Feykir - 30.11.2021, Blaðsíða 20
JólaFeykir hafði samband við Saumaklúbbinn
svakalega og fékk að spyrja dömurnar nokkurra
laufléttra spurninga um jólin og í leiðinni fengum
við uppskriftir að alls konar góðgæti sem væri
gaman að henda í og njóta um hátíðarnar.
Það eru þær Bertína Rodriguez, Emma Sif Björnsdóttir, Halla Rut Stefáns-
dóttir, Guðrún Vigdís Jónasdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Ragnhildur Þórðardóttir,
Rúna Birna Finnsdóttir, Þóra Björk Þórhallsdóttir og Þórdís Ósk Rúnarsdóttir sem
mynda Saumaklúbbinn svakalega, sem er þéttur og góður hópur sem er mjög
duglegur að hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman. Þar má nefna að fyrir
utan venjulega saumaklúbbshittinga fara þær saman í alls konar gönguferðir,
dekurferðir, óvissuferðir, utanlandsferðir, út að borða, í hótelgistingar og svo
mætti lengi telja.
Verði ykkur að góðu og gleðileg jól!
BERTÍNA RODRIGUEZ
Lagkaka
Hráefni:
675 g sykur
675 g smjörlíki
12 egg
645 g hveiti
97½ g kakó
1½ tsk. brúnkökukrydd
1½ tsk. kanill
2/3 tsk. engifer
2/3 tsk. negull
2/3 tsk. vanilludropar
Aðferð: Blandið saman sykri
og smjörlíki. Setjið eitt og eitt
egg út í og hrærið vel. Bætið
að lokum öllu þurrefni út í og
hrærið vel.
Skipta deigi í fjóra jafna parta
sem smurðir eru á ofnplötu
og bakaðir við 220 gráður í
10-12 mínútur. Látið kökurnar
kólna og smyrjið svo með
kremi á milli laga. Úr þessu
færðu tíu góðar lagkökur sem
eru ómissandi um jólin.
Smjörkrem:
450 g mjúkt smjör
300 g smjörlíki
690 g flórsykur
3 egg
3 tsk. vanilludropar
UMSJÓN
Klara Björk Stefánsdóttir
Kökuþáttur JólaFeykis
Svakalega gott og girnilegt frá
Saumaklúbbnum svakalega
„Heimabærinn er alltaf Ísafjörður en ég bý í
Kópavogi,“ segir Bertína en hún bjó á Sauðár-
króki í tólf ár. „Jólin eru dásamleg, ég elska
samverustundir með fjölskyldunni,“ segir hún.
Hvað kemur þér í jólaskap? Klárlega laufa-
brauðsgerð heima hjá tengdó. Þar sker ég út kirkju
á hverju ári með misgóðum árangri. Hvert er besta
jólalagið? All I Want For Christmas Is You. Hvað
finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Fara
á jólatónleika og spila með fjölskyldunni. Hvað
langar þig að fá í jólagjöf? Fallega úlpu. Hvað er
í jólamatinn hjá þér? Sjávarréttasinfónía í forrétt,
hamborgarhryggur í aðalrétt og í eftirrétt er ég
með Sherry-frómas og Toblerone-ís. Gaman að
segja frá því að ég hef haft Sherry frómas á hverju
ári frá árinu 2008 en ekkert barnanna minna hafði
smakkað hann fyrr en í fyrra en það var eingöngu
vegna þess að ég ætlaði að hætta að gera hann,
jólahefðirnar eru sterkar.
EMMA SIF BJÖRNSDÓTTIR
Evukökur
Hráefni:
4 bollar haframjöl
5 bollar hveiti
2 tsk. natron
1 tsk. salt
3 bollar sykur
2-3 bollar súkkulaðispænir
400 g smjör
4 egg
Aðferð: Öllu blandað saman
og hnoðað í höndunum. Kælt
í eina klst. Hnoðað í lengjur og
skorið í litla bita. Sett í miðjan
ofn í 10-12 mínútur á 180-200°
hita. Hægt að skreyta með
súkkulaðidropum.
Þessi uppskrift hefur verið
lengi í fjölskyldunni og við
vitum í raun ekki hvað þessar
smákökur heita en uppskriftin
kom frá Evu Snæbjarnardótt-
ur, frænku minni, og hafa
kökurnar verið kallaðar Evu-
kökur síðan. Þær eru dísætar
og dásamlegar.
„Jólin eru heima á Öldustíg“ segir Emma en hún
kennir nú við Árskóla á Króknum eftir að hafa kennt
við Grunnskólann austan Vatna um árabil.
Hvað kemur þér í jólaskap? Þegar ég byrja að græja
og gera fyrir jólin, baka og skreyta. Er mikið jólabarn
og finnst aðventan yndislegur tími. Hvert er besta
jólalagið? Sigurður Guðmundsson og Memfismafían
Það snjóar. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Að fara upp í kirkjugarð, kveikja á kertum
hjá ættingjum okkar og vinum, signa yfir þá og rifja
upp góðar minningar og njóta stundarinnar. Hvað
langar þig að fá í jólagjöf? Mig langar nú bara ekkert
í neitt sérstakt. Bara rólegheit með þeim sem mér
þykir vænt um. Hvað er í jólamatinn hjá þér? Kalt
hangikjöt, laufabrauð og salat eins og pabbi gerir.
ÞÓRDÍS ÓSK RÚNARSDÓTTIR
Vanilluhringir
ömmu Línu
Hráefni:
500 g hveiti
380 g smjörlíki
200 g flórsykur
120 g saxaðar möndlur
2 egg
½ tsk. hjartarsalt
1 tsk. vanilludropar
Aðferð: Öllu blandað saman
og hnoðað og sett í hakkavél.
Bakað við 180° þangað til þeir
eru gullinbrúnir.
Þetta eru smákökur sem amma
Lína bakaði alltaf og Eyrún,
móðir mín, bakar þær fyrir
hver jól og ég nýt góðs af því.
Þær eru í algjöru uppáhaldi hjá
mér og ég mæli með að borða
þær með heitu kakói og rjóma.
„Jólin eru samverustund með fjölskyldunni“ segir
Þórdís Ósk en hún rekur hárgreiðslustofuna Capello
á Sauðárkróki.
Hvað kemur þér í jólaskap? Þegar við förum að
velja okkur jólatré í Hólaskógi og bökum laufabrauð.
Hvert er besta jólalagið? Ef ég nenni (Helgi Björns).
Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar?
Fara upp í kirkjugarð, púsla og horfa saman á góðar
myndir. Horfði í mörg ár á Christmas vacation en er
búin að gefa henni smá frí en ég held að ég horfi á
hana aftur þessi jól. Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Að hafa fólkið sitt í kringum sig er allra besta gjöfin.
Hvað er í jólamatinn hjá þér? Hamborgarhryggur og
rjúpur og ekki má gleyma brauðbollunum en þær eru
mitt uppáhald.
RAGNHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR
Granólaterta
Súfistans
Hráefni:
2 botnar
6 egg
220 g sykur
80 g heslihnetur, saxaðar
200 g granóla morgunkorn
30 g kornflögur, muldar
150 g súkkulaði, saxað
100 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
Aðferð: Þeytið egg og sykur
vel saman þangað til áferðin
verður létt og ljós. Blandið
þurrefnum mjög varlega
saman við með gaffli. Smyrjið
tvö 30 sm form vel, gott að
setja bökunarpappír í botninn
og skiptið deiginu jafnt á milli
þeirra. Bakið við 170-180°C í
20-25 mín.
Karamellukrem:
150 g púðursykur
50 g smjör
3 dl rjómi
örfáir vanilludropar
Setjið saman í pott og látið
sjóða þangað til blandan
þykknar. Hellið karamellunni
í skál og leyfið að kólna.
Samsetning:
4 dl þeyttur rjómi
Leggið botnana saman með
þeyttum rjóma á milli og hellið
karamellukreminu ofan á.
„Jólin eru kósý,“ segir Ragnhildur en hún starfar
í eldhúsinu í Árskóla.
Hvað kemur þér í jólaskap? Jólaljósin og
jólalögin. Hvert er besta jólalagið? Bells Will Be
Ringing [Please Come Home For Christmas] með
Bon Jovi. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir
hátíðirnar? Horfa á Chrismas vacation og Home
alone. Hvað langar þig að fá í jólagjöf? Veit það
bara ekki. Hvað er í jólamatinn hjá þér? Allir eru
með sínar óskir, kalkúnn, hamborgarhryggur og
læri. En við eigum eftir að finna út úr því þessi
jólin.
20