Morgunblaðið - 11.07.2022, Side 12

Morgunblaðið - 11.07.2022, Side 12
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ekkert lát er á vandræðum flugfélaga og flugvalla í Norður-Ameríku og Evrópu og reglulega berast fréttir sem sýna langar biðraðir í flug- stöðvarbyggingum og heilu breið- urnar af töskum sem ekki komust á áfangastað á réttum tíma. Mannekla, verkföll og tæknilegir örðugleikar hafa valdið alls kyns töfum og erfið- leikum með tilheyrandi tjóni fyrir flugfélögin sem sitja uppi með kostn- aðinn af niðurfellingu fluga og greiðslu bóta til óánægðra farþega. Í Bandaríkjunum sá t.d. flugfélagið Delta sig knúið til að fella niður 50 flugferðir á dag frá Newark-flugvelli en þar hefur þjónustan raskast vegna skorts á flugumferðarstjórum. Í síð- ustu viku varð verkfall flugmanna til þess að SAS neyddist til að aflýsa um það bil helmingi flugferða og bæði lággjaldaflugfélögin EasyJet og Ryanair sjá fram á hrinu verkfalla í sumar. Vegna mönnunarvanda ákvað British Airways fyrr í þessum mánuði að fella niður 10.300 flugferðir á tíma- bilinu ágúst til október og hefur flug- félagið þá fellt niður um það bil 30.000 ferðir á þessu ári eða um 13% af fyrir- huguðum ferðum. Af flugvöllum Evrópu þykir ástandið einna verst á Heathrow og Schiphol en mikil mannekla hefur valdið því að báðir flugvellirnir hafa þurft að biðja flugfélög að fækka komum flugvéla svo að starfsfólk ráði betur við álagið. Þarf að ráða, þjálfa og gera öryggisúttekt Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir vandann margþættan. „Í Bandaríkj- unum voru t.d. nýverið gerðar breyt- ingar á reglugerð í þá veru að til að mega vinna við farþegaflutninga þurfa flugmenn að eiga að baki að lág- marki 1.500 flugtíma í stað 1.000 áður og torveldar þetta nýliðun í flug- mannastétt. Þegar kórónuveirufar- aldurinn hófst ákváðu margir eldri flugmenn vestanhafs að hætta störf- um fyrr en þeir hefðu ella gert, og sjá flugfélögin nú fram á mikinn vanda við að krafsa sig út úr skorti á flug- mönnum. Skyndilega er allt komið á fulla ferð og þarf að gera með miklum hraði eitthvað sem áður hefði verið nokkurra ára ferli,“ segir hann. „Meira að segja þeir flugmenn sem enn eru starfandi þurfa ákveðna þjálf- un áður en þeir fara aftur í loftið eftir langt hlé og hjá stóru flugfélögunum þar sem starfa margar þúsundir flug- manna er það ekki eitthvað sem ger- ist bara á einni viku.“ Birgir segir vanda flugvallanna í Evrópu m.a. stafa af því að flugvallar- starsfólkið sem missti vinnuna í upp- hafi faraldursins virðist hafa tak- markaðan áhuga á að snúa aftur, en nýja starfsmenn þarf að þjálfa frá grunni og láta þá gangast undir öryggisúttekt. Hann bætir við að störf á flugvöllum á meginlandi Evr- ópu þyki alla jafna ekki mjög vel laun- uð og kalli iðulega á að vinna vakta- vinnu sem nær yfir alla daga ársins og alla tíma sólarhringsins. Þá sé oft langt fyrir fólk að sækja vinnuna enda flugvellirnir fjarri þéttbýli, og gott framboð af lausum störfum annars staðar. „Í Bretlandi er ástandið sérstak- lega slæmt út af Brexit því þar var það iðulega fólk frá fátækari löndum Evópu sem vann líkamlega erfiðustu störfin á flugvöllunum. Margt af þessu fólki er núna horfið á brott og gæti ekki komist aftur til Bretlands þótt það vildi.“ Félögunum dýrt ef tengingin í Keflavík gengur ekki upp Engin röskun hefur orðið á starf- semi Keflavíkurflugvallar og segir Birgir að hjálpi eflaust að laun þar eru hærri en gengur og gerist á flug- völlum Evrópu. Þá greiði íslensku flugfélögin há laun og eigi ekki í nein- um vanda með að fá erlenda flugmenn og flugþjóna til starfa ef þess þarf. Vandræðin á flugvöllum erlendis hafa þó óneitanlega sett strik í reikninginn hjá Play og segir Birgir að Dyflinar- flugvöllur hafi einkum verið flugfélag- inu til ama. „Við höfum farið betur út úr þessu ástandi en mörg flugfélög á meginlandi Evrópu og ekki staðið fyr- ir jafn svakalegum niðurfellingum á flugi,“ segir Birgir. „Hins vegar er eins og meira sé um klaufaleg mistök en áður, t.d. þar sem það gerist að búnaður og farartæki nuddast utan í flugvélar, með tilheyrandi skemmd- um og töfum.“ Þá kunna tafirnar að vera hlutfalls- lega dýrari fyrir íslensku flugfélögin enda byggja þau viðskiptamódel sitt að miklu leyti á að ferja fólk yfir Atl- antshafið með viðkomu í Keflavík. Segir Birgir að það geti þá gerst að ef t.d. vél seinkar frá París verði að seinka brottför vélar frá Keflavík til Bandaríkjanna. „Og ef ekki er hægt að láta vélarnar bíða til að láta teng- inguna ganga upp þarf stundum að tryggja ferðalöngum gistingu og uppihald og greiða bætur sem geta verið á bilinu 300 til 600 evrur á hvern farþega. Getur það því orðið mjög dýrt ef áætlunin raskast,“ útskýrir Birgir en bætir við að samkvæmt nýj- ustu tölum mælist stundvísi Play 80% en stundvísi Icelandair í kringum 70%. „Þetta eru ágætistölur og ekki eins og allt sé í kaldakoli.“ Hafa sent fólk út til að aðstoða við hleðslu Jens Bjarnason, framkvæmda- stjóri rekstrar hjá Icelandair, segir ástandið misslæmt eftir flugvöllum en víða hafi fluggeirinn þurft að takast á við bratta aukningu í eftirspurn á mjög skömmum tíma. „Það er hins vegar ekki hægt að segja að ríki neyðarástand og hefur okkur t.d. tek- ist að halda ágætisreglu á komum og brottförum okkar véla frá Schiphol. Við höfum fundið fyrir töfum í Man- chester og Dyflinni en þar sem flugið þaðan til Keflavíkur tekur skemmri tíma þá hefur leiðakerfið í heild sinni ekki verið viðkvæmt fyrir þeirri rösk- un,“ segir Jens og bætir við að í sum- um tilvikum hafi Icelandair þurft að grípa til þess ráðs að senda eigið starfsfólk til að aðstoða við hleðslu flugvéla og afgreiðslu farangurs. Þá hafi áhafnir á flugum sem lent hafa í seinkunum stundum tekið málin í sín- ar hendur og hlaðið og afhlaðið vél- arnar á flugvöllum erlendis. Icelandair flýgur í dag frá Reykja- vík og Keflavík til 27 áfangastaða í Evrópu, 15 staða í Bandaríkjunum og Kanada, fjögurra bæja á Grænlandi og þriggja á Íslandi. Segir Jens að fjöldi flugferða hjá félaginu sé nú um 80% af því sem var fyrir kórónuveiru- faraldur og bókunarstaðan mjög góð en nýjar tengingar við Róm og Nice hafa fengið góðar viðtökur. Hann segir flugfélagið forðast það í lengstu lög að farþegar missi af teng- ingum, bæði vegna þeirra óþæginda og kostnaðar sem því fylgir, en einnig vegna þess að gististaðir á SV-horn- inu eru nánast uppbókaðir svo að væri nær ómögulegt að finna laus herbergi fyrir fulla vél af farþegum. „Það hjálpar okkur að vera með flug tvisvar á dag til margra staða; þar sem fyrsta hollið flýgur frá Keflavík á milli 7 og 8 á morgnana, og svo annað holl þremur tímum síðar, og því oft hægt að færa fólk í flug seinna um daginn ef seinkun á einum fluglegg raskar tengingum. En við lentum samt í því um daginn að svo mikil seinkun varð á flugi, og útilokað að finna gistingu fyrir farþega á leið vestur um haf, að við þurftum að taka á okkur verulega röskun á öllu okkar kerfi til að koma öllum á áfangastað.“ Útlit er fyrir áframhaldandi basl út sumarið en Jens segir flugvelli og flugfélög vera smám saman að ná tök- um á vandanum. „Í lok sumars verður búið að þjálfa og öryggisvotta mikið af nýju fólki og á sama tíma mun draga úr eftirspurn og ætti ástandið þá að lagast.“ „Dýrt ef áætlunin raskast“ AFP Ami Beðið í röð á flugvelli í BNA. Ferðasumarið hefur byrjað með látum og bæði flugvellir og flugfélög átt erfitt með að ráða við álagið. Hægt gengur að manna stöður og tekur tíma að þjálfa og öryggisvotta nýja starfsmenn. - Icelandair hefur sent starsfólk út til að aðstoða við afgreiðslu farangurs - Brexit eykur á mönnunar- vanda breskra flugvalla - Hægara sagt en gert að finna laus hótelherbergi fyrir strandaða farþega Jens Bjarnason Birgir Jónsson 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi, rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL 11. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 137.26 Sterlingspund 164.92 Kanadadalur 105.67 Dönsk króna 18.744 Norsk króna 13.593 Sænsk króna 13.078 Svissn. franki 140.72 Japanskt jen 1.0105 SDR 180.95 Evra 139.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.7162

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.