Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Handavinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12.45. Glervinnustofa kl. 13-16. Hjólað á æfingahjóli fyrir framan skjá um borg og bý kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Leikfimi Qi-gong kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með Hall- dóru á RÚV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 10 gönguhópur frá Jóns- húsi, kl. 12.30-15.40 brids í Jónshúsi, kl. 12.40 Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 13 gönguhópur frá Smiðju, kl. 15 / 15.40 / 16.20 vatnsleikfimi í Sjá- landi, kl. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 24. maí verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til gamans gert, s.s. spilað, spjallað og sungið. Að opna húsinu loknu er boðið uppá kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12, kyrrlát stund með fyrirbænum og altaris- göngu. Verið öll velkomin! Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla-jóga kl. 10. Félagsvist kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Minninga- hópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheiði Ýr kl. 12.20. Zumba með Carynu kl. 13.10.Tækninámskeið Android kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi degin- um áður. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll kl. 10; tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi. Félagsvist í Borgum kl. 12.30. Prjónað til góðs kl. 13. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Opin handavinnustofa kl. 9-12. Leir- mótun í smiðju kl. 9-13. Bókabíllinn Höfðingi verður á svæðinu frá kl. 13.10-13.30. Opin handavinnustofa kl. 13-16. Botsía í setustofu kl. 13.15-14 og síðdegiskaffi frá kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Kaffikrókur frá kl. 9 á Skólabraut. Billjard í Selinu kl.10. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Ath. Nú hafa öll námskeið lokið sínu vetrar- starfi og vegna uppsetningar á handverkssýningu sem opnar nk. fimmtudag verður engin starfsemi í salnum á Skólabraut þessa viku. Sýningin verður opin fimmtudag kl. 15-17, föstudag og laugardag milli kl. 13 og 17. Vöfflukaffi og sölubásar. Alliir velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Plöstun Sólarfilmur Bílar Einn með öllu. SUBARU Forester Lux E-boxer Harman/Kardon. Árgerð 2020, ekinn 28 Þ.KM, bensín/rafmagn.Webasto miðstöð. Gler topplúga. Sjálfskiptur. Verð 6.650.000. Rnr.135679. Er á staðnum. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Húsviðhald Húsa- viðgerðir www.husco.is Vantar þig fagmann? FINNA.is Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ Guðný Jóna Pálsdóttir fæddist á Ísafirði 4. ágúst 1951 og bjó á Þvergötu 4 á Ísafirði sem barn. Hún lést 18. maí 2022 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Foreldrar Guð- nýjar voru þau Hólmfríður Enika Magnúsdóttir, f. 6. mars 1915, d. 19. janúar 1997, og Páll Benjamín Sigurðsson, f. 15. maí 1917, d. 15. febrúar 2013. Þau eignuðust fjórar dætur: Karitas Maggý, f. 21. janúar 1941, Kristínu Björk, f. 30. maí 1943, Júlíönu Sigríði, f. 1. júlí 1947, og Guðnýju Jónu, f. 4. ágúst 1951. Guðný giftist Sigurði Bessa- syni 28. júlí 1973. Börn Guð- nýjar og Sigurðar eru Snorri, f. 5. apríl 1972, og Páll Hólm, uninni Víði. Þau Sigurður hófu sinn búskap á Nýlendu- götu 24b. Þaðan lá leið þeirra á Hjarðarhagann, og á þeim árum hóf Guðný störf sem dagmóðir og vann við það í fimm ár samhliða námi. Með stuttu stoppi á Reynimel var flutt inn á Ásenda 9 árið 2003. Guðný hóf störf á Landa- koti, deild 2A, 1982 og vann þar til ársins 1996. Hún starf- aði síðar hjá Þjónustuíbúðum aldraðra á Dalbraut 27 frá 1. apríl 1996 og vann þar til 2018 (þar af sem deildarstjóri frá 2005 til 2018) þegar hún hætti á vinnumarkaði. Árið 1993 réðust Guðný og Sigurður í byggingu á sum- arbústað í landi Þverár í Vindhælishreppi ásamt ætt- mennum Sigurðar. Lífshlaup Guðnýjar var lit- að hennar miklu sköpun, hvort sem um ræðir hand- verk, skógrækt eða kærleiks- ríkar gleðistundir í faðmi fjöl- skyldu og vina. Guðný verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 30. maí 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. f. 26. maí 1977. Snorri er giftur Kristbjörgu Jóns- dóttur. Þeirra börn: Breki, Áróra og Gabríel Hrafn. Páll er giftur Eddu Lúvísu Blön- dal. Þeirra börn eru: Klara Líf og Nikulás Tómas. Barn Páls með fyrri sambýlis- konu, Margréti Gunnars- dóttur, er Jóna Guðný. Guðný Jóna gekk í gagn- fræðaskóla Ísafjarðar og stundaði nám í Tónlistarskóla Ísafjarðar í sex vetur. Hún fór í húsmæðraskólann á Laugum veturinn 1969 til 1970 og sótti tveggja ára kvöldnám í sjúkra- liðanámi (við tjörnina) með fullri vinnu. Hún útskrifaðist sem sjúkraliði 1982. Fyrstu ár sín í Reykjavík vann Guðný í húsgagnaversl- Guðný kom í fjölskyldu okk- ar fyrir rúmum 50 árum, hljóð- lát og pen. Á núll-einni má segja hún hafi laumað sér utan um okkur öll. Jafn þægileg og glaðleg kona er vandfundin. Guðný var vinmörg og ræktaði vinasambönd. Á stundum minnti heimili hennar og Sigga á gistiheimili þegar ófært var til heimahaga hennar. Guðný var listræn og afar áræðin. Víl- aði ekki fyrir sér að mála myndir. Gera mósaíkverk. Saumaskapur ekki vandamál. Málaði og bjó til fígúrur úr steinum. Með afburða græna fingur. En einmitt sá áhugi naut sín vel við fjölskyldubú- stað okkar fyrir norðan, Þver- árbrekku. Við smíðar á húsinu var hún líka enginn eftirbátur. Hamar, sög, streð, Guðný var alltaf tilbúin. Á landi okkar, sem á þeim tíma var við lélegt vegasamband og er hátt yfir sjávarmáli, þar eru sumrin stutt og misgóð. Eftir gróður- setningu í nær 30 ár og 20.000 plöntum síðar er kominn all- mikill skógur, að okkar mati. Skógur sem enginn nema Guðný hafði hugarflug til að gæti sprottið. „Sjáið þið bara hvernig snjórinn hefur farið með furuna, en hún er bara flottari svona.“ Guðný sá alltaf björtu hliðarnar. Uppátækja- söm. Rall við túnfótinn á bú- staðnum, krappar beygjur og mikill hraði. „Látum þennan keyra út af,“ galaði hún og reif sig úr að ofan. Á góðum stund- um átti Guðný til að hlæja svo óskaplega og þá heyrðist: „Hættið, hættið, eða ég pissa í mig!“ Ísfirsku barnagælurnar sem hún söng fyrir okkur, þær hljómuðu framandi í reykvísk eyru. Guðný átti til að taka vökunótt á sumrin í Þverár- brekku. Til að heyra náttúruna sofna og vakna á ný. Beið okkar hinna þá uppdekkað borð og morgunkaffið klárt þegar við fórum á fætur. Berlín. Í mörg ár höfum við ferðast fern hjón á aðventunni til Berlínar. Jóla- þorp, leikhús, góður matur, mikill hlátur. Óvelkominn. Fyr- ir hálfu öðru ári hafði laumað sér gestur inn hjá Guðnýju. Gestur sem bókstaflega yfirtók hana. Þá var vitað hvert stefndi, samt högg við andlátið. Minnir okkur á að lífið er núna. Þessi óvelkomni gestur mætti við upphaf gullnu áranna. Sann- arlega ótímabært. Þessarar konu er sárt saknað, en við höldum í vonina að „we’ll meet again, don’t know where …“ Vésteinn (Steini) og Margrét (Maggý). Ég sótti um vinnu á 2A á Landakoti eftir að hafa verið þar sjúkraliðanemi áður. Mætti til vinnu fyrsta vinnudaginn en þegar ég var að ganga upp stig- ann á milli hæða 1A og 2A tók ég eftir því að einhver var fyrir aftan mig. Mér verður litið til baka og sé þig, Guðný, koma upp á eftir mér. Ég kastaði á þig kveðju og kom með ein- hverja athugasemd um að þú værir að elta mig. Þú svaraðir að bragði, tókst undir bullið í mér og þar með hófst áratuga vinátta okkar og auðvitað Sigga líka. Það er svo margs að minnast því margar voru samverustund- irnar, margt var brasað og mik- ið hlegið. Ég var tíður gestur á heimili ykkar Sigga og strák- arnir voru mér sem bræður. Eðlilega urðu samverustundirn- ar færri þegar ég flutti til Ak- ureyrar og stofnaði fjölskyldu en vinátta okkar hélst óbreytt. Þegar ég sit hér og minnist þín sé ég hvernig þú strýkur yf- ir naglaböndin á fingrunum á meðan við ræðum málin og þú setur upp þennan einstaka svip þar sem þú pírðir aðeins augun og svo þinn einstaki hlátur með stríðnisblæ. Þú varst svo mörg- um kostum gædd, komst eins fram við alla, greiðvikin og hjálpsöm. Ég minnist þess þeg- ar við Stína vorum að flytja á Nesveginn þá komuð þið Siggi og hjálpuðuð okkur eins og ekkert væri sjálfsagðara án þess að vera beðin um það. Man ennþá eftir því hvað ég varð undrandi og hrærð að fá þessa óvæntu aðstoð. Listakona varstu fram í fing- urgóma og hugmyndaflugið var eiginlega óþrjótandi. Þú mikl- aðir það ekki fyrir þér að bólstra heilu sófasettin en einn- ig bjóstu til alls konar furðu- verur og ég á eina slíka en einnig varðveiti ég eins og gull hattinn sem þú hannaðir og gerðir fyrir mig fyrir eina þjóðhátíðina. Þú nýttir það sem þú fékkst í hendurnar og úr urðu ótrúlegustu hlutir. Það er ekki hægt að minnast þín og tala ekki um mat. Þú varst listakokkur og það var lær- dómsríkt að fylgjast með þér þegar þú lékst listir þínar í eld- húsinu. Ég verð að nefna hrúta- berjasultuna sem þú gerðir eft- ir berjatínsluferð haustið 1990 þegar við dvöldum í sumarbú- staðnum í Skorradal. Ég vissi ekki að sulta gæti verið svona góð. Eftir að ég skildi urðu sam- verustundir okkar aftur fleiri, ég kom oftar í Ásendann en einnig til ykkar Sigga í bú- staðnum á Þverá, yndislegar stundir. Svo hringdir þú og sagðir mér frá veikindum þínum, hel- vítis krabbinn. Við höfðum unn- ið með þennan fjanda allt of lengi og vissum hvað hann gæti haft í för með sér. Nú kveð ég þig elsku Guðný með söknuði en ekki síður þakklæti fyrir okkar vináttu og allar dýrmætu stundirnar. Þakklát fyrir að hafa getið komið og haldið upp á 70 ára afmælið þitt með þér síðastliðið haust. Þakklát fyrir mjög svo dýrmætan tíma núna í febrúar þegar ég kom óboðin til þín í heimsókn, yndisleg stund. Hjartans þakkir elsku Guðný, „I love you“. Elsku Siggi, Snorri, Palli, Kristbjörg, Edda og fjölskyld- ur, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ykkar Anna Breiðfjörð. Guðný Jóna Pálsdóttir ✝ Ingibjörg Guð- jónsdóttir fæddist í Reykjavik 1. nóvember 1947. Hún lést 12. maí 2022. Ingibjörg var elst barna hjónanna Guðjóns Einars- sonar, f. 26. apríl 1924, d. 10. maí 2004, og Þórdísar Guðmundsdóttur, f. 6. mars 1923, d. 11. febrúar 2005. Systkini Ingibjargar eru Einar, f. 1949, Yngvi Grétar, f. 1951, d. 1993, og Þorbjörg, f. 1961. Maki Ingibjargar var Guðjón Róbert Ágústsson en hann lést árið 2017. Ingibjörg og Róbert giftu sig 24. júní 1967. Börn þeirra eru Þórdís Linda Guðjóns- dóttir, maki Björn Gunnarsson, og Ein- ar Michael Guð- jónsson, maki Hall- dóra Sigurð- ardóttir. Barnabörnin eru sex og lang- ömmubörnin eru fjögur. Ingibjörg var lærður lyfjatæknir og starfaði á yngri árum í Laugavegsapóteki og Sjúkrasamlagi Reykjavíkur sem deildarstjóri, en það varð síðar að Tryggingastofnun ríkisins. Þar starfaði hún mestalla sína starfsævi. Útförin fer fram frá Krists- kirkju Landakoti í dag, 30. maí 2022, kl. 13. Ingibjörg systir mín féll frá hinn 12. maí 2022 eftir stutt veikindi. Hún var stóra systir mín, 14 árum eldri en ég, ör- verpið. Eftir að móðir okkar dó árið 2005 varð hún stoð mín og tengsl við fyrri kynslóð og ekki stóð á svörum ef mig vantaði upplýsingar um yngri ár mín eða forfeður. Hún var stálminn- ug og við grínuðumst stundum með það hvor væri eldri, því ég er frekar gleymin. Systir mín var mjög gestrisin og ég var alltaf velkomin til hennar. Hún átti líka alltaf til með kaffinu því hún var snill- ingur í eldhúsinu. Ég á margar uppskriftirnar frá henni en hún var þekkt innan fjölskyldunnar fyrir brauðterturnar, eftirréttina og tala nú ekki um salötin, sér- staklega kartöflusalatið. Það eru ekki margir mánuðir síðan að ég fékk kennslu hjá henni í að búa til hassí en það var réttur sem mamma eldaði alltaf. Margar minningar eru frá Borgarfirði þar sem hún og Robbi byggðu sér sæluhús. Sá staður átti sér- stakan stað í hjarta hennar líkt og í mínu hjarta. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur urðum við nánari og áttum fleiri samveru- stundir. Hún keyrði aldrei þrátt fyrir að vera með bílpróf og átt- um við marga bíltúrana saman. Ótrúlegt en satt þá rataði hún betur um Reykjavík en ég. Það verður tómlegt að fara upp í kirkjugarð að setja niður blóm hjá mömmu og pabba án henn- ar. Systir mín bjó yfir mikilli þrautseigju og styrk sem hún sýndi fram á síðasta dag. Ég er þakklát fyrir að hafa getað notið samvista með systur minni en sakna hennar mikið. Blessuð sé minning þín og Guð fylgi þér elsku systir. Þorbjörg. Ingibjörg Guðjónsdóttir Áskær eiginmaðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÚSTAV ÓSKARSSON húsgagnasmiður, Litlagerði 12, Hvolsvelli, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann 24. maí síðastliðinn. Sigþrúður Sigurjónsdóttir Óskar Davíð Gústavsson Lára Hálfdanardóttir Ríkharður Gústavsson Anna Sigríður Aðalbjörnsdóttir Harpa Gústavsdóttir Örvar Þór Guðmundsson Helgi Magnússon Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir Kristín Magnúsdóttir Jón Bjarnason Þór Magnússon Dagbjört Lind Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.