Morgunblaðið - 11.07.2022, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
nt
vi
llu
r.
He
im
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
slí
ku
.A
th
.a
ð
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
vva
Finnum rétta taktinn
25. ágúst í 11 nætur
með Kollu Grasa á Krít
595 1000 www.heimsferdir.is
Verð frá kr.
359.900
brún Björnsdóttir
rir
va
ra
um
pr
e
l
aaaaa Myrion Beach Hotel
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Íbúar á og í grennd við veghelgunarsvæði fyr-
irhugaðs Arnarnesvegar um Vatnsendahvarf
hyggjast kæra málið til úrskurðarnefndar um-
hverfis- og auðlindamála. Þetta staðfestir
Helga Kristín Gunnarsdóttir, sem komið hefur
fram fyrir hönd íbúasamtaka sem kalla sig Vini
Vatnsendahvarfs. Kærendur eru nú orðnir um
þrjátíu talsins.
Samtökin höfðu áður lagt fram kæru vegna
fyrirhugaðra framkvæmda, en var henni þá
vísað frá á þeim grundvelli að þau gætu ekki
talist eiga lögvarinna hagsmuna að gæta af
úrslausn málsins. Þessi kæra er því undirrituð
af mun fleiri íbúum sem búa nær framkvæmda-
svæðinu, Hollvinasamtökum Elliðarárdals og
svo Vinum Kópavogs, að sögn Helgu.
Umferðarspáin löngu sprungin
Í kærunni verður meginkrafan sú að fram-
kvæmt verði nýtt umhverfismat, en í dag á að
byggja framkvæmdirnar á umhverfismati sem
framkvæmt var fyrir nítján árum. „Einnig vilj-
um við að vegalagningin verði endurskoðuð
þannig að vegurinn verði lagður að mestu leyti
í gegnum stokk eða göng og gatnamótunum
breytt, svo þetta verði ekki ljósastýrð gatna-
mót, enda mun það ekki anna þessari umferð.“
Skipulagsstofnun hefur lýst því yfir að hún
telji sig ekki eiga rétt á því að kalla eftir nýju
umhverfismati. „Það er rangt því þeir hafa allt-
af rétt á að kalla eftir nýju umhverfismati.
Þetta mat er frá árinu 2003 og það er bara ekki
rétt að byggja svona stóra framkvæmd á
tveggja áratuga gömlu mati.“
Helga er sannfærð um að útkoman yrði önn-
ur ef framkvæmt væri nýtt umhverfismat í
dag. „Umferðarspáin í þessu eldra er löngu
sprungin. Í raun hefur Vegagerðin ekki rétt á
því að byggja þennan veg. Við teljum að ástæð-
an fyrir því að þeir vilja ekki fara í þetta nýja
umhverfismat, sé sú að þá falli niður þessar
forsendur sem þeir eru að byggja framkvæmd-
ina á.“
Það skortir allt tillit til umhverfis og íbúa, að
mati Helgu. „Það virðist ekkert mega hafa
áhrif á eða tefja þessa framkvæmd.“
Hún telur hin ýmsu atriði illa ígrunduð og
heildarmyndin hafi ekki verið skoðuð nægi-
lega. Kæran verður lögð fram í lok vikunnar
eða í þeirri næstu. Samtökin eru nú að vinna að
því að ganga frá undirskiftum og fínpússa þau
atriði sem bent er á í kærunni. Frá því að kæra
var lögð fram í fyrra skiptið hefur heilmikið
bæst við, að sögn Helgu.
Enginn sáttur nema borgarráð
„Það er enginn sáttur í dag nema borgarráð,
ég vona að nefndin sjái hve öfugsnúið þetta er.“
Helga bendir á að kostnaðaráætlun fyrir fram-
kvæmdina hljóði upp á sextíu til sjötíu millj-
arða.
„Þetta er bruðl í boði borgarinnar. Þetta er
ekki besta lausnin.“ Málsmeðferð fyrir úr-
skurðarnefndinni er jafnan þrír til fjórir mán-
uðir, að sögn Helgu. Framkvæmdir við Arn-
arnesveg eiga að hefjast strax í haust. Helga
segist ætla að reyna að fá flýtimeðferð, eða
jafnvel lögbann á framkvæmdir, uns niður-
staða liggur fyrir.
Samþykki keyrt í gegn í Kópavogi
Kolbeinn Reginsson, bæjarfulltrúi Vina
Kópavogs, hafði orð á því í viðtali við Morg-
unblaðið að hann hafi verið ósáttur við vinnu-
brögð meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs
vegna fyrirhugaðs Arnarnesvegar.
„Við vildum frest til þess að geta lesið betur
um þann gjörning áður en okkur yrði gert að
greiða um hann atkvæði, en meirihlutinn virti
þá ósk að vettugi. Þannig var samþykki keyrt í
gegn hvað varðar Kópavogshlutann.“ »8
Kæra og krefjast nýs umhverfismats
Morgunblaðið/Eggert
Vatnsendahvarf Deiliskipulag fyrir þriðja áfanga vegarins var samþykkt á fimmtudag.
- 30 að baki kærunni - Vilja skoða stokk eða göng - Óverjandi að byggja á tveggja áratuga gömlu
umhverfismati - Forsendur brostnar fyrir framkvæmdinni - Íhugar ósk um flýtimeðferð eða lögbann
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Atvik þar sem hópur ungra karl-
manna gelti á tvo karla, þar sem þeir
fögnuðu saman brúðkaupsafmæli
sínu á föstudag, vakti mikla athygli í
kjölfar umfjöllunar mbl.is um helgina.
Síðan þá hafa fleiri stigið fram og
greint frá svipuðum atvikum á sam-
félagsmiðlum.
Íris Ellenberger, dósent í sam-
félagsgreinum við Háskóla Íslands
með sérhæfingu í sögu hinseiginleik-
ans, segir bakslag í réttindabarátt-
unni hafa orðið til þess að hatur í garð
hinsegin fólks komist frekar upp á
yfirborðið en tíðkaðist fyrir nokkrum
árum. Hún segist sjálf þekkja til til-
viks þar sem gelt var á tólf ára barn
fyrir það eitt að „falla ekki að kynj-
uðum útlitsstöðl-
um“.
„Hún birtist á
alls konar hátt,
þessi stjórnun,
eða ögun, á hin-
seginleikanum.
Með fúkyrðum,
með því að upp-
nefna fólk, með
því að beita það
ofbeldi,“ segir Íris
í samtali við Morgunblaðið.
Af jaðrinum í almenna umræðu
Hún segir öfgahyggju nú sam-
þykktari en hún var og að umræðan
hafi færst af jaðrinum og inn í hina al-
mennu stjórnmálaumræðu.
„Maður sér bæði stjórnmálafólk og
ýmsa opinbera aðila tala gegn hinseg-
in fólki, sem síðan gefur öðrum leyfi
til þess að feta sömu leið,“ segir hún
og bætir við að víða sé grafið undan
réttindum hinsegin fólks. Dæmi séu
um að aðilar sem tala gegn réttindum
hinsegin fólks fái grundvöll fyrir
skoðanir sínar í fjölmiðlum í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og nú nýlega
Noregi.
„Kollegar mínir hafa meðal annars
bent á það að það að hluti af því að
skotárásin í Noregi varð að veruleika
sé að það sé samþykktara en áður að
rökræða tilvistarrétt hinsegin fólks,
sérstaklega trans fólks, og veita
þannig hinseginfóbíu ákveðið lög-
mæti. Þannig það er ýmislegt sem
þarna kemur saman. Það er almenn
íhaldssöm sveifla í gangi, sérstaklega
í hinum vestræna heimi, sem er fjand-
samleg minnihlutahópum yfir höfuð.“
„Sveifla sem er fjandsam-
leg minnihlutahópum“
- Gelt á tvo karlmenn sem fögnuðu brúðkaupsafmæli sínu
Íris
Ellenberger
Hinn ítalski Andrea Devicenzi ætl-
ar á næstu rúmu þremur vikum að
hjóla hringinn í kring um landið.
Ferðalagið er um 2.200 kílómetrar
að lengd og að mestu á fjallvegum.
Devicenzi missti annan fótinn í mót-
orhjólaslysi þegar hann var 17 ára
gamall en hefur ekki látið það
stoppa sig til þess að lífinu til fulls,
að eigin sögn, og hjálpa öðrum þar
sem hann er þjálfari. Hann hefur
ferðast um heiminn á hjóli og tekist
að vinna hin ýmsu þrekvirki, oftar
en ekki einn síns liðs.
Ferðalagið hófst á Klambratúni
klukkan 10 í gærmorgun og á kapp-
inn vægast sagt von á stóru verk-
efni, enda má vænta þess að tvisvar
sinnum erfiðara sé að hjóla með
einum fæti en tveimur. ari@mbl.is
Morgunblaðið/Kristvin
Hjólar
einfættur
um landið
Kappi Devicenzi ásamt föruneyti þegar lagt var í hann. Næstu 23 daga mun hann hjóla um landið í óspilltri náttúru.
Sex jarðskjálftar urðu í sunn-
anverðum og miðjum Mýrdals-
jökli rétt fyrir klukkan fimm í
gær. Sá stærsti reyndist 3 að
stærð klukkan 16.50, sá næst-
stærsti var af stærðinni 2,8
klukkan 16.48 en aðrir skjálftar
voru minni en 2,5 að stærð.
Í tilkyningu frá Veðurstofu Ís-
lands segir að skjálftarnir hafi
verið grunnir og líklega afleiðing
úrkomu og hlýinda. Það geti leitt
til aukins vatnsþrýstings sem
hvetur til skjálftavirkni. Engar
vísbendingar eru um óróa á
svæðinu.
„Við erum búin að vera að fá
staka skjálfta síðustu daga í Mýr-
dalsjökli í minni kantinum en
þetta eru fimm skjálftar sem
koma núna í röð temmilega stór-
ir,“ sagði
Salóme Jórunn Bernharðs-
dóttir, náttúruvársérfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands í samtali
við Morgunblaðið. anton@mbl.is
Sex jarðskjálftar
í Mýrdalsjökli