Morgunblaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sjúkratryggingar Íslands vísa alfar-
ið á bug „aðdróttunum“ Ragnars
Freys Ingvarssonar, formanns
Læknafélags Reykjavíkur, um til-
hæfulausa reikningsgerð og lög-
sóknir fyrir fjárdrátt.
Mun tilefnið vera frétt sem birt-
ist í Morgunblaðinu í gær þar sem
Ragnar sagði að búið væri að senda
fjölda bakreikninga á sjúklinga sem
skráðir eru á einkareknum heilsu-
gæslum, eftir komu þeirra í blóð-
prufu á heilsugæslustöð hins op-
inbera, þar sem starfsmenn Land-
spítalans annast blóðtöku. Sagði
Ragnar slíkar komur skráðar í kerf-
ið og vegna þess fengi heilsugæslan
sem sjúklingurinn er skráður á bak-
reikning og heilsugæslunni, þar
sem blóðprufan er tekin, væri greitt
sérstaklega.
Taldi hann að ef málunum væri
öfugt háttað yrði einkarekin stöð
lögsótt fyrir fjárdrátt enda um til-
hæfulausa reikninga að ræða.
Í tilkynningunni segja SÍ málið
vera í skoðun en ummæli formanns-
ins um að viðskiptahættir Sjúkra-
trygginga séu með öðrum hætti
gagnvart einkareknum stöðvum en
þeim opinberu eigi sér ekki stoð og
undrast SÍ slíkar fullyrðingar í um-
fjöllun um mál sem er til skoðunar
í góðu samstarfi allra aðila.
Starfshópur skoðar málið
„Upphaf málsins er að nýlega
hefur komið í ljós að skráning
koma á heilsugæslu vegna blóð-
sýnatöku hefur farið fram með
ólíkum hætti hjá Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins og a.m.k. hluta
af einkareknu heilsugæslustöðvun-
um. Hefur þessi staðreynd m.a.
komið til umræðu í starfshópi heil-
brigðisráðuneytisins um endur-
skoðun á fjármögnun heilsugæsl-
unnar.“ Að því er fram kemur í
tilkynningunni eiga fulltrúar einka-
rekinna og opinberra heilsugæslu-
stöðva sæti í starfshópnum auk
Sjúkratrygginga.
„Málið snýst um það hvort koma
sjúklings í blóðrannsókn, á aðra
heilsugæslustöð en hann er skráður
hjá, skuli skrást sem koma á heilsu-
gæslustöðina og þar með fela í sér
að sú stöð sem viðkomandi sjúkling-
ur er skráður hjá verði að bera
ákveðinn kostnað. Verið er að fara
yfir skráningu allra blóðsýna sem
tekin eru á heilsugæslum til að
tryggja samræmi í kostnaðarþátt-
töku, óháð rekstrarformi.“ Forstjóri
og framkvæmdastjóri hjúkrunar á
heilsugæslustöðvum höfuðborgar-
svæðisins afþökkuðu að tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað.
SÍ vísa á bug „aðdróttunum“ formannsins
- Skráningar vegna blóðsýnatöku til skoð-
unar hjá starfshópi heilbrigðisráðuneytisins
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hús Sjúkratrygginga Íslands.
Ragnhildur Þrastardóttir
Anton Guðjónsson
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Innlögnum vegna Covid-19 tók að
fjölga í síðustu viku og um helgina
létust tveir með sjúkdóminn á
Landspítala.
Að sögn Más Kristjánssonar, for-
stöðumanss lyflækninga- og bráða-
þjónustu, voru alls 34 einstaklingar
á Landspítala með sjúkdóminn í
gær og dreifðust þeir á níu starfs-
stöðvar hans. Enginn var þó á gjör-
gæslu. Hann segir stöðuna snúna
enda sé núna orlofstími og mikil
veikindi meðal starfsmanna. Mönn-
unarvandi sé í hámarki.
Samkvæmt opinberum tölum
greinast um tvö hundruð manns
daglega með kórónuveiruna. Þórólf-
ur Guðnason sóttvarnalæknir segir
ekki um nýja bylgju að ræða heldur
aukna útbreiðslu. Undirafbrigði
ómíkron hefur verið áberandi í smit-
um innanlands undanfarið og virðist
það meira smitandi en fyrri afbrigði.
Þó er ekki útlit fyrir að það valdi
fleiri endursmitum.
„Fólk sem liggur inni [á spítala]
er mikið til eldra fólk með undir-
liggjandi sjúkdóma sem þolir þessa
sýkingu illa,“ segir Þórólfur. Hann
bætir við að upp á síðkastið hafi
yngra fólk sem er óbólusett veikst
mikið. Hann sér þó ekki fram á að
mæla með því að gripið verði til tak-
markana í samfélaginu en hvetur
fólk til að beita sóttvarnaráðstöfun-
um.
Opið í bólusetningar
Næstu tvær vikurnar verður opið
hús í Mjóddinni þar sem fólk getur
komið og þegið bólusetningu við
sjúkdómnum.
Að sögn Ragnheiðar Óskar Er-
lendsdóttur, framkvæmdastjóra
hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, er aðallega horft
til fólks 80 ára og eldra, og til þeirra
sem eru með undirliggjandi sjúk-
dóma.
„Við ætlum að bæta í bólusetning-
arnar hjá okkur en það er ofboðs-
lega mikil aðsókn 80 ára og eldri í
fjórða skammtinn af bóluefni fyrir
Covid-19. Allt er uppbókað á heilsu-
gæslustöðvum,“ segir hún.
Innlögnum vegna Covid-19 fjölgar
- Hægt að mæta í fjórðu sprautuna
- Ekki tími fyrir takmarkanir núna
Ljósmynd/Landspítalinn
Landspítalinn Aftur hefur verið gripið til takmarkana innan sjúkrahúsa.
Höfnin í Hafnarfirði iðaði af lífi í gær þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að garði í ágætis-
veðri.
Þar voru ekki hefðbundnir fiskibátar á ferð
heldur reru krakkar árabáti, seglbátur sigldi um
og gúmmíbátur með utanborðsmótor þeyttist
um. Til allrar lukku voru þó allir í viðeigandi
hlífðar- og öryggisfatnaði og létu vel af has-
arnum sem á gekk.
Líf og fjör í höfninni í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Eggert
Hilmar Pétur
Valgarðsson,
framkvæmda-
stjóri rekstrar-
sviðs Eimskips,
hefur verið boð-
aður í skýrslu-
töku hjá embætti
héraðssaksókn-
ara vegna rann-
sóknar á sölu
skipanna Goða-
foss og Laxfoss
árið 2019. Hann nýtur réttarstöðu
sakbornings í málinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Eimskip sem send var á Kaup-
höll í gærkvöldi. Þar kemur fram að
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri
Eimskips, muni gefa skýrslu í þágu
rannsóknarinnar sem fyrirsvars-
maður félagsins. Hann er þó ekki
grunaður um refsiverða háttsemi.
Umhverfisstofnun kærði félagið
til héraðssaksóknara árið 2020, en
skipin voru seld til erlenda fyrir-
tækisins GMS, sem seldi þau síðar
til niðurrifs. Héraðssaksóknari
framkvæmdi húsleit hjá Eimskip í
lok síðasta árs vegna málsins.
„Eimskip telur sig hafa fylgt í
einu og öllu lögum og reglum í
þessu söluferli og seldi skipin til
áframhaldandi rekstrar en ekki til
endurvinnslu. Félagið mun eftir
sem áður leitast við að veita héraðs-
saksóknara allar þær upplýsingar
sem um er beðið,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Yfirmaður
boðaður í
skýrslutöku
- Forstjórinn mun
einnig gefa skýrslu
Skip Sala á skipum
Eimskips er enn til
rannsóknar.