Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 13

Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 ÞÚ FÆRÐ BOSCH BÍLAVARAHLUTI HJÁ KEMI Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun rannsaka viðbrögð lögregl- unnar í tengslum við skotárásina sem átti sér stað í Robb-grunnskól- anum í Uvalde í Texas þar sem 21 var myrtur, þar af 19 börn. Reiði almennings í Bandaríkj- unum fer vaxandi eftir að í ljós kom að lögreglumenn biðu á göngum skólans meðan börnin voru lokuð inni í skólastofu með árásarmann- inum, samkvæmt BBC. Joe Biden forseti Bandaríkjanna og eiginkona hans Jill Biden lögðu blómvönd að minningarvarða fyrir utan skólann þegar þau heimsóttu hann í dag en mina en tvær vikur eru síðan Biden heimsótti Buffalo í New York, þar sem önnur fjölda- skotárás átti sér stað. Biden var einnig viðstaddur kaþ- ólska messu í Uvalde í dag, auk þess sem hann hitti fyrstu viðbragðsaðila og syrgjandi ættingja hinna látnu í einrúmi. Baulað var á Greg Abbott, ríkis- stjóra í Texas, þegar hann kom fram. „Við þurfum breytingar,“ hrópaði maður nokkur. Fagnaðar- læti brutust þó út þegar bílar Bandaríkjaforseta keyrðu fram hjá en hann hefur talað fyrir breyt- ingum. Í gær endurtók hann kröfu sína um að þingið myndi herða reglur um skotvopn. „Við getum ekki bannað harm- leiki, ég veit, en við getum gert Bandaríkin öruggari. Við getum loksins gert það sem við þurfum að gera til að vernda líf fólksins og barnanna okkar,“ sagði Biden í ræðu við háskólann í Delaware. AFP Syrgt Joe og Jill Biden lögðu blóm- vönd að minnisvarða við skólann. Rannsaka við- brögð lögreglu - Biden minntist fórnarlambanna Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sendiherrar Evrópusambandsríkj- anna reyndu í gær að komast að málamiðlun sem myndi gera sam- bandinu kleift að setja innflutnings- bann á olíu frá Rússlandi, en án árangurs. Leiðtogaráð sambandsins mun funda í Brussel í dag til að ræða frekari refsiaðgerðir á hendur Rússum, en tilraunir framkvæmda- stjórnar sambandsins til þess að setja á olíubann stranda nú á Ung- verjum. Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverja, hefur sagt að þær mála- miðlanir sem nefndar hafi verið til þessa gangi ekki upp, þar sem Ung- verjar kaupi um 65% af olíu sinni frá Rússum, en meðal þess sem nefnt hefur verið er að Ungverjar fái tveggja ára umþóttunartíma til við- bótar við það sem önnur ríki sam- bandsins fá til að „venja sig af“ þörf- inni á olíu frá Rússum. Hafa ungversk stjórnvöld krafist fjögurra ára umþóttunartíma, auk styrks upp á um 800 milljónir evra, eða sem nemur rúmum 110 millj- örðum íslenskra króna í styrki til að Ungverjar geti fengið olíu annars staðar frá. Á meðal þess sem rætt var í gær var að Drúsjba-olíuleiðslan, sem flytur um þriðjung af þeirri olíu sem Rússar selja til aðildarríkja ESB, yrði alfarið undanþegin olíubanninu og að refsiaðgerðir sambandsins næðu eingöngu til þeirrar olíu sem flutt er til Evrópu með olíuflutn- ingaskipum. Tillagan náði hins vegar ekki fram að ganga, og sögðu heimildarmenn AFP-fréttastofunnar, að málamiðl- unin hefði vakið spurningar um sanngirni þess að önnur aðildarríki sambandsins væru að axla byrðar umfram þau sem fengu undanþágu, en auk Ungverja höfðu Tékkar og Slóvakar fengið undanþágur frá fyrirhuguðum refsiaðgerðum. Einn embættismaður sagði við AFP í skjóli nafnleyndar að enn væri von um að samkomulag næðist fyrir leiðtogafundinn í dag, en hon- um á að ljúka á morgun. „Það gæti gengið upp, það gæti ekki gengið upp, en ég held að sú skylda hvíli á okkur að reyna,“ sagði hann og bætti við að öll aðildarríkin hefðu sýnt vilja til þess að ná samkomulagi um olíubannið. Volodimír Selenskí, forseti Úkra- ínu, mun ávarpa fundinn í dag, en hann hefur hvatt ríki heims síðustu daga til þess að loka á öll viðskipti við Rússland vegna innrásarinnar, en Evrópusambandið eyddi um 80 milljörðum evra í olíu frá Rússlandi á síðasta ári, um fjórum sinnum meira en varið var í kaup á jarðgasi þaðan. Deilt um vopnasendingar Olaf Scholz Þýskalandskanslari ávarpaði í gær friðarsamkomu við Brandenborgarhliðið í Berlín, þar sem hann lýsti yfir einlægum stuðn- ingi sínum og allra Þjóðverja við Úkraínumenn. „Við stöndum við hlið ykkar. Hjarta okkar og hugur er með ykkur,“ sagði Scholz. „Pútín mun ekki sigra.“ Ávarp Scholz kom í kjölfar um- ræðu í Þýskalandi um helgina um efndir á loforðum stjórnvalda þar um vopnasendingar til Úkraínu. Sagðist sunnudagsblað Die Welt hafa gögn undir höndum sem sýndu að Þjóðverjar hefðu hvorki sent nein þungavopn til Úkraínu né léttari vopn svo neinu tæki að nefna í um níu vikur. Kom fram í umfjöllun blaðsins að einungis tvær vopnasendingar hefðu borist frá Þýskalandi til Úkraínu á tímabilinu frá 30. mars til 26. maí, og hefðu báðar einungis haft „smærri vopn“. Fyrri sendingin hefði haft varahluti fyrir vélbyssur og íhluti í sprengjur, en sú seinni jarðsprengjur sem ætlað er að granda skriðdrekum. Úkraínumenn væru hins vegar enn að biðja Þjóðverja um meiri og þyngri vopn, þar á meðal Panzer- faust 3-skriðdrekabana og eldflaug- ar til að granda flugvélum, en ekk- ert hefði bólað á þeim síðan í mars. Olaf Scholz Þýskalandskanslari mátti þola harða gagnrýni í apríl- mánuði, þegar honum var gefið að sök að hafa staðið í veginum fyrir að þýsk þungavopn yrðu send til Úkra- ínu. Féllust Þjóðverjar þá á að senda Gepard-loftvarnardreka til Úkraínu, en fyrstu drekarnir verða ekki teknir í notkun fyrr en í júlí, þar sem sinn tíma tekur að þjálfa úkraínska hermenn í notkun þeirra. Þá hafa einnig komið upp vandamál við að útvega skotfæri fyrir Gepard- drekana. Ekkert samkomulag Á fimmtudaginn sagði Scholz að stefna Þjóðverja væri að senda slík vopn einungis ef önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins gerðu það einnig. Bandalagsríkin hafa hins vegar kosið frekar að senda skrið- dreka af rússneskum uppruna, sem Úkraínumenn nota nú þegar, frekar en skriðdreka sem hannaðir voru á Vesturlöndum. Fyrir helgi spannst því sú um- ræða í þýskum fjölmiðlum að Þjóð- verjar væru einungis að fylgja „óformlegu samkomulagi“, sem gert hefði verið milli ríkja Atlantshafs- bandalagsins um að senda ekki há- tæknileg þungavopn, sem verra væri að féllu Rússum í skaut á víg- vellinum. Liz Truss, utanríkisráðherra Bretlands, sagði hins vegar á föstu- daginn á blaðamannafundi í Tékk- landi, þar sem hún var í heimsókn, að það væri af og frá að nokkurt slíkt samkomulag hefði verið gert. „Ég vil vera algjörlega skýr. Þessi orðrómur er algjörlega ósannur. Við höfum gert það skýrt að það er al- gjörlega lögmætt að styðja Úkraínu með skriðdrekum og flugvélum og við styðjum mjög það sem Tékkland hefur gert með sendingum á skrið- drekum til Úkraínu,“ sagði Truss. Ræddu við Pútín Scholz og Emmanuel Macron Frakklandsforseti ræddu í 80 mín- útur við Vladimír Pútín Rússlands- forseta á laugardaginn. Þar sagði Pútín meðal annars, samkvæmt fréttatilkynningu Rússa, að frekari vopnasendingar vesturveldanna til Úkraínu byðu hættunni heim og gætu aukið á „óstöðugleika“. Pútín endurtók einnig fyrra boð sitt um að leyfa sendingar á korni og áburði frá Rússlandi og Úkraínu, ef refsiaðgerðir vesturveldanna á hendur Rússlandi yrðu látnar falla niður, en Pútín reyndi á föstudaginn að skella skuldinni á yfirvofandi hungursneyð á refsiaðgerðirnar. Í fréttatilkynningum Frakka og Þjóðverja af símtalinu var ekki minnst á vopnasendingar eða afnám viðskiptaþvingana. Þar sagði hins vegar að Scholz og Macron hefðu lagt að Pútín að draga herlið sitt til baka til Rússlands. Þá skoruðu þeir á hann að efna til „beinna og alvöru viðræðna“ við Selenskí til að leysa deilur ríkjanna. Náðu ekki saman um olíubann - Leiðtogaráð ESB ræðir hertar refsiaðgerðir gegn Rússum - Scholz segir að Pútín muni ekki vinna - Dráttur sagður hafa orðið á vopnasendingum til Úkraínu - Scholz og Macron ræddu við Pútín AFP/Stringer Rústir Drengur leikur sér á róluvelli fyrir aftan eyðilagðan bíl í Maríupol, sem nú er á valdi Rússa, um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.