Skessuhorn - 06.07.2022, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Þriðjudaginn 12. júlí nk. kl. 20
flytur Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Arla Foods, fyr-
irlestur í Snorrastofu í Reykholti,
sem ber yfirskriftina: „Frá Íslandi
til Nígeríu með viðkomu í Kína“.
Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyr-
irlestraröðinni „Fyrirlestrar í hér-
aði“, er öllum opinn og er aðgang-
ur ókeypis.
Snorri mun segja frá reynslu
sinni af búsetu og störfum í fjar-
lægum löndum, þar sem hann hef-
ur undanfarin ár unnið að þró-
un mjólkurframleiðslu við býsna
krefjandi aðstæður. Snorri lauk BSc
námi frá Landbúnaðarháskólan-
um á Hvanneyri árið 1995 og síð-
an meistaranámi frá háskólanum
í Kaupmannahöfn árið 1998, þar
sem hann sérhæfði sig í nautgripa-
rækt. Hann vann svo á Íslandi frá
1998 til 2010 við kennslu, nám-
skeiðahald, rannsóknir og fram-
kvæmdastjórn, bæði hjá Landssam-
bandi kúabænda og Búrekstrarsviði
Landbúnaðarháskólans.
Árið 2010 hóf hann störf sem
ráðgjafi danskra kúabænda á vegum
danska ráðgjafa- og þróunarfyrir-
tækisins SEGES. 2017 flutti hann
síðan til Kína og starfaði þar sem
sem framkvæmdastjóri hjá danska
fyrirtækinu Arla Foods, en þetta
samvinnufélag hefur sérhæft sig í
mjólkursöfnun og -vinnslu. Í Kína
sá hann um rekstur þróunarstofn-
unar í eigu Arla Foods og árið 2021
tók hann að sér uppbyggingu Arla
Foods í Nígeríu og hefur verið þar
frá því í fyrra. Hann hefur einnig
komið að málum í Túnis, Indó-
nesíu og Bangladesh og framundan
er vinna við ráðgjöf i Líbanon.
Fyrirlesturinn er styrktur af
Uppbyggingarsjóði Vesturlands.
-fréttatilkynning
Það styttist óðum í Náttúrubarna-
hátíð á Ströndum, en hún verður
haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi
helgina 8.-10. júlí. Þetta er í sjötta
skipti sem hátíðin er haldin, en hún
er fjölskylduhátíð þar sem gestir;
börn og fullorðnir, fá tækifæri til
að finna eða rækta sitt innra nátt-
úrubarn á fjölbreyttum viðburðum
sem einkennast af útivist, fróðleik
og skemmtun.
Það er Náttúrubarnaskólinn
sem stendur fyrir hátíðinni en það
er Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóð-
fræðingur sem hefur séð um hann
undanfarin ár. „Markmið Nátt-
úrubarnaskólans er að líta sér nær
og sjá hvað allt í kringum okkur er
merkilegt, að leita ekki langt yfir
skammt og það er einmitt það sem
við ætlum að gera á hátíðinni líka,“
segir Dagrún Ósk.
„Hátíðin hefst á föstudegi og fer
að mestu fram utandyra, svo við
hefjum hana alltaf á því að fram-
kvæma veðurgaldur, til að tryggja
gott veður um helgina, ekki veitir
nú af eins og veðrið hefur verið,“
segir Dagrún og hlær. „Skipulagn-
ingin gengur mjög vel og þetta
er allt að smella saman. Við erum
með glæsilega dagskrá, fjölbreytt
og skemmtileg atriði, tónlist,
spennandi smiðjur, gönguferðir og
útivist. Ég hlakka mjög til, eins og
alltaf,“ bætir Dagrún við.
Á hátíðinni um helgina verða
meðal annars á dagskrá spennandi
náttúrusmiðjur með Arfistan-
um, Þykjó og Eldraunum, Sirkus
Ananas, Solla stirða og Íþrótta-
álfurinn koma í heimsókn og Lalli
töframaður verður með magn-
aða töfrasýningu. Svavar Knútur
verður með fjölskyldutónleika og
svo verður hægt að fara á hestbak,
taka þátt í kiðlingajóga, göngu-
ferðum, ísbjarnahræðugerð, fjöl-
skylduplokki, spurningaleik, hlusta
á drauga- og tröllasögur, skjóta af
boga og margt fleira.
Það er frítt á öll atriði hátíðar-
innar en hún er styrkt af Upp-
byggingarsjóði Vestfjarða. Það
er hægt að kaupa súpu, grillaðar
pylsur, samlokur og ís í Sævangi
alla helgina. Gestum hátíðarinn-
ar býðst að tjalda frítt á Kirkjubóli
sem er beint á móti Sævangi en þar
er þó ekki eiginlegt tjaldsvæði (ekk-
ert rafmagn). Á Hólmavík er svo
gott tjaldsvæði og ýmsir gististaðir
í grenndinni.
„Ég hvet náttúrubörn á öllum
aldri til að koma og kynnast nátt-
úrunni, leika sér saman og skapa
skemmtilegar minningar,“ seg-
ir Dagrún að lokum. Hægt er að
kynna sér hátíðina á Facebook síðu
Náttúrubarnaskólans.
mm
Náttúrubarnahátíð á
Ströndum um helgina
Náttúrusmiðja með Arfistanum.
Frá Íslandi til Nígeríu
með viðkomu í Kína
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is