Morgunblaðið - 13.05.2022, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
Taka þarf til hendinni í fjármálum
borgarinnar, að mati oddvita Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, sem
segir arðgreiðslur frá Orkuveitu
Reykjavíkur og einskiptistekjur,
vera einu ástæður þess að hægt sé að
veita borgarbúum lágmarksþjón-
ustu.
„Myndin er bara mjög einföld.
Borgarsjóður er rekinn með nánast
fjögurra milljarða halla. Tekjurnar
sem við greiðum borginni, útsvarið
okkar, það dugar ekki til að veita
okkur þjónustu og við finnum það á
samanburðarmælingum á þjónustu á
landinu öllu, eða bara á höfuðborgar-
svæðinu, að þjónusta mælist hvergi
verr en í Reykjavík,“ segir Hildur
Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins.
Hún segir flókið og umfangsmikið
verkefni að vinda ofan af þessu. Tel-
ur hún skynsamlegt að færustu sér-
fræðingar verði fengnir í það hlut-
verk að gera stjórnkerfis- og
fjármálaúttekt á borginni til að finna
hvar tækifærin liggi.
„Vinstrimenn í borginni telja að
eina leiðin til að bæta þjónustu og
auka tekjurnar hjá borgarsjóði sé að
hækka skatta. Við hægrimenn skilj-
um að það er hægt að stækka kökuna
en lækka skatta samt.“
Til að gera það segir Hildur mikil-
vægt að búa mun betur að atvinnulíf-
inu, m.a. með því að lækka fast-
eignaskatta á atvinnuhúsnæði, lækka
álögur á atvinnulíf, tryggja sveigjan-
legra umhverfi og stjórnsýslu og út-
hluta auknu landi fyrir atvinnu-
húsnæði. Þannig sé hægt að laða að
fleiri fyrirtæki sem greiði síðan
tekjur í borgarsjóð.
„Við erum auðvitað að missa
gríðarlegar tekjur úr borginni frá at-
vinnulífi og atvinnustarfsemi með því
að bjóða ekki hagstæð skilyrði fyrir
atvinnulíf.“
Að sögn Hildar er Sjálfstæðis-
flokkurinn eini flokkurinn í Reykja-
vík sem boðar raunverulegar breyt-
ingar og sá eini sem er með nægan
styrk í nýrri forystu til að geta gert
skýra kröfu til borgarstjórastólsins.
„Fólk getur hins vegar kosið aðra
flokka, og kosið þá meira af hinu
sama. Það getur kosið þessa meiri-
hlutaflokka sem allir eru í villu og
tálsýn um að allt hafi gengið hér æð-
islega, sem við öll finnum í okkar
daglega lífi að er ekki rétt.
Eða það getur kosið flokk eins og
Framsókn sem hefur sagt opin-
berlega að þau séu reiðubúin að
vinna til vinstri, að þau séu reiðubú-
in að ganga inn í sama hlutverk og
Viðreisn eftir síðustu kosningar, að
reisa við fallinn meirihluta.“
Einstrengingsleg nálgun
Hildur segir nóg komið af ein-
strengingslegri og tímafrekri nálgun
meirihlutans í skipulagsmálum þar
sem einblínt er á að þétta byggð á
dýrum svæðum vestarlega í borginni
þar sem innviðir þola ekki aukna
byggð. Nú sé óheilbrigt ástand á
húsnæðismarkaði og fasteignaverð
orðið alltof hátt vegna skorts á hús-
næði.
Til að stemma stigu við þessu
ástandi segir Hildur Sjálfstæðis-
flokkinn boða tvær aðgerðir, annars
vegar að frysta fasteignagjöld og
hins vegar að byggja meira þar sem
innviðir kalli á fólk.
Hún segir þetta ekki eiga að taka
mörg ár í framkvæmd þar sem þeg-
ar sé búið að skipuleggja land sem
auðvelt sé að selja, nefnir hún m.a.
Staðahverfi í Grafarvogi, Úlfarsár-
dal og Kjalarnes. Þar eigi innviðir að
vera klárir sem rúmi fleiri íbúa.
Þá boðar hún einnig breytingar á
afgreiðslukerfinu í húsnæðismálum,
sem hún segir þungt, flókið og svifa-
seint, en Sjálfstæðisflokkurinn vill
takmarka afgreiðslufresti niður í 30
daga.
Hvað Borgarlínu varðar segir
Hildur flokkinn ekki reiðubúinn að
styðja þá framkvæmd fyrr en fjár-
hagslegar forsendur liggi fyrir.
„Því er oft reynt að varpa á okkur,
að það sé einhver vandræðagangur á
okkur um borgarlínu. Vandræða-
gangurinn er allur meirihlutans.
Þau geta ekki enn þá svarað hvernig
á að fjármagna þetta.“
Hún segir flokkinn styðja vegferð
að bættum almenningssamgöngum í
Reykjavík, aftur á móti telur hún
óheiðarlegt af meirihlutanum að
selja borgarbúum glansmynd af
glæsilegu kerfi þegar ekki hefur
tekist að sýna fram á hvernig það
eigi að bera sig.
Kerfisbreytinga þörf
Spurð hvort grundvallarbreyt-
ingar á menntakerfinu, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur boðað og
felst í því að börn byrji einu ári fyrr í
grunnskóla, sé ekki dæmi um glans-
mynd, svarar Hildur því neitandi.
Mikill mönnunarvandi sé uppi í
leikskólum borgarinnar sem þarf að
leysa með stórum kerfisbreytingum
enda hafi ekki tekist að fá fólk til að
skrá sig í nógu miklum mæli til
náms í leikskólakennarafræðum.
Spár geri nú ráð fyrir mikilli fjölgun
barna á næstu árum og nauðsynlegt
sé að bregðast við.
Hún segir þetta ekki vera kosn-
ingaloforð sem hægt sé að leysa á
einu kjörtímabili en mikilvægt sé að
takast á við vandann sem sé meira
en aðrir flokkar hafi gert. Meirihlut-
inn hafi afneitað vandanum og sagst
vera búinn að leysa málið. Þá hafi
Framsókn gefist upp.
„Við höfum kjarkinn til að ræða
stórar kerfisbreytingar sem hugs-
anlega þarf til þess að bregðast við
vandanum í skólakerfinu,“ segir
Hildur.
Við ein getum breytt borginni
- Hildur Björnsdóttir segir sjálfstæðismenn eina hafa afl til að leiða umbreytingar - Óþarfi að
hækka skatta - Krefst svara um rekstur borgarlínu - Þéttingarstefnan einstrengingsleg
Með nýjum kosningalögum tóku
gildi breyttar reglur um aðstoð við
atkvæðagreiðslu.
Fram kemur á vefnum kosning.is
að kjósandi á rétt til aðstoðar við at-
kvæðagreiðslu. Aðstoð skal veitt af
kjörstjóra eða aðstoðarmanni sem
fylgir kjósanda á kjörstað. Sá sem
veitir kjósanda aðstoð er bundinn
þagnarskyldu um það sem honum og
kjósanda fer á milli í kjörklefanum.
Samkvæmt reglunum skal
aðstoðarmaður kjósanda staðfesta
með undirskrift sinni á sérstakt
eyðublað að honum hafi verið leið-
beint um ábyrgð sína og skyldu sem
aðstoðarmanns og að hann uppfylli
hæfisskilyrði til þess að vera aðstoð-
armaður. Kjörstjóri skal einnig und-
irrita staðfestinguna og varðveita
hana.
Aðstoðarmanni kjósanda er
óheimilt að gerast aðstoðarmaður
fleiri en þriggja kjósenda við sömu
kosningu. Frambjóðandi, maki hans,
börn, systkini og foreldrar mega
ekki veita aðstoð við atkvæða-
greiðslu.
Hægt er að nálgast eyðublað fyrir
aðstoðarmann á kosning.is sem
handhægt er að prenta út og taka
með á kjörstað:
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Kjósendur eiga rétt á að fá aðstoð við atkvæðagreiðslu.
Breyttar reglur um
aðstoð við kosningu
- Kjósendur eiga rétt á aðstoð
Hildur Björnsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, kveðst
ekki reiðubúin að leggja bless-
un sína yfir borgarlínu fyrr en
fjárhagslegar forsendur fram-
kvæmdarinnar skýrist.
Til að auka tekjur í borgar-
sjóð vill hún skapa fýsilegra at-
vinnuumhverfi fyrir fyrirtæki í
Reykjavík, m.a. með lækkun
fasteignaskatta og álagna og
með því að úthluta auknu landi
fyrir atvinnuhúsnæði.
Hún telur sjálfstæðismenn þá
einu sem raunverulega geti
boðað breytingar á næsta kjör-
tímabili enda hafi oddviti Fram-
sóknar gefið út að hann sé
reiðubúinn að ganga inn í meiri-
hlutann.
Vill lækka
skatta
KOSNINGAR
Morgunblaðið/Ágúst Ólíver
Kosningar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, telur óþarft að hækka skatta til að rétta við fjárhaginn.
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR