Morgunblaðið - 13.05.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 13.05.2022, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022 sem m.a. var ætlað að spara lyfjakostnað hins opinbera. Ólafur var í fjölmiðlum spurður um álit sitt á þessari reglugerð og sagði að sér litist illa á hana enda myndi hún og hækka lyfja- kostnað sjúklinga og bitna þannig illa á þeim. Ráðherra var ekki ánægður með að heyra fyrst af þessari afstöðu land- læknis í fjölmiðlum og kallaði hann því á teppið. Á fundi með okkur nokkrum embættismönn- um þar sem landlæknir og ráð- herra sátu hvor við sinn enda borðsins var loftið rafmagnað þegar ráðherra las landlækni pistilinn. Við hverja setningu í þeim reiðilestri svaraði land- læknir með sinni djúpu og ein- kennandi rödd: „Já ráherra.“ Við aumir embættismenn þorð- um ekki að brosa að þessari leiksýningu sem endaði með því að ráðherrann gat ekki haldið andlitinu og sprakk af hlátri. Það gerðum við hinir líka og all- ir urðu vinir. Ólafur var mikill og góður málsvari sjúklinga og þeirra sem minna mega sín eins og mörg skrif hans bera vott um. Af þeim sökum naut hann mik- illar lýðhylli. Þegar lýðhylli hans var hvað mest var hann spurður hvort hann ætlaði ekki að bjóða sig fram til forseta. Hann svar- aði því til „að hann gæti, altso, ekki neitað því að margir hefðu haft samband við sig en þeir væru þó fleiri sem það hefðu ekki gert og hann vildi taka meira mark á þeim“. Ég sendi Gunnari Alexander og fjölskyldunni allri mínar ein- lægu samúðarkveðjur. Einar Magnússon. Það kom í fréttum: Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, er lát- inn, 93 ára að aldri. Ég kynntist Ólafi fyrst þegar ég var í sumarleyfi á Íslandi sumarið 1983. Ég var þá að vinna sem barnalæknir í Gíneu- Bissá í Vestur-Afríku, og það vakti síkvikan áhuga hans. Mál- efni fátækra þjóða voru honum hugleikin og sýndi áhuga á því að Íslendingar létu meira til sín taka á þeim vettvangi. Á þess- um tíma voru Íslendingar að hefja samstarf við Grænhöfða- eyjar í fiskveiðum og „því ekki í heilbrigðismálum?“, spurði Ólaf- ur. Fyrr en varir var hann bú- inn að skipuleggja ferð til Grænhöfðaeyja – og „þú kemur með, Geir!“ Fannst það tilvalið þar sem ég byggi á „næsta bæ“, Gíneu-Bissá, í 900 km fjarlægð en löndin höfðu háð sjálfstæð- isbaráttu sína saman gegn yf- irráðum Portúgala. Strax í sept- ember sama ár vorum við komnir á vettvang og Inga, eig- inkona hans, hafði slegist með í för. Við heimsóttum heilbrigð- isstofnanir og rætt var við stjórnvöld. Hann var vakandi fyrir umhverfinu, viðræðugóður og sýndi öllum sem við hittum virðingu og áhuga. Það var einn- ig auðvelt að umgangast Ólaf og Ingu – stoð hans og styttu með- an hún lifði – og ræða allt milli himins og jarðar og þessi reynsla tengdi okkur saman alla tíð. Þótt þessi för hafi því miður ekki leitt til formlegs samstarfs milli landanna á sviði heilbrigð- ismála sá Ólafur til að þess að fylla einn fiskibát sem var á leið frá Íslandi til Grænhöfðaeyja með margvíslegum sjúkrahús- gögnum frá heilbrigðisstofnun- um á landinu. Þannig var Ólaf- ur, hann lét verkin tala. Frá þessum tíma kom ég allt- af við á skrifstofu Ólafs þegar ég átti leið til landsins þá nær tvo áratugi sem ég bjó erlendis. Í einni heimsókninni árið 1993 ræddi ég við hann rannsóknir mínar og Jónínu eiginkonu minnar um brjóstagjöf í mis- munandi menningarheimum. Þetta fannst honum áhugavert. „Heyrðu, köllum til fundar“ – sem auðvitað gekk eftir á miðju sumri í Rúgbrauðsgerðinni með heilbrigðisstarfsfólki sem sýndi málefninu áhuga. Þegar ég stundaði framhalds- nám í barnalæknisfræði í Stokk- hólmi kom Ólafur í sk. vísitasíur til að hitta lækna sem störfuðu þar. Einn fundur var í sendi- ráðinu í Stokkhólmi, annar í Örebro. Það var vel mætt og hann hvatti okkur öll til að koma heim. Hann benti okkur á mikilvægi þess að rækta gott orðspor, um að vera liðleg í samstarfi og „passið ykkur á áfenginu“. Þannig var Ólafur, hann sagði skoðun sína umbúða- laust. Við héldum tengslum okkar eftir að hann lét af embætti landlæknis, þá kominn á kaf í ný verkefni, eins og hans var von og vísa. Þegar ég tók við emb- ætti landlæknis 2010 ræddi ég við hann og spurði hvaða ráð hann gæti gefið mér. Venju samkvæmt var hann fljótur að svara: „Kynntu þér vel lögin um embættið.“ Með Ólafi er fallinn frá einn burðarása í íslensku samfélagi, maður sem gustaði af og allir þekktu til og báru virðingu fyr- ir. Ég votta börnum hans og að- standendum samúð mína. Geir Gunnlaugsson. Ólafur Ólafsson hefur verið foringi og leiðtogi íslenskra lækna frá því hann hóf störf sem landlæknir. Leiðtogahlut- verkinu lauk ekki þegar hann lét af störfum. Allt fram á síð- ustu daga hafa menn og stofn- anir leitað til Ólafs um ráð og leiðsögn í hinum ýmsu málum. Ég kynntist Ólafi þegar ég hóf störf á Ríkisspítölum 1972 en það sama ár varð Ólafur land- læknir. Maður skynjaði fljótt að hann var mikill málafylgjumað- ur. Svaraði jafnvel ráðherrum í fjölmiðlum ef honum fannst þeir fara villir vegar. Ólafur beitti sér oft fyrir þá sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Hann lagði gjarnan utangarðsfólki lið. Á erlendum vettvangi var alls staðar tekið eftir Ólafi. Hann var til dæmis farinn að berjast gegn reykingum á vettvangi Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar á undan flestum öðrum og kallaði tóbak eitur. Við Ólafur unnum alltaf vel saman. Við þurftum aldrei að takast á um nein deilumál. Það kom mér samt mjög á óvart þegar hann hvatti mig til að sækja um starf ráðuneytis- stjóra. Ég hafði á þessum tíma starfað í tæp 25 ár hjá Rík- isspítölum og fannst kominn tími til að leita starfa utan heil- brigðiskerfisins. Það má því segja að Ólafur hafi verið nokk- ur áhrifavaldur í því að önnur tæp fimmtán ár bættust við störf mín í heilbrigðisþjónustu. Við Ólafur unnum saman síð- ustu ár hans sem landlæknir. Það var ánægjulegt samstarf. Vænst þykir mér samt um sam- starf og vináttu okkar síðustu tíu árin af ævi Ólafs. Það eru um það bil tíu ár síð- an Ásmundur Brekkan prófess- or og Ólafur buðu mér að vera með og hittast í hádegisverði á föstudögum. Við vorum upphaf- lega fimm sem hittumst en nú hefur fjölgað dálítið í hópnum. Maður fann það vel í þessum hópi hvað Ólafur var velviljaður og vel að sér í læknisfræði. Hann lagði aldrei illt orð til nokkurs manns. Í samtölum í hópnum var ekki óalgengt að einhver hinna læknanna lýsti sjúkdómseinkennum einhvers sjúklings sem þeir hefðu mætt stundum fjarri allri nútíma- tækni. Í framhaldinu var spurt hver er sjúkdómurinn og hver er sjúkdómsgreiningin? Ólafur var yfirleitt eldsnöggur og á undan öðrum að svara rétt. Ólafur breyttist eiginlega ekk- ert á þessum tæpu tíu árum sem við hittumst flesta föstudaga. Covid dró þó verulega úr fund- um okkar. Á því tímabili lenti Ólafur á hjúkrunarheimilinu Grund. Við Tryggvi Ásmunds- son læknir heimsóttum hann nokkrum sinnum á þessu tíma- bili þegar heimsóknir voru leyfðar. Ólafur var sjálfum sér líkur og alltaf jafn gaman að spjalla við hann um liðin ár og þá ekki bara heilbrigðisþjón- ustu. Minningin um Ólaf mun lifa lengi. Hann skildi eftir sig djúp spor alls staðar þar sem hann fór um. Við Elín sendum öllum að- standendum Ólafs okkar bestu samúðarkveðjur. Elín og Davíð. Ólafur Ólafsson var land- læknir á árunum 1972-1998 eða í rúman aldarfjórðung. Þetta var tímabil mikillar þróunar í heil- brigðisþjónustu. Sem dæmi má nefna uppbyggingu heilsugæslu og dvalarheimila, einnig aukin réttindi sjúklinga. „Iðjuleysi fer mér ekki vel“ var fyrirsögn blaðaviðtals við starfslok hans. Ólafur var vinnusamur maður og framsýnn og tókst með góðri framgöngu að efla og stækka embætti landlæknis með breytt- um áherslum. Embætti land- læknis sinnir í dag afar fjöl- breyttum verkefnum, sem lúta að því að stuðla að góðri heil- brigðisþjónustu, heilsueflingu og forvörnum. Fyrstu kynni mín af Ólafi voru þegar hann sem landlækn- ir kenndi okkur í læknanáminu, ég minnist hve það var skemmtilegt í þeim kennslu- stundum. Við kynntumst svo undir erfiðum kringumstæðum fyrir um átta árum og ræddum oft saman eftir það. Með okkur tókst vinátta enda Ólafur fljótur að mynda tengsl við fólk. Það var svo eitt af mínum fyrstu verkum eftir að hafa verið skip- uð landlæknir að heimsækja þennan heiðursmann og þiggja hjá honum góð ráð um þetta mikilvæga starf. Ólafur þótti óvenjulegur emb- ættismaður sem fór ótroðnar slóðir í störfum sínum. Hann var eldhugi og baráttumaður sem var ekki fyrir að gefa eftir. Ólafur var maður athafna og lét sér engin málefni óviðkomandi. Það sem þótti hvað mest ein- kennandi í fari Ólafs, var góður skilningur hans, viðmót og um- hyggja gagnvart þeim sem á einhvern hátt stóðu höllum fæti í lífinu, hann mátti ekkert aumt sjá og hjálpsemi hans í slíkum tilvikum var við brugðið. Hann lýsti því enda sjálfur að mann- eskjan væri hans aðaláhugamál. Ólafur var mikill húmoristi, ætíð með glampa í augum og þótti skemmtilegur samstarfs- félagi. Það var gantast með að visst skipulagsleysi bætti hann upp með ýmsum góðum eigin- leikum. Hann hafði til dæmis lag á að velja sér ráðgjafa, sem voru ólíkir honum sjálfum, gjarnan íhugulir, varkárir og jarðbundnir eins og samstarfs- maður lýsti. En það var einmitt eitt af ráðunum sem hann gaf mér; það mikilvægasta í slíku starfi væri að fá með sér gott fólk. Ólafur var frægur fyrir sitt góða skopskyn. Það ásamt næmni gerði honum gjarnan kleift að taka sviðið með góðri „replikku“ á hárréttum tíma. Það eru enda, altso, til margar sögur af Ólafi Landlækni (með stóru L-i), sögur sem hafa flogið og lifað, ekki síst fyrir tilstuðlan annars vinar míns, altso, Jó- hannesar Kristjánssonar eftir- hermu. Eftir að Ólafur lét af starfi landlæknis hélt hann áfram að láta sig heilbrigðis- og velferð- armál varða. Meðal annars í starfi eldri borgara og með við- tölum og greinaskrifum í blöð en hann var ólatur að stinga niður penna. En nú er þessi góði og eftirminnilegi maður genginn og ég votta honum virðingu og þakklæti fyrir mína hönd og embættis landlæknis. Börnum hans og öðrum ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Alma D. Möller landlæknir. Seint gleymi ég fyrsta starfs- degi mínum sem aðstoðarland- læknir hjá Ólafi fyrir margt löngu. Þá var skrifstofa land- læknis á Laugaveginum, nálægt Hlemmi. Ólafur sagðist strax vera kominn með verkefni fyrir mig. Hann hefði misst gleraug- un sín bak við háan og þungan bókaskáp á skrifstofu sinni og ætti í erfiðleikum með að ná þeim upp. Ég reyndi það líka, en tókst það ekki, því bilið var þröngt. Eftir umræður varð úr að ég fór út á Laugaveg þar sem strákar voru að selja síð- degisblöð. Þeir féllust á að koma inn á skrifstofuna og við héldum um ökklana á öðrum stráknum og létum hann síga niður bak við bókaskápinn. Þannig kom hann hendi á gleraugun og náði þeim óskemmdum upp. Ólafur var ánægður með að fá gler- augun sín, báðir strákarnir fengu greiddan smápening fyrir aðstoðina og voru hinir ánægð- ustu að verkinu loknu. Nýi að- stoðarlandlæknirinn var ánægð- ur með að hafa getað aðstoðað landlækninn, sem hann taldi með réttu vera sitt hlutverk. Ekki síst vorum við báðir ánægðir með að hafa náð ár- angri með óhefðbundnum að- ferðum. Þannig liðu árin með Ólafi. Ég vissi aldrei hvaða verkefni biðu mín og dagurinn varð spennandi, hvort heldur það voru heimsóknir á sjúkrastofn- anir úti um allt land, fundir í út- löndum eða bara viðræður við „háa sem lága“ (svona myndi Ólafur aldrei hafa orðað það) á skrifstofunni. Sérstaklega náði hann vel til þeirra sem voru í erfiðri stöðu, hvort heldur það voru sjúklingar sem töldu sig hafa orðið fyrir mistökum eða slæmu viðmóti fólks í heilbrigð- isþjónustunni, eða heimilislausa fólkið, sem sumt notaði hann nánast sem heimilislækni eða ráðgjafa. Hann gaf sér tíma til þess. Heilbrigðisstarfsfólki, sem hafði lent í erfiðleikum var hann mikill stuðningur. Eftir að Ólafur lét af störfum hjá landlæknisembættinu hringdi hann stundum í mig til að ræða málin, gjarnan á kvöld- in, jafnvel nálægt miðnætti. Það var alltaf gaman að heyra í hon- um. Þessum samtölum fækkaði eftir að ég sneri mér að öðrum störfum fyrir áratug. Síðasta símtalið okkar á milli var þegar hann hringdi og bauð mér að taka þátt í matarklúbbi sem hann og nokkrir gamlir læknar og stjórnendur í heilbrigðisþjón- ustunni höfðu stofnað, en hóp- urinn hittist nokkrum sinni í mánuði og leysir ýmsan vanda heilbrigðisþjónustunnar og þjóðfélagsins og er hinn skemmtilegasti. Í síðasta sam- tali okkar rifjaði hann upp hvað við hefðum átt gott samstarf og mér þótti vænt um það. Hafði ég á tilfinningunni að hann vissi að við myndum ekki hittast aft- ur. Vegna veikindanna var hann ekki fær um að mæta aftur í klúbbinn. Hann lést svo um ári síðar og er sárt saknað. Aðstandendum votta ég sam- úð mína. Ólafur var góður mað- ur. Matthías Halldórsson. Ég býst við að mörgum Ís- lendingum og líklega langflest- um læknum hafi fundist þeir eiga einhvern hlut í Ólafi Ólafs- syni, hann var þannig maður, n.k. þjóðareign og þjóðarsómi. Hann var í reynd goðsögn í lif- anda lífi, einn fárra sem standa undir slíkri umsögn. Ég kynntist honum á miðjum ferli hans sem landlæknis og átti þess kost að vinna með hon- um og undir hans forsjá. Hann var landlæknir í tæpa þrjá ára- tugi, lengur en eftirmenn hans sem nú eru orðnir fimm. Á hans tíma var starf af þessu tagi talið ævistarf, svo er ekki lengur, og um það má sjálfsagt deila. Hann tókst á við margbrotin verk í starfi sínu, sum erfið, mjög erf- ið, og gerði það oftast með sóma. Hann var landlæknir þeg- ar HIV og alnæmi komst á kreik, og leiddi viðbrögð okkar við þeim erfiða sjúkdómi fyrstu áratugina. Hann var sannur mannvinur og mátti í raun ekk- ert aumt sjá. Vinur litla manns- ins var hann, kom fram við alla eins, hvort sem þeir voru háir eða lágir. Ólafur var margbrot- inn karakter, var gefið að sjá nýja hlið á málum og kom sjón- armiðum sínum stundum á framfæri með stuttum og snörp- um athugasemdum, stundum ögrandi, eftirminnilegum „one- liners“. Hann var lúmskur húm- oristi, beitti húmor sem sverði í skylmingum dagsins og var stundum kostulegur í tilsvörum. Ólafur var hlýr maður í við- kynningu og starfi, studdi og hvatti yngri samstarfsmenn, og mér fannst hann góður uppal- andi. Hann gat þó verið harður í horn að taka ef svo bar undir og ófeiminn við að sigla á móti straumnum. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Ólafi og unnið með hon- um að ýmsum málum og ekki síður þakklátur fyrir þann heið- ur að hafa fengið að taka við starfi hans, þau spor voru bæði gefandi jafnframt því sem þau gátu verið vandrötuð. Ég minnist Ólafs sem eins af eftirminnilegustu karakterum sinnar kynslóðar og sendi að- standendum hans innilegar samúðarkveðjur. Sigurður Guðmundsson. Við vinirnir kynntumst Gunn- ari, yngsta barni Ólafs, í Mela- skóla. Ein fyrsta minningin af því er þegar Gunnar bauð vin- unum aftur og aftur að nesta sig upp í Garðarsbúð. Það er líklegt að Ólafur hafi rekið upp stór augu yfir reikningum frá Garðari, en aldrei fréttum við félagarnir neitt af þeim við- brögðum og víst að því hafi ver- ið tekið af sama jafnaðargeði og einkenndi Ólaf alla tíð. Á stóru heimili á Grenimeln- um var oft mikið um að vera, fjölskyldan var vinmörg og fólk þeyttist upp og niður hæðirnar fjórar. Þá var gott að vita af því að kjallaradyrnar voru alltaf ólæstar og það nýttum við vin- irnir okkur óspart. Stundum þurfti t.d. að fara þar inn til að vekja yngsta soninn í fótbolta eldsnemma á sunnudagsmorgn- um og fjölmörg önnur erindi koma í hugann, sem ekki verða rakin hér. Við vinirnir vorum alltaf velkomnir á Grenimelinn og samverustundirnar og sögur Ólafs um lífið og hversu dýr- mætt það væri að eiga góða heilsu voru ógleymanlegar. Hann var ákveðinn þegar hann var að leggja okkur ungu drengjunum lífsreglurnar en gerði það með hlýju og vænt- umþykju í huga. Stundaskráin á ísskápnum rennur okkur vinum seint úr minni. Þar gat að líta nákvæma áætlun um öll helstu heimilisverk og var þeim jafnt skipt á milli systkinanna. Þann- ig var Ingibjörgu ætlað að ryk- suga á mánudögum, Bjarna að elda á þriðjudögum, Páll þreif klósettin á miðvikudögum og Gunnar þurrkaði af á fimmtu- dögum. Undir öllu saman stóð svo stórum stöfum: stjórnandi Ólafur Ólafsson. Stjórnunarstörf verða ekki ofmetin og á Ólafur langan og mjög svo farsælan feril að baki í þeim efnum. Á þeim vígstöðvum var stíll Ólafs mjúkur en áhrifa- mikill, hann fór ekki í mann- greinarálit og hlustaði af áhuga á raunir unglinganna og átti ráð undir rifi hverju. Seinna urðu þessir sömu unglingar málsmet- andi fólk og alltaf var Ólafur jafn viðræðugóður og fá þjóð- þrifamálin sem hann hafði ekki áhuga og þekkingu á. Þessir hæfileikar Ólafs létu engan ósnortinn og víst er að þeir hafi haft jákvæð áhrif á uppeldi fleiri en heimilisfólks á Grenimelnum. Við vottum fjölskyldu og vin- um innilega samúð og megi samvera ykkar og hlýjar minn- ingar veita ykkur styrk. Hannes Ottósson og Páll Sævar Guðjónsson. Í dag er kvaddur merkur maður sem hafði mikil áhrif á mitt líf og rita ég nokkur fátæk- leg kveðjuorð til hans í þakklæt- isskyni fyrir okkar kynni. Sem ungur drengur og fram eftir aldri vandi ég komur mínar á Grenimel 38 þar sem Ólafur og Inga héldu fallegt heimili á þremur hæðum með risi sem var ævintýragarður og þar ým- islegt var brallað. Þau áttu barnaláni að fagna og eignuðust saman fimm börn og þannig vildi til að ég og yngsti sonur Gunnars urðum góðir vinir sem enn heldur. Oft var margt um manninn á heimilinu til viðbótar við alla vinina og vinkonurnar sem þar bættust við en alltaf var opið hús og allir velkomnir. Í minn- ingunni var Ólafur nánast alltaf á náttsloppnum þegar hann var heima við og þá að vinna og í símann á milli þess sem hann þurfti að stilla til friðar þegar upp úr sauð á milli allra krakk- anna sem þar höfðu safnast saman. Oft gekk mikið á og ým- is misgáfuleg strákapör framin víða í nágrenninu sem Ólafur þurfti svo oftar en ekki að vinna úr á seinni stigum, en alltaf náði hann að leysa úr því með ljúf- mennskuna eina að vopni. Ró- legt fas Ólafs breyttist lítið þó að lætin og hamagangurinn væru mikil inni á hans eigin heimili, en þá sjaldan sem hann hækkaði róminn þá áttuðu menn sig á því að þarna var gjör- samlega búið að fara yfir strikið og datt þá allt í dúnalogn. Alltaf var gaman að tala við Ólaf þeg- ar við hittumst og fylgdist hann alltaf vel með því sem maður var að fást við í lífinu. Urðu samskiptin minni með árunum, en þegar við svo loks hittumst var eins og ég hefði hitt hann síðast í gær. Þegar undirritaður var sex ára gamall varð ég fyrir bíl á Hofsvallagötu beint fyrir fram- an heimili Ólafs og Ingu. Ólafur var ekki heima við þegar slysið átti sér stað, en örlögin virðast hafa gripið í taumana því Ólafur þurfti að skjótast heim í umrætt sinn og kom á vettvang skömmu eftir að slysið átti sér stað. Hann áttaði sig fljótt á því að sá sem varð fyrir bifreiðinni var alvarlega slasaður og las rétt í aðstæður sem vanur læknir og veitti undirrituðum lífsbjörg og undirbjó til flutnings á sjúkra- hús. Slíka lífsbjörg er aldrei að fullu hægt að þakka nema með fátæklegum orðum sem þess- um. Ég kveð góðan og eftirminni- legan mann sem sinnti mikil- vægu starfi í samfélaginu í ára- tugi og þegar á reyndi tók hann alltaf stöðu með þeim sem minnst máttu sín í samfélaginu. Þórður Geir Þorsteinsson og fjölskylda. Ólafur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.