Morgunblaðið - 11.07.2022, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
K 7 Compact
Háþrýstidæla
Sumarverð
69.990 kr.
Stjórnvöld Írans vörpuðu um
helgina ljósi á nýja tækni í auðg-
unarferli úrans í landinu, en stjórn-
völd halda nú ótrauð áfram kjarn-
orkustefnu sinni og fresta sífellt
tilraunum Vesturlanda á samningi
um kjarnorkumál landsins frá árinu
2015.
Umræddur samningur felur í sér
ákveðin takmörk á auðgun úrans í
Íran og að hún haldist undir 3,67%,
en í janúar árið 2021 greindi Íran frá
því að nýting í kjarnorkuveri í land-
inu væri komin yfir 20% og örfáum
mánuðum síðar hafði annað íranskt
kjarnorkuver náð 60% auðgun. Í Te-
heran hefur ríkisstjórnin ætíð neitað
sök og segir Íran ekki stunda til-
raunir til framleiðslu á kjarnorku-
sprengju, en til þess þarf 90% auðg-
un. Nýjar aðferðir munu auðvelda
Íran auðgunarferlið á úran og mun
hagnýting frumefnisins ná nýjum
hæðum.
Rafael Mariano Grossi, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar, staðfesti þetta í
nýjustu skýrslu sinni til Sameinuðu
þjóðanna og greindi frá því að þess-
ar breytingar á auðgunarferlinu
hefðu átt sér stað í kjarnorkuveri
sem liggur suður af höfuðborginni
Teheran.
Joe biden, forseti Bandaríkjanna,
segir að meginerindi sitt í heimsókn-
um sínum til Ísrael og Sádi-Arabíu í
vikunni verði endurvakning á samn-
ingnum, en árið 2018 gengu Banda-
ríkin úr samningnum. Íran gekk út í
beinu framhaldi, en þótt landið hafi
undanfarið sýnt áhuga á inngöngu
og átt í viðræðum við eftirstandandi
aðildarlönd, þá hafa engar tilraunir
til samninga gengið eftir.
AFP
Kjarnorkuveldi? Bandaríkin og
Íran gengu úr samkomulaginu.
Íran færist nær
kjarnavopnum
- Nýjar aðferðir við auðgun úrans
Stjórnvöld í Portúgal hafa sett á
„viðbúnaðarástand“ í kjölfar bar-
áttu við skógar- og gróðurelda á
norðurhluta landsins í gær. Um
1.500 slökkviliðsmenn börðust við
eldana sem hafa logað á nokkrum
svæðum í Portúgal síðan á fimmtu-
dag, en þeir koma í kjölfar mikillar
hitabylgju í landinu. Eldarnir hafa
eyðilagt að minnsta kosti tvö hús,en
á annan tug slökkviliðsmanna og
um 20 almennir borgarar hafa slas-
ast vegna þeirra. Flestir hafa feng-
ið aðhlynningu á staðnum.
PORTÚGAL
Skógareldar eftir
mikla hitabylgju
AFP
Barátta Um 1.500 slökkviliðsmenn
börðust við skógarelda í Portúgal.
Alls voru nítján skotnir til bana á
tveimur krám í Suður-Afríku um
helgina.
Í Soweto-bæ skammt frá Jóhann-
esarborg létust 12 í skotárásum á
laugardagskvöld í kjölfar þess að
árásármenn komu keyrandi á
smárútu og hófu skothríð á kráar-
gesti.
Ellefu voru fluttir á spítala en
þrír þeirra létu þar lífið. Svo virðist
vera sem fórnarlömb hafi verið val-
in af handahófi.
Í Pietermaritzburg í austurhluta
landsins voru fjórir skotnir til bana
og átta særðir eftir að tveir menn
gengu inn á bar og skutu tilvilj-
unarkennt að viðskiptavinum áður
en þeir flúðu vettvang.
Árásirnar eiga sér stað aðeins
tveimur vikum eftir að 21 ung-
menni lést á dularfullan hátt í öld-
urhúsi í borginni Austur-London í
suðurhluta landsins. Líklegt þykir
að um einhvers konar eitrun hafi
þar verið að ræða.
SUÐUR-AFRÍKA
Nítján látnir eftir
skotárásir á krár
Mótmælendur gerðu á laugardag
ákaft áhlaup á aðseturstað Gotabaya
Rajapaksa, forseta Sri Lanka, og
neita að víkja þaðan. Forsetinn hefur
tilkynnt að hann muni segja af sér
embættinu á miðvikudag, en hann
flúði heimili sitt á suðurhluta eyjunn-
ar á laugardag með skipi sjóhersins í
kjölfar áhlaupsins.
Atburðarás helgarinnar var ákveð-
inn hápunktur margra mánaða mót-
mæla í landinu, en íbúar hafa lengi
sýnt gremju sína vegna efnahags-
kreppu í landinu og spillingu Raja-
paksa-ættarinnar. Hundruð þúsunda
manna söfnuðust saman fyrir utan
forsetahöllina um helgina og kröfðust
þess að Rajapaksa tæki ábyrgð á
skorti á lyfjum, mat og eldsneyti í
landinu. Ósáttir íbúar réðust inn í
höllina á meðan hópur aðgerðasinna
hengdi upp mynd af Rajapaksa við
klukkuturn nálægt höllinni í mót-
mælaskyni. Óhætt er að segja að mót-
mælendur hafi leyft sér að láta eins og
heima hjá sér í höllinni á sunnudag,
en margir fóru í gegnum föt forsetans
og fjöldi barna gerði sér þann leik að
snúa sér í forsetastólnum.
Hershöfðingi biður um ró
Aðgerðasinnar í Sri Lanka mót-
mæltu einnig öðrum í ríkisstjórninni
yfir helgina, en kveikt var í aðsetri
Ranil Wickremesinghe forsætisráð-
herra jafnvel eftir að hann bauðst til
að segja af sér. Lögreglan handtók
þrjá menn í tengslum við íkveikjuna í
gær.
Öryggissveitir reyndu að dreifa
mannfjöldanum á laugardag og olli
það talsverðum átökum.
105 manns voru fluttir á spítala í
kjölfar mótmælanna og einn var al-
varlega særður af skoti. Eftir mið-
nætti á laugardag gaf æðsti herfor-
ingi Sri Lanka, Shavendra Silva, út
yfirlýsingu í sjónvarpi og bað fólk um
að sýna ró „til að hægt sé að leysa
kreppuástandið á friðsamlegan og
stjórnarskrárbundinn hátt“.
Fá ekki björgun vegna umróts
Ríkisstjórn Sri Lanka hefur ekki
staðið í skilum með erlendar skuldir
sínar að andvirði 51 milljarðs banda-
ríkjadala og hefur beðið um björgun
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðinum, en
stofnunin kvaðst í gær fyrst vonast
eftir lausn á núverandi ástandi sem
geri þeim kleift að hefja viðræður að
nýju.
Antony Blinken, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að tak-
markanir Rússa á útflutningi úkra-
ínsks korns og verðhækkunin í kjöl-
farið „kynnu að hafa stuðlað að
efnahagslegu umróti á Sri Lanka“.
gsa@mbl.is
Yfirtóku forsetahöllina
- Neita að yfirgefa höllina á Sri Lanka - Mótmæla efnahagskreppu og spillingu
- Forseti flúði með flotaskipi - Mótmælendur kveiktu í aðsetri forsætisráðherra
AFP
Mótmæli Forsetinn flúði höllina á
laugardag vegna mótmæla.
Að minnsta kosti 15 manns létu lífið
í loftárásum rússneska hersins á
fjölbýlishús í bænum Tjasív Jar í
austurhluta Úkraínu í gær.
„Í björgunaraðgerðunum fund-
ust 15 manns látin og fimm manns
var bjargað undan rústunum,“ seg-
ir í tilkynningu frá viðbragðs-
aðilum á svæðinu.
Pavló Kírílenkó ríkisstjóri Dó-
netsk sagði á samkiptamiðlinum
Telegram að í það minnsta 30 aðrir
væru undir rústum fimm hæða
byggingarinnar.
Rússar notuðu Úragan-flugskeyti
í árásinni sem eyðilagði fjölbýlis-
húsið að hluta til. Rússar hafa eytt
miklu púðri í að ráðast á Lúgansk-
héraðið en beina nú spjótum sínum
að Dónetsk-héraði, en saman
mynda þau Donbas-svæðið.
Rússar halda áfram árásum sínum á almenna borgara í Úkraínu
15 létu lífið í
loftárásum á
fjölbýlishús
AFP