Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 19
hjóli hans, fékk að blása í trompet,
var reiddur á mótorhjóli og fékk
snemma að skjóta í mark. Þá er
eftirminnileg ferð, þegar við fór-
um ríðandi austur í Haukadal í
Biskupstungum, ásamt föður
hans og bróður, og sváfum undir
berum himni. Halldór var sann-
kallaður „dellukarl“, með áhuga á
mörgum málum. Hann glamraði á
píanó, þandi harmonikku og blés í
trompet. Á þessum árum tók hann
myndir með Rolleflex-vél og „ei-
lífðarflassi“ eins og það hét þá. Í
safni hans leynast örugglega dýr-
mætar myndir frá sjötta og sjö-
unda áratug síðustu aldar.
Fyrir nokkrum árum tók eg
saman æskuminningar úr Norð-
urmýrinni og leitaði þá til Hall-
dórs. Ekki stóð á svörum frá hon-
um og rifjaði hann upp ýmsa
viðburði úr næsta nágrenni. Þar
segir hann frá ærslafullum leikj-
um og uppátækjum; meðal annars
því, að hann hafi kastað snjókúlu í
glugga á næsta húsi, þar sem
gömul kona lá banaleguna og dó
hún þann daginn. Eftir það var
hann um tíma kallaður „kellinga-
bani“.
Eftir að við urðum fulltíða
minnkuðu samskipti okkar í milli.
Eg leitaði þó til Halldórs í allnokk-
ur skipti og ávallt tók hann mér
vel og leysti úr öllum málum.
Flestir þekkja til Halldórs vegna
skrifa hans um menn og málefni.
Hann var óragur við að segja
skoðun sína og lét hvern mann
heyra það, sem honum bjó í
brjósti. Langt í frá var eg sam-
mála frænda mínum og þótti mér
skrif hans ekki alltaf par falleg.
Ólíkar skoðanir okkar höfðu engin
áhrif á vinskapinn. Að eðlisfari
held eg að Halldór hafi verið sein-
þreyttur til vandræða og ekki ekki
stökk hann upp á nef sér, þó að eg
kolfesti jeppa hans í Beiná í eina
tíð.
Eg kveð Halldór frænda minn
með mikilli hlýju og eftirsjá.
Ágúst H.
Bjarnason.
Við kynntumst fyrst í Ísaks-
skóla og hittumst næst í 1. bekk í
gagnfræðaskóla, urðum bekkjar-
félagar í 7 ár og stúdentar frá MR
1957. Við vorum 18 strákar í X-
bekk stærðfræðideildar, allgóðir
námsmenn, góðir vinir og frábær
andi í bekknum. Ólafur Hansson
kenndi okkur sögu. Hann var
þjóðsagnapersóna í lifanda lífi,
sagður muna allt og vita allt!
Löngu seinna sagði hann mér að
þessi bekkur hefði verið einstakur
vegna þess að allir í honum luku
háskólaprófi. Hann þekkti ekki
fleiri slík dæmi. Líklega er nú fyr-
ir löngu búið að jafna það met.
Dóri lá ekki stöðugt yfir námsbók-
unum og átti mörg áhugamál. Eitt
af þeim var ljósmyndun. Hann tók
myndir af bekknum sem gáfu ekk-
ert eftir myndum lærðra ljós-
myndara, en eini gallinn var sá að
hann var ekki sjálfur með á þeim.
Þótt aðalstarf hans tengdist verk-
fræði hafði hann marga aðra hæfi-
leika. Ritfærni var í ættinni. Afi
hans, Ágúst H. Bjarnason, skrif-
aði vísindarit sem almenningur las
og skildi og eru enn víða til.
Langafi hans, Jón Ólafsson skáld
og ritstjóri var landsþekktur og
líklega eini Íslendingur sem þurfti
tvisvar að flýja land. Fyrst vegna
byltingarljóðsins Íslendingabrags
og síðar út af grein um landshöfð-
ingja. Dóri var pennafær með af-
brigðum og ólatur við skriftir.
Hann var með þeim fyrstu til að
stofna bloggsíðu og skrifaði oft
stuttar og hnitmiðaðar greinar í
Morgunblaðið sem voru mikið
lesnar. Hafði áhuga á mörgu, tók
oft stórt upp í sig og hafði gaman
af að hrinda af stað umræðu.
Hann hafði skemmtilegan stíl,
beitti oft húmor sem var iðulega
heldur í kaldara lagi. Hann var sá í
árganginum sem helst tók að sér
að skrifa minningargreinar um
fallna félaga. Nú er þar skarð fyr-
ir skildi. Hann var hægri sinnaður
í pólitík, öflugur stuðningsmaður
Gunnars Birgissonar í Kópavogi
og þeir sagðir eiga skap saman.
Framan af var hann mikill aðdá-
andi Donalds Trumps, eini Íslend-
ingur mér kunnur sem átti rauða
húfu leiðtogans og gekk oft með
hana. Þar greindi okkur verulega
á þótt við værum annars oftast
sammála í stjórnmálum. Seinast
þegar við hittumst ræddum við
Trump og hann sagðist vera far-
inn að linast verulega í trúnni.
Fannst framganga forsetans í co-
vid-vörnum og seinast árásin á
þinghúsið orka mjög tvímælis.
Dóri sótti manna best mánaðar-
legar samkomur árgangsins með-
an heilsan leyfði. Hans verður sárt
saknað. Við sendum innilegar
samúðarkveðjur til eiginkonu
hans og fjölskyldu. Blessuð sé
minning Halldórs Jónssonar.
Tryggvi
Ásmundsson.
Góður vinur hefur kvatt þenn-
an heim. Við hjónin kynntumst
Halldóri Jónssyni og eftirlifandi
eiginkonu hans, Steinunni, fljót-
lega eftir að við fluttum til Kópa-
vogs fyrir um 40 árum. Það gerð-
ist í gegnum pólitíkina hjá
íhaldinu í Kópavogi, þar sem Hall-
dór var innsti koppur í búri. Hann
var hörkuduglegur fyrir sinn
flokk og átti sinn þátt í að und-
irbúa jarðveginn fyrir farsæla
uppbyggingu bæjarins.
Með tímanum tókust með okk-
ur nánari kynni. Halldór var stór-
brotinn persónuleiki þar sem
húmorinn var sjaldan langt und-
an. Hann var höfðingi heim að
sækja. Eftirminnilegastar eru
samverustundir okkar með þeim
hjónum í sumarbústað þeirra að
Bergstöðum í Biskupstungum.
Þar var oft glatt á hjalla og þjóð-
málin brotin til mergjar af mikilli
innlifun og tilfinningahita.
Halldór hafði mörg áhugamál
sem hann sinnti af kappi. Sameig-
inlegt áhugamál okkar karlanna
var einkaflug, þar sem hann var í
hlutverki flugkennara. Hann
brýndi fyrir nemandanum að til
þess að verða góður flugmaður
þyrfti maður að uppfylla tvö skil-
yrði: vera snarbilaður og elska að
fljúga. Með það að leiðarljósi átt-
um við flugmennirnir margar
ánægjulegar samverustundirnar í
fluginu, stundum með ævintýra-
legum uppákomum, ýmist viljandi
eða óviljandi.
Þau hjónin heimsóttu okkur
eitt sinn þegar við dvöldumst í
Durham á Englandi. Þá ferðuð-
umst við saman um England og
fórum m.a. til Portsmouth til að
skoða herskipið HMS Victory sem
var flaggskip Nelsons flotafor-
ingja í orrustunni við Trafalgar.
Halldór var mjög áhugasamur um
sögu liðinna stórvelda, allt frá
stórveldi Alexanders mikla til
breska heimsveldisins. Þegar við
skoðuðum herskipið fengum við
ljóslifandi lýsingu hans á hinni ör-
lagaríku sjóorrustu. Það lá við að
við heyrðum fallbyssudrunurnar.
Nú er komið að leiðarlokum.
Við biðjum guð að blessa Stein-
unni, börn þeirra og fjölskyldur.
Minningin um góðan vin lifir
áfram.
Þórarinn og Halla.
Árið er 2008. Halldór Jónsson
skrifar minningargrein – Gissur
Símonarson í Gluggasmiðjunni
látinn. Þar kemur fyrir setningin
„Gissur var réttholda“. Ég hnaut
um orðið. Á þeim tíma bar fundum
okkar Halldórs oftar en ekki sam-
an, enda lausamenn hjá Kópa-
vogsbæ. Ég spyr Dóra: Hvaðan
hefurðu orðið „réttholda“. Svar:
„Það veit ég ekkert um.“ Ég hélt
uppi spurnum, enginn gat bent á
prentað eintak. Búvísindamaður á
Hvanneyri sagði: „Þetta er akk-
úrat orðið sem mig hefur vantað
þegar lýsa á holdafari hrúta.“ Svo
liðu árin, 2010 þótti fullreynt, ég
sendi sérfræðingunum hjá Orða-
bók Háskólans erindi. Að nokkr-
um mánuðum liðnum barst svar,
það var efnislega svona: Að aflok-
inni hefðbundinni leit í tiltækum
heimildum má álykta að orðið
„réttholda“ kemur fyrst fyrir í
minningargrein Halldórs Jóns-
sonar við andlát Gissurar Símon-
arsonar, ritaðri sumarið 2008! Að
afloknum glæstum ferli ber Hall-
dór marga veglega titla, þeirra á
meðal er nýyrðasmiður. Ég votta
aðstandendum Halldórs Jónsson-
ar samúð mína. Íslensk tunga og
við sem eftir lifum syrgjum öflug-
an samstarfsmann.
Gísli Óskarsson.
Mikill heiðursmaður er fallinn
frá. Halldór Jónsson verkfræðing-
ur var einstaklega eftirminnilegur
maður. Aðrir munu rekja æviferil
hans, en í þessari minningargrein
verður minnst á hans mikla fram-
lag til Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi, sem hann bar á öxlum sér í
hálfa öld.
Það er á engan hallað að segja
að Halldór var einn af valdamestu
mönnum í Sjálfstæðisflokknum í
Kópavogi um langt árabil. Engu
ráði var ráðið í þessum flokki
nema Halldór kæmi þar að. Pen-
ingamál flokksins hvíldu mikið á
hans herðum og í þeim efnum var
hann harður í horn að taka. Hans
boðskapur var alveg klár;
greiðsluþrota stjórnmálaflokki
væri ekki treystandi, hvað þá að
stjórna sveitarfélagi eða þjóðinni!
Þegar aðrir svifu skýjum ofar í há-
timbruðum plönum um völd,
framkvæmdir svo og eigin ágæti
tók hann þá umræðu niður á jörð-
ina, gjarnan með rökunum hver á
svo að borga fyrir þetta allt sam-
an. Hann ól okkur hin upp í ráð-
deildarsemi, sem við megum aldr-
ei gleyma.
Það báru allir sem kynntust
Halldóri mikla virðingu fyrir hon-
um. Hans ræður á fundum voru
alltaf skemmtilegar og með boð-
skap. Hann kunni þá list að taka
sig ekki alltof alvarlega. Gunnar
Birgisson, þá bæjarstjóri í Fjalla-
byggð, rifjaði upp sögu af Hall-
dóri. Hann hefði hringt í Gunnar
og sagst myndu koma í heimsókn
til hans með frúna. Hann hringdi
svo aftur nokkrum dögum seinna:
„Er áfengisútsala á staðnum?“
Nei sagði Gunnar. „Datt það í
hug, kem með nesti.“
Halldór var ekki alinn upp með
silfurskeið í munninum. Hann var
sjálfur dugnaðarforkur og gerði
miklar kröfur til sín og annarra.
Hann var maður einkaframtaks-
ins og mat mikils mannkosti
þeirra sem sköruðu fram úr,
gerðu eitthvað nýtt, breyttu sam-
félaginu. Með sama hætti gat
hann verið stóryrtur um þá sem
honum fannst vilja vera „farþeg-
ar“ í okkar samfélagi.
Halldór var ekki allra og gat
verið hrjúfur á yfirborðinu. Inni
fyrir sló hins vegar stórt og gott
hjarta, og þeim sem hann treysti
og elskaði var hann sannarlega
góður. Halldór var eldklár maður,
sem kom fram í öllum hans verk-
um. Hann hafði skoðanir á öllum
hlutum, stóð að blaðaútgáfu og
öflugu bloggi á mbl.is. Bloggið
hans var í reynd öflugur fjölmiðill,
þar fór maður sem hafði skoðanir
og hafði sitthvað að segja.
Nú síðari ár hefur Halldór bar-
ist við veikindi. Hann tók á veik-
indum sínum af einstöku æðru-
leysi og dugnaði. Hann barðist
áfram og í okkar huga, sem til
þekktum, var hann sannkölluð
hetja!
Við hugsum á þessum degi til
fjölskyldu Halldórs og sam-
hryggjumst þeim við fráfall vinar
okkar Halldórs Jónssonar.
Jón Atli
Kristjánsson,
Júlíus Hafstein.
Árið 1988 flytjum við hjónin
heim frá Danmörku þar sem ég
hafði verið í námi í verkfræði. Þar
höfðum við kynnst hjónum, þeim
Jóni Ólafi Halldórssyni og Guð-
rúnu Atladóttur. Jón Ólafur var
sonur Halldórs Jónssonar sem
var verkfræðingur af guðs náð og
eitt sinn þegar við Jón vorum að
tala saman og ég minntist á að ég
væri að skoða ákveðna uppbygg-
ingu á iðnaðarhúsnæði stakk Jón
upp á því að ég talaði við pabba
sinn vegna þessa þar sem hann
vissi að Halldór hafði teiknað hús
niðri í Faxafeni sem var sambæri-
legt því sem ég var að skoða. Ég
hringdi í Halldór og hann tók mér
ákaflega vel og bauð mér að koma
inn í Steypustöð og fá lánaðar
teikningar að umræddu húsi til að
skoða. Þetta var upphafið á vin-
skap okkar Halldórs sem hefur
enst allt fram á þennan dag.
Halldór var flugmaður og einu
sinni sem oftar þegar við spjöll-
uðum saman minnist ég á það að
mig hafi alltaf langað til að læra að
fljúga. „Ha,“ sagði Halldór, „er
það? Þú mætir út á völl á morgun
eftir vinnu og við reddum þessu í
hvelli.“ Svona var Halldór, auðvit-
að var hann með kennsluréttindi á
flugvél og kenndi mér að fljúga á
gömlu Piper Cherokee-vélina
sína.
Eftir að Halldór hætti hjá
Steypustöðinni gerðist hann sjálf-
stæður verkfræðingur með ráð-
gjöf í byggingarverkfræði. Í mörg
ár leigðum við saman skrifstofu-
rými ásamt öðrum og var alltaf
fjör á kaffistofunni þegar Halldór
var á staðnum. Halldór hafði skoð-
anir á öllu sem viðkom okkur
mönnunum á þessari jörð og
nokkuð ljóst að ekki voru allir á
sömu skoðun og hann, sérstaklega
þegar kom að stjórnmálum. Hall-
dór var harður sjálfstæðismaður
og var boðinn og búinn til að vinna
fyrir flokkinn öllum stundum.
Halldór var víðlesinn maður og
eldklár. Hann var fljótur að setja
sig inn í málefni, átti marga skoð-
anabræður en líka marga sem
voru honum algerlega ósammála
um það sem hann „bloggaði“ um
hverju sinni. Halldór átti það til að
vera hvassyrtur um sum málefni
en aldrei nokkurn tíma heyrði ég
hann tala illa um einstaka per-
sónu. Halldór var stór persónu-
leiki og aldrei var logn þegar hann
var nálægt. Það er sjónarsviptir
að þessum manni. Að lokum vil ég
senda Steinu og fjölskyldu Hall-
dórs innilegar samúðarkveðjur og
óska Halldóri velfarnaðar í þeirri
ferð sem hann hefur nú lagt í.
Erlendur S.
Birgisson.
Mikill höfðingi er fallinn frá.
Við Halldór kynntumst ekki að
neinu marki fyrr en ég var ráðinn
ritstjóri Voga, blaðs sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, fyrir ekki
margt löngu. Halldór hafði skoð-
un á öllu því sem þar var ritað, og
var ákveðinn en sanngjarn, og gat
samþykkt gagnrök ef þau voru
byggð á sanngirni. Halldór var
mikill sjálfstæðismaður og fór
ekki leynt með það, mikill vinnu-
þjarkur meðan honum entist
heilsa til, og var þar ákaflega
atorkusamur. Það var skemmti-
legt að sitja með honum og ræða
landsmálin og ekki síður heims-
málin enda var þar alls ekki komið
að tómum kofunum.
Síðar hófum við Halldór sam-
starf þegar hann réð mig sem rit-
stjóra að blaðinu Sámi fóstra,
blaði sem segja má að hafi fjallað
um nánast allt milli fjalls og fjöru.
Nafnið valdi hann eftir hundi
Gunnars á Hlíðarenda, enda var
blaðið fyrst gefið út á Suðurlandi.
Þegar hundur Gunnars var veg-
inn á ögurstundu húsbónda hans
hans heyrði hann hundinn ýlfra og
mælti þá: „Sárt ertu leikinn, Sám-
ur fóstri.“ Halldór skrifaði sjálfur
margt í blaðið, ekki síst greinar
tengdar landbúnaði og samgöngu-
málum, og margar þeirra urðu
þekktar, enda þar ritað af kunn-
áttu. Raunar lét hann sér ekkert
óviðkomandi. Halldór gaf blaðið
ekki lengi út bara á Suðurlandi,
upplagið jókst um leið og farið var
áfram austur og norður fyrir land
að ógleymdum Vestfjörðum.
Halldór var sannarlega vinur
vina sinna, þeirri hlið hans kynnt-
umst við mætavel, félagar hans
sem störfuðum með honum að út-
gáfu Sáms fóstra, og ég fullyrði að
aldrei höfum við orðið ósammála
um nokkurn skapaðan hlut, fá
ágreiningsmál sem komu upp
voru leyst í bróðerni. Nú kveðjum
við þennan mann sem er mér um
margt afar eftirminnilegur. Inni-
legar samúðarkveðjur til eigin-
konunnar Steinunnar Helgu,
barnanna þeirra Þorsteins, Jóns
Ólafs, Péturs Hákonar og Karen-
ar Elísabetar og þeirra fjöl-
skyldna.
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
(Bryndís H. Jónsdóttir)
Geir A.
Guðsteinsson.
Upphaf kynna okkar Halldórs
má rekja til þess að feður okkar
voru miklir mátar og hittumst við
því oft í þeirra félagsskap. Á
menntaskólaárunum vorum við
sessunautar. Samdi okkur ein-
staklega vel í námi og áhugamál-
um. Við vorum báðir virkir í ljós-
myndun og kenndi Halldór mér að
vinna myndirnar frá töku til
stækkunar og prentunar. Bárum
við oft saman bækur okkar á
þessu sviði. Við vorum áhuga-
samir um djasstónlist og hlustuð-
um á þessa tónlist af mikilli inn-
lifun, Benny Goodman, Duke
Ellington, Louis Armstrong og
fleiri stórstirni voru goð í okkar
augum. Þegar ég lýsti fyrir Hall-
dóri upplifun minni af því að sjá og
heyra þessa hljómlistarmenn þeg-
ar ég dvaldi í Bandaríkjunum þá
kom stutt og laggott frá Halldóri:
„Ég flaug með Benny Goodman til
veiða í Víðidalsá hér um árið.“
Sýndi hann mér mynd þessu til
sönnunar. Halldór átti auðvelt
með að rífa upp stemninguna ef
píanó var á staðnum – og þá
hljómuðu gamlir djassstandardar.
Faðir Halldórs hélt hesta og
þegar hann var fjarverandi sáum
við um að hirða og hreyfa hestana.
Þetta voru skemmtilegir útreiðar-
túrar. Ekki má heldur gleyma
bílaáhuga okkar en Halldór hafði
keypt gamlan herbíl af Dodge-
gerð á námsárunum og veitti hann
okkur margar ánægjustundir.
Fannst mér vænt um þegar ég gat
sent Halldóri ljósmynd af honum
og bílnum fyrir þremur árum. Síð-
asta sumar fengum við okkur bíl-
túr á mínum 50 ára gamla Buick
sem lítur út eins og hann kom úr
verksmiðjunni – „svona eiga bílar
að vera“ –varð Halldóri þá að orði.
Halldór var áræðinn þar sem
„græjur“ eins og hljómflutnings-
tæki voru annars vegar og barst
það Pálma Hannessyni, rektor
MR, til eyrna. Bað hann Halldór
að gera sér ferð í Sel MR við
Hveragerði og kippa hljómflutn-
ingstækjunum þar í lag. Ekki varð
undan þessu vikist og fórum við
þrír félagar, Halldór, ég og Kjart-
an Þorbergsson, í helgarferð til að
sinna þessu. Þetta hófst með
„happy hour“ að kvöldi laugar-
dags og sunnudagurinn notaður
til viðgerða. Var það mikil fagn-
aðarstund þegar glymskrattinn
sýndi lífsmark og allt virkaði á ný.
Þetta var ekki þrautalaust því um-
sjónarmaður Selsins fylgdist stöð-
ugt með að beiðni rektors. Þegar
við mættum í skólann eftir ferðina
vorum við kallaðir á skrifstofu
rektors og leist okkur ekkert á
blikuna. Vorum við sannfærðir
um að viðgerðin hefði ekki haldið
og við fengjum ofanígjöf. En öðru
nær, Pálmi lýsti ánægju með og
þakkaði framtakið.
Á útskriftardaginn 1957 borð-
uðum við saman kvöldverð á Hót-
el Borg og síðan skildi leiðir þar
sem Halldór fór til náms í Þýska-
landi og ég til Bandaríkjanna. Að
námi loknu hittumst við sjaldnar
enda bjó ég um árabil og starfaði í
Bandaríkjunum. Þegar við tókum
upp þráðinn að nýju þá fundum
við að sameiginleg áhugamál okk-
ar voru enn til staðar og einlæg
vinátta. Nú við leiðarlok vil ég
þakka fyrir minningarnar og allar
okkar góðu samverustundir og
kveð með þeim orðum sem okkur
var tamt að nota – takk, kæri vin-
ur. Við Arndís sendum Steinunni
og fjölskyldu innilegar samúðar-
kveðjur.
Jón E. Böðvarsson.
Það er skrítið að sitja hér og
skrifa minningargrein um Halldór
Jónsson sem lést 17. maí síðastlið-
inn 84 ára að aldri. Halldór hafði
lengi glímt við erfið veikindi og því
hefði andlát hans ekki átt að koma
okkur á óvart, en gerði það nú
samt. Halldór var kraftmikill og
það gustaði af honum. Halldór var
einn af þeim sem tekið er eftir
hvert sem þeir fara. Halldór var
ekki allra, en hann var sjálfum sér
og sinni sannfæringu trúr, hann
hélt ekki aftur af sínum skoðunum
um menn og málefni. Halldór
lagði oft á sig mikla og óeigin-
gjarna vinnu til að koma verkefn-
um af stað og klára þau. Halldór
var hægrimaður og vann ötullega
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og þá
sérstaklega hér í Kópavogi. Kunn-
um við sem á eftir honum komum
honum bestu þakkir fyrir allt hans
starf sem við nú njótum góðs af.
Ég er heppin að hafa fengið að
kynnast Halldóri og hafa unnið
með honum síðustu árin. Halldór
gat sagt margar skemmtilegar
sögur um menn og málefni, var
óvæginn ef honum mislíkaði og þá
gat þrjóskan komið upp í Halldóri
og honum varð ekki haggað. Af
honum lærði ég margt og var
samstarf okkar Halldórs alltaf
gott. Færi ég honum mínar bestu
þakkir fyrir allt.
Að lokum sendum við eftirlif-
andi eiginkonu hans og börnum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Fyrir hönd Sjálfstæðisfélag-
anna í Kópavogi,
Unnur Berglind
Friðriksdóttir,
formaður
Sjálfstæðisfélags
Kópavogs.
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar