Morgunblaðið - 13.05.2022, Page 16

Morgunblaðið - 13.05.2022, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022 Kæru borgarbúar. Kosningadagur nálg- ast sem er hátíðardagur því á slíkum degi er lýð- ræðið áþreifanlegt. Þá fáum við tækifæri til að velja fólkið sem við treystum til forystu í borgarstjórn. Fyrir fjórum árum var ég kosin í borg- arstjórn og hefur Flokk- ur fólksins verið í minnihluta. Þrátt fyrir að fá engu ráðið hef ég lagt nótt við dag við að vekja athygli á fjölda mála sem lúta að betri þjónustu við borgarbúa. Þetta má sjá á þeim hundruðum mála; tillagna, fyrirspurna og bókana, sem flokkurinn hefur lagt fram og koma fram í fundargerðum, á samfélagsmiðlum og einnig á heima- síðunni kolbrunbaldurs.is. Til að fylgja málum eftir hef ég skrifað tugi greina til að undirstrika þá áherslu okkar að setja fólkið í borginni í fyrsta sæti. Við í Flokki fólksins trúum því nefnilega að drop- inn holi steininn. Forgangsröðun er kolröng Flokki fólksins finnst ótækt að brýnum úrbótum á grunnþjónustu hefur ekki verið sinnt nægjanlega vel. Í staðinn fjármagnar meirihlutinn mörg verkefni sem vel geta beðið þangað til betur árar. Allt á kostnað fólksins í borginni. Það er skoðun mín að sá meirihluti sem hefur verið þetta kjörtímabil hafi ekki forgangsraðað í þágu fólksins heldur starfi í berg- málshelli þar sem allt gengur út á að tryggja sér áframhaldandi völd í blindri trú á eigin ágæti. Bál óréttlætis og sorgar Í mér brennur bál óréttlætis og sorgar þegar ég hugsa til þess hvern- ig farið hefur verið með fólk í Reykja- vík sem býr við örorku, fólk á lúsar- launum og fólk sem missti allt sitt í hruninu. Á annað hundrað eldri borg- arar bíða nú ýmist eftir hjúkrunar- og dvalarheimili eða þjónustu til að geta verið sem lengst heima. Biðlistar eftir þjónustu lengjast og fátækt vex í Reykjavík með tilheyrandi vanlíðan. Flokkur fólksins er með skýra stefnu. Við viljum að Reykjavík sé fyrir alla, ekki bara suma. Við viljum að áð- ur en farið er í fjárfrek milljarðaverkefni, sem ekki er brýn þörf á, eins og skreytingar og um- byltingu torga, þurfi fyrst að tryggja að allir fái grunnþörfum sínum mætt og aðra nauðsyn- lega þjónustu. Flokki fólksins hefur blöskrað eyðsla meirihlutans á 13 milljörðum króna í stafræna um- breytingu. Stafrænar lausnir eru sannarlega framtíðin en þetta fjár- magn hefur ekki verið notað skyn- samlega. Því hefur t.d. verið eytt í þróunar- og tilraunavinnu á stafræn- um lausnum sem margar hverjar eru þegar til eða ekki liggur á. Ein af til- lögum Flokks fólksins var að taka hluta af þessum 13 milljörðum króna til að ráða fagfólk til starfa hjá Skóla- þjónustu borgarinnar. Tillögunni var hafnað. Biðlistar rótgróið mein sem bara stækkar Ég hef starfað sem sálfræðingur í áratugi og löngu áður en ég varð odd- viti Flokks fólksins var ég farin að vekja athygli á löngum biðlistum barna til sálfræðinga og talmeina- fræðinga. Á biðlista barna sem bíða eftir fagþjónustu Skólaþjónustunnar eru nú rúmlega 1.800 börn. Árið 2018 biðu 400 börn. Enn hefur Barnasátt- máli Sameinuðu þjóðanna ekki verið innleiddur í Reykjavík. Forgangs- raða þarf málum með þarfir og þjón- ustu borgarbúa að leiðarljósi og stöðva bruðl og leikaraskap með fjár- magn borgarinnar. Nota þarf fjár- magnið til að auka lífsgæði og bæta aðstæður þeirra sem þess þurfa. Sýnum skynsemi í húsnæðismálum Húsnæðisskortur er mikill í Reykjavík og bitnar harkalega á al- menningi, sérstaklega á efnalitlu fólki. U.þ.b. 600 manns eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði og á annað hundrað eftir sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk. Útrýma þarf húsnæð- isskorti aldraðra. Til þess að aldraðir geti búið eins lengi heima og þeir vilja þarf að tryggja þeim fullnægjandi heimaþjónustu. Flokkur fólksins styður þéttingu byggðar í grónum hverfum þar sem innviðir eru fyrir hendi sem þola fjölgun íbúa eins og t.d. í Grafarvogi, í Úlfarsárdal og á Kjalarnesi. Ómark- viss þéttingarstefna meirihlutans hef- ur hins vegar leitt til þess að í mörg- um hverfum eru innviðir sprungnir og sumir þéttingarreitir eru orðnir að skuggabyggð. Framtíðarskipulag skóla er í uppnámi, t.d. í Laugardal og Háaleitis- og Bústaðahverfi. Það verður að flýta uppbyggingu svo um munar, einnig með því að bjóða út lóðir svo kaupendur geti ráðist í framkvæmdir. Flöskuhálsinn í hús- næðismálum felst í stefnu meirihlut- ans sem ýtir undir hækkandi verð og aukinn ójöfnuð. Til þjónustu reiðubúin Ég hef sem sálfræðingur lært að hlusta og þannig hef ég hlustað á alla þá sem leitað hafa til mín á kjör- tímabilinu. Þeim hef ég reynt að hjálpa af fremsta megni, t.d. með því að vísa þeim veginn í völundarhúsi borgarkerfisins. Mér mætir oft fal- legt bros frá borgarbúum og fæ að heyra hlý orð. Ég hef því vonandi gert eitthvað rétt. Nú er komið að kosningum og legg ég verk Flokks fólksins í dóm kjós- enda. Framboðslisti Flokks fólksins er skipaður hópi góðs fólks sem brennur fyrir málefnum borgarbúa. Við lofum því að berjast áfram með kjafti og klóm fyrir hagsmunum ykk- ar allra fáum við til þess umboð. Baráttumál Flokks fólksins lögð í dóm borgarbúa 14. maí Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Í mér brennur bál óréttlætis og sorgar þegar ég hugsa til þess hvernig farið hefur ver- ið með fólk í Reykjavík sem býr við örorku eða er á lúsarlaunum. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og oddviti Flokks fólksins, skipar 1. sæti á lista flokksins í komandi borgarstjórnar- kosningum. Sjómanna- skólabyggingin á Rauðarárholti, hið glæsilega menntasetur sjómannastéttarinnar, á sér merka sögu. Laugardaginn 13. október 1945 fór fram vígsla hússins að við- stöddum fyrsta forseta lýðveldisins, Sveini Björnssyni, rík- isstjórn, borgarstjóranum í Reykja- vík, formönnum stéttarfélaga sjó- manna, nemendum stýrimanna- og vélskólans og fjölda annarra gesta. Þetta var hátíðisdagur sjómanna og Reykvíkinga því risin var ein glæsi- legasta bygging bæjarins, hús sem verið hefur kennileiti Reykjavíkur, bygging sem stendur hátt á holtinu og sést víða að. Lengst af var innsigl- ingarviti inn til Reykjavíkurhafnar í turni hússins en því hlutverki lauk snögglega þegar háhýsi reis í Borg- artúni sem skyggði á vita Sjómanna- skólahússins. Til gamans má geta þess að Reykjavíkurviti hefur verið á þremur stöðum í bænum. Fyrsti vit- inn var reistur 1897 við Helgastaði rétt austan við þar sem nú er gatan Vitastígur en hún dregur nafn sitt af þeim vita. Þegar Reykjavík stækkaði var ekki alltaf gott að greina vita- ljósin frá öðrum ljósum og þá var, laust fyrir 1939, reistur turn fyrir vit- ann á vatnsveitugeymum á Rauð- arárholti. Þarna var vitinn í nokkur ár uns hann var fluttur í turn Sjó- mannaskólans eftir að sú bygging reis af grunni. Vitinn við Sæbraut, sem er þá sá fjórði, var loks reistur fyrir nokkrum árum og tók við hlut- verki gamla vitans í Sjómannaskól- anum. Í greinargerð með tillögu um und- irbúning að byggingu Sjómannaskól- ans árið 1938 er tekið fram að skólinn eigi að bera mikilvægi íslenskra sjó- manna vitni. Bæjarstjórn Reykjavík- ur lét Sjómannaskólanum í té lóð undir skólann í október 1941 og hafa lóðamál Sjómannaskólans verið sér kapítuli út af fyrir sig. Þegar lóðin var gefin kom fram í ályktun bæj- arstjórnar Reykjavíkur frá 2. októ- ber 1941 að mörk hennar yrðu ákveð- in síðar. Árið 1983 sneið Reykjavíkurborg skika af lóðinni sunnan Skipholts og risu byggingar þar fyrir óskylda starfsemi. Eftir það var þess fastlega vænst að ekki yrði hróflað frekar við stærð lóðar Sjó- mannaskólans. Því miður gekk þetta ekki eftir og eru nú að rísa byggingar nánast armslengd frá skólabygging- unni, eins ósmekklegt og það nú er, sem veldur því að þessi tignarlega og glæsilega bygging nýtur sín ekki eins og hún ætti að gera og hefur alltaf gert. Á árunum 1986-1987 var unnið að skipulagi lóðarinnar í samráði við landslagsarkitekt sem teiknaði lóð- ina. Ákveðið var að hluti holtsins á lóðinni skyldi halda sem mest upp- runalegri mynd til minningar um grýtt og uppblásin holt á borð við Rauðarárholtið sem voru eitt af ein- kennum gömlu Reykjavíkur. Salt- fiskur var þurrkaður á stakkstæðum og var eitt slíkt á lóð Sjómannaskól- ans og kom upp sú hugmynd fyrir aldamót að endurgera slíkt stakk- stæði og tengja það lágmyndinni „Saltfiskstöflun“ eftir Sigurjón Ólafs- son sem stendur við heimreiðina að skóla- húsinu. Hvað verður um skóla- húsið þegar núverandi starfsemi Tækniskólans flytur frá Reykjavík yfir í annað sveitarfélag? Það veltur auðvitað á eiganda hússins, ríkinu, en ég vona að það verði starf- semi sem tengist mennt- un sjómanna, sjávar- útvegi og siglingum með einhverjum hætti, nýsköpun sem tengist íslenskum sjávarútvegi, jafn- vel minni ráðstefnur sem nýta mætti hátíðarsal hússins undir, o.s.frv. Safn sem yrði frábrugðið safninu á Granda- garði að því leyti að þar yrði gömlum munum skólanna beggja, Stýrimanna- skólans og Vélskólans, komið fyrir, en þeir hafa verið geymdir um árabil í bröggum uppi á Árbæjarsafni og vest- ur í bæ. Þetta eru merkir munir sem tengjast sjósókn og útgerð sem skól- arnir fengu að gjöf frá velunnurum bæði hérlendis og erlendis í gegnum tíðina. Munir Stýrimannaskólans voru sérstaklega varðveittir, sumir í gler- kössum, auk málverka og mynda. Þessir munir verða gleymskunni og glatkistunni að bráð ef ekki tekst að finna viðunandi húsnæði, auðvitað eiga þeir heima í skólabyggingunni sjálfri til heiðurs íslenskum sjómönn- um, þetta voru gjafir til skólanna þeirra. Safnið gæti svo vaxið og dafn- að í samvinnu við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Á sjómannadaginn 4. júní 1944 var hornsteinn lagður að hinum nýja Sjó- mannaskóla og var dagurinn af því tilefni sérstaklega hátíðlegur. Sveinn Björnsson, sem þá var ríkisstjóri Ís- lands, hélt ræðu og sagði: „Dagur sjómanna hefur verið valinn til þess- arar hátíðlegu athafnar. Það á vel við, því hér má líta ávöxt af starfi ís- lenskra sjómanna. Það eru, fremur öðrum, íslenskir sjómenn sem hafa aflað þess fjár sem gerir ríkinu kleift að reisa þessa myndarlegu byggingu. Og enginn ágreiningur mun vera um það að íslenska sjómannastéttin hef- ur til hennar unnið einnig á annan hátt. Með tápi sínu og dugnaði í sí- felldri glímu við Ægi hefur hún sýnt og sannað að hún er verðug slíkrar menntastofnunar. Ég geri ráð fyrir því að það eigi eftir að hlýja mörgum sjómanni um hjartaræturnar – og okkur hinum líka – er stefnt er heilu í höfn í höfuðborg Íslands, að sjá há- borg íslensku sjómannastéttarinnar gnæfa við himin hér á þessum stað. Og í dimmu verður hér í húsinu sá viti sem vísar hverju skipi rétta leið er það leitar hér hafnar.“ (Sjómanna- blaðið Víkingur, 6. árg. 170.) Stöndum vörð um Sjómannaskóla- húsið í Reykjavík, sögu þess og hlut- verk í framtíðinni. Íslenskir sjómenn eiga það skilið. Sjómannaskóla- húsið í Reykjavík Eftir Pál Ægi Pétursson Páll Ægir Pétursson » Það eru, fremur öðr- um, íslenskir sjó- menn sem hafa aflað þess fjár sem gerir rík- inu kleift að reisa þessa myndarlegu byggingu. Höfundur var kennari við Stýri- mannaskólann í Reykjavík á árunum 1989-1995. pele@simnet.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjómannaskólahúsið í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.