Morgunblaðið - 11.07.2022, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 1. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 160. tölublað . 110. árgangur .
KOMINN TIL AÐ
HJÓLA HRINGINN
Á ÖÐRUM FÆTI
GÆÐINGAR
OG GLEÐI
UM HELGINA
GOTT INNLEGG
Í BÓKMENNTA-
SÖGUNA
LANDSMÓT 6 ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR 28ANDREA DEVICENZI 4
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
hefur keypt allt hlutafé sjávarút-
vegsfyrirtækisins Vísis hf. í
Grindavík fyrir 20 milljarða króna.
Vaxtaberandi skuldir Vísis hf.
nema um 11 milljörðum króna og
nema viðskiptin því samtals um 31
milljarði króna.
Síldarvinnslan og Vísir eru sam-
mála um að með viðskiptunum sé
staða beggja félaga styrkt til fram-
tíðar. Verði viðskiptin staðfest af
hluthafafundi Síldarvinnslunnar og
Samkeppniseftirlitinu er útlit fyrir
að núverandi fiskveiðiheimildir
Síldarvinnslunnar verði lítillega
yfir gildandi viðmiðunarmörkum,
segir í tilkynningunni.
Komi til þess hefur félagið sex
mánuði til að laga sig að þessum
viðmiðum. Veiðiheimildir í upp-
sjávartegundum, einkum loðnu,
eru breytilegar milli ára og hafa
því óhjákvæmilega áhrif á kvóta-
þak frá ári til árs.
Tekið er fram að enn ríki óvissa
um úthlutanir í aflaheimildum upp-
sjávarfisks á næsta ári. Höfuð-
stöðvar bolfiskvinnslu Síldarvinnsl-
unnar eru sagðar verða hjá Vísi í
Grindavík og Pétur Hafsteinn
Pálsson áfram framkvæmdastjóri
Vísis.
Mestu máli skiptir fyrir Grinda-
víkurbæ að sjávarútvegsfyrirtækið
Vísir verði þar áfram starfandi
með tilheyrandi mannskap, búnaði
og skipum, að mati Fannars Jón-
assonar bæjarstjóra í Grindavík.
Efli bæjarfélagið og atvinnulíf
Kaupin voru tilkynnt Fannari í
gær en á næstu dögum verður hon-
um gerð enn betur grein fyrir
ákvörðuninni. „Mér skilst að það
eigi bara að bæta í, svo ef það
gengur eftir þá verður þetta til
þess að efla bæjarfélagið og at-
vinnulíf á staðnum.“
Fannar segir Vísi öflugt fyrir-
tæki, vel tækjum búið og þar starfi
gott fólk. Það skipti því öllu máli
að það verði áfram rekið af sama
myndarskap og verið hefur. »2
Síldarvinnslan hf.
festir kaup á Vísi hf.
- Viðskiptin nema 31 milljarði króna - Áfram í Grindavík
Eftir jafntefli gegn Belgum í Manchester í gær í fyrstu um-
ferð D-riðils Evrópumóts kvenna í fótbolta, 1:1, er allt galopið
í baráttunni um að komast í átta liða úrslit keppninnar.
Frakkar eru með undirtökin í riðlinum eftir stórsigur á Ítöl-
um, 5:1, í Rotherham í gærkvöld en á fimmtudag mætast Ís-
land og Ítalía í algjörum lykilleik riðilsins. Sveindís Jane Jóns-
dóttir fór oft illa með varnarmenn Belga og var útnefnd besti
leikmaður vallarins af UEFA í leikslok.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði mark Íslands í og
bætti þar fyrir vítaspyrnu sem var varin frá henni í fyrri hálf-
leik. Belgar náðu að jafna úr vítaspyrnu og íslenska liðinu
tókst ekki að knýja fram sigur þrátt fyrir góð færi. »26 og 27
Morgunblaðið/Eggert
Allt galopið á EM
eftir jafntefli gegn
Belgum í fyrsta leik
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Flugfélög og flugvellir í Evrópu og
N-Ameríku glíma við manneklu og
hefur verið mikið um tafir og afbók-
anir ferða af þeim sökum.
Icelandair hefur þurft að grípa til
þess ráðs að senda eigið starfsfólk
úr landi til að aðstoða við hleðslu
flugvéla og afgreiðslu farangurs.
Hafa áhafnir jafnvel tekið málin í
sínar hendur og hlaðið og afhlaðið
vélar félagsins til að halda áætlun.
Engin röskun hefur orðið á starf-
semi Keflavíkurflugvallar og ís-
lensku flugfélögin ekki þurft að af-
boða flug í sama mæli og önnur
flugfélög. Birgir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Play, segir það m.a.
skýrast af því að íslenskir flugvellir
og flugfélög greiði hærri laun en
tíðkast á meginlandi Evrópu og eigi
því auðvelt með að manna lausar
stöður. Hann bendir á að Brexit
skýri að hluta vanda breskra flug-
valla sem reiddu sig áður á vinnuafl
frá Austur-Evrópu til að vinna sum
erfiðustu störfin.
Viðskiptamódel beggja félaga
byggir að miklu leyti á því að flytja
farþega yfir Atlantshafið með við-
komu á Keflavíkurflugvelli og getur
það reynst félögunum dýrt ef tafir
valda því að farþegar missa af tengi-
flugi. Jón Bjarnason, framkvæmda-
stjóri rekstrar hjá Icelandair, segir
það auðvelda félaginu að bregðast
við töfum að bjóða upp á flug tvisvar
á dag til margra áfangastaða. »12
Dýrt fyrir félögin
að tapa tengingu
- Icelandair sent eigið fólk úr landi