Feykir - 30.11.2021, Síða 8
Það er við hæfi, þar sem ástandið er þannig,
að koma með nokkrar góðar tillögur að
gjafabréfum sem væri sniðugt að gefa ef
Ertu í veseni með að finna jólagjöfina?
Gjafabréf frá
Króksbíó
Þetta er mjög sniðugt
fyrir annaðhvort alla
fjölskylduna, unglinginn
eða yngri krakka því
ég er nokkuð viss um
að flestir hafi gaman af
því og fara að sjá góða
mynd í bíói. Gjafabréf
fyrir tvo með poppi og
kók ætti að nýtast mjög
vel.
Gjafabréf í
leikhús
Leikfélagið er vanalega
með tvær sýningar á
ári og væri það sterkur
leikur að gefa annað
hvort fullorðnum
einstaklingi gjafabréf
fyrir tvo eða slá nokkrar
flugur í einu höggi og
gefa allri fjölskyldunni
einn miða á mann.
Gjafabréf fyrir
áhugamálið
Segjum að einstakling-
urinn sem þú ert að
leita að gjöf fyrir spili
einhverja iþrótt eða
er með einhverja
veiðidellu, jafnvel elskar
að nýta tímann sinn í
hannyrðir. Þá er sniðugt
að gefa gjafabréf í
einhverri verslun sem
tengir við áhugamálið
sjálft. Þá sem eiga sér
áhugamál, vantar alltaf
eitthvað nýtt fyrir það
– ótrúlegt en satt!
Gjafabréf
í upplifun á
Norðurlandi
vestra
Það væri efni í heilt blað
ef ég ætti að fara að
telja upp alla upplifun
sem hægt er að gefa í
formi gjafabréfa á þessu
svæði. Hér eru t.d. mjög
mörg söfn og gjafabréf
fyrir tvo þarf ekki að
kosta mikið. Það virðist
alltaf vera erfiðast fyrir
fólk að skoða nánasta
umhverfi sitt og að gefa
gjafabréf í afþreyingu
sem er í boði í heima-
byggð er alls ekki svo
vitlaus hugmynd.
Gjafabréf í þrif
eða bón fyrir
bílinn
Vá hvað ég yrði ánægð
að fá þessa gjöf... Mér
finnst fátt leiðinlegra
en að þrífa bílinn minn.
Hérna er hægt að gefa
þrif á bílnum bara að
utan eða bara innan eða
bæði. Það eru nokkrir
aðilar sem taka að sér
að þrífa bíla og efast
ekkert um að þeir gætu
græjað gjafabréf fyrir
þá sem vilja.
Gefðu áskrift
að einhverju
sniðugu
• Áskrift að Stöð 2 í
einhvern X tíma, getur
verið einn, tveir eða
þrír mánuðir.
• Áskrift að tímariti
gæti hentað bæði
ungum og öldnum vel.
Til dæmis fyrir unga
krakka væri sniðugt
að gefa áskrift að Walt
Disney bókunum. Fyrir
fullorðna kannski að
fréttablaði, hvort sem
það er Feykir eða
Morgunblaðið.
• Smart sock býður upp
á áskrift að sokkum og
nærbuxum.
• Það væri hægt að gefa
aðgang inn á t.d. fimm
körfuboltaleiki eða
fótboltaleiki fyrir þann
sem er alltaf á leiðinni
á leiki en einhverra
hluta vegna fer aldrei.
Þetta ætti kannski að
ýta við viðkomandi
að fara.
Gjafabréf frá
þér sjálfri/um –
það kostar
ekkert og
hugurinn á
bakvið er góður
Ertu alveg úti á túni og
veist ekkert hvað þú átt
að gefa? Gefðu gjafabréf
frá þér sjálfri/um.
• Þá er t.d. mjög sniðugt
að gefa gjafabréf í
pössun fyrir fólk sem
á börn, já eða dýr,
og hefði gott af því
að komast aðeins frá
þeim hvort sem það er
yfir nótt eða eitt kvöld.
• Hjálp við þrif, hvort
sem það er bílskúrinn
eða sjálft heimilið. Ef
þú ert að gefa gjöf þá
hlýtur þú að þekkja
viðkomandi nokkuð
vel til að átta þig á
hvort þetta gæti verið
sniðug hugmynd.
• Að bjóða fram hjálp
við að taka eitthvað í
gegn gæti reynst besta
gjöf í heimi.
• Hjálp við að laga
eitthvað fyrir viðkom-
andi sem hefur verið
bilað í langan tíma.
• Ertu t.d. góð/ur í
garðvinnu? Gefðu
gjafabréf við að hjálpa
til í garðinum næsta
sumar hvort sem það
er að reyta arfa eða
slá gras.
Þetta er kannski meira
svona klassískt...
nota í neyð...
Gjafabréf frá
veitingahúsi
Það þurfa allir að
borða, ekki satt. Það er
mjög sniðugt að gefa
gjafabréf fyrir einhverja
sérstaka upphæð eða
jafnvel fyrir pizzu og
gosi. Þetta gæti hentað
bæði fyrir unglinga sem
og fullorðið fólk.
Gjafabréf í
klippingu
Held að þetta sé eitt af
því sem allir þurfa að
gera reglulega bæði
kvenmenn og karlmenn,
ungir sem aldnir, að
fara í klippingu, og þá
nýtist svona gjafabréf
mjög vel. Þarna getur
verið sterkur leikur að
spyrja nákominn aðila
hvort hann/hún fari á
einhverja sérstaka stofu
og ef ekki þá getur þú
valið úr mjög mörgum
stofum. Ekki láta úrvalið
hræða þig, veldu þá
stofuna sem þú ferð
oftast á, hún hlýtur að
vera góð því þú ert
ánægð/ur með hana.
Gjafabréf frá
snyrtistofu
Svona gjafabréf
hentar aðallega fyrir
kvenþjóðina, ungar
sem aldnar. Stór hluti
kvenna fer reglulega á
snyrtistofur í alls konar
meðferðir hvort sem það
er fyrir einhver sérstök
tilefni eða þá á nokkra
vikna fresti. Þetta er því
mjög sniðug gjöf sem
ætti að nýtast vel. Hér er
einnig hægt að velja úr
nokkrum snyrtistofum á
þessu svæði og eru þær
allar mjög færar á sínu
sviði.
Gjafabréf í nudd
Það er fátt betra en að
fara í gott nudd og ef ég
tala fyrir sjálfa mig þá
gerir maður það allt of
sjaldan. Hvernig væri þá
að gefa öðrum gjafabréf
í nudd?
Gjafabréf hjá
bönkunum
Í dag er hægt að kaupa
gjafabréf hjá bönkunum
og er það mjög sniðugt
ef engin af þessum
hugmyndum hér fyrir
ofan eru að gera sig.
Unga kynslóðin er oftar
en ekki að safna sér
pening fyrir einhverju
sérstöku og þá nýtist
þetta mjög vel því
viðkomandi getur ráðið
því sjálfur í hvað hann
notar gjöfina.
Gjafabréf sem gleðja
það reynist erfitt að finna eitthvað í harða/lina pakka. Ég verð samt
að viðurkenna að mér finnst ekki jafn skemmtilegt að gefa þau en að
þiggja er annar handleggur – því það gleður mig mikið að fá gjafabréf.
SAMANTEKT
Sigríður Garðarsdóttir
8