Morgunblaðið - 11.07.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
vinnuföt fást einnig í
Mikið úrval af öryggisvörum
HAGI ehf • Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414 3700 • hagi@hagi.is • hagi.is • Hagi ehf HILTI
Opið: 8-18 virka daga – 10-12 laugardaga
Í pistli hér í blaðinu á laugardag
fjallar Bergþór Ólason alþing-
ismaður um það sem hann kallar
hvalreka eftirlitsiðnaðarins. Þar
ræðir Bergþór um reglugerð-
ardrög matvælaráðherra þar sem
gert sé ráð fyrir að
„einn úr áhöfn
hvers hvalveiðiskips
verði tilnefndur
dýravelferð-
arfulltrúi og sá sæki
námskeið sem Mat-
vælastofnun sam-
þykkir um velferð
hvala og hvaða at-
riði þarf að hafa í
huga þegar þeir eru
aflífaðir og að hon-
um beri að taka upp
á myndband allt
ferlið, frá því veiði
hefst og þangað til
hvalurinn er kom-
inn upp úr bátnum
og þessum myndböndum verði síð-
an skilað til eftirlitsdýralækna
MAST,“ eins og matvælaráðherra
orðaði það. Og á næsta ári er ætl-
unin að ganga enn lengra og hafa
„eftirlitsdýralækna“ um borð í
hvalveiðiskipum!
- - -
Bergþór segir ljóst að meg-
inmarkmið matvælaráðherra
sé að „þyngja róður hvalveiða
þannig með eftirlitsiðnaði að þær
hreinlega leggist af á endanum,
jafnvel strax eftir tvö ár.“
- - -
Hann bendir einnig á að nái
þessi áform fram að ganga þá
geti hvað sem er orðið eftirlitsiðn-
aðinum að bráð næst. „Kostnaður-
inn eykst, báknið stækkar og þau
lífsgæði sem felast í því að fólki sé
treyst til að sinna ýmist vinnu sinni
af heilindum eða öðrum hugð-
arefnum í frístund eiga undir högg
að sækja frá vinstri,“ segir Berg-
þór.
- - -
Full ástæða er til að taka undir
þær áhyggjur.
Bergþór
Ólason
Hvalræði?
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kötlusetur í Vík í Mýrdal fagnaði því
um helgina að 50 ár væru liðin frá
því að Bandaríkjamaðurinn Bobby
Fisher og hinn sovéski Boris
Spasskí mættust við taflborðið í Ein-
vígi aldarinnar. Um er að ræða opn-
un á sýningu tileinkuðu einvíginu.
Við opnunina ávarpaði Guð-
mundur G. Þórarinsson, þáverandi
formaður Skáksambands Íslands og
framkvæmdastjóri einvígsins, gesti
sagði nokkur orð um upphaf skák-
listarinnar. Þá var brjóstmynd af
Fisher afhjúpuð auk þess sem grísk-
ir tónlistarmenn af svæðinu léku
tónlist fyrir gesti.
Hinn spænski Albert Cañagueral
lýsti sinni reynslu af einvíginu en
hann vann hér á landi í fiski sam-
hliða blaðamennskunámi í heima-
landinu en hann greindi frá einvíg-
inu í spænskum blöðum. Cañagueral
sér um sýninguna ásamt Kötlusetri.
Hið fyrsta hraðskákmót Kötluset-
urs fór síðan fram þar sem keppt var
í barna, unglinga og fullorðinsflokki,
unnið í samvinnu við Skákskóla Ís-
lands. „Þetta var frábært og það
komust eiginlega færri að en vildu.
Fólk tefldi við gamla bátinn í Skaft-
fellingsbúð,“ segir Harpa Elín Har-
aldsdóttir, forstöðumaður Kötluset-
urs, sem vonar að þetta verði
árlegur viðburður. ari@mbl.is
„Þetta verður vonandi árlegt“
- Skákmót og sýning á 50 ára afmæli
Einvígis aldarinnar - Mikil stemning
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mát Keppt var í þremur aldurs-
flokkum við gamla bátinn.
Baráttu Vina Kópavogs, sem snýr að
uppbyggingu í Hamraborg, er hvergi
nærri lokið þrátt fyrir úrskurð úr-
skurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála. Vinir Kópavogs kærðu,
ásamt nánar tilgreindum fasteigna-
eigendum, framkvæmdir þær sem
fyrirhugaðar eru í Hamraborginni í
Kópavogi. Nefndin vísaði frá kæru
Vina Kópavogs, á grundvelli aðild-
arskorts, en tók málið engu að síður
til efnislegrar meðferðar enda var
fallist á að hinir tilgreindu fasteigna-
eigendur ættu lögvarinna hagsmuna
að gæta af úrlausn þess. „Úrskurð-
arnefndin segir að þegar fram-
kvæmdum verður lokið, standist allt
sem varðar aðgengismál fatlaðra, en í
úrskurðinum er hvergi tekin afstaða
til framkvæmdatímans,“ segir Kol-
beinn Reginsson, bæjarfulltrúi Vina
Kópavogs og einn kærenda.
Hann telur að uppbygging hús-
næðis, líkt og þess sem áformað er í
Hamraborginni, taki fimm til tíu ár,
enda sé þar gert ráð fyrir 130 íbúðum
og svæðið skilgreint sem þróun-
arreitur. Á meðan þurfi að tryggja
fötluðum íbúum aðgengi að húsnæði
sínu með bílastæðum sem megi ekki
vera lengra frá en 25 metra.
Í höndum framkvæmdaaðila
Í úrskurðinum setur nefndin það í
hendur framkvæmdaaðilanna að
leggja fram tillögur fyrir bæj-
arstjórn, um það hvernig megi leysa
úr þessum aðgengisvanda fatlaðs
fólks, meðan á framkvæmdum stend-
ur. Kolbeinn kveðst hafa fulla ástæðu
til þess að ætla að framkvæmdaað-
ilarnir reyni að koma fram með ólög-
legar tillögur, enda séu hér miklir
fjárhagslegir hagsmunir í húfi. tho-
rab@mbl.is
Efast um að lögleg-
ar tillögur berist
- Vantar afstöðu til
aðgengis fatlaðra á
framkvæmdartíma
Morgunblaðið/Hari
Kópavogur Horft niður Kringlu-
mýrarbraut undir Hamraborg.