Morgunblaðið - 13.05.2022, Blaðsíða 18
Frábærir spænskir strigaskór
fyrir sumarið
Garðatorg 6 | sími 551 5021 | www.aprilskor.is
Brussels
18.990 kr.
Evolution
25.990 kr.
Woodlands
23.990 kr.
Við minnum á vefverslunina okkar
www.aprilskor.is
Montreal
18.990 kr.
Great Plains
23.990 kr.
East Village
22.990 kr.
Toulousse
18.990 kr.
Salamanca
22.990 kr.
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022
Þegar skipulags-
ferlið hófst á Esj-
umelum í Reykjavík,
steinsnar frá byggð í
Mosfellsbæ og þar
næst fallegu hverfi í
Leirvogstungu, var
almennt rætt um að
þar yrði léttur iðn-
aður. Íbúum, sem
keyptu lóðir og aðrar
fasteignir í Leirvog-
stungu, var seld sú
sýn. Léttur iðnaður yrði um alla
framtíð á Esjumelum. Þessu var
íbúum Mosfellsbæjar lofað.
Frá þeim tíma og til dagsins í
dag hafa íbúar í Leirvogstungu
barist fyrir því að Sorpa lokaði á
urðun í Gými en það
skrímsli er Íslands
stærsta gúanó þar sem
lífrænn úrgangur af
höfuðborgarsvæðinu
er látinn hverfa ofan í
jörð.
Gýmir þessi á það til
að ropa og leysa vind
sem berst að Leirvog-
stungu og víðar um
Mosfellsbæ. Gýmir
brennur fyrir verk-
efnið sitt og lét draum
sinn rætast aðfaranótt
8. janúar 2021 þegar
kviknaði hressilega í honum.
Fuglagerið flúði af vettvangi og
eitt byggðasamlagið, Slökkviliðið,
kom öðru til bjargar, þ.e. Sorpu
bs. Um þetta vildi ég bóka á bæj-
arstjórnarfundi þegar bruninn
kom á dagskrá en mér var meinað
það af forseta bæjarstjórnar sem
taldi bókun ekki eiga við. Þar kall-
aði ég eftir afsögn stjórnar Sorpu.
Sú lýðræðisást forseta bæjar-
stjórnar, þ.e. vinstrimannsins í VG,
rataði einnig í fang sjálfstæðis-
manna sem fögnuðu því að bók-
unin fór aldrei inn í bækur Mos-
fellsbæjar og vonuðu svo heitt að
öll sagan brynni upp til agna.
En hvað með Esjumela? Á síð-
asta kjörtímabili (2014-2018) var
formaður skipulagsnefndar, sem
einnig sat í svæðisskipulagsnefnd
höfuðborgarsvæðisins fyrir Mos-
fellsbæ, að vinna með gögn frá
Reykjavíkurborg. Í þeim kom
fram vilji borgarinnar. Reykjavík-
urborg vill fá þungaiðnað og færa
þann mengandi iðnað af svæði,
sem nú hylur legu borgarlín-
unnar, yfir á Esjumela og næst
Mosfellsbæ.
Í bókum skipulagsnefndar Mos-
fellsbæjar má lesa ótal mótmæli
gegn þessu og því komið fyrir í
bókunum, þ.e. þeim sem þá mátti
bóka, í skipulagsnefnd Mosfells-
bæjar og í bæjarráði og bæjar-
stjórn. Þegar þessu var lokið hér í
Mosfellsbæ átti skjalabunkinn að
fara inn á borð svæðisskipulags-
nefndar höfuðborgarsvæðisins til
lokayfirferðar. Þar er einmitt hinn
formlegi vettvangur okkar hér í
Mosfellsbæ að svara yfirgangi
Reykjavíkurborgar gagnvart íbú-
um okkar hér heima. Hvað gerðist
þar?
Þegar „þungaiðnaðarfrumvarp“
Reykjavíkur, sem fulltrúi Mosfells-
bæjar og formaður skipulags-
nefndar hafði mótmælt sérstaklega
hér í Mosfellsbæ á árabilinu 2014-
2018, barst inn á fund svæð-
isskipulagsnefndar var niður-
staðan undir dagskrárliðnum „Að-
alskipulag Reykjavíkur: Iðnaður
og önnur landfrek starfsemi“ og
varðaði einmitt Esjumela, eftirfar-
andi:
„Svæðisskipulagsnefnd gerir
ekki athugasemdir við verklýs-
inguna enda verði horft til grein-
ingar svæðisskipulagsnefndar um
landþörf iðnaðar- og athafnasvæða
á höfuðborgarsvæðinu öllu. Mik-
ilvægt er að viðhafa gott samstarf
allra sveitarfélaganna þegar kem-
ur að staðsetningu starfsemi sem
hefur ónæði í för með sér.“
Þetta samþykkti formaður
skipulagsnefndar Mosfellsbæjar á
82. fundi svæðisskipulagsnefndar
höfuðborgarsvæðisins 2. mars
2018. Léttur iðnaður út af skipu-
lagi á Esjumelum og þungur iðn-
aður kom þess í stað í boði þáver-
andi meirihluta í Mosfellsbæ.
Fulltrúi þess meirihluta í svæð-
isskipulagsnefnd höfuðborgar-
svæðisins samþykkti þetta á þess-
um vettvangi en sagði annað
heima, líklega til heimabrúks.
Deiliskipulagið sem fyrir er að
Esjumelum, eftir margvíslegar
breytingar til að koma þyngri iðn-
aði fyrir, var samþykkt af skipu-
lags- og samgönguráði Reykjavík-
urborgar 1. júlí 2020. Þar segir
m.a.:
„Gerð var breyting á Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 2010-2030
sem staðfest var 2.9. 2019. Í henni
voru rýmkaðar heimildir fyrir iðn-
að sem talinn er geta haft mengun
í för með sér, en ekki gert ráð fyr-
ir starfsemi sem getur haft nei-
kvæð áhrif á útivistarsvæði og
nærliggjandi íbúðabyggð. Dæmi
um starfsemi sem heimild er fyrir
eru efnisvinnslustöðvar, flokk-
unarmiðstöðvar, malbikunar-
stöðvar og steypustöðvar, að því
gefnu að umhverfisáhrif teljist
ásættanleg.“
Við þurfum vissulega að koma
óhreinum þvotti einhvers staðar
fyrir en er ekki nóg komið með
þær umbúðir án innihalds sem
meirihlutinn í Mosfellsbæ hefur
selt íbúum bæjarfélagsins í gegn-
um árin? Sá hinn sami kjörni bæj-
arfulltrúi, sem þetta spann, sat
sem formaður skipulagsnefndar
Mosfellsbæjar á síðasta kjör-
tímabili. Sá hinn sami er nú þing-
maður Suðvesturkjördæmis og
fékk einnig formennsku í Strætó á
sínum tíma þar sem bograð var yf-
ir áformum um borgarlínu með
borgarstjóra Reykjavíkur. Við vit-
um öll hvernig kaupin gerast á
eyrinni.
Eitt var sagt við okkur hér í
Mosfellsbæ í okkar nefndum, ann-
að í raun gert á bak við tjöldin.
Þetta kallast að leika tveimur
skjöldum og tala tungum tveim,
sitt með hvorri.
Undirmálin, mengunin og Mosfellsbær
Eftir Svein Óskar
Sigurðsson
Sveinn Óskar
Sigurðsson
»Reykjavíkurborg vill
fá þungaiðnað og
færa þann mengandi
iðnað af svæði, sem nú
hylur legu borgarlín-
unnar, yfir á Esjumela,
næst Mosfellsbæ.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Miðflokksins í Mosfellsbæ og situr
sem aðalmaður í svæðisskipulags-
nefnd höfuðborgarsvæðisins.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is