Morgunblaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2022
Bíldshöfði 12 • 110 577-
„ÞETTA GILDIR EKKI BARA UM ÞIG.
ÞAÐ ÞURFA ALLIR AÐ BYRJA SEM
SJÁLFSTÆÐIR VERKTAKAR.“
„ÁTTU GLUGGASÆTI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... m–j–ö–g langur koss.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRAFIGRAFI
GRAFIGRAFI
GRAFIGRAFI
ÞJAPPIÞJAPPI
ÞJAPPIÞJAPPI
KLAPPIKLAPPI
KLAPPIKLAPPI
HANN MUN SAMT GLEYMA
HVAR HANN GRÓF ÞAÐ
ÉG VIL PRÓFA SVERÐIÐ ÁÐUR EN
ÉG KAUPI ÞAÐ!
KAUPIR ÞAÐ? ÞÚ FÆRÐ SVERÐIÐ
ENDURGJALDSLAUST!
VOPN
&
VERJUR
Styrktarfélags Íslensku óperunnar
og á eigin vegum nokkrum sinnum
ásamt Ólafi Vigni Albertssyni. Ný-
verið söng Inga með Kór Fella- og
Hólakirkju til styrktar Úkraínu á
stríðstímum. Inga hefur verið mikil
sundmanneskja alla sína ævi og
syndir þúsund metra annan hvern
dag. Hún á lítinn sumarbústað upp
við Reynifellsland við Þríhyrning og
hefur notið þess að vera þar með
börnum og barnabörnum sem einnig
hafa eignast bústað á sama stað.
Fjölskylda
Eiginmaður Ingu var Friðrik Örn
Weisshappel, f. 9.1. 1945, bankamað-
ur. Þau voru búsett í Reykjavík en
slitu samvistum.
Börn Ingu og Friðriks eru Jó-
hanna Björk Weisshappel, f. 5.2.
1967, MSc í sjávarlíffræði og MSc í
umhverfis- og auðlindafræði, búsett í
Kópavogi. Friðrik Karl Weisshappel,
f. 3.7. 1969, byggingafræðingur, bú-
settur í Reykjavík, og Ingi Örn
Weisshappel, f. 30.8. 1974, húsa-
smíðameistari, búsettur í Reykjavík.
Barnabörn Ingu eru orðin níu.
Systkini Ingu eru Arnmundur
Sævar Backman, f. 15.1. 1943, d.
11.9. 1998, lögmaður, rithöfundur,
leikskáld og músikant, Edda Heið-
rún Backman, f. 27.11. 1957, d. 1.10.
2016, leikkona, leikstjóri, baráttu-
kona og söngkona, Ernst Jóhannes
Backman, f. 16.9. 1951, hönnuður,
söngvari og eigandi Sögusafnsins við
Grandagarð 2.
Foreldrar Ingu: Halldór Sigurður
Backman, f. 30.1. 1922, d. 20.1. 1984,
húsasmíðameistari og dansari, og
Jóhanna Dagfríður Arnmundsdóttir,
f. 7.1. 1923, d. 10.10. 2016, húsfreyja
og ein af stofnendum Handprjóna-
sambandsins.
Inga J.
Backman
Jóreiður Jónsdóttir
Svínadal
Sigurður Jónsson
bóndi í Svínadal
Ingiríður Sigurðardóttir
húsfreyja
Arnmundur Gíslason
kaupfélagsstjóri, kaupmaður,
verkamaður og ljóðskáld á Akranesi
Jóhanna Dagfríður
Arnmundsdóttir
húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík
Sveinbjörg Davíðsdóttir
bóndi í Kverkártungu
Gísli Árnason
bóndi og handverksmaður í
Kverkártungu.
Halldóra Sigurðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurður Helgi Jónsson
sjómaður í Reykjavík
Jónína Salvör Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ernst Frídolf Backman
steinsmiður og verkamaður í Reykjavík
Sofia Larsdotter
húsfreyja í Persberget
Erik Gustaf Backman
námuverkamaður í Perberget í Svíþjóð
Ætt Ingu Jónu Backman
Halldór Sigurður Backman
húsasmíðameistari í Reykjavík
Ingólfur Ómar sendi mér góðan
póst: „Heill og sæll Halldór.
Hringhendan er alltaf skemmti-
legur bragháttur og því datt mér í
hug að lauma að þér tveimur hring-
hendum“:
Funa kyndir bragabáls
burtu hrindir trega.
Streyma lindir ljóðamáls
létt og yndislega.
Andann þvingar ekki neitt
orðin klingja af munni.
Ljóða slyngum brandi er beitt
best í hringhendunni.
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
kvað:
Ég er aldeilis kerling í krapinu
og klóra mér hiklaust í skvapinu,
ég struns’ oní bæ
í stráka mér næ
og stórbatna við það í skapinu.
Höskuldur Búi Jónsson svaraði
að bragði:
Mætir oft kerling í miðbæinn,
mýkist við blómin og vorblæinn.
Klipinn er strákur
og kitlaður fákur
og kreistur er síðasti stælgæinn.
Þessi staka er úr annarri átt, – að
norðan. Friðrik Steingrímsson yrk-
ir:
Friðurinn er fyrir bí,
fer ég brátt að hrína,
kóvidið er komið í
kerlinguna mína.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
morgunvísu, oddhent:
Árla vísur yrkja kýs,
upp þá rís á fætur,
lofa’ og prísa ljóðadís
laus úr krísu nætur.
Erlingur Sigtryggsson yrkir
með þessari athugasemd: „… ég er
dansari, eldspúari og í raun marg-
hæfur skemmtikraftur sem gengur
um á stultum fyrir framan klúbb-
inn og inni á klúbbnum, geri eld-
sýningar og „angel-grinda“,“ segir
hún.“
Ungra kvenna yndi er mest að
„angel-grinda“.
Við hin okkur látum lynda
„að leika, kvaka, fljúga og synda“.
Ólafur Stefánsson kveður „Út í
rosann“:
Mér er ekki glatt í geði,
ganga skúrir yfir land.
Rignir niður blóm í beði
bíður þeirra hel og grand.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tvær hringhendur
og fleira gott