Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu „ÉG GAT ÓMÖGULEGA MUNAÐ HVORT HÚN VILDI LÁTA JARÐA SIG EÐA BRENNA – SVO ÉG VALDI LJÓSABEKK.“ „EKKI FARA AÐ LEITA AÐ GLERAUGUNUM ÞÍNUM Á 90 KÍLÓMETRA HRAÐA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að maula saman konfekt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÆÆÆ, LÆKNIR, ÞÚ VERÐUR AÐ HJÁLPA MÉR… HVAÐ ER AÐ HERRA VARÚLFUR?! ÞÚ LÍTUR HÖRMULEGA ÚT! ÉG ÁT VONDAN ÞORPSBÚA ÞAÐ HENDIR ÞÚ HEFUR VERIÐ ÁKÆRÐUR FYRIR ALVARLEGAN GLÆP! ERTU SEKUR? ÉG FINN ALLS EKKI FYRIR SEKTARKENND! ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SEM ÉG ER AÐ SPYRJA UM! ÖKUSKÓLI mannasamtakanna, Verslunarráðs- ins og var í mörg ár formaður Fé- lags raftækjasala og barðist mikið fyrir breyttu samkeppnisumhverfi fyrir þá atvinnugrein. Áhugamál á yngri árum voru frjálsar íþróttir en svo tók stang- veiði og golf við og stunda hjónin golf enn af þó nokkrum krafti. Á undanförnum árum hefur Krist- mann einnig haft mikla ánægju af að kynna sér og miðla sögu saumavél- arinnar og á Pfaff nú myndarlegt safn af gömlum saumavélum og gíf- urlegt safn greina um þær og fyrir- tæki sem framleiddu saumavélar. Þá bauð Kristmann einnig fram þekk- ingu sína til Árbæjar- og Þjóðminja- safnsins við skráningu saumavéla sem þau söfn eiga. Fjölskylda Eiginkona Kristmanns er Hjördís Magnúsdóttir f. 29.1. 1939, en þau gengu í hjónaband árið 1958 og hafa því verið gift í 64 ár. Foreldrar hennar voru Anna Þorbergsdóttir verkakona og Magnús Benjamíns- son sjómaður en fósturforeldrar þau Margrét Magnúsdóttir hús- freyja og Þorsteinn B. Jónsson málari. Börn Hjördísar og Kristmanns eru: Magnús Ingi, f. 9.3. 1958, þjón- ustustjóri Pfaff; Margrét Þóra, f. 24.2. 1962, framkvæmdastjóri Pfaff; og Birgir, f. 4.8. 1969, tölv- unarfræðingur hjá Controlant og stjórnarformaður Pfaff hf. Bróðir Kristmanns er Leifur Ragnar, f. 22.10. 1933, verkfræð- ingur og fv. framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða hf. Foreldrar Kristmanns voru Ingi- björg Jónsdóttir Kaldal húsfreyja, f. 19.11. 1903, d. 31.7. 1986, og Magnús Þorgeirsson kaupmaður, f. 23.1. 1902, d. 26.10. 1983. Kristmann Örn Magnússon Páll Ísleifsson sjómaður í Bergvík Sigríður Jónasdóttir húsfreyja í Bergvík í Leiru Þorgeir Pálsson útgerðarmaður í Keflavík Kristín Eiríksdóttir húsfreyja í Keflavík og Reykjavík Magnús Þorgeirsson stofnandi PFAFF á Íslandi Eiríkur Sveinsson verkamaður í Innri-Njarðvík Þuríður Nikulásdóttir húsfreyja í Innri-Njarðvík Jón Kaldal ljósmyndari Leifur Kaldal gullsmíðameistari Jón Pálmason bóndi og alþingismaður í Stóradal Ingibjörg Salóme Þorleifsdóttir húsfreyja í Stóradal Jón Jónsson bóndi í Stóradal Ingibjörg Gísladóttir húsfreyja í Stóradal í Svinavatnshreppi, A-Hún. Gísli Jónsson hreppstjóri í Hvammi Ragnheiður Eggertsdóttir húsfreyja í Hvammi í Laxárdal, Skagafirði Ætt Kristmanns Arnar Magnússonar Ingibjörg Jónsdóttir Kaldal húsfreyja í Reykjavík Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir á Boðnarmiði: Í kaupstöðum landsins er kosið. Upp á kaffi er boðið og gosið sem alþýðan þambar og áttavillt rambar beint inn í sætasta brosið. Jón Atli Játvarðarson yrkir: Ánamaðkar dansa dátt, dráttarvélar puða. Við lúpínunnar blómið blátt býflugurnar suða. Friðrik Steingrímsson kveður: Gjörvallt lífið gegnum sneitt glaður mjög ég kjaga, ekki virðist ellin neitt ætla mig að plaga. Enn yrkir Friðrik: Davíð fer ei margs á mis mikill viskubrunnur, húsakynnum helvítis hann er allvel kunnur. Kristján H. Theodórsson bætir við: Aldrei skyldi öðling dá, sem ekkert veit úr neðra. Hans er líkleg þekking þá, þröng á slóðum feðra. Ólafur Stefánsson skrifar: „Það getur jafnvel verið enn skemmti- legra að hitta fólk á ferðalögum, þegar það er uppveðrað, heldur en heima í gráma og ati hversdags- ins.“ Ef þú spyrð mig, eg því svara, ætli’ það sé ei besta lagið, í háloftum að hittast bara hress og stresslaus annað slagið. „Agnarlítil þróun íslenskrar tungu“ verður Hallmundi Guð- mundssyni að yrkisefni: Álfheiður átti þá von, að endingu fæddi hún son. En mjög hana mæddi, í morgun er fæddi, - að stúlkubarn aftur varð „on“. Gunnar J. Straumland segir „biskup átelur klerk“ og yrkir: Ef dirfist þú í dag að segja drottnurunum sannleikann, hollast væri þér að þegja, þeim er alveg sama um hann. Gunnar Hólm Hjálmarsson: Hver einn stjórnar sjálfum sér, sem má ekki gleyma. Það sem framtíð færir þér fortíðin mun geyma. Ingólfur Ómar Ármannsson yrk- ir: Hörpu stilla strengi vil stefin hylli bjóða. Hugann fyllir andans yl óðarsnillin góða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ekki plagar ellin oss

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.