Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 56
56 – Sjómannablaðið Víkingur
Minnisvarðinn á Bíldudal
Í seinasta tölublaði sagði Árni Björn Árnason frá siglingu sinni umhverfis
landið á Húna. Í greininni, á bls. 21, er í myndatexta minnst á minnismerki
helgað Pétri Brynjólfssyni. Þetta er ekki rétt og skrifast alfarið á bráðræði
ritstjóra vors og klaufaskap sem hann biðst afsökunar á. „Hér ræðir um
minnisvarða á Bíldudal er reistur var 1954 til minningar um átta sjómenn
sem fórust með seglskútunni Gyðu 10. apríl 1910,“ upplýsir Árni Björn og
heldur áfram:
„Mastrið af Gyðu kom upp árið 1953 með veiðarfærum Frigg BA og var
reist sem hluti minnisvarðans.
Árið 2003 var mastur Gyðu orðið lélegt og því endurnýjað með mastri
Katrínar BA sem úreld var árið 1973 og brennd í Fossafirði.
Mastur Katrínar hafði verið tekið úr skipinu og sett í geymslu áður en
skrokkur hennar var brenndur.
Mastrið er ellefu metra hátt, líkt og gamla mastrið af Gyðu.
Seglskipið Gyða var í eigu Péturs Thorsteinssonar athafnamanns á Bíldu-
dal og smíðuð þar undir stjórn Kristjáns Kristjánssonar skipasmiðs frá Ön-
undarfirði
Þegar Valur fórst
Í 2. tölublaði þessa árs er átakanleg frásögn stýrimannsins Ellerts Guðjóns-
sonar af því þegar Valur EA 110 fórst í apríl 1963. Á milli blaðsíðna 10 og
12 hefur fallið niður brot úr málsgrein er hljóðar svo:
„Og þótt að Esjan færi vel með sig og væri gott sjóskip þá valt hún tölu-
vert og nálægðin við landið var háskaleg. Tryggvi skipstjóri lét nú setja bak-
borðsvélina á fulla ferð afturábak en hina á fullt áfram í þeirri von að snúa
mætti skipinu.“
Fjölskylda Péturs; Sigríður Brynjólfsdóttir, Valgerður Brynjólfsdóttir, Bragi
Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir og Sigfríður Liljendal Angantýsdóttir.
www.hafkalk.is
Slakandi steinefnablanda
Náttúrulegt magnesíum og
kalkþörungar úr hafinu