Morgunblaðið - 11.07.2022, Page 2

Morgunblaðið - 11.07.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 SAMAN Í SÓL 19. - 26. JÚLÍ CORAL LOS ALISIOS 3* SVÍTA MEÐ SUNDLAUGARSÝN VERÐ FRÁ105.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 138.500 KR. Á MANNM.V. 2 FULLORÐNA 28. JÚLÍ - 08. ÁGÚST PIERRE VACANCES 3* ÍBÚÐ MEÐ 2 HERBERGJUM VERÐ FRÁ105.900 KR Á MANN M.V. 3 FULLORÐNA OG 3 BÖRN VERÐ FRÁ 153.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS 11 D A GA R TILBOÐ TAKMARKAÐ FRAMBOÐ TENERIFE ALMERÍA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Síldarvinnslan hf. hefur fest kaup á öllu hlutafé Vísis hf. Mun Vísir þar með verða dótturfélag Síld- arvinnslunnar en hluthafar Vísis fá hlut í Síldarvinnslunni. „Við teljum að þessi sátt í sam- félaginu byggi svolítið á því að þessi fyrirtæki fari á markað. Hluthafar Vísis eru komnir með sitt fyrirtæki á markað í gegnum Síldarvinnsluna og uppbygging sameiginlegs félags er þá í bolfisk- inum hérna,“ segir Pétur Haf- steinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, í samtali við Morgunblaðið. „Við erum búnir að vera að styrkja stoðir félagsins lengi. Mið- að við þær viðmiðunarreglur sem gilda í dag um kvóta má segja að við séum að taka stórt skref,“ seg- ir Gunnþór Ingvason fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar. Miklar sveiflur á kvótanum Í tilkynningu um kaupin kom fram að útlit sé fyrir að fiskveiði- heimildir Síldarvinnslunnar verði lítillega yfir viðmiðunarmörkum. Gunnþór og Pétur telja ómögu- legt að segja til um hversu mikið heimildirnar komi til með að fara yfir viðmiðunarmörkin. „Loðnukvótinn er mjög hár núna og það er talsverð sveifla í honum. Við vinnum bara eftir þeim reglum sem gilda á hverjum tíma en það veit enginn hversu mikið þetta verður fyrr en búið er að út- hluta og svo eru ígildisstuðlarnir á mikilli hreyfingu,“ segir Pétur. Sterkt bolfisksfélag Gunnþór telur mikil tækifæri fólgin í samlegð félaganna. „Það liggur fyrir að síldarvinnslan hefur bætt við sig heimildum í bolfiski, á meðan Vísir er sterkt bolfisksfélag og lagt mikið í hátæknivinnslu í Grindavík.“ Pétur segir Grindavík bjóða upp á mikla vaxtarmöguleika. „Við er- um með staðsetninguna, nálægt útflutningshöfnum og flugvellin- um, hátæknivinnslur sem búið er að fjárfesta í og þjálfaðan mannafla.“ Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, kveðst þá í samtali við Morgunblaðið vonast til að þessi kaup verði til þess að starfsemin eflist enn frekar. Vaxtarmöguleik- ar í Grindavík - Stórt skref miðað við kvótareglur Veronika Steinunn Magnúsdóttir Steinþór Stefánsson Utanríkisráðherra segir mikilvægt að gera grein fyrir þeirri áhættu sem kann að felast í því að stunda viðskipti við ríki þar sem réttarríkið á undir högg að sækja. Aðilum sé þó frjást að eiga viðskipti þar sem þeir kjósa en ábyrgðina bera þeir sjálfir. Þetta segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra í svari við fyr- irspurn mbl.is. „Þetta er raunin um Rússland“ Í grein Þórdísar sem birtist í Sunnudagsblaðinu ritar Þórdís að við- skipti við ríki, sem byggja auð sinn fyrst og fremst á gjörnýtingu nátt- úruauðlinda, verði gjarnan til þess að festa ennþá frekar í sessi þá einstak- linga sem njóta pólitískra og efna- hagslegra valda í krafti tengsla og spillingar. „Þetta er raunin um Rússland, og afleiðingar þess að koma ekki auga á það blasa nú við,“ skrifar Þórdís. Áhættuna verði aðilar að meta sjálfir. Á móti nefnir hún að viðskipti við Suður-Kóreu og Japan hafi verið til gagns fyrir fólk í þeim ríkjum. Hún segir mikilvægt að draga af þessu lærdóm og „gera greinarmun á milli þess að eiga viðskipti við lönd sem byggja á frjálsu markaðshag- kerfi hugvitsdrifinnar nýsköpunar og þeirra þar sem atvinnulíf er bein eða óbein framlenging á stefnu ólýðræð- islegra stjórnvalda og byggist á gjör- nýtingu auðlinda eða rányrkju“. Einstaklingar verði að bera áhætt- una af viðskiptunum sjálfir. Íslenskt athafnalíf eigi möguleika sem allra víðast Spurð hvort hún sé á móti viðskipt- um við ríki sem uppfylla ekki skilyrði um mannréttindi og lýðræði, segir Þórdís: „Einstaklingum og fyrirtækjum er frjálst að eiga viðskipti þar sem þeir kjósa, að því gefnu að það stríði ekki gegn lögmætum þvingunaraðgerðum eða öðrum slíkum takmörkunum.“ Bætir hún við: „Áhættuna, sem getur falist í því að eiga viðskipti á svæðum þar sem mannréttindi eru ekki virt og réttar- ríkið er ófullkomið, verða þessir aðilar þó að bera sjálfir.“ Þórdís nefndi í grein sinni að við- skipti við Suður-Kóreu og Japan hafi verið til gagns fyrir fólk í þeim ríkj- um, eins og áður sagði. Spurð um af- stöðu hennar til viðskipta við Kína segir hún: „Almennt séð er það mín skoðun að stjórnvöld eigi ekki að leika stórt hlut- verk í því að skipuleggja viðskipti eða beina viðskiptum í tilteknar áttir um- fram aðrar. Ég tel að það sé eðlilegt markmið utanríkisstefnunnar að tryggja að íslenskt athafnalíf eigi möguleika á að eiga í sem hindrana- lausum alþjóðlegum viðskiptum sem allra víðast um heiminn.“ Áhætta en frjálst að eiga viðskipti - Utanríkisráðherra segir að fara þurfi varlega í viðskipti við ríki þar sem réttarríkið á undir högg að sækja - Viðskipti við Rússland ekki verið af hinu góða - Öðru hafi gegnt um Suður-Kóreu og Japan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viðskipti Þórdís telur stjórnvöld eiga að hafa lágmarksafskipti. Gríðarleg stemning var á EM- torginu í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar fyrsti leikur Íslands á Evr- ópumótinu í Englandi fór fram gegn Belgum. Mæting mætti teljast góð þrátt fyrir að þungskýjað væri og ljósta að landsmenn vilja ólmir styðja við bak stelpnanna okkar. Áhorfendur fögnuðu dátt þegar Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði á 50. mínútu, stuttu eftir að síðari hálfleikur hófst. Spennan magnaðist síðan að nýju þegar Belgum tókst að jafna metin. Ís- land átti fjöldan allan af færum út seinni hálfleikinn en tókst ekki að komast aftur yfir og endaði leik- urinn með jafntefli 1-1. Næsti leik- ur Íslands er gegn Ítalíu á fimmtu- dag. Rífandi stemning á EM-torginu Morgunblaðið/Kristvin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.