Morgunblaðið - 11.07.2022, Side 26

Morgunblaðið - 11.07.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2022 Besta deild karla KA – ÍBV................................................... 4:3 Víkingur – ÍA............................................ 3:2 Staðan: Breiðablik 12 10 1 1 35:12 31 Víkingur R. 12 8 1 3 28:18 25 KA 12 6 3 3 20:16 21 Stjarnan 11 5 5 1 21:14 20 Valur 11 6 2 3 20:15 20 KR 12 4 4 4 16:19 16 Keflavík 11 4 2 5 19:20 14 FH 11 2 4 5 16:19 10 Fram 11 2 4 5 20:29 10 ÍA 12 1 5 6 13:25 8 Leiknir R. 11 1 4 6 8:17 7 ÍBV 12 0 5 7 12:24 5 Lengjudeild karla Grindavík – Grótta ................................... 3:1 Kórdrengir – Þróttur V. .......................... 1:0 Vestri – HK............................................... 3:3 KV – Selfoss.............................................. 1:2 Fjölnir – Afturelding................................ 2:1 Fylkir – Þór............................................... 4:0 Staðan: Fylkir 11 6 3 2 30:12 21 Selfoss 11 6 3 2 23:14 21 Grótta 11 6 1 4 24:15 19 HK 10 6 1 3 20:15 19 Grindavík 11 4 5 2 18:13 17 Fjölnir 11 5 2 4 22:20 17 Kórdrengir 11 4 4 3 15:14 16 Vestri 11 4 4 3 18:25 16 Afturelding 11 3 4 4 15:16 13 Þór 11 3 2 6 16:23 11 KV 11 2 1 8 14:27 7 Þróttur V. 10 0 2 8 2:23 2 2. deild karla KFA – Reynir S........................................ 4:0 Staðan: Njarðvík 11 10 1 0 39:8 31 Ægir 11 8 1 2 21:13 25 Þróttur R. 11 8 1 2 19:11 25 Völsungur 11 5 3 3 23:17 18 Haukar 11 4 4 3 14:12 16 KFA 11 4 3 4 21:19 15 ÍR 11 4 2 5 16:19 14 KF 11 2 5 4 19:24 11 Víkingur Ó. 11 2 3 6 16:22 9 Höttur/Huginn 11 2 3 6 12:20 9 Magni 11 1 3 7 9:29 6 Reynir S. 11 1 1 9 10:25 4 3. deild karla KH – Kormákur/Hvöt.............................. 1:3 Víðir – Kári ............................................... 2:2 ÍH – Sindri ................................................ 1:3 KFG – Elliði.............................................. 7:2 Vængir Júpíters – KFS ........................... 3:6 Augnablik – Dalvík/Reynir...................... 1:2 Staðan: KFG 11 7 2 2 26:14 23 Víðir 11 6 3 2 24:13 21 Sindri 11 6 3 2 25:16 21 Dalvík/Reynir 11 6 1 4 23:19 19 Kári 11 5 2 4 20:18 17 Elliði 11 5 2 4 21:20 17 KFS 10 5 0 5 19:23 15 Kormákur/Hvöt 11 4 2 5 20:22 14 Augnablik 10 3 3 4 13:18 12 Vængir Júpiters 11 3 1 7 19:28 10 ÍH 11 3 0 8 25:30 9 KH 11 2 1 8 11:25 7 2. deild kvenna Sindri – Fram ........................................... 0:1 Grótta – Völsungur .................................. 2:3 Staðan: Fram 7 7 0 0 21:2 21 ÍR 7 5 2 0 22:8 17 Grótta 7 4 2 1 29:7 14 Völsungur 6 4 2 0 16:5 14 Álftanes 8 3 1 4 17:19 10 ÍA 5 3 0 2 15:9 9 Sindri 8 3 0 5 13:22 9 KH 4 2 1 1 14:8 7 ÍH 6 1 1 4 11:27 4 Einherji 5 1 0 4 4:11 3 Hamar 6 0 1 5 7:22 1 KÁ 7 0 0 7 5:34 0 Noregur Bodö/Glimt – Sarpsborg ........................ 4:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Lilleström – Viking ................................. 0:1 - Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á hjá Lilleström á 86. mínútu. - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson kom inn á eftir 65 mínútna leik. Molde – Tromsö ....................................... 5:1 - Björn Bergmann Sigurðarson hjá Molde er frá keppni vegna meiðsla. Strömsgodset – Odd................................ 0:0 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset. Vålerenga – Kristiansund ...................... 3:0 - Brynjar Ingi Bjarnason var varamaður hjá Vålerenga og kom ekki við sögu. - Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 62 mínúturnar með Kristiansund. Staða efstu liða: Molde 14 9 3 2 28:13 30 Lillestrøm 14 9 3 2 27:13 30 Viking 15 7 4 4 26:18 25 Bodø/Glimt 13 6 4 3 28:18 22 Rosenborg 13 5 6 2 23:17 21 Strømsgodset 14 6 3 5 20:21 21 Hvíta-Rússland Minsk – BATE Borisov ........................... 2:2 - Willum Þór Willumsson var ekki í leik- mannahópi BATE. 50$99(/:+0$ KA – ÍBV 4:3 0:1 José Sito 6. 1:1 Ívar Örn Árnason 12. 2:1 Nökkvi Þeyr Þorisson 18. 2:2 José Sito 21.(v) 2:3 Halldór J. S. Þórðarson 45. 3:3 Daníel Hafsteinsson 56. 4:3 Elfar Árni Aðalsteinsson 76. M Ívar Örn Árnason (KA) Hrannar Björn Steingrímsson (KA) Andri Fannar Stefánsson (KA) Nökkvi Þeyr Þórisson (KA) Elfar Árni Aðalsteinsson (KA) Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV) Atli Hrafn Andrason (ÍBV) Halldór J. S. Þórðarson (ÍBV) José Sito (ÍBV) Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Dómari: Þorvaldur Árnason – 8. Áhorfendur: Um 450. VÍKINGUR R. – ÍA 3:2 1:0 Logi Tómasson 13. 2:0 Viktor Örlygur Andrason 20. 2:1 Ingi Þór Sigurðsson 67. 3:1 Erlingur Agnarsson 71. 3:2 Ingi Þór Sigurðsson 87. MM Logi Tómasson (Víkingi) Ingi Þór Sigurðsson (ÍA) M Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Ari Sigurpálsson (Víkingi) Benedikt V. Warén (ÍA) Árni Snær Ólafsson (ÍA) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7. Áhorfendur: 521. BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sex stig skilja að Breiðablik og Vík- ing á toppi Bestu deildar karla eftir sigur Víkings á Skagamönnum, 3:2, á laugardaginn. Eftir tólf umferðir af 27 er það í raun sáralítill munur og nýja keppnisfyrirkomulagið þýðir að liðin eiga enn eftir að mætast tvisvar í deildinni áður en yfir lýkur. Víkingar hafa nú unnið fimm leiki í röð í deildinni síðan þeir töpuðu fyrir Blikum í maí, auk tveggja bikarleikja og tveggja Evrópuleikja. Á sama tíma hafa Blikar tapað fimm stigum og bilið á milli liðanna því minnkað smám saman. Leikur liðanna á Kópavogsvelli 15. ágúst kemur til með að ráða gríðarlega miklu um framhaldið eftir það. _ Varamaðurinn Ingi Þór Sigurðs- son skoraði bæði mörk Skagamanna sem eru nú án sigurs í 10 leikjum í röð í deildinni, eða síðan þeir unnu Víkingana óvænt í 2. umferð 24. apríl. _ Erlingur Agnarsson skoraði sögulegt mark fyrir Víkinga þegar hann kom þeim í 3:1 því það var þeirra þúsundasta mark í efstu deild frá upphafi. _ Logi Tómasson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Víking. Það er fyrsta mark hans af fjórum í deildinni sem hann skorar gegn öðru liði en Val. _ Pablo Punyed, miðjumaður Vík- ings, lék sinn 200. leik í deildakeppni hér á landi. Án sigurs í 12 leikjum KA vann sinn fyrsta sigur í sex leikjum þegar botnlið ÍBV varð að sætta sig við 4:3 ósigur á Akureyri á laugardaginn, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 3:2. KA er því komið í þriðja sætið á ný þrátt fyrir litla stigasöfnun að undanförnu. Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði sigurmarkið eftir glæsilega útfærða skyndisókn og sendingu Hallgríms Mar Steingrímssonar. Tveir marka- hæstu menn KA í deildinni frá upp- hafi sem þar áttu hlut að máli. _ José Sito skoraði tvö mörk fyrir ÍBV á fyrstu 20 mínútunum en fór meiddur af velli í fyrri hálfleik. _ ÍBV hefur nú ekki unnið neinn af fyrstu 12 leikjum sínum og útlitið er orðið dökkt. Samt eru aðeins þrjú stig í að komast upp fyrir Skagamenn og úr fallsæti. _ Jón Ingason varnarmaður ÍBV lék sinn 100. leik í efstu deild. Víkingar saxa á forskot Blika Morgunblaðið/Kristvin Guðmundsson Fossvogur Víkingurinn Birnir Snær Ingason á fleygiferð í átt að marki Skagamanna í fimm marka viðureign liðanna á laugardaginn. - Erlingur skoraði þúsundasta markið EM 2022 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hafi einhverjir efast um styrk franska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu fyrir Evrópumótið á Eng- landi þá dugði væntanlega fyrri hálfleikurinn gegn Ítölum í Rother- ham í gærkvöld til að sannfæra flesta um að Frakkar væru með eitt af bestu liðunum í keppninni. Staðan var 2:0 eftir 12 mínútur og 5:0 í hálfleik og dagskránni var þá einfaldlega lokið. Miðjumað- urinn Grace Geyoro, fyrirliði París SG sem skoraði gegn Breiðabliki á Kópavogsvellinum í Meistaradeild- inni síðasta haust, skoraði þrennu í fyrri hálfleiknum. Þær Marie- Antoinette Katoro og Delphine Cascarino gerðu sitt markið hvor. Þrennan hjá Geyoro er líka sögu- leg því hún er sú fyrsta sem er skoruð í fyrri hálfleik í sögu úr- slitakeppni EM. Varamaðurinn Martina Piemonte náði að koma Ítölum á blað með marki á 76. mín- útu og lokatölur urðu 5:1. Hvort þessi úrslit komi Íslandi að einhverju leyti til góða mun tím- inn leiða í ljós. Ítalska liðið mun ef- laust vilja sýna sig og sanna eftir þessa útreið þegar það mætir Ís- landi í lykilleik riðilsins í Manchest- er á fimmtudaginn en markatala í leikjum Ítala, Belga og Íslendinga við Frakka gæti ráðið úrslitum í riðlinum, endi innbyrðis leikir lið- anna þriggja allir með jafntefli. Allt jafnt í C-riðlinum Komist Ísland áfram í átta liða úrslitin bíður mótherji úr C- riðlinum, og þar er allt í járnum eftir tvo jafnteflisleiki á laugardag- inn. Holland og Svíþjóð eru þó eftir sem áður langlíklegust til að enda í tveimur efstu sætunum en þau skildu jöfn, 1:1, í Sheffield. Jonna Andersson kom Svíum yfir á 36. mínútu en Jill Roord jafnaði fyrir Hollendinga á 52. mínútu og nokkuð sanngjarnt jafntefli varð niðurstaðan. Portúgal og Sviss gerðu jafntefli, 2:2, á velli kvennaliðs Manchester United í bænum Leigh. Sviss var komið í 2:0 eftir fjórar mínútur með mörkum frá Coumba Sow og Rachel Kiwic og virtist stefna í auðveldan sigur. Portúgalir tóku hins vegar völdin í seinni hálf- leik, Diana Gomes og Jessica Silva jöfnuðu metin og portúgalska liðið var nær sigri. Frakkar eru ógnarsterkir - Skoruðu fimm í fyrri hálfleik gegn Ítölum - Söguleg þrenna hjá Geyoro AFP/Franck Fife Þrenna Grace Geyoro í þann veginn að skora fjórða mark Frakka í gær. _ Cecilía Rán Rúnarsdóttir landsliðs- markvörður í knattspyrnu fingurbrotn- aði á æfingu íslenska landsliðsins í Crewe á föstudaginn og verður ekki með því á EM. Auður Scheving, mark- vörður úr Val sem hefur verið í láni hjá Aftureldingu og áður með ÍBV, var köll- uð út á laugardaginn og kom inn í hóp- inn í stað Cecilíu. _ Óttar Magnús Karlsson er á ný orð- inn markahæsti leikmaður bandarísku B-deildarinnar í knattspyrnu eftir að hann skoraði tvö marka Oakland Ro- ots í 3:3 jafntefli gegn Sacramento Republic í fyrri- nótt. Óttar hefur nú skorað 13 mörk í 17 leikjum á tíma- bilinu og fór upp- fyrir Milan Iloski sem hefur skoraði 12 mörk fyrir Or- ange County. _ Þorleifur Úlfarsson skoraði sitt þriðja mark í bandarísku MLS- deildinni í knattspyrnu í fyrrinótt. Hann kom inn á sem varamaður og skoraði fyrra mark Houston í 2:2 jafn- tefli gegn Dallas á heimavelli. _ Fylkir komst á topp 1. deildar karla í fótbolta á laugardag með 4:0 sigri á Þór þar sem mörkin komu öll á síðustu 20 mínútunum. Benedikt Daríus Garðarsson og Óskar Borgþórsson skoruðu tvö þau fyrstu og Nikulás Val Gunnarsson bætti tveimur við undir lokin. Selfoss er jafn Fylki að stigum á toppnum eftir 2:1 útisigur á KV. Gary Martin skoraði sigurmarkið á 80. mín- útu en áður hafði Ingvi Rafn Ósk- arsson skoraði fyrir Selfoss og Einar Már Þórisson fyrir KV. Grindavík skaut Gróttu af toppnum með 3:1 sigri. Tómas Leó Ásgeirsson og Kenan Turudija skoruðu fyrir Grindavík, auk sjálfsmarks, en Kjartan Kári Halldórsson skoraði mark Gróttu. HK er með fæst töpuð stig í 1. deild- inni þrátt fyrir 3:3 jafntefli gegn Vestra á Ísafirði en Kópavogsliðið missti niður tveggja marka forskot. Stefán Ingi Sig- urðarson og Ívar Örn Jónsson skor- uðu fyrir HK, auk sjálfsmarks, en Nicolaj Madsen, Daniel Osafo- Badu og Friðrik Þórir Hjaltason skoruðu fyrir Vestra. Hákon Ingi Jónsson og Lúkas Logi Heimisson skoruðu fyrir Fjölni í 2:1 sigri á Aftureldingu í Grafarvogi en Andi Hoti minnkaði muninn fyrir Mos- fellinga. Guðmann Þórisson tryggði Kór- drengjum 1:0 sigur á botnliði Þróttar úr Vogum sem er enn aðeins með tvö stig og tvö mörk í tíu leikjum. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.