Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Side 16

Skessuhorn - 06.07.2022, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 202216 Undanfarin tvö ár hefur Hildur Karen Aðalsteinsdóttir stýrt verk- efni sem nefnist Saman á Skaga. Markmið þess er að auka félags- lega virkni fatlaðs fólks og horft er til hóps 18 ára og eldri. Tildrög þess að verkefninu var ýtt úr vör var heimsfaraldur Covid-19. Veir- an hálfpartinn lamaði mannlíf- ið hér á landi fyrir rúmum tveim- ur árum og ákvað ríkisstjórnin, sem einn af aðgerðapökkum sínum, að leita til sveitarfélaga um að auka við félagsstarf fyrir fullorðið fatlað fólk. Vorið 2020 fékk Akraneskaup- staður framlag til þessa verkefnis og óskaði Hvalfjarðarsveit eftir að gerast meðaðili í því. Við því var orðið og ákváðu sveitarfélögin að standa saman að verkefninu. Akra- neskaupstaður skipulagði útfærslu á verkefninu fyrir þátttakendur með fjölbreyttu félagsstarfi, viðburðum og tilboðum og réð Hildi Karen til að stýra því. Fram til þessa hefur ekki átt sér stað opinber kynning á verkefninu, en í ljósi þess að nú er í umræðunni að Akraneskaupstaður haldi þessu verkefni áfram var ákveðið að segja frá því hvernig til hefur tekist og hver næstu skref verða. Hildur Karen kom á ritstjórn Skessuhorns til að ræða við blaðamann en með henni í för voru þau Kristjana Guð- rún Fanný Björnsdóttir og Brynjar Máni Jóhannsson. Þau hafa bæði verið virkir þátttakendur í þeim viðburðum sem skipulagðir hafa verið á undanförnum misserum. Hugmyndabanki búinn til Hildur Karen segir að í upphafi hafi verið leitað eftir ábending- um frá þátttakendum um hvar áhugasviðið þeirra lægi til að hægt væri að skipuleggja frístundatil- boð í samræmi við það. Fyrsta árið voru átta viðburðir skipulagðir, tíu á síðasta ári og tíu verða einnig í ár. Hildur Karen segist njóta þess að starfa með þessum hætti með einstaklingum með fötlun, það sé í senn gefandi og skemmtilegt. Fyrri menntun og reynsla nýtist henni í þessu starfi, en hún er kennari og stundar um þessar mundir fram- haldsnám í sérkennslufræðum og skóla margbreytileikans við HÍ. „Á vorin er kallað eftir hugmynd- um um hvað fólk langar að gera. Auðvitað koma fjölmargar tillög- ur og við reynum að vinna úr þeim fjölbreytta dagskrá svo fólk geti val- ið viðburði sem það langar að taka þátt í. Þannig höfum við verið með marga og ólíka viðburði. Höfum til dæmis farið í keilu og boccia, bakað saman og eldað, farið í sjó- ferð með björgunarfélaginu, haldið sundlaugarpartý, farið út að borða, í sveitaferð og fengið Pál Óskar í heimsókn. Svo förum við alltaf á hverju ári í eina lengri ferð, gjarnan suður til Reykjavíkur.“ Viðburðum dreift yfir árið Kristjana og Máni segja aðspurð að þau hafi notið þess að taka þátt í þeim viðburðum sem skipulagð- ir hafa verið. „Við kynnumst bet- ur öðru fólki og höfum lært alveg helling,“ segir Kristjana. Máni tek- ur undir það og segir verkefnið gott til að rjúfa ákveðna félagslega einangrun og sé um leið mikil til- breyting. Sjálfur er hann búsettur í Hvalfjarðarsveit, en ætlar að flytja á Akranes í haust. Þá segir hann að það verði auðveldara fyrir sig að sækja fleiri viðburði sem skipulagð- ir verða. Hildur Karen segir að í skipulagningu dagskrár fyrir næsta ár verði lögð áhersla á að dreifa viðburðunum yfir árið, en ekki ein- göngu yfir sumartímann. „Við höfum reynt að hafa sem flesta viðburði okkar í heimabyggð. Höfum virkjað íþróttafélögin sem hér eru starfandi, svo sem klifurfé- lagið, keilufélagið, golfklúbbinn og fimleikafélagið, en svo höfum við einnig nýtt húsnæði sveitarfélag- anna beggja fyrir viðburði eins og að baka, elda og halda partý. Val- gerður Jónsdóttir á Smiðjuloftinu bauð okkur t.d. að koma og það var ótrúlega skemmtilegt og gefandi að fá að prófa ólík hljóðfæri og njóta leiðsagnar hjá henni.“ Nota samfélagsmiðla til kynningar Hildur Karen stofnaði lokaðan Facebook hóp þar sem hópurinn hefur samskipti sín á milli, kynnir viðburði, deilir myndum úr starfinu og sitthvað fleira. Þeir sem ekki eru á samfélagsmiðlum eru svo látnir vita með öðrum leiðum hvað standi til að gera. „Einstaklingar með fötl- un 18 ára og eldri og aðstandendur þeirra geta óskað eftir inngöngu í hópinn Saman á Skaga. Við höfum ekki fyrr en núna sagt opinberlega frá þessu starfi, en nú geta fleiri fullorðnir fatlaðir einstaklingar látið okkur vita um áhuga sinn, eða haft samband við Laufeyju Jóns- dóttur hjá Akraneskaupstað, en hún er ábyrgðaraðili verkefnisins.“ Þegar viðburðir eru kynntir gerir Hildur Karen auglýsingu sem sett er á FB síðu hópsins, en hún er einnig prentuð út og sett á valda staði eins og á Holtsflötina, Laugarbraut, í Fjöliðjuna, starfsbraut FVA og til annarra tengiliða. Þannig er reynt að láta sem flesta vita um hvað er í gangi og fjölga þátttakendum. Á undanförnum tveimur árum seg- ir hún að um áttatíu einstaklingar hafi tekið þátt í einum eða fleiri viðburðum, en skráðir meðlimir á FB síðu hópsins eru nú 129 en þar á meðal eru einnig nokkrir aðstand- endur. Hún tekur það einnig fram að samvinna og samstarf við starfs- fólk hinna ýmsu staða sem tengjast fötluðum sé ómetanlegt fyrir hóp- inn, þeir hafi verið afar hjálpsamir svo sem við að skutla á viðburði og leggja hönd á plóg til að virkni fólks sé sem mest. Velja það sem hentar Máni segir það hafa verið mjög gaman að taka þátt í Saman á Skaga. Hann segist hafa verið með í fjórum viðburðum á þessu ári. Kristjana segist taka þátt í flestum þeim viðburðum sem henta henn- ar áhugasviði og sleppi því sumu. Þau hvetja alla fullorðna fatlaða til að skrá sig í hópinn. „Það er bara gaman að fá að kynnast fleira fólki. Í Saman á Skaga er alltaf val um að vera með eða sleppa, það er svo gott við þetta verkefni,“ segir Kristjana. Einangrun ekki bundin við Covid Hildur Karen segir að þegar þetta verkefni fór upphaflega af stað hafi markmiðið verið að draga úr félagslegri einangrun og styðja einstaklinga til þess að takast á við afleiðingar Covid-19. „Eft- ir því sem verkefninu hefur undið fram kemur betur í ljós að ein- angrun þessa hóps er ekki bund- in við afleiðingar Covid-19 held- ur hefur hún verið til staðar fyrir faraldurinn og mun verða til stað- Saman á Skaga Verkefni sem snýst um að rjúfa félagslega einangrun fullorðinna fatlaðra einstaklinga Brynjar Máni Jóhannsson, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og Kristjana Guðrún Fanný Björnsdóttir. Ljósm. mm Valgerður Jónsdóttir, Aníta Eva Birgisdóttir og Brynjar Örn Hilmarsson á tónlistar- námskeiði hjá Smiðjuloftinu. Sundlaugarpartí í Bjarnalaug. Emma Rakel Björnsdóttir, Helena Rut Pujari Káradóttir og Stefán Trausti Rafnsson að elda saman. Ólafur Elías Harðarson og Róbert Örn Kristjánsson, að elda saman.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.