Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Albufeira ClubeAlbufeiraGardenVillage y y 7. júní í 7 nætur 85.275 Flug & hótel frá Frábært verð! 114.550 Flug & hótel frá 2 fullorðnir aaa Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Umboðsmaður Alþingis mun hljóta sérstaka fjárveitingu til að fylgjast með framkvæmd brottvísana á flóttafólki héðan frá landi. „Þetta er fyrirkomulag sem er vel þekkt innan samstarfsríkja okkar í Schengen,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra en enginn hefur þjónað þessu hlutverki hingað til. „Þarna er bara kominn óháður aðili á vettvangi þingsins,“ segir hann, en um er að ræða sjálfstætt erindi samhliða nýju útlendinga- frumvarpi ráðherrans. Jón býst við að forsætisnefnd geti tekið ákvörðun um hvort erindið verði samþykkt, sem hann býst sterklega við. Í kjölfarið verði veitt aukið fé til þess að embættið geti sinnt þessu hlutverki. Engar breyt- ingar verða því í raun á fram- kvæmd frá- og brottvísana, að- eins nýr og óháð- ur eftirlitsaðili. „Ég held að það sé mjög mikilvægt, í þessum málaflokki sem er mjög viðkvæmur í það heila, að það sé hér óháður aðili til að kanna hvort allt sé í samræmi við lög og reglur um þessar aðgerð- ir.“ Ekki hefur enn verið tilgreind tímasetning og segir Jón aðspurður að tímasetningin núna skipti því ekki sköpum, en mikil umræða hefur skapast um flóttamannamál á síð- ustu dögum og vikum, þá sér í lagi brottvísanir. Greint var frá því í lok maí að vísa ætti um 300 einstakling- um úr landi vegna afléttingar ferða- takmarkana. Á föstudag sagði Katr- ín Jakobsdóttir forsætisráðherra síðan að þeir væru tæplega 200 tals- ins. „Sum hafa fengið áframhaldandi meðferð sinna mála, önnur eru hreinlega farin,“ sagði Katrín. Það breytir því þó ekki að margir hverjir hafa gagnrýnt framkvæmd brottvís- ananna harðlega. – Áttu von á að þetta muni slá á gagnrýni? „Nei, því hef ég ekki neina trú á. Þetta er klárlega til að auka við gagnsæi og umgjörð um svona hluti. En þetta hefur engin praktísk áhrif á ferlið sem slíkt.“ Aukið hlutverk Alþingis í brottvísunarmálum - Óháð eftirlit brottvísana - Framkvæmd breytist ekki Jón Gunnarsson Fjöldi fólks lagði leið sína á Yl- ströndina í Nauthólsvík í veður- blíðu helgarinnar á höfuðborgar- svæðinu. Að sögn Ingibjargar Írisar Ásgeirsdóttur vaktstjóra var töluvert að gera í Nauthólsvík bæði sunnudag og laugardag og stemn- ingin góð. Ingibjörg sagði fjölda fólks í Nauthólsvík nýliðna helgi töluvert meiri en gengur og gerist í maímánuði. Hitastig sjávar í Naut- hólsvík var í gær tíu gráður og hita- stig á Ylströndinni rúmlega sextán gráður. „Fólk er í mjög góðu skapi, hér er fólk að grilla, kíkja í sjóinn og aðrir taka það rólega á strönd- inni,“ sagði Ingibjörg þegar blaða- maður náði af henni tali síðdegis í gær. Veður var gott um nærri land allt í gær og fór hiti sumstaðar yfir tuttugu stig á Suður- og Suðvestur- landi. Í dag er gert ráð fyrir áfram- haldandi veðurblíðu, ekki síst á landinu sunnanverðu, og þegar best lætur er útlit fyrir að hiti fari yfir tuttugu stig. Sumstaðar má búast við þokulofti við strendur og verður þá svalara. Fjölmennt í Naut- hólsvík Morgunblaðið/Kristvin Guðmundsson Veðurblíðan lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins um helgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.