Morgunblaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Vindskilti
Sólarfilmur
Bílar óskast
Vil kaupa bíl með skoðun.
Verð 100þúsund, staðgreitt.
Uppl. í s. 8416677
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Morgun-
spjall, heitt á könnunni milli 9:00-11:00 - Boccia kl.10:00 -Tálgað í tré
kl.13:00 - Menningaferð í Höfuðstöðina, lagt af stað kl.13:00 frá Afla-
granda, skráning á skrifstofu eða í síma 411-2702 - Kaffi kl.14:15-15:00
- Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar 4 Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16.
Pútthópur kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Ganga/stafganga með leiðsögn kl. 10:00 frá anddyri Boðans.
Stólaleikfimi kl. 13:00. Bridge og Kanasta kl. 13:00.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Heimaleikfimi á RUV kl.
13:00-13:10. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Bókabíllinn kl. 14:45.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á
könnunni. Inni-og útifjör (með kennurum) frá kl.9:30-10:20.
Listaspírur kl. 13:00. Allir Velkomnir
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Bridge kl.
13:00. Útileikfimi með Carynu kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 –
12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Opin handverksstofa
9:00-12:00 - Bókband í smiðju kl.13:00-16:30 - Opin handverksstofa
13:00-16:00 og síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í
síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarnes kl. 7:10. Kaffi í
króknum frá kl. 9:00. Pútt á Skólabraut kl. 10:30. Stuttur göngutúr kl.
13:00. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14:00. Ferðinni í Hellisgerði er
frestað fram á næsta þriðjudag þann 28. júní vegna rigningarspá
skráning stendur því ennþá opin. Á morgun kl 13:00 byrjar
tækninámskeiðið, hvetjum alla til að mæta!
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Bílar
Til sölu Subaru árg.´06.
Skoðaður ´23., með krók. Verð 60þús.
Þarfnast lagfæringar.
Uppl. í s. 8416677
✝
Signý Hall-
dórsdóttir
fæddist á Reyni í
Mýrdal 15. sept.
1932. Hún lést á
Landspítala Landa-
koti 28. maí 2022.
Foreldrar hennar
voru Katrín Sig-
urðardóttir, f.
1906, d. 1998 og
Halldór Sölvason
kennari, f. 1897, d.
1971. Systur Signýjar eru: Ingi-
ríður, f. 1926, d. 2001, Þórhild-
ur, f. 1928, d. 2011, Sigrún, f.
1934, og Oddný Dóra, f. 1948, d.
2002. Þær voru allar kennarar
að mennt. Signý giftist Hrafni
Einarssyni heildsala, f. 8. nóv.
1929, d. 26. apr. 2010, þann 15.
jan. 1955. Foreldrar hans voru
Jóhanna Hallgrímsdóttir hús-
freyja, f. 1897, d. 1979 og Einar
Guðmundsson stórkaupmaður,
apr. 2017, b) Eyrún, f. 22. ág.
2002. 3) Sólveig aðstoðar-
skólastjóri, f. 21. ág. 1964, synir:
a) Konráð Bragason garðyrkju-
fræðingur, f. 16. maí 1991, maki
Ásgerður Heimisdóttir hönn-
uður, f. 31. ág. 1993, dóttir: Móa,
f. 29. des. 2019, b) Hákon Braga-
son myndlistarmaður, f. 6. júní
1993, maki Alexandra Mjöll Yo-
ung tölvunarfræðingur, f. 7. okt.
1990, 4) Halldór Sölvi, f. 26. jan.
1969, börn: a) Signý Hlín kenn-
ari, f. 15. jan. 1991, maki Ólafur
Þór Árnason byggingariðnfræð-
ingur, f. 7. apr. 1987, börn: Elís
Hrafn, f. 17. apr. 2014, Malen
Lóa, f. 2. mars 2016, Bjartey
Kría, f. 30. ág. 2018, b) Sölvi, f.
20. mars 1998, c) Arnór, f. 12.
jan. 2005.
Signý stundaði nám við Kenn-
araskóla Íslands og lauk kenn-
araprófi 1952. Hún starfaði við
kennslu alla ævi, lengst við
Langholtsskóla og Árbæjar-
skóla. Signý og Hrafn bjuggu í
Reykjavík alla tíð, lengst af í
Álfheimum 14.
Útförin fer fram frá Áskirkju
í dag, 21. júní 2022, og hefst at-
höfnin kl. 13.
f. 1895, d. 1957.
Börn Signýjar og
Hrafns eru: 1)
Katrín kennari, f. 7.
ág. 1957, maki Ein-
ar Malmberg við-
skiptafræðingur, f.
21. feb. 1961, synir:
a) Snorri tölvunar-
fræðingur, f. 6.
sept. 1980, maki
Hulda Katrín Stef-
ánsdóttir lögmað-
ur, f. 17. sept. 1981, börn: Jón
Ingvar, f. 13. sept. 1999, Nanna
Katrín, f. 4. nóv. 2005, b) Einar
Hrafn, f. 17. des. 1988. 2) Sigrún
lífefnafræðingur, f. 21. ág. 1964,
maki Sigtryggur Baldursson
framkvæmdastjóri, f. 2. okt.
1962, dætur: a) Una, myndlistar-
maður, f. 30. jan. 1990, maki
Andri Leo Lemarquis læknir, f.
5. mars 1989, börn: Tristan Em-
il, f. 26. apr. 2012, Elea Mía, f. 8.
Fallin er nú frá tengdamóðir
mín, Signý Halldórsdóttir, eftir
stutta en erfiða sjúkrahúslegu.
Það eru rúmlega þrjátíu ár
síðan ég kom fyrst inn á heimili
Signýjar og Hrafns og upplifði
ég heimilisbraginn sem afslapp-
aðan og þægilegan. Mér eru
minnisstæð matarboðin með
stórfjölskyldunni, afkomendum
og viðhengjum þeirra. Mér varð
í fyrstu starsýnt á allt meðlætið
með steikinni. Ég hafði aldrei
séð annað eins. Ég, matmað-
urinn, varð að hafa mig allan
við, því ekki kunni ég við annað
en að smakka á öllum sortum.
Já, Signý kunni að halda mat-
arboð. Ég held að þessar sam-
verustundir hafi verið Signýju,
og þeim hjónum báðum, mik-
ilvægar. Signý var stolt af sín-
um afkomendum, var mjög um-
hugað um velferð þeirra og
samheldni fjölskyldunnar.
Signý og Hrafn ferðuðust
mikið um Ísland. Það var sama
hvar borið var niður á landinu,
alls staðar var Signý kunnug
staðháttum. Einn staður stóð þó
hjarta hennar nær en aðrir, en
það var Fljótshlíðin. Þar átti
Signý sín uppvaxtarár en faðir
hennar var þar skólastjóri. Á
hverju sumri var stórfjölskyld-
unni stefnt saman til ferðar í
Fljótshlíðina. Þá var keyrt vítt
og breitt en föstu punktarnir
voru kirkjan á Breiðabólsstað,
fjárréttin, Gamla skólahúsið,
sem var æskuheimili Signýjar,
trjálundurinn við Múlakot, en
þar vann Signý við gróðursetn-
ingu á unglingsárunum, og Þor-
steinslundur. Í Þorsteinslundi
var alltaf slegið upp heljarinnar
lautarferð og ekki laust við að
samkeppni væri um hver væri
með besta nestið. Maður pass-
aði sig samt alltaf að hafa pláss
til að smakka á nestinu hennar
Signýjar sem m.a. innihélt upp-
rúllaðar pönnukökur og heima-
bakaða hjónabandssælu.
Nammidósin hennar var vinsæl
á meðal barnanna og jafnvel
fleiri.
Signý lærði til kennara og
starfaði við kennslu alla tíð.
Mér er sagt að hún hafi verið
kennari af Guðs náð. Kunni þá
list að halda uppi aga á blíðleg-
an og rólegan hátt. Það má
kannski segja að ég hafi orðið
vitni að þessu þegar við hjónin
tókum að okkur hund sem hafði
átt erfiða æsku og hlýddi eng-
um skipunum. Þegar við heim-
sóttum Signýju í fyrsta skipti
með hundinn, þá sat hann og
stóð nákvæmlega eftir fyrir-
skipunum Signýjar, mér til mik-
illar undrunar. Var mér þá sagt
að þar kæmi til kennararöddin.
Það hefur hent að ég hafi hitt
fólk sem komið hefur í ljós að
voru nemendur Signýjar fyrir
áratugum. Allt man það eftir
henni og talaði fallega um hana.
Betri eftirmæli er vart hægt að
hugsa sér.
En nú er tengdamóðir mín
horfin til betri heima. Ég sé
Hrafn, tengdaföður minn, fyrir
mér, brosandi út að eyrum að
taka á móti Signýju sinni.
Ég kveð hana með söknuði
og virðingu. Blessuð sé minning
hennar.
Einar Malmberg
Það var lærdómsríkt að koma
ungur maður á heimili til Sig-
nýjar Halldórsdóttur tengda-
móður minnar. Þessa svipmikla
og sterka kona var sínu fólki
stoð og stytta og þótti óend-
anlega vænt um börn sín og
barnabörn, þótt hún hefði ekki
um það mörg orð, en hún lét
frekar verkin tala. Ég fékk að
njóta þess líka, sem tengdason-
ur hennar, enda okkar samband
gott frá fyrsta degi og bar þar
aldrei skugga á. Signý var
frændrækin, hafði trú á sínu
fólki, og öðru fólki líka, enda
lagði hún sitt lóð á vogarskál-
arnar með því að rækta gras-
rótina, æsku landsins, en hún
var af kennaraætt og þær syst-
ur allar fimm fetuðu í fótspor
föður síns Halldórs skólastjóra
úr Fljótshlíð. Menntun var Sig-
nýju hjartans mál og kenndi
hún mörgum að lesa í kjall-
aranum góða í Álfheimunum
þar sem ég átti eftir að venja
komur mínar þegar ég var að
verða hluti af fjölskyldunni og
kjallarinn orðinn meyjar-
skemma. Signý var skarp-
skyggn og hafði takmarkaða
þolinmæði fyrir dægurþrasi,
þótt hún hafi langt í frá verið
rúin skopskyni. Hún elskaði
ekki bara fólkið sitt heldur líka
landið sitt og naut þess að
ferðast um það í félagsskap fjöl-
skyldunnar, en það var líka
gaman að ferðast með henni þar
sem hún var hverjum manni
fróðari um það sem fyrir augu
bar, nöfn og staði. Þær eru
minnisstæðar ferðirnar um
landið og ekki síst í Fljótshlíð-
ina, en æskuslóðirnar toguðu
hana æ fastar til sín eftir því
sem árin liðu. Þangað var farið
árlega og gaman að rifja upp
hvað það veitti henni mikla
ánægju að njóta þessara stunda
með flokknum sínum í Múla-
kotinu og Þorsteinslundinum
hennar ástsæla. Ég mun alltaf
minnast hennar þar, í skjóli Þrí-
hyrningsins, með sólina í há-
suðri og regnboga í úðanum frá
litlum fossi, gróðurinn í blóma,
hringrásin í lífríkinu. Farvel í
sumarlandið, kæra Signý, ég
bið að heilsa Hrafni, og takk
fyrir allt það góða sem þú gafst
okkur.
Sigtryggur Baldursson.
Ég veit að allir segja það um
ömmu sína, en hún bakaði virki-
lega allra bestu pönnukökurnar.
Amma Signý gerði bæði bestu
pönnsurnar og súkkulaðikök-
una. Þegar hún kvaddi okkur
bakaði ég kökuna hennar og ég
veit ekki hvernig á því stendur
en hún var ekki jafn góð og sú
sem hún gerði. Ég man líka eft-
ir ferðalögum með endalausu
swiss mixi og rúsínubollunum
hennar, spilaköplum, bókum og
sögum. Þar á milli tilraunum til
að kenna mér að prjóna, sem
gekk ekki fyrr en áratugum
seinna. Svo á ég góðar minn-
ingar frá því ég sat við eldhús-
borðið hjá henni í hádegispás-
um þegar ég var í
listaháskólanum í Laugarnes-
inu. Það var alltaf gott að sitja
með þér í eldhúsinu amma. Það
koma líka upp minningar frá
því ég er lítil og er hjá þér og
afa. Minningar um það að end-
ann á vínarbrauðinu átti alltaf
að geyma fyrir þig. Ég reyni að
vanda mig að skrifa þetta því
það varst þú sem hjálpaðir mér
að læra að lesa á íslensku og
skilja öll fágaðri orð sem ég
þekki, fyrir utan öll nöfn á fjöll-
um og staðarheiti sem mér
tókst aldrei að læra. Þú leið-
réttir mig, litla amerísk-ís-
lenska barnabarnið, alltaf góð-
látlega og kenndir mér svo
ótrúlega mikið. Ég er þakklát
fyrir að hafa kynnst Signýju
ömmu. Ég mun minnast þín í
hverri erfiðri fallbeygingu, vel
heppnaðri pönnuköku, hverri
prjónaðri lykkju, jólaboði og
hverri Fljótshlíðarferð.
Una Sigtryggsdóttir.
Kæra amma Signý, ég veit
nú ekki hvar ég á að byrja.
Byrja bara með því að segja
hvað ég er þakklát fyrir allan
stuðninginn. Ég hlakkaði alltaf
til að segja þér frá nýjum afrek-
um í lífi mínu, litlum eða
stórum, þau breiddu alltaf bros
á varir þínar. Maður sá langar
leiðir hvað þú varst stolt af okk-
ur öllum. Þegar ég kom í heim-
sókn til þín tók ég eftir því hvað
þú varst með margar myndir af
okkur fjölskyldunni uppi á vegg
hjá þér. Við hver jól eða afmæli
var alltaf tilvalið að gefa þér
nýja mynd. Það sem ég man
einnig mest eftir er hvað þessar
gjafir glöddu þig mikið. Ég verð
ávallt þakklát fyrir allar stund-
irnar saman þótt þær hefðu
mátt vera fleiri.
Eyrún Sigtryggsdóttir.
Kær samstarfskona mín,
Signý Halldórsdóttir, er gengin
þá götu sem allir að lokum
ganga. Leiðir okkar lágu saman
í Árbæjarskóla þar sem við
kenndum báðar. Að vísu hafði
ég oft heyrt talað um ættfólk
Signýjar þar eð amma hennar
og nafna átti um árabil heimili
hjá afa mínum og ömmu og
andaðist þar. Skyldfólk mitt
minntist oft á gömlu konuna og
börn hennar, ætíð með hlýju og
væntumþykju. Vinátta okkar
Signýjar var í raun eðlilegt
framhald af vináttu fyrri kyn-
slóða.
Líklega hefur tilviljun ráðið
mestu um að við Signý kennd-
um oft í sömu árgöngum. Þá
var skólinn fjölmennur, margir
bekkir í sama árgangi og það
gat verið líf í tuskunum. Signý
var góður kennari, hlý og um-
hyggjusöm við nemendur sína
og hún átti traust þeirra og
virðingu. Á sama hátt var gott
að vinna með henni, hún var
samviskusöm og nákvæm en
alltaf tilbúin að hlusta á sjón-
armið annarra og gat séð
spaugilegu hliðarnar á málun-
um. Auk hins daglega starfs
minnist ég undirbúnings jóla-
skemmtana og annarra sýninga
auk ófárra vorferðalaga með
bekkina.
Signý var einstaklega hóg-
vær kona og lét ekki mikið fara
fyrir sér en það var reisn yfir
henni. Allt hennar dagfar ein-
kenndist af háttprýði, snyrti-
mennsku og hlýju í garð ann-
arra. Hún var fróð um marga
hluti, glöð og skemmtileg í sín-
um hópi og gat verið hnyttin í
orðum. Þegar Árynjuhópurinn
fór að hittast lét Signý sig
sjaldan vanta þrátt fyrir hækk-
andi aldur og naut þess að hitta
gamla starfsfélaga.
Ég sendi börnum Signýjar og
fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur sem og systur
hennar og mági en með þeim
systrum var afar kært. Ég kveð
Signýju með söknuði og þökk
fyrir áralanga vináttu og sam-
starf. Signý var falleg kona og
það var alltaf bjart í kringum
hana. Hún kvaddi veröldina á
björtum vormorgni og birtan
mun fylgja henni á önnur til-
verustig.
Kristín Á.
Þorsteinsdóttir.
Signý
Halldórsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar