Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 10
Tökum fyrst saman beinharðar stað- reyndir um Eldborgina GK-13 sem smíðuð var í Slippstöðinni á Akureyri. Stærð: 557,00 brl. (Ný mæliregla 415,36 brl.) 45,54 m. x 8,60 m. x 6,50 m. Smíðaár: 1967. Nótaveiðiskip. Vél 980 ha. MAN. Líklega er rétt að undirstrika þessa vélategund þar sem í ritinu, Íslensk skip, er aðalvél Eldborgar GK-13 sögð vera 980 ha MWM vél sem er ekki rétt því að í skipið var sett 980 ha. MAN vél. Við þetta vann ég sjálfur og man vel. Skipið var smíðað sem nótaskip fyrir þá Gunnar Hermannsson og Þórð Helga- son og var í þeirra eigu til ársloka 1978. Skipið var tveggja þilfara og það fyrsta sinnar tegundar í íslenska flotanum. Því var hleypt af stokkunum 22. júlí 1967 og var fyrsta skipið sem alfarið var smíðað innandyra hjá Slippstöðinni hf. Gunnar var engin undantekning Það er þekkt meðal þeirra sem útgerð stunda að sumir telja að skipt geti sköp- um, varðandi veiðiárangur, á hvaða degi vertíð hefst. Svo eitraðir eru sumir dagar taldir að á þeim má ekki undir nokkrum kringumstæðum hefja vertíð. Gunnar Hermannsson, skipstjóri var þarna engin undantekning en frábrugð- inn flestum að því leyti að hann hafði trú á þeim dögum, sem aðrir forðuðust sem heitan eldinn. Því til staðfestingar er eftirfarandi saga látin fljóta með.  „Ekki verra“ Við prófun á veiðibúnaði skipsins kom í ljós að brot kom á slöngu síldardælu þar sem hún var tekin yfir rekkverk á efra þilfari skipsins. Sunnudaginn 12. sept- ember var unnið að lagfæringum á þess- um galla og reyndist verkið tafsamt og erfitt. Gunnar kom þar að hvar viðgerðar- maður bjástraði við verkið. Viðgerðar- maður bar fram afsakanir á því hversu illa gengi þrátt fyrir þokkalegt áframhald. Gunnar lét sér fátt um finnast og sagði: „Ekki liggur nú lífið á.“ Þessi viðbrögð þótti viðgerðarmanni í hæsta máta undarleg þar sem hann hafði vitneskju um að önnur skip voru að moka upp síld á Austfjarðarmiðum. Einnig vissi hann vel að Gunnar var þekktur fyrir allt annað en að liggja í landi þá aðrir voru að fiska. Viðgerðarmanni þótti svar Gunnars með miklum ólíkindum og þótti nú Bleik brugðið. Eftir að hafa velt þessu ofurlítið fyrir sér þá tók hann að gruna hvar fiskur lægi undir steini. Til að fá hugdettu sína staðfesta fór hann niður í borðsal þar sem Gunnar sat sallarólegur yfir kaffibolla.  „Ætlar þú að segja mér það, Gunnar, að þú sért að bíða eftir því að fara í þína fyrstu veiðiferð á nýju skipi á mánudegi og þar að auki 13. dag mánaðarins?“ Viðgerðarmaður mun ekki gleyma viðbrögðum og fasi Gunnars er hann svaraði hægt en ákveðið með eftirfarandi orðum: „Ekki þætti mér það verra, vinur minn.“ Fórst við Stigahlíð Frá árinu 1979 hét skipið Hafrún ÍS-400, og komið úr eigu þeirra sem létu smíða það, er það gekk á vit örlaga sinna. Það strandaði við utanverða Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi, nálægt Deildarhorni,   2. mars 1983 og brotnaði þar í spón. Ellefu manna áhöfn komst í land af sjálfsdáðum og bjargaðist. Þannig var að björgun staðið að tveir menn fóru í land á gúmmíbjörgunarbáti með línu sem aðrir skipverjar fóru eftir. Þyrlur sóttu skipbrotsmenn í fjöru og fluttu til Ísa- fjarðar. Árni Björn Árnason Gunnar skipstjóri og talan 13 Hafrún IS-400 að veiðum. Mynd: Rúnar Þórarinsson 10 – Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.