Feykir - 30.11.2021, Page 7
Lee Ann Maginnis hefur
staðið í brúnni hjá Kormáki/
Hvöt í fótboltanum en liðið
náði að koma sér upp um
deild með baráttu og þéttu
utanumhaldi stuðningsfólks
og stjórnar. Fullyrða má
að Lee Ann hafi staðið
í ströngu ásamt öðrum
stjórnarmönnum en nú fer
fram vinna sem felst í því að
stækka meistaraflokksráð
Kormáks Hvatar með það að
markmiði að fá fleiri til koma
að verkefninu. Þó Feykir
þekki nokkuð vel til Lee
Ann, eftir veru hennar eitt
sumar sem blaðamaður hjá
blaðinu, þótti ritstjóra tilvalið
að forvitnast aðeins meira
um hana munandi eftir því að
hafa talið að útlendingur væri
að sækja um starfið á sínum
tíma vegna nafnsins.
Lee Ann er fædd árið 1985,
búsett á Blönduósi, með hléum
frá árinu 1992, og býr með
Björgvini Orra syni sínum og
á pughundinn Míu. Nú starfar
hún sem umsjónarmaður
dreifnáms FNV í A-Hún,
kennir útlendingum íslensku
og fjarnemum við FNV lög-
fræði. Svo segist hún skipta
sér aðeins af pólitík og
elski nefndarsetu í hinum
ýmsum nefndum, ráðum og
félögum. „Ég er mjög mikil já
manneskja,“ segir hún.
„Ég er fædd í Englandi og
faðir minn var enskur. Mamma
fékk að velja annað nafnið og
pabbi hitt. Mamma valdi Ann
í höfuðið á sænskri vinkonu
og pabbi valdi Lee og ég fékk
aldrei upplýsingar frá honum
af hverju hann valdi það nafn,“
útskýrir hún en skyldi hún
hafa lent í því að fólk ávarpi
hana eða sendi póst á ensku í
stað íslensku, vegna nafnsins?
„Já, en samt meira að fólk
verður vandræðalegt þegar
það heyrir nafnið mitt eða sér
það og veit ekki alveg hvernig
það er borið fram. Ég fæ svo
oft spurningu um hvort ég tali
íslensku og svo hrós í kjölfarið
um góða íslenskukunnáttu.
Ég man þegar ég var að hefja
nám í framhaldsskóla og ég
sat alltaf aftast. Svo þegar
Jólaundirbúningurinn sam-
tvinnast afmæli sonarins
Lee Ann Maginnis býr á Blönduósi
ásamt syninum Björgvini Orra og hundinum Míu
Kormákur og Hvöt
gerðu það gott í
fótboltanum
Ungmennafélögin Kormákur
á Hvammstanga og Hvöt á
Blönduósi sameinuðust um
að senda sameiginlegt lið til
keppni í 4. deildinni sumarið
2013 og segir Lee Ann
samstarfið hafa verið mjög
gott en gengi liðsins auðvitað
misjafnt eftir árum. Margir hafa
komið að þessu verkefni og
uppskorið góðan árangur.
„Ég kom inn í þetta verkefni
2018 en ég sat þá í stjórn
Knattspyrnudeildar Hvatar.
Nokkrum dögum áður hafði
Kormákur Hvöt mætt liði
Augnabliks og tapaði 17-0.
Menn voru eitthvað bugaðir og
veltu því fyrir sér hver næstu
skref ættu að vera. Mér var
boðið á fund ásamt þremur
öðrum og mér lofað að boðið
yrði upp á áfenga drykki. Ég
gat nú ekki neitað því og í
kjölfarið var farið af stað með
það að efla starfið og með
ákveðin markmið í huga sem
við vildum ná. Ef ég lít til baka
þá hefði það ekki hvarflað að
mér að þetta væri eitthvað sem
ég myndi hafa gaman af.“
Eitthvað hefur verið í að
líta hjá Lee Ann þar á bæ því
hlutverk hennar síðustu ár
hafa verið allskonar, allt frá
því að þvo búninga í að safna
peningum, selja kaffi og skutla
í leiki, fylla á sjúkratöskuna og
skella sér á bráðamóttökuna
með leikmenn, skoða misgóð
myndbönd af hæfileikum
erlendra leikmanna og vona
það besta, aðstoða leikmenn
með verkefnavinnu og prófa-
undirbúning og bara allt
sem þarf að gera til að svona
verkefni gangi upp.
„Ég er alltaf jafn hissa
hversu skemmtilegt þetta er,
sama hversu erfitt það getur
oft verið að halda svona starfi
úti. Þetta er alveg rosalega
mikil vinna á hendi fárra aðila
og þetta væri ekki hægt nema
með góðum félögum. Svo
skemmir ekki fyrir hversu
skemmtilegir leikmenn Kor-
máks Hvatar eru.“
Afmælis- og
jólaundirbúningur
Björgvin Orri, sonurinn á
heimilinu, á afmæli 13. des
og segir Lee Ann að því
fari hluti af mánuðinum í af-
mælisundirbúning. Hún reyni
að kveikja á jólaseríunum
í nóvember og hengja upp
jólastjörnur í gluggana. „Ég
og Björgvin Orri förum svo
í Gunnfríðarstaðaskóg og
sækjum okkur jólatré. Það
er skreytt daginn sem við
sækjum tréð. Ég reyni svo
að gera jólakrans á útidyra-
hurðina sem mér finnst mjög
skemmtilegt að dunda við.
Við tókum svo upp á því í
fyrra að fara í sumarbústað
í Borgarfirðinum í kringum
afmælið hans og ætlum að
endurtaka það í ár.“
Þá er næst að rukka við-
mælandann um kökuuppskrift
sem er í uppáhaldi og segist
Lee Ann eiga minningu
frá því hún var lítil þegar
mamma hennar bakaði kökur
sem á hennar heimili heita
Ingibjargaraugu.
Ingibjargaraugu
300 gr hveiti
150 gr sykur
125 gr púðursykur
250 gr smjörlíki
1 egg
½ tsk. lyftiduft
Súkkulaðidropar
1. Sykur og smjörlíki hrært saman.
2. Eggi bætt út í.
3. Þurrefnum bætt varlega út í.
4. Búa til lengjur, skera niður í
u.þ.b. 1 sm bita, búa til kúlur og
setja súkkulaðidropa á.
5. Baka við 180°C í 10-12 mínútur.
„Muna svo að njóta lífsins í
kringum jólin – jólin koma
alveg þó svo að það sé ekki
búið að skrúbba gólflistana
með tannbursta og baka 17
sortir,“ segir Lee Ann að lokum
og óskar öllum
kennararnir fóru að nálgast
mitt stafrófið og farnir að mana
sig upp í bera fram nafnið mitt,
beið ég spennt eftir því hver
viðbrögðin yrðu og svo snéri
bekkurinn sér alltaf við til að
sjá þessa manneskju með
þetta skrítna nafn. En ég er
komin með mikla reynslu við
að stafa nafnið mitt.“
Gott að búa
á Blönduósi
Lee Ann ákvað að snúa á
heimaslóðir eftir nám en hún
var þá nýbúin að verja meist-
araritgerð sína úr lögfræði
frá Háskólanum á Bifröst og
birti færslu á Facebook sem
reyndist afdrifarík um að hún
myndi útskrifast nokkrum
dögum seinna.
„Í minningunni fékk ég
símtal bara nokkrum tímum
eftir að ég birti færsluna á
Facebook þar sem mér var
boðið að leysa af lögfræð-
ing í Innheimtumiðstöð
sekta og sakarkostnað
á Blönduósi tímabundið.
Ég var í starfsnámi á
lögmannsstofu á þessum
tíma og stefndi á að búa
áfram á Bifröst og var
komin með mjög gott
starf hjá Háskólanum og
einhvern veginn sá ég
það ekki fyrir mér að ég
myndi flytja aftur á Blönduós
og neitaði því starfinu. Ég
gekk inn á kaffistofuna á
lögmannstofunni eftir símtalið
og var eitthvað að segja
frá þessu starfstilboði og
lögmennirnir horfðu bara
á mig og hristu hausinn og
sögðu að ég gæti ekki neitað
þessu tilboði. Til að gera langa
sögu stutta flutti ég á Blönduós
1. júní 2014 og er enn hér.“
Lee Ann segir gott að búa á
Blönduósi en hún keypti sér
íbúð í fyrra en segist samt hafa
passað sig á því að fara ekkert
alltof langt frá foreldrum
sínum.
„Þetta er afskaplega þægi-
legt líf að búa á litlum stað þar
sem stutt er í allt og allir þekkja
alla. Stundum hellist yfir mig
þvílík útlandaþrá og þrá eftir
lífi í stórborg þar sem nóg
er um að vera en svo þegar
það er yfirstaðið vil ég hvergi
annars staðar vera.“
Björgvin Orri og Lee Ann jólin 2020. Á myndunum að neðan má sjá Björgvin
Orria sækja jólatré í Gunnfríðarstaðarsk og Lee Ann á vellinum. „Það er
mikilvægt að vera rétt klæddur á leikjum og með kaffi í bolla,“ segir hún.
AÐSEND MYNDVIÐTAL
Páll Friðriksson
7