Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 21
veg vöknuð þegar hún settist á hnakkinn. Hún var á þessum tíma jafnvel enn minni morg- unmanneskja en ég, sem tók við að kenna föstudagsmorgnana næstu sjö ár og þjáðist alltaf jafn mikið á fimmtudagskvöldi yfir ókristilegum fótaferðartíma næsta morgun. Yfir þessu gát- um við Elín hlegið mikið og hláturinn hennar Elínar er lík- lega það sem ég mun sakna mest. Það er enginn í heiminum með jafn smitandi hlátur og hún Elín okkar. Það var dásam- legt að vera í kringum hana, hún var manneskja sem gaf af sér, var opin og hafði áhuga á svo mörgu. Þægileg nærvera og traust vinkona. Það er fátt hægt að segja þegar manneskja er tekin burt allt of snemma. Fréttirnar voru eins og högg í magann og erfitt að ná utan um þær. Mikið óskaplega munum við sakna hennar mikið. Þetta er óréttlátt og óskiljanlegt og hugur minn er hjá fjölskyldunni hennar. Börnunum tveimur sem hún var svo stolt af og Óla sem hún talaði svo vel um og var svo glöð að hafa hitt. Þeirra er missirinn mestur og stærstur og ég sendi þeim innilegar sam- úðarkveðjur. Vala Mörk. Það var okkur bekkjarsystk- inunum í útskriftarárgangi 1992 úr Íþróttakennaraskóla Íslands mikil harmafregn að frétta af andláti elsku Ellu okkar. Við minnumst hennar með hlýhug og söknuði. Árið 1990 hófum við nám við Íþróttakennaraskólann á Laug- arvatni. Íþróttakrakkar sem komu saman alls staðar að af landinu, hress hópur með mikla hreyfiþörf. Að vera í námi á Laugarvatni krafðist þess að við værum saman á heimavist í tvö frábær ár. Við vörðum því öllum sólarhringnum saman og úr varð þéttur og traustur hóp- ur og hlý vinátta. Það er því missir fyrir okkar góða hóp að missa elsku Ellu. Ella var sérlega brosmild og glaðleg stelpa með yndislegan hlátur og dúnmjúka „innirödd“. Í kringum hana var ávallt mikið líf. Samskipti við Ellu voru inni- leg, kærleiksrík og tilgerðar- laus. Ella hafði margt fram að færa og var djúpgreind með mikla samkennd. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur öll í ár- ganginum, hjálpleg, hlý og hvetjandi. Ella var mikil fimleikadís og naut sín í þeirri grein og það var eftirsótt að fá Ellu sem dansfélaga í danstímum hjá Mínervu heitinni. Að lenda á móti Ellu var ávísun á góða ein- kunn í dansi. Hún var góður dansleiðtogi. Í dansinum „steppin’ out“ þurftum við í dansprófi að dansa án tónlistar í átta takta og hitta svo einmitt á réttan takt þegar lagið byrj- aði aftur og þar var Ella heldur betur með taktinn og hreyfing- arnar á hreinu. Við árgangurinn höfum ávallt haldið hópinn og reynt að hitt- ast öll saman reglulega. Við eigum margar góðar minningar bekkurinn; ferðirnar á Gjána á Selfossi, ferðir í gufubaðið á Laugarvatni, skíðaferðin til Austurríkis, 20 ára afmælið þar sem dansinn dunaði fram á nótt með tilheyrandi ormum og handstöðum og margt fleira skemmtilegt. Stutt er síðan við fórum öll saman í helgarferð til Sigrúnar á Snæfellsnesið og þar var heldur betur hlegið, sungið, dansað og trallað. Ella var með bestu „útiröddina“ af hópnum og glaðværð hennar og galsi naut sín vel á landsbyggð- inni. Í júní eigum við bekkurinn 30 ára útskriftarafmæli og er- um því búin að festa okkur helgi saman á Laugarvatni til að fagna. Ella hafði boðað komu sína og var virk í umræðu um dagskrá á síðunni okkar á Fa- cebook en hún verður ekki þar og það er óendanlega sorglegt að hugsa til þess að hún sé ekki lengur á meðal okkar. Minning um yndislega bekkj- arsystur mun lifa í hjörtum okkar. Heimurinn er klárlega ekki eins frábær án Ellu okkar. Skál fyrir þér elsku besta Ella gella okkar, hvíl í friði. Fjölskyldu Ellu og vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur, sorgin er mik- il og hugurinn er hjá ykkur. Fyrir hönd bekkjarsystkina og vina úr ÍKÍ, útskriftar- árgangs 1992, Guðrún Kaldal. Við vinkonurnar lútum höfði, harmi slegnar og skortir orð. Stórt skarð höggvið í vinkon- uhópinn. Ella hefur kvatt okkur fyrirvaralaust. Ella sem snerti strengi hjá svo mörgum sem hafa fylgt henni gegnum árin. Ella sem æskuvinkona, mennta- skóla-Ella, ÍKÍ-Ella, kennara- Ella, jóga-Ella og síðast en ekki síst Ella sem vinur og móðir. Ella elskaði börnin sín meira en allt og voru þau stolt hennar og yndi. Missir þeirra er mikill og söknuðurinn sár. Þrautseiga Ella okkar sem upplifði erfiða tíma en reis alltaf upp aftur með styrk sinn að vopni. And- lega Ella sem sótti innri frið í hugleiðslu og núvitund. Hljóða Ella sem sagði okkur ekki hvernig komið var í hennar al- varlegu veikindum og við viss- um ekki fyrr en það var orðið of seint. Við vinkonurnar kynntumst Ellu á menntaskólaárunum og höfum fylgst að síðan. Ákveðið var að stofna saumó og köll- uðum við okkur Lellurnar. Við brölluðum ýmislegt saman og við eigum dýrmætar minningar um Ellu okkar sem gefa okkur mikið og streyma í hugann nú á sorgarstund. Leikhúsferðirnar, sumarbústaðaferðirnar og utan- landsferðir. Fyrir utan stund- irnar heima hjá hver annarri í spjalli og notalegri samveru. Ella var stálminnug og mundi marga viðburði gegnum tíðina og nánast alla afmælisdaga. Jafnvel þeirra sem tengdust ekki henni að neinu leyti! Mikill upplýsingabanki fyrir okkur hinar gleymnu og ef eitthvað var rifjað upp þá var Ella með allt á hreinu. Ella hafði gaman af að rifja upp gamlar minningar og minna okkur á gleðilega við- burði eða ferðalög sem farin voru gegnum tíðina. Í dag þökkum fyrir það. Þökkum fyr- ir lífið og að fá að verða sam- ferða Ellu okkar. Þökkum fyrir samverustundirnar og gleðina. Þökkum fyrir ógleymanlega hláturinn hennar sem hreif alla með sér. Þökkum fyrir Ellu okkar með ljósa hárið og bjarta brosið, bleika varalitinn og naglalakkið, í gallajakka. Í dag erum við ekki Lellurnar heldur Ellurnar og höldum minningu hennar á lofti. Með þessum orðum kveðjum við elsku Ellu okkar: Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi V. Skúlason) Megi góður guð styrkja Guð- jón Ara, Evu Björgu, Óla og börn og fjölskyldu Ellu í þess- ari miklu sorg. Anna Karen, Erna, Ingibjörg og Lilja Jóna. Árið var 1976 þegar leiðir fimm lítilla stúlkna lágu saman í L-bekk í Laugarnesskóla. Með þeim hófst falleg og kærleiksrík vinátta sem hefur haldist allar götur síðan. Þetta voru uppá- tækjasamar ungar hnátur sem ætluðu sér að ná heimsyfirráð- um og í þeirra huga voru engar hindranir. Viðstöðulausar dans- og söngæfingar stóðu yfir, því þær hugðust taka Laugardals- höllina á leigu, ekkert minna dugði, fylla hana af fólki og bjóða upp á stórsýningu. Eitt sinn tóku Ella og Villa sig sam- an og komu sér í Stundina okk- ar með söng og dans. Hinum vinkonunum þótti þær helst til góðar með sig, voru ekki sáttar og auðvitað grænar af öfund. Ingibjörg og Bigga æfðu á sama tíma atriði af Mini Pops plötunni með stóra drauma, en vonbrigðin við að sjá Ellu og Villu birtast á skjá allra lands- manna tók þær alveg úr sam- bandi. Þær runnu á rassinn með áformin, enda toppaði fátt Stundina okkar. Þessi vinátta var dásamleg, oft á tíðum flókin og samkeppnin gat verið hörð. Þær voru kryddpíur samtím- ans, að minnsta kosti í þeirra hugum. Fimleikarnir voru stór hluti af æskunni. Þar skaraði íþróttakonan Ella fram úr, en hún átti eftir að fara í Íþrótta- kennaraskólann á Laugarvatni með sinn góða grunn úr fim- leikunum. Á gelgjunni gerðu sumar aðeins meiri uppreisn en aðrar og sóttu unglingastaðinn Matstofuna reglulega. Ella og Birgitta ákváðu að kíkja eitt sinn, en fannst það ekki spenn- andi, stungu af og skelltu sér í hringferð með strætó upp í Breiðholt. Á menntaskólaárun- um fóru við allar hver í sína átt- ina en fljótt var þráðurinn tek- inn upp að nýju. Við „Stússurnar“ höfum verið dug- legar að hittast og höfum þá iðulega tekið af okkur myndir sem eru svo dýrmætar í dag. Við höfum einnig hóað í bekkj- arsystkini okkar úr L-bekknum í hittinga. Þetta eru ræturnar og væntumþykjan eftir því. Það var stór missir að Omma okkar árið 2018 og svo sárt að horfa á eftir elsku Ellu okkar núna, líka í blóma lífsins. Þeirra skörð verða aldrei fyllt. Ella stundaði útivist og var dugleg að rækta sál og líkama. Hún var alltaf skilningsrík, gefandi og hlý, henni var umhugað um fólkið sitt, okkur vinkonurnar og alla aðra í kringum sig. Það var allt- af bjart og jákvætt í nærveru Ellu. Hláturinn, glaðværðin, hrókur fagnaðarins. Sérstak- lega hláturinn, þessi dillandi, smitandi hlátur sem kom öllum í gott skap. Hann hljómar enn svo sterkt innra með okkur og mun gera áfram. Næsta sam- vera var áætluð í júní en örlög- in gripu fram fyrir hendur okk- ar og tóku af okkur öll völd. Við stöndum nú berskjaldaðar frammi fyrir því að næsta sam- verustund okkar vinkvennanna verður sú að kveðja hana Ellu okkar í hinsta sinn. Elsku Ella, takk fyrir allt, við munum sakna þín sárlega en trúum að þú verðir áfram með okkur í anda. Bleiki liturinn þinn mun fylgja hópnum og mun pend- úlinn góði vera við höndina eins og svo oft og tengja þig við okkur. Elsku Óli, Guðjón Ari, Eva Björg og aðrir aðstandendur, við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur á þessum erf- iðu og óraunverulegu tímum. Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur í þessari miklu sorg. Vilborg Ólafs- dóttir, Ingibjörg Reynisdóttir, Birg- itta Guðrún Ás- grímsdóttir, Rósa Margeirsdóttir. Elsku Ella. Það er svo skrítið hvernig líf- ið er. Eina stundina ertu hér og hina næstu ertu farin. Þótt við höfum ekki sést í fjölda ára þá áttirðu sérstakan stað í hjarta mínu. Minningar úr barnæsk- unni um síkátu, glöðu, bros- mildu, skemmtilegu, góðu, um- hyggjusömu, kærleiksríku, duglegu, hvetjandi Ellu. Þú varst mikill sólargeisli og það lýsti svo sannarlega af þér. Þú varst mjög góð barnaskólavin- kona og ég vil þakka þér fyrir þann góða tíma sem við áttum þegar við vorum litlar tátur. Þegar ég heyrði um aðskiln- að þinn frá þessari jörðu var það mjög óvænt, erfitt og í raun áfall. Þú nefnilega birtist mér í draumi nokkrum dögum fyrir andlát þitt, en ég skildi ekki drauminn fyrr en sorgarfrétt- irnar bárust mér. Við vorum saman í herbergi, þú lást í rúmi og ég lá við hlið- ina á þér. Ég var strjúka þér um upphandlegginn og höfuð okkar snertust. Við vorum ein- hvern veginn þarna saman, án þess að tala, en væntumþykjan á milli okkar flæddi. Það var friður og það var ró. Inn í her- bergið kom maður sem var að sækja drykkjarföng. En ég veit ég að þetta var hann Óli þinn. Hann var að sinna öllu fólkinu sem var frammi. Það var svo margt fólk samankomið, elsku Ella, sem hann sinnti af alúð og umhyggjusemi. Þú og ég lágum bara þarna og fylgdumst með úr fjarlægð. Svo birtist annar „maður„ mjög ljós yfirlitum , með stutt ljóst skínandi hár, ljósa húð, í hvítum klæðum með svo falleg blá augu. Allt varð umkringt svo miklum hvítum, ljósum ljóma en svo skyndilega hvarfst þú á braut með honum. Þessi draumur var mér mjög hugleikinn dagana eftir að mig dreymdi hann. Einungis nokkr- um dögum seinna bárust mér þessar erfiðu og þungbæru sorgarfréttir að þú, elsku Ella, hefðir yfirgefið þennan heim. Ég trúi því Ella að ég hafi feng- ið tækifæri í draumnum til að heimsækja þig í sjúkrarúminu og eiga þessa dýrmætu stund saman. Ég trúi því að þarna hafi ég fengið tækifæri til að þakka þér fyrir allt. Umhyggju- semi þína, skilning, hvatningu og kærleikann sem við áttum í barnæskunni og tengdi okkur frá hjarta til hjarta, þrátt fyrir fáar samverustundir á fullorð- insárum þar sem við fórum hvor sína leið eftir barnaskól- ann. Ég veit að ég fékk að sjá hvernig Óli þinn hugsaði um þig og aðra með miklum kær- leika og umhyggjusemi. Allt fólkið sem var frammi í draumnum, er til staðar fyrir börnin þín og stjúpbörnin, þótt enginn geti fetað í fótspor þín, elsku Ella. Ég trúi því elsku Ella að þú hafir farið með friði inn í ljósið sem þú trúðir á. Og ég kveð þig elsku barnaskólaæskuvinkona mín, með miklum trega, en þakklæti fyrir það sem þú gafst mér inn í líf mitt. Þangað til við hittumst á ný. Ég sendi mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til barnanna þinna, Guðjóns Ara og Evu Bjargar, einnig stjúpbarnanna þinna Báru Bjargar og Ragnars, ásamt Óla sambýlismanni þín- um og öðrum ættingjum og vin- um. Ég kveð þig elsku Ella með þínum eigin orðum. Láttu hjartað ráða för og hugann ekki trufla þig. Með kærleikskveðjum Signý Gyða Pét- ursdóttir. Hún Elín hans Óla okkar er farin. Við kynntumst henni í gegnum útivist og sameiginleg verkefni sem engir skilja al- mennilega nema við. Elín var alltaf brosandi og hún var alltaf gefandi og með henni kom hlýja, hvert sem við fórum. Síðast þegar við komum saman sem hópur var sungið og trallað og þar var gleðin við völd. Þá var framtíð björt. Svo bregður skýi fyrir sól og skyndilega þarf að takast á við alveg óhugsandi hluti. Fyrir hönd okkar sem köll- um okkur víkingamótafjöl- skylduna þökkum við hlý kynni og biðjum guð að ganga með og gæta Óla, krakkanna og ykkar allra sem syrgið svo sárt núna. Einar Bárðarson. Hún Elín Björg var alveg einstök kona og einstakur kennari. Við í Fossvogsskóla vorum svo ljónheppin að fá að kynnast henni og starfa með henni. Ómetanlegar eru þær stundir þegar við hlógum og sprelluðum saman. Hún gerði alla daga betri með hlýrri nær- veru sinni, mannelsku, góðum húmor, dillandi hlátri og ljóm- andi björtu brosi. Hún sinnti starfi sínu og nemendum af stakri nærgætni og fagmennsku sem var henni svo eðlislæg. Hún var óspör á hrós og hlýju, sem kom sér oft vel fyrir samstarfsmenn hennar en ekki hvað síst nemendur og var skýr sönnun þess hverja konu hún hafði að geyma. Hún sinnti kennarastarfinu af stakri alúð, alltaf boðin og búin að að- stoða nemendur og okkur hin, hvenær sem var. Hún bauð t.d. bæði nemendum og starfsfólki upp á jóganámskeið þegar var farið að bera á álagi hjá báðum hópum. Elín Björg stóð líka vaktina sem trúnaðarmaður kennara með stakri prýði. Elín Björg var litrík mann- eskja og glæddi skólann lífi og kæti. Öllum þótti vænt um hana og því er missir okkar gríð- arlega mikill. Á hverjum degi hugsum við til Elínar og sökn- um hennar. Það hefur ekki liðið sá dagur frá andláti hennar þar sem nafn hennar og mannkostir hafa ekki borið á góma, bæði hjá starfsfólki og nemendum hennar. Harmur allra sem þekktu El- ínu Björgu er mikill og ótíma- bært andlát hennar er gríðar- legt reiðarslag fyrir okkur í Fossvogsskóla. Við getum því varla ímyndað okkur sorgina og sársaukann sem börn hennar, Óli og fósturdætur hennar hafa þurft að upplifa. Við sendum okkar hlýjustu samúðarkveðjur til þeirra og allra annarra að- standanda. Fyrir hönd starfsfólks Foss- vogsskóla, Lára Jónsdóttir. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 ✝ Björn Björns- son fæddist í Brimnesi á Hofsósi 4. desember 1933. Hann lést á Hrafn- istu Nesvöllum 1. maí 2022. Foreldrar hans voru hjónin Björn Björnsson, f. 17. janúar 1906, d. 1998, og Steinunn Ágústsdóttir, f. 1. september 1909, d. 2001. Systkini Björns voru: Alfreð, látinn; Valdimar; Sólberg, lát- inn; Guðbjörg Ágústa; Sigurður; Fanney Björk; Kristín, látin. Björn giftist Margréti Guð- nýju Magnúsdóttur frá Ólafs- firði 1. september 1959. Börn þeirra eru: 1) Steinunn Ása, f. 1953, maki hennar er Gunnar Magnússon, börn þeirra eru a) Kristján, sambýliskona hans er Sólbjörg Hlöðversdóttir, synir þeirra eru Bjartur og Ari Kaprasíus, b) Ingunn, sambýlis- maður hennar er Erling Jóhann Brynjólfsson, sonur þeirra er Kári Björn, dætur hans eru Brynhildur Inga og Hólmfríður Lára, c) Margrét, börn hennar eru Íris Dögg, Gunnar Steinn og Alexandra Von. 2) Björn, f. 1957, maki hans er Þórdís Krist- þeirra Maja Björt og Mía, c) Snjólaug Ösp, unnusti hennar Einar Sveinn Einarsson. 6) Stef- anía Helga, f. 1968, maki hennar er Arnbjörn Arnbjörnsson, synir þeirra eru a) Adam Ingi, b) Fannar Ingi, unnusta hans er Alma Rún Jensdóttir. Björn ólst upp í foreldra- húsum á Hofsósi fram á ung- lingsár. Hann kynntist Margréti árið 1952. Þau hjónin fluttu til Keflavíkur árið 1957. Þau bjuggu á Faxabraut til 1968 en þá fluttu þau á Þverholt og bjuggu þar til 2004 en þá fluttu þau á Lágseylu í Njarðvík. Hann lauk námi í húsasmíði frá Iðnskólanum á Sauðárkróki árið 1957, lauk námi sínu hjá Sameinuðum verktökum á Keflavíkurflugvelli og starfaði sem húsasmíðameistari allan sinn starfsaldur, lengst af hjá Dverghömrum og Íslenskum að- alverktökum. Hann var mikill áhugamaður um stangveiði og stundaði það sport alla tíð. Hann var mikill listamaður, bæði mál- aði, teiknaði og skar út í tré af mikilli snilld. Hann spilaði á harmóniku, píanó og gítar og hafði mikið dálæti á söng. Hann var mikill áhugamaður um ætt- fræði og allt sem sneri að þeim efnum. Útför Björns fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 30. maí 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. insdóttir, börn þeirra eru a) Krist- ín Elfa, sambýlis- maður hennar er Oddur Helgi Björnsson, dóttir þeirra er Una Dís, b) Björn. 3) Sigríð- ur, f. 1958, sam- býlismaður hennar er Þorsteinn Valur Baldvinsson, dætur þeirra eru a) Sædís Mjöll, b) Val- dís Jóna, látin, Snædís Bára, sambýlismaður hennar er Sig- urður Páll Ásgeirsson, dóttir þeirra er Matthildur Embla. 4) Magnús Sigurður, f. 1960, maki hans er Bryndís Skúladóttir, dætur þeirra eru a) Margrét Ósk, barnsfaðir hennar er Chri- stopher Blake, synir þeirra eru Alexander Magnús og Aron Samúel, b) Lilja Guðný, sam- býlismaður hennar er Pétur Hrafn Jónasson, börn þeirra Stella, Nína og Jónas. c) Ásdís Birta. 5) Salbjörg, f. 1961, maki hennar er Jón Snævar Jónsson, dætur þeirra eru a) Vilborg, maki hennar er Brynjar Freyr Jónasson, dóttir þeirra er Jóna Kristín, dóttir Vilborgar er Sal- björg Tinna Halldórsdóttir, b) Linda Björg, maki hennar er Henrik Bjerring Öre, dætur Kveðjustund Nú komið er að kveðjustund Kæri pabbi hrygg er lund En minningin er mild Því allt sem áttum við Nú arfleiðir þú mig Sú ljúf er minning mín Það allt sem gafst þú mér Ég ætíð geymi hér í hjarta mínu hlýtt Þú alltaf kenndir mér Að innst í hjarta mér Ég hamingjuna finn Þó söknuður sé sár Þá sefar öll mín tár Minning mín um þig Það góða er gafstu mér Nú get ég einkað mér Með virðingu til þín Kæri pabbi megi guð þig geyma og varðveita. Þinn sonur, Björn. Björn Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.