Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Framsókn, Rödd
unga fólksins og
Sjálfstæðisflokk-
urinn hafa mynd-
að nýjan meiri-
hluta í Grindavík.
Bæjarfulltrúar
framboðanna
undirrituðu mál-
efnasamning á
sunnudag. Nýr forseti bæjar-
stjórnar verður Ásrún H. Kristins-
dóttir fulltrúi Framsóknar, fyrir ut-
an þriðja ár kjörtímabilsins þegar
Helga Dís Jakobsdóttir fulltrúi
Raddar unga fólksins mun gegna því
embætti. Formaður bæjarráðs verð-
ur Hjálmar Hallgrímsson fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins. Fannar Jónas-
son bæjarstjóri Grindavíkur verður
endurráðinn. Málefnasamningur
meirihlutans verður birtur að lokn-
um fyrsta bæjarstjórnarfundi nýrr-
ar bæjarstjórnar þriðjudaginn 7.
júní. Áfram verður lögð áhersla á
góða samvinnu fulltrúa í bæjarstjórn
og að vel sé haldið um upplýsinga-
gjöf þeirra mála sem koma til um-
fjöllunar og afgreiðslu, að því er seg-
ir í tilkynningu.
Nýr meiri-
hluti í
Grindavík
Fannar
Jónasson
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Ekki mun þurfa að loka Dyngjunni
áfangaheimili vegna slæmrar fjár-
hagsstöðu um næstu mánaðamót líkt
og útlit var fyrir. Heimilið tók til
starfa árið 1988 og hefur starfað óslit-
ið síðan. Dyngjan er eina áfangaheim-
ilið á landinu sem er einungis ætlað
konum en þar mega börn kvennanna
einnig dvelja.
Dyngjan fékk upphaflega ekki vel-
ferðarstyrk frá félags- og vinnu-
markaðsmálaráðuneytinu, en for-
svarsmenn áfangaheimilisins fund-
uðu í kjölfarið bæði með Guðmundi
Inga Guðbrandssyni ráðherra og vel-
ferðarsviði Reykjavíkurborgar.
„Það var hætta á því að við þyrftum
að loka vegna fjárhagsörðugleika.
Síðan þá erum við búin að funda bæði
með velferðarsviði Reykjavíkurborg-
ar og Guðmundi Inga félags- og
vinnumarkaðsráðherra. Eftir um-
hugsunarfrest ákvað hann að veita
okkur styrk til að þurfa ekki að loka,
sem eru frábærar fréttir,“ segir Anna
Margrét Kornelíusdóttir, stjórnarfor-
maður Dyngjunnar, í samtali við
Morgunblaðið.
„Fundurinn með velferðarsviði
Reykjavíkurborgar var sömuleiðis
mjög góður. Við ræddum þar hug-
myndir bæði um að endurskipuleggja
reksturinn aðeins, og að auka sam-
starfið á milli okkar og borgarinnar í
tengslum við nýtt áfangaheimili sem á
að opna í sumar,“ segir Anna Mar-
grét, en til stendur að opna nýtt
áfangaheimili á vegum borgarinnar til
viðbótar Dyngjunni á næstu mánuð-
um.
Nýtt úrræði verði framhald
Anna Margrét segir að eftir við-
ræður borgarinnar og Dyngjunnar sé
áætlað að nýja áfangaheimilið verði
hugsað sem næsta stopp í kjölfar
Dyngjunnar. Konum sem ljúki dvöl á
Dyngjunni gefist þannig kostur á að
útskrifast í nýju úrræði borgarinnar,
sem samanstendur af 30 til 40 fer-
metra stúdíóíbúðum þar sem mæður
geta dvalið með börn sín. Nú tekur við
frekara samtal hlutaðeigandi aðila til
að skýra forsendur samstarfs betur.
„Við áttum rosa gott samtal og ég
held að þetta endi á að vera lán í óláni
og að við getum nýtt tækifærið til að
einfalda reksturinn og nútímavæða
hann svolítið. Þannig að við munum
ekki loka um mánaðamótin og höfum
tilkynnt skjólstæðingum okkar það.
Þetta er gríðarlegur léttir – þetta hef-
ur verið tími mikillar óvissu fyrir okk-
ur og sérstaklega skjólstæðingana
okkar á Dyngjunni,“ segir Anna Mar-
grét og bætir við að þær séu mjög
ánægðar og finni fyrir miklum velvilja
alls staðar í þjóðfélaginu. „Þetta hús á
sér greinilega stóran stað í hjarta
mjög margra og okkur þykir rosalega
vænt um að finna fyrir þessum stuðn-
ingi.“
Samtalið gott stökkbretti
Um framtíð Dyngjunnar segir
Anna Margrét: „Með því að styrkja
tengslin við borgina og vera með
sterkari markmiðasetningu fyrir kon-
urnar sem koma inn – ef við skipu-
leggjum úrræðið á aðeins betri hátt
held ég að það megi bæði nýta fjár-
muni betur og styrkja konurnar sem
koma á Dyngjuna.“
Hún bætir við að þetta verði gott
stökkbretti fyrir heimilið og áminning
um að svona geti komið upp á og við
getum lært af þessu. „Ég held að það
séu allir bjartsýnir og tilbúnir að
leysa vandann og við munum núna
starfa með Reykjavíkurborg og öllum
sem koma að Dyngjunni í að gera bet-
ur.“
Hún segir Dyngjuna mikilvæga
samfélaginu öllu, sem sýni sig ekki
síst í þeim stuðningi sem heimilið hef-
ur fengið að undanförnu. „Rekstur
Dyngjunnar skiptir máli. Alls hafa
tæplega tvö þúsund konur dvalið þar í
gegnum tíðina; sumar í nokkrar vik-
ur, aðrar í 2-3 ár. Hver og ein kona
snertir líf margra í kringum sig, mun
fleiri en flestir gera sér grein fyrir.
Starf Dyngjunnar hefur þegar haft
mikil samfélagsleg áhrif til góðs og
það er ekki síst bakhjörlum, ráðgjöf-
um og þeim sem styrkt hafa starfið í
gegnum tíðina með ýmsum hætti að
þakka.“
Rekstri Dyngjunnar bjargað
- Áfangaheimilið Dyngjan mun halda rekstri áfram - Lokun um mánaðamót var yfirvofandi
- Fyrirkomulag rekstrarins verður rætt í samtali við borgina og styrkur fékkst frá félagsmálaráðuneyti
Morgunblaðið/Úr safni
Áfangaheimilið Dyngjan er það eina sem eingöngu er ætlað konum.
Nú er sauðburði víðast nær lokið og bara ein-
hverjar uppbeiður eftir. Á Aðalbóli í Hrafnkels-
dal hefur Bryndís Hólm verið að aðstoða við
sauðburð, en hún greip gullvagninn á laugar-
daginn og gaf nýfæddu lömbunum far. Ærin elti
samviskusamlega alla leið í fjárhúsið.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Lömbin fá far í
gullvagninum
Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt
fram þingsályktunartillögu þess efn-
is að félags- og vinnumarkaðs-
ráðherra verði falið að framkvæma
úttekt á tækifærum í fjarvinnu og
fjarvinnustefnu fyrir íslenskan
vinnumarkað. Tillagan var lögð fram
í síðasta mánuði.
Í tillögunni er lagt til að ráðherra
láti vinna tillögur með það að mark-
miði að auka möguleika á fjarvinnu
þar sem henni verður komið við og
áhugi er fyrir hendi. Úttektinni verði
lokið fyrir árslok 2022 og aðgerðir
kynntar af ráðherra fyrir Alþingi á
vorþingi.
Fram kemur í greinargerð með
tillögu Viðreisnar að fjarvinna geti
haft jákvæð áhrif á jafnvægi milli
vinnu og einkalífs og sé til þess fallin
að auka tækifæri fólks sem búsett er
á landsbyggðinni. Þá geti fjarvinnu-
stefna leitt til sveigjanlegra vinnu-
umhverfis, haft góð áhrif á sam-
göngur og umferðarþunga og um
leið stutt við markmið stjórnvalda á
sviði umhverfis- og loftslagsmála.
Mikil tækifæri felist í fjarvinnu-
stefnu fyrir landsbyggðina, en aukin
áhersla á fjarvinnu og störf án stað-
setningar geti leitt til þess að hægt
sé að stunda vinnu óháð búsetu.
Markmið tillögunnar er að ráð-
herra geri úttekt á þeim kostum og
tækifærum sem felast í fjarvinnu og
markvissri fjarvinnustefnu, að tekn-
ar verði saman upplýsingar um þá
reynslu sem varð til í heimsfaraldri
kórónuveirunnar þegar margir unnu
heiman frá sér og að settar verði
fram tillögur með það að leiðarljósi
að auka hlut fjarvinnu á íslenskum
vinnumarkaði þar sem því verður
komið við.
Vilja úttekt á fjarvinnu
- Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunar-
tillögu um að úttekt verði gerð á möguleikum fjarvinnu
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Viðreisn lagði fram þings-
ályktunartillögu um fjarvinnu.