Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Page 14

Skessuhorn - 06.07.2022, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 202214 Bæjarhátíðin Írskir dagar var haldin á Akranesi um síðustu helgi. Dagskráin hófst á fimmtudeginum og síðan leiddi hver viðburðurinn annan allt fram á sunnudag. Ljósmyndarar Skessuhorns voru á ferðinni og reyndu eftir mætti að fanga stemninguna. Veður var þokkalegt alla hátíðisdagana, þurrt, en hitastigið hefði mátt vera hærra. Engu að síður var mjög vel mætt á viðburði og fjölmargir bæjarbúar og gestir þeirra nýttu sér það sem í boði var. mm Írskir dagar í þurru en köldu veðri Magga dagmanna með ungana sína; Jón Tinni, Alexander Ívar, Orri og Manúel. Ljósm. ki. Börnin tóku sporið með Línu á setningarhátíðinni. Ljósm. ki. Með verðlaun fyrir besta kastalann í sandkastalakeppninni. Liðin heita Team Úlfur 1 og 2. Ljósm. ki. Lína Langsokkur tekur sporið. Ljósm. ki. Smári Hrafn Jónsson sýndi verk sín í gamla Iðnskólanum. Sýninguna nefndi hann Heimkomuna. Ljósm. ki. Þorvaldur Arnar Guðmundsson var með sýninguna Úr hugarheimi Þorvaldar í gamla Landsbankahúsinu. Ljósm. ki. Fjölmargir þáðu pylsur í boði Húsasmiðjunnar á fimmtudeginum. Ljósm. ki. Ungliðar í golfklúbbnum Leyni hafa sem fjáröflun að sjá um pylsupartý Húsasmiðjunnar. Ljósm. ki. Addi var í góðum gír alla helgina. Ljósm. ki. Sápukúlur á Akratorgi. Ljósm. ki. Frænkurnar Silja Katrín og Júlíana Dögg í góðum gír. Ljósm. mm. Áætlað er að um fimm þúsund gestir hafi mætt á Brekku- söng Írskra daga á laugardagskvöldið. Það var þétt setið í brekkunni við Þyrlupallinn og raunar náði gestaskarinn einnig yfir á svæðið ofan við knattspyrnuvöllinn. Aldrei hafa fleiri mætt á þennan viðburð. Það var Magnús Kjartan Eyj- ólfsson sem söng og stýrði fjöldasöngnum, en hann verður einnig í sama hlutverki á Brekkusöng á Þjóðhátíð í Eyjum um Verslunarmannahelgina. Ljósm. mm. Klettur Bjarmi Pétursson Heiðdísarson hlaut annað sæti í keppninni um Rauðhærðasta Íslendinginn. Ljósm. ki.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.