Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Blaðsíða 26
26 – Sjómannablaðið Víkingur grömm af aspiríni engan skaða,“ svaraði Viðar um hæl. „Ég ætla að beita mér fyr- ir að töflurnar verði til um borð og það er ágætt að þið vitið af þessu. Aspirín bjargar mannslífum og galið að það skuli ekki vera í lyfjakistunni.“ * Næsti ræðumaður átti að vera Þor- steinn Sigurðsson, sviðsstjóri á nytja- stofnasviði Hafrannsóknastofnunar, er ætlaði að segja frá nýjustu rannsóknum á makrílstofninum. En Þorsteinn var fjarri góðu gamni og heyrðust raddir um að hann væri væntanlega við sprengju- æfingar í Kolgrafafirði. Það fékkst þó ekki staðfest. Í skarðið hljóp vinnufélagi hans, Guðmundur Óskarsson, og sagði meðal annars frá rannsóknum á makríln- um, eggjatalningu, merkingargögnum Norðmanna, stofnmati Alþjóðahafrann- sóknaráðsins og óáreiðanlegum afla- gögnum. Í ræðu Guðmundar kom fram að makríllinn væri aðallega í rauðátu. Síldin einnig en færi líka dýpra í ljósátu. Seiði virðast ekki oft á matseðli makrílsins. En hvenær skyldi þessi fiskur hafa skotið upp kollinum við Ísland. „Við miðum við 2006,“ svaraði Guðmundur. Eitthvað höfðu menn þó orðið varir við hann áður en ekkert sem orð er á gerandi. Niðurstaða Guðmundar var að Al- þjóðahafrannsóknaráðið væri alveg úti á túni í stofnmati sínu á makrílnum svo munaði milljónum tonna. Stofninn væri mun öflugri en ráðið teldi. „Við höfnuð- um því stofnmatinu og ákváðum að byggja ráðgjöfina frekar á meðaltalsafla síðustu þriggja ára, 890 þúsund tonn, því það eru engar vísbendingar um að veiðarnar hafi skaðað stofninn, nema síð- ur sé. Einnig eru allar vísitölur á uppleið og nýliðun er áfram góð,“ upplýsti Guð- mundur. * „Með tilliti til aldurs flestra sem hérna eru fengum við Árna Guðmundsson frá Gildi til að fræða okkur um það er senn tekur við hjá okkur,“ tilkynnti Guðjón þingforseti en eins og allir vita er Gildi lífeyrissjóður og Árni framkvæmdastjóri hans. Árni veitti gott yfirlit og benti mönn- um meðal annars á að nýta sér netið – sláið inn lifeyrisgattin.is og þar finnið þið yfirlit um áunnin lífeyrisréttindi ykk- ar í öllum samtryggingarsjóðum. * Var þá komið að skýrslu stjórnar og Árna Bjarnasyni, forseta vorum. Ræddi hann m.a. helstu niðurstöður Sátta- nefndarinnar svokölluðu og yfirlýsingar um að unnið væri að gerð frumvarps er byggði á hugmyndum þeim sem þar komu fram. Nefndi Árni þær helstu, svo sem að samið yrði um nýtingarrétt til 20 ára. Aflahlutdeildarfyrirkomulagið héldi velli með framseljanlegum aflaheimild- um. Samið yrði um hverja fisktegund fyrir sig. Alls 94,7% af árlega útgefnum kvóta yrði úthlutað samkvæmt aflahlut- deildarfyrirkomulaginu en 5,3% færu í línuívilnum, byggðakvóta, strandveiði og fleira. Síðan ætti að setja inn eitthvað til að hjálpa sveitarfélögum að halda afla- heimildum í heimaplássum. Þar væri rætt um tímabundinn forkaupsrétt sveit- arfélaganna. Einnig kom fram að í far- vatninu væri endurskoðun á uppboðs- mörkuðum. „Allt á þetta eftir að koma betur í ljós,“ sagði Árni, „og þá mun ef til vill skapast einhver grundvöllur til samninga en nú eru liðin þrjú ár frá því að síðasti kjarasamningur okkar rann út.“ * Næsti ræðumaður var Ægir Steinn Sveinþórsson og ræddi meðal annars Færeyjar-skráningu kaupskipaflotans. En í Færeyjum er tekjuskattur farmanna, 35%, endurgreiddur útgerðinni. Enn eru sjómenn ekki úrkula vonar um að snúa megi á Færeyingana – og aðra er stunda svipaða iðju – og samþykkti þingið áskorun á stjórnvöld um að endurreisa íslenska kaupskipaútgerð. „Það er ekki frjáls þjóð sem ekki ræður yfir kaup- skipaflota sínum“, segir orðrétt í áskor- uninni. * Var þá komið að Friðriki Höskulds- syni að segja frá reynslu sinni af störfum Gæslunnar við Miðjarðarhaf. Afar athygl- isverð frásögn af ákaflega bágu ástandi alltof margra jarðarbúa – sem Víkingur- inn ætlar að geyma ögn í von um ítar- legri umfjöllun. * Þingið sendi frá sér fjölmargar álykt- anir, meðal annars þá um kaupskipa- flotann, sem þegar er vikið að, um stjórnkerfi fiskveiða, um slysatryggingu sjómanna og sjómannaafsláttinn sem á næsta ári heyrir sögunni til. Allir taka undir með Sævari Gunnarssyni; hér er ekki aðeins um réttindamál að ræða heldur grundvallaratriði er snýr að viðhorfum samfélagsins til sjómanna og sjómennsku. Ummæli þingsins Nú er úr vöndu að ráða. Samkeppnin er meiri en venju- lega. Guðjón Ármann átti þessa: „Það kemur að þér, vertu róleg- ur.“ Sem Árni forseti jafnaði með: „Yfirmenn á þessum fiskvinnslu- skipum eru orðnir hálfgerðar skrif- stofublækur.“ Guðjón Ármann tefldi fram að bragði: „Viltu veðja?“ (Það skal tekið fram, til að forða misskiln- ingi, að Guðjón var ekki að svara Árna). Svo blandaði aðkomumaður sér í leikinn. Nefnilega Viðar Magnússon læknir sem kom með þessa ósk: „Nei, ég vil bara drusludúkkur.“ Er þetta pattstaða - eða er Viðar kannski sigurvegarinn með drusludúkkurnar sínar? Ég veit það ekki. Setjum nefnd í málið. Skal þá rifjað upp hið fornkveðna sem allir fundarstjórar ættu að hafa hugfast: Þegar skrattinn vildi að ekkert yrði aðhafst stofnaði hann hina fyrstu nefnd. Í lok þings – eða svona hér um bil – kvaddi forseti vor með slaghörpuleik. Jóhann Ingi Grétarsson mættur til Marel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.