Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.05.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is 30. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.61 Sterlingspund 162.47 Kanadadalur 100.94 Dönsk króna 18.537 Norsk króna 13.547 Sænsk króna 13.097 Svissn. franki 134.43 Japanskt jen 1.0136 SDR 173.81 Evra 137.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.1111 VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það vakti athygli á dögunum þegar stjórnendur Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar tilkynntu að samhliða skráningu fyrirtækisins á markað myndu allir fastráðnir starfsmenn fá hlutabréf í félaginu að gjöf. Tekur upphæð gjafarinnar mið af starfsaldri og geta þeir sem hafa unnið hjá Ölgerðinni í fimm ár eða lengur vænst þess að fá hluta- bréf að andvirði 500.000 kr. Þá ákváðu stjórnendur Brims fyrr á þessu ári að gefa starfs- mönnum öllum hluti í félaginu og áætlað að verðmæti gjaf- arinnar hafi numið um 580.000 kr. að meðaltali handa hverjum starfs- manni. Víða erlendis er ekki óalgengt að starfsmenn fyrirtækja geti áunnið sér eignar- hlut í vinnustaðnum og fyrirkomu- lagið oft þannig að hlutabréf eru gefin í skiptum fyrir að halda tryggð við vinnustaðinn. Þeir sem eru hlynntir fyrirkomulaginu hafa bent á að með áunnum réttindum megi m.a. draga úr starfsmanna- veltu og gera hinn almenna starfs- mann áhugasamari um velgengni félagsins. Þá kann í sumum lönd- um að vera rekstrarlega og skatta- lega hagkvæmt fyrir bæði vinnu- stað og launþega að gefa starfsmönnum hlutabréf í stað hærri launa. Eins og viðbót við laun Sturla Jónsson endurskoðandi hjá Grant Thornton segir íslenskar skattareglur líta á hlutabréfagjöf til starfsmanna sem skattskyld fríð- indi og mega starfsmenn Ölgerðar- innar því vænta þess að hlutabréfa- gjöfin verði skattlögð eins og ef um væri að ræða viðbót við laun þeirra. „Meta þarf verðmæti gjafarinnar ef verðbréfin eru gefin áður en félagið er skráð á virkum markaði og má þar hafa til hliðsjónar leiðbeiningar um kaupréttarsamninga í tekju- skattslögum. Starfsmaðurinn sem þiggur gjöfina þarf að greiða allt að 46,25% tekjuskatt og vinnuveitand- inn þarf að greiða tryggingagjald af upphæðinni en hins vegar eru hlunnindi af þessu tagi undanþegin greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóð,“ út- skýrir Sturla. Þegar starfsmaður síðan selur bréfin þarf hann að greiða 22% fjár- magnstekjuskatt ef þau hafa hækk- að í verði en ekki er hægt að fá tekjuskattinn eða tryggingagjaldið endurgreitt ef verð hlutabréfanna lækkar. Þegar Brim gaf sínum starfs- mönnum hlutabréf fór félagið þá leið að veita þeim jafnframt kaup- auka til að mæta tekjuskattsskuld- inni vegna gjafarinnar. Hjá Ölgerð- inni fengust þær upplýsingar að starfsmönnum hafi verið veittir þrír kostir: að borga tekjuskattinn í einu lagi; selja hluta af bréfunum til að fjármagna skattgreiðsluna; eða dreifa skattgreiðslunni á tólf mán- uði og völdu flestir síðasta kostinn. Aðrar reglur gilda um nýtingu kaupréttar Lögin veita meiri sveigjanleika þegar starfsmaður nýtir kauprétt í félagi. Eru nokkur ár síðan lögun- um var breytt í þá veru að fresta má greiðslu tekjuskattsins þangað til hlutabréfin eru seld. „Er það mun rökréttara enda voru eldri ákvæði laganna þannig að fólk sem nýtti kaupréttarsamninga neyddist til að taka lán eða ganga á eigin laun til að eiga fyrir skattgreiðslunni. Er eðlilegt að geta frestað tekjuskatt- inum, hvað þá þegar haft er í huga að oft fylgir kaupréttarsamningum sú kvöð að mega ekki selja hluta- bréfin í eitt eða tvö ár.“ Ef hlutabréfin hækka í verði frá því að starfsmaðurinn nýtir réttinn og þangað til bréfin eru að endingu seld þá er skattgreiðslan tvískipt þegar kemur að sölu: Ef kaupréttur hljóðar t.d. á um að mega kaupa hlut á 100 kr. þegar markaðsvirðið er 120 kr. þá reiknast tekjuskattur af mismuninum. Ef bréfið er síðan selt á 150 kr. er markaðsvirðið á kaupdag, 120 kr., dregið frá og fjár- magnstekjuskattur lagður á eftir- stöðvarnar. Við sölu yrði því að greiða tekjuskatt af 20 kr. annars vegar og fjármagnstekjuskatt af 30 kr. hins vegar. Sturla bendir á að þessu til við- bótar heimili lög um tekjuskatt, að vissum skilyrðum uppfylltum, að greiða einvörðungu fjármagns- tekjuskatt af ábata vegna kaup- réttarsamninga. „Skilyrðin eru m.a. þau að kaupréttur að hluta- bréfum í viðkomandi félagi þarf að ná til allra starfsmanna, gera þarf kaupréttarsamning og láta a.m.k. 12 mánuði líða áður en hann er nýttur, ekki má selja hlutabréfin í tvö ár eftir að kaupréttur er nýtur, og má kaupverðið að hámarki nema 1,5 milljónum króna á ári.“ Samspil hvata og áhættu Ekki er úr vegi að bera saman reglurnar sem gilda á Íslandi og í útlöndum um skattlagningu hluta- bréfagjafa og kaupréttarsamn- inga, og reyna að meta hvort breytinga sé þörf. Bendir Sturla á að í Bandaríkjunum, og þá sérstak- lega hjá sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum, sé algengt að stór hluti launa fólks sé í formi hluta- bréfa og hefur það fyrirkomulag m.a. í för með sér að hagsmunir fjárfesta og stofnendahópsins haldast betur í hendur. Má finna mörg dæmi um að þeir sem gengu t.d. snemma til liðs við Microsoft, Google eða Facebook og fengu greitt í hlutabréfum urðu að millj- óna- og milljarðamæringum þegar félögin voru síðar skráð á markað. Segir Sturla jafnframt að það sé ekki óalgengt hjá bandarískum fyrirtækjum að almennt starfsfólk fái greidd laun og að auki n.k. bón- us í formi hlutabréfa, og eigi þann- ig hlutdeild í velgengni vinnustað- arins. En Sturla minnir á að því geti fylgt ýmsar hættur að gera starfs- fólk fyrirtækja að hluthöfum og var t.d. lögum á Íslandi breytt eftir bankahrunið til að koma í veg fyrir að einstakir starfsmenn fjármála- fyrirtækja gætu átt mjög mikið undir því að hlutabréfaverð þeirra hækkaði sem mest og hraðast í verði. Er það pólitísk spurning hvort og þá hvaða hvata ætti að skapa fyrir launþega til að eignast hlut í vinnustöðum sínum en dæmin að utan virðast benda til að þeim fé- lögum reiði vel af sem greiða leið- ina fyrir starfsfólk að gerast hlut- hafar. „Verður að muna að ef kaupréttir eða hlutabréfagjöf eru hluti af launakjörum fólks þá felur það í sér að fólk er að taka ákveðna áhættu með laun sín og ef til vill eðlilegt að veita einhverja skattaí- vilnun af þeim sökum.“ Greiða skatt af gefins bréfum Fríðindi Við gosfæribandið. Allir fastráðnir starfsmenn Ölgerðarinnar fá hlutabréf að gjöf í tilefni af skráningu fé- lagsins á hlutabréfamarkað. Ólíkt nýtingu kaupréttar er ekki hægt að fresta greiðslu skatta þar til bréfin eru seld. Enginn afsláttur » Greiða þarf um helming af virði hlutabréfanna í skatt og ekki hægt að fresta greiðsl- unni. » Aðrar reglur gilda um nýt- ingu kaupréttar og má þá fresta greiðslu skatta. » Sérstök undanþága leyfir að greiða aðeins fjármagnstekju- skatt af ábata vegna kauprétt- arsamninga, háð ákveðnum skilyrðum. » Í Bandaríkjunum gefa mörg fyrirtæki starsfólki hlutabréf sem bónus eða sem umbun fyrir að halda tryggð við vinnu- staðinn. - Hið opinbera tekur til sín stóran skerf ef fyrirtæki gefur starfsfólki hlutabréf - Aðrar reglur gilda um nýtingu kaupréttar og sérstök skattaívilnun veitt ef kaupverðið er undir einni og hálfri milljón króna Sturla Jónsson Milljarðamæringurinn og raðfrum- kvöðullinn Elon Musk vakti athygli í síðustu viku þegar hann sagði að efnahagskreppa gæti í reynd styrkt hagkerfið. Átti Musk í samtali við fylgjendur sína á Twitter og var m.a. spurður hvort honum þætti líklegt að efnahagskreppa væri handan við hornið. Svaraði Musk að hann teldi kreppu í vændum. „En það væri af hinu góða [því] peningum hefur rignt yfir vitleysinga í of langan tíma. Sum gjaldþrot þurfa að eiga sér stað,“ rit- aði hann. „Sama gildir um viðbrögð- in við kórónuveirufaraldrinum þar sem fólk fór ekki út úr húsi og byrj- aði að halda að það væri algjör óþarfi að leggja hart að sér. Þetta fólk á erfiða lexíu í vændum.“ Bætti Musk við að byggt á reynsl- unni mætti búast við að kreppu- ástand gæti varað í um það bil 12 til 18 mánuði, og mátti skilja á ummæl- um hans að hagkerfið yrði sterkara að kreppunni lokinni enda búið að grisja í burtu óarðbær fyrirtæki. „Fyrirtæki sem eru rekin með við- varandi neikvæðu sjóðstreymi (og eru þar með að eyða verðmætum frekar en að skapa þau) þurfa að deyja drottni sínum, svo þau hætti að draga til sín auðlindir.“ Ummælin hafa vakið misjöfn við- brögð og þannig bendir blaðamaður Guardian á að rafbílaframleiðandinn Tesla, sem Musk stofnaði, hafi lengi átt erfitt uppdráttar og ekki ósenni- legt að fyrirtækið – sem í dag er verðmætasti bílaframleiðandi heims – hefði ekki lifað af ef ekki hefði verið fyrir lán sem bandarísk stjórnvöld veittu félaginu á sínum tíma og rausnarlegar ívilnanir stjórnvalda víða um heim sem liðkuðu fyrir sölu rafbíla og sölu koltvísýringslosunar- kvóta til annarra bílaframleiðenda. Bætir Guardian við að frá 2010 til 2018 hafi fjárfestar lagt um 20 millj- arða dala í Tesla og félagið verið rek- ið með margra milljarða dala tapi all- an þann tíma. Var 2021 fyrsta árið sem Tesla skilaði hagnaði. ai@mbl.is AFP Tiltekt Að mati Musks væri stutt kreppa ekki alslæm. Niðursveifla væri æskileg - Musk segir gott að hreinsa í burtu félög sem rekin eru með tapi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.