ í Efstaleiti 7. Forsala er til 15. júlí, en eftir það hækkar verð. -fréttatilkynning Þessir vösku krakkar héldu hluta- veltu á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal um síðustu helgi og afhentu Rauða krossinum afraksturinn, 9000 kr sem þau gefa til hjálparstarfs í Úkraínu. Hér eru þau Óðinn Ísaksson 9 að verða 10 ára frá Stykkishólmi, Sonia Fjóla Mileris 9 að verða 10 ára, frá Reykjavík og Jenný Dagbjört Stefánsdóttir 9 ára frá Reykjavík ásamt Sigurði Ólafs- syni formanni Rauða kross deildar Dala- og Reykhólahrepps. bj Hafrannsóknastofnun hefur birt yfirlit yfir lax- og silungsveiði hér á landi árið 2021. Þar kemur fram að heildarfjöldi stangveiddra laxa á síðasta ári var 36.461 sem var 8.663 löxum, eða 19,2% minni veiði, en árið 2020. Af einstökum landshlut- um þá var 13,3% aukning í veiði milli ára í ám á Reykjanesi, 7,4% hér á Vesturlandi og 1,7% á Norð- urlandi vestra. Minni veiði var hins vegar í ám á Vestfjörðum, Norð- urlandi eystra, Austfjörðum og Suðurlandi. Fram kemur að 19.589 löxum var sleppt á síðasta ári, en það jafngildir 53,7% veiðinnar. Af stangveiddum löxum voru 28.705, eða 78,7%, lax- ar með eins árs sjávardvöl og 7.756 laxar með tveggja ára sjávardvöl eða lengri, en þeir kallast einu orði stórlaxar. Alls var þyngd landaðra laxa í stangveiði 46,8 tonn. Í fyrra voru skráðir 43.389 urrið- ar í stangveiði en hlutfall urriða sem var sleppt var 33,1% sem er hér um bil sama hlutfall og var sleppt árið 2020. Alls voru skráðar 30.726 bleikjur í stangveiði árið 2021. Hlutfall bleikju sem var sleppt var 45,2% sem var mun hærra hlutfall en árið áður. Veiði í net var 4.574 laxar sum- arið 2021 og var heildaraflinn 12,5 tonn. Eins og undanfarin ár var netaveiði mest stunduð í stóru ánum á Suðurlandi; Ölfusá-Hvítá og Þjórsá en þar veiddust 4.344 lax- ar í net. Lítið var um netaveiði í öðrum landshlutum. Skráð silungs- veiði í net á landinu öllu var 5.002 urriðar og 25.059 bleikjur. Aldrei hafa veiðst fleiri hnúð- laxar í ám hér á landi en sumar- ið 2021 en þá voru skráðir samtals 339 hnúðlaxar í stang- og netaveiði. Í stangveiði voru skráðir 323 hnúð- laxar og 16 skráðir í netaveiði. Vit- að er um hnúðlaxa úr fleiri ám sem ekki voru skráðir í veiðibækur eða skilað gögnum um. mm Í nokkrar vikur hefur fólk ver- ið á vappi á undarlegustu stöð- um og margt skrýtið borið fyr- ir sjónir í Dölunum. En sunnu- daginn 3. júlí lá allt ljóst fyrir. Dal- irnir eru nú fullir af myndlist, eft- ir að Umhverfing Nr. 4, samsýning rúmlega 100 listamanna var form- lega opnuð. Sýningin nær yfir allt svæði Vestfjarðaleiðarinnar, þ.e. Strandir, Vestfirði og Dali. Óhætt er að segja að um fjölbrytt verk sé að ræða, allt frá hefðbundnum mál- verkum til umhverfislistaverka og allt þar á milli. Hægt er að kynna sér allt lista- fólkið í félagsheimilinu Árbliki í Miðdölum, sem er rétt við upphaf Vestfjarðaleiðarinnar. Þar er einnig að finna eitt verka sýningarinnar. QR kóði fylgir kynningu sýningar- innar, þar sem öll verkin eru merkt inn á kort og hægt að sækja stað- setningarnar með kóðanum Markmið verkefnisins Nr. 4 Umhverfing er ferðalag um Dali, Strandir og Vestfirði til að kynna menningu og náttúru með myndlist á hefðbundnum og óhefðbundnum sýningarstöðum og í samstarfi við nærsamfélagið á hverjum stað - og skapa umræðu um tilgang lífs og listar. Grunnhugmyndin er að sýna verk eftir myndlistarmenn sem búa eða eiga ættir eða tengsl að rekja til þessa landshluta. Þetta er 4. sýn- ingin í röðinni Umhverfing, sem hófst 2017 í Skagafirði með sýn- ingu 13 listamanna. Ári síðar var sýnt á Egilsstöðum og síðast á Snæ- fellsnesi. Ef vel er að gáð tengjast sumir sýnenda fjölskylduböndum; feðgar, frænkur og til dæmis sýna saman nokkuð margir tengdir einstak- lingar í Grunnavík norðanvert á Vestfjörðum. Það dæmi sýnir að stundum eru verkin ekki alveg í alfaraleið, en t.d. má ganga 10 km frá Ljásrkógum til að skoða verk Kristins E Hrafnssonar. Önn- ur verkin eru inni í fyrirtækjum, á heimilum, við vegi og mjög líklegt að fólk sem ferðast um landssvæðið í sumar rambi á einhver verkanna. bj Hlutavelta til hjálpar í Úkraínu Fjölskylduhátíð SÁÁ að Skóg- um um verslunarmannahelgina Samantekt um lax- og silungsveiði 2021 „Jón“ Magnúsar Pálssonar stendur við Mjóaból í Haukadal. Ljósm. bj Umhverfing Nr.4 – stórbrotið verk úr list rúmlega 100 listamanna Á Skarðsströnd er verkið 8 milljón ár eftir Þóru Sigurðardóttur, sem vísar í tímann þegar steinrunnu trén í verkinu voru lifandi. Ljósm. aðsend. Í Árbliki er hægt að lesa og skoða upplýsingar um listamennina og verkin. Á myndina vantar Hópinn á Ströndunum, sem var á öðrum vegg. Ljósm. bj. Á Höskuldsstöðum í Laxárdal er innsetning Helga Þorgils Friðjónssonar, hefst við veginn og vindur sig inn á landareignina, með nokkrum tengdum þáttum. Ljósm. bj.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.