Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31
búddatrúar. Ef til vill hafa trúskiptin verið meir af hagsýni gerð en
af sannfæringu; í það minnsta er á grafhýsi Zhengs í Nanjing letrað
á arabísku „Allah er mikill“. Raunar er óvíst að Zheng sé þar
grafinn, öllu líklegra er að mannvirkið, sem nýlega var endurreist,
sé minnismerki um þennan merka mann og líki hans hafi verið
sökkt í haf.
Flotinn mikli
Undir stjórn Zhengs He kom kínverski flotinn víða við, og á mörg-
um stöðum oftar en einu sinni. Meðal annars kom hann til Tævan,
Jövu, Súmötru, Malakkaskaga, Sri Lanka, Indlands og Arabíu,
sigldi um Rauðahaf allt norður til Egyptalands og með austur-
strönd Afríku, trúlega suður að Góðrarvonarhöfða. Sem fyrr segir
kynntust Kínverjar hvarvetna högum heimamanna og færðu þeim
vitneskju um menningu sína.
Það var ekki nóg með að skip Kínverja væru stærri en skip
evrópskra sæfara; þau voru líka mun fleiri. Til dæmis er frá því
sagt, að í fyrsta leiðangrinum, árið 1405, hafi verið 27.800 menn á
317 skipum. Til samanburðar má nefna að Kólumbus sigldi til
Ameríku á þremur skipum með um 90 manna áhöfn, á fjórum
skipum Vascos da Gama lögðu til Indlands á stað um 160 menn,
og Magellan lagði upp í heimsreisuna með 165 menn á fimm
skipum.
Auk níu mastra stórskipa, sem flotaforinginn og aðrir foringjar
leiðangursins stýrðu, voru stór farmskip sem fluttu meðal annars
ýmsa verslunarvöru að heiman og heim, herflutningaskip og minni
herskip, árabátar til könnunarferða, birgðaskip með matvæli, svo
áhafnir þyrftu ekki að leggja sér til munns framandi mat, og vatns-
skip með mánaðarbirgðir af neysluvatni. Á stærstu skipunum voru
um þúsund menn – sjómenn, hermenn, læknar, matreiðslumenn,
túlkar, stjörnuspekingar, kaupmenn og helgir menn.
Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi
Sími 580 5800 • www.landvelar.is
Slönguhjól og kefli
Fjaður inndraganleg - plast, stál eða ryðfrí umgjörð
Ýmsar slönguútfærslur fyrir vatn, loft og olíur